Dagur - 09.04.1999, Page 4

Dagur - 09.04.1999, Page 4
4 -FÖ STUDAGUR 9. APRÍL 1999 FRÉTTIR Vinnubrögðiun vegna bæjarstjóra- ráðningar mótmælt Fulltrúar Olafsfjarðarlistans í minnihluta bæjarstjórnar Olafsfjarðar mótmæltu á fundi bæjarstjórnar Olafslj'arðar 30. mars sl. vinnu- brögðum meirihlutans við ráðningu í starf bæjarstjóra í Ólafsfirði, en þar var einn fulltrúi meirihlutans, Asgeir Logi Asgeirsson, ráðinn. Réttur mánuður sé Iiðinn síðan umsóknarfrestur rann út og allan þann tíma hafi minnihlutinn ítrekað óskað eftir fundi um málið með öllum bæjarfulltrúum til að fjalla um umsóknir og einhverja þeirra sex umsækjenda til að geta valið hæfasta umsækjandann í þetta vandasama starf. Bæjarfélagið þurfi á hæfum manni að halda og einnig að víðtæk sátt ríki um þann aðila sem taki starfið að sér. Minnihlutinn fordæmir vinnubrögð meirihlutans í þessu máli og tel- ur að ekki hafí verið unnið með hag bæjarfélagsins í huga. Asgeir Logi var ráðinn með atkvæðum Gunnars Reynis Kristinssonar, Önnu Marfu Elíasdóttur, Jónu Arnórsdóttur, Astu Sigurfinnsdóttur og Helga Jónssonar en Guðbjörn Arngrímsson og Svanfríður Halldórs- dóttir sátu hjá. Ábyrgð á reikningi Félags eldri borgara Á fundi bæjarráðs var lagt fram bréf frá Sparisjóði Ólafsfjarðar þar sem bent er á að Ólafsíjarðarbær er í ábyrgð fyrir skuld á reikningi Félags eldri borgara. Sparisjóður Ólafsfjaröar hefur einnig óskað eft- ir endurskoðun álagningar sorpgjalds hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar. Styrkbeiðni Tónskóla Ólafsfjarðar um að senda tvo kennara á heims- ráðstefnu í Suzuki-aðferðinni í Japan var vísað til skólanefndar. Bætt norræn samskipti í bréfí frá Norræna félaginu í Karlskrona/Ronneby til bæjarráðs Ólafsfjarðar er lögð áhersla á að gagnagrunnur um fulltrúa sem koma að vinabæjarsamskiptum verði uppfærður eins fljótt og verða má þegar breytingar verða á honum. Leikskólanefnd mótmælir innritnn arreglum Leikskólanefnd hefur mótmælt harðlega samþykkt bæjarstjórnar frá 5. nóvember 1998 þar sem innritunarreglum fyrir leikskólann er breytt án vitundar nefndarinnar. Það er álit nefndarinnar að leikskól- inn eigi að vera opin börnum frá 1-6 ára en það skal tekið fram að undanfarin fimm ár hafa börn frá 1 árs aldri verið innrituð í leikskól- ann. Ennfremur óskar nefndin eftir því að allar ákvarðanir bæjar- stjórnar hvað varðar leikskólann verði sendar leikskólastjóra og for- manni nefndarinnar. Ánægja með kaffi og með því Erindisbréf landbúnaðarnefndar var kynnt á fundi nefndarinnar ný- verið og lýstu nefndarmenn yfír ánægju með að hlutverk nefndarinn- ar lægi Ijóst fyrir. Það felst m.a. í eyðingu refa, minka og vargfugls og tilnefningar búljáreftirlitsmanns. Fleira var ekki gert samkvæmt fundargerð en ástæða þótti að bóka að ekki hafi verið fleira tekið fyr- ir nema ef vera skyldi kaffí og með því. - GG Ævintýrabókin á Akureyri Leikklúbburinn Saga á Akur- eyri sem varð að hætta við að sýna Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson eftir að nafa æft verkið í nokkrar vikur iætur ekki deigan síga, Leikklúbburinn, sem eingöngu ar sldpaður ungu fólki, æfir nú á fullu barnaleikritið Ævintýra- bókina eftir Pétur Eggerz og stefnt er að frumsýningu 1. maí. Leikklúbburinn féklv ný- iega 200.000 króna framlag frá menningarmálanefnd Akureyr- ar en einnig er vonast eftir framlagi frá íþrótta- og tóm- stundaráði. Mestur hluti kostnaðarins er laun leikstjóra en allt ann- að starf er unnið í sjálihoðavinnu og afnot af Kompaníinu til æfinga og sýninga er hópnum að kostnaðarlausu. Ævintýrabókin er að sögn bráðskemmtilegt leikrit en Möguleikhúsið hefur sýnt þetta verk með- al annarra. Tíu leikarar leika í sýningunni en hátt í tuttugu ung- menni taka þátt í starfinu á einn eða annan hátt. - III Þessi mynd var tekin þegar æfingar á Skilaboðaslyóðunni stóðuyfir. Hópurinn sem nú æfir Ævintýrabókina er að mestu sá sami. mynd: brink SDMjfiT Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri Siifursjörnunnar segir að menn væru ekki að fara út í björgunaraðgerðirnar nú, ef rekstrargrundvöllur væri ekki fyrir hendi. Fiskeldið höggvið nærri Byggðastofnun Silfuxstjaman í Öxar- firði er eina stóra fiskeldisfyrirtækið sem ekki hefur farið í nauðasamninga og gjaldþrot. Hundruð- um miUjóna varið nú í hjörgunaraðgerðir. Tap Byggðastofnunar á fiskeldis- fyrirtækjum nemur í heildina á annan milljarð. Talið er að sam- keppnisstaða landfiskeldis sé ekki nægilega góð til að keppa t.d. við norska strandeldið. Mikil bjartsýni ríkti þegar Islendingar tóku fyrstu skref í fiskeldinu og er skemmst að minnast uppslátta í dagblöðum um allt að 800 króna kílóverð á eldisafurðum. Raunveruleikinn hefur orðið all- ur annar og verið þjóðinni kostn- aðarsamur. Mikil þekking hefur á hinn bóginn áunnist sem talin er nýtast í framtíðinni. Stórfelldar afskriftir Byggðastofnun á um 47% eignar- hlut í Silfurstjörnunni. Guð- mundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, segir að rætt sé um að færa heildarhlutafé Silfur- stjörnunnar niður um 90%. Það séu um 100 milljónir og jafn- framt er áætlað að Byggðastofn- j un læ’kki kröfur sínar um 60% én j þær nema um 230 milljónum. Þá i er rætt um að lánasjóður sá er I Byggðastofnun sér um fyrir land- búnaðarráðuneytið í tengslum við fískeldi lækki sínar kröfur um 70%. Það fé er 50-60 milljónir og einnig er búið að semja við aðra kröfuhafa um að þeir lækki sínar kröfur um 50%. Þá er reiknað með að hlutafé verði alls aukið um 40 milljónir. Veik samkeppnisstaöa „Silfurstjarnan hefur aldrei farið í gjaldþrot eða nauðasamninga, en það hafa öll hin stóru eldisfýr- irtækin gengið í gegnum," segir Guðmundur Malmquist og segja þau orð allt sem segja þarf um sögu fískeldisins á Islandi. Guð- mundur segir samkeppnisstöðu landeldis veika miðað við strand- eldið, þar sem kjöraðstæður eru t.d. í Noregi. Silfurstjarnan greiddi t.d. um 12 milljónir fyrir rafmagn í fyrra, en forstjóri Byggðastofnunar bendir á í fjörð- um Noregs séu engir rafmagns- reikningar greiddir. Verðiö hrundi Guðmundur bendir á að Islend- ingar hafi orðið að fylgjast með hræringum í kringum sig og reynslan af fískeldinu sé mikils virði. En er þó ekki ljóst að stjórn- unarleg mistök hafí verið gerð þar sem almannafé sem runnið hefur í gegnum Byggðastofnun hefur orðið að engu í gjaldþrota fyrir- tækjum? Sem dæmi má nefna að fyrir nokkrum árum fékk Byggða- stofnun aukaframlag frá ríkissjóði upp á 1200 milljónir. Þessu svarar Guðmundur á þann veg að á tíma áætlanagerð- ar hafi tölur sagt að 700-800 kr. fengjust fyrir kílóið en nú fari verðið niður í 200 krónur. Fram- leiðslan hafi hins vegar verið stöðug á undanförnum árum og það sé engin spurning í hans huga að eftir endurskipulagn- ingu eigi fiskeldi að geta gengið. Silfurstjarnan hafi líka skipt sköpum fyrir byggðarlagið. Þar hafí verið greiddar milli 40 og 50 milljónir í laun að undanförnu og Guðmundur vill einnig taka fram að Byggðastofnun hafí ekki veitt peningum nýlega til Silfur- stjörnunnar. „Síðast mun íyrir- tækið hafa fengið fé frá okkur árið 1991 og þá í formi styrks," segir Guðmundur. Röng fjárfesting og sjúkdóiiiur Áföll Silfurstjörnunnar að und- anförnu eru m.a. sjúkdómur sem upp kom í stöðinni árið 1997 sem og röng fjárfesting í reyk- ingu á laxi. Þar var um að ræða samstarfsverkefni við KEA. Framkvæmdastjóri Silfurstjörn- unnar, Benedikt Kristjánsson, segir að menn væru ekki að fara út í björgunaraðgerðirnar nú, ef rekstrargrundvöilur væri ekki fyr- ir hendi. T.a.m. hefði fóðurverð nú Iækkað en það hækkaði um 20% fyrir tveimur árum samhliða því að afurðirnar stóðu í stað. Um 25 stöðugildi eru hjá Silfur- stjörnunnni og er fyrirtækið þvf einn stærsti atvinnurekandinn í héraðinu. - bþ I Hétiin vegna „kynningar66 á urskurði Samkeppnisstofnun hefur gert at- hugasemd við auglýsingu frá Eð- alvörum ehf., umboðsaðila Rauðs ( Eðal Ginsengs, þar sem fyrirtæk- ið kynnti úrskurð Samkeppnis- ráðs um að fyrirtækinu væri bannað að nota orðin „varist eftir- iíkingar" í auglýsingum sínum. Forstjóri Eðalvara hefur kvartað undan því hversu skamman tíma hann fékk til að skila athuga- semdum. Eðalvörur auglýstu í Morgun- blaðinu undir yfirskriftinni „Sam- keppnisráð hefur bannað Eðal- vörum ehf. að vara við eftirlíking- um af þessari vöru... þess vegna verður það ekki gert að svo stöddu". Samkeppnisráð úrskurð- aði nýverið að lýrirtækinu væri hannað að nota orðin „varist eftir- líkingar" og í bréfi Samkeppnis- stofnunar 7. apríl segir að Sam- keppnisstofnun fái ekki betur séð en umræddar auglýsingar fari gegn ákvörðun Samkeppnisráðs. Var Eðalvörum gefínn frestur til kl. 13 næsta dag að gera athuga- semd við þá túlkun. Einnig er bent á að brotið geti varðað „fé- sektum, varðhaldi og fangelsi“. í svarbréfi Eðalvara bendir Sig- urður Þórðarson framkvæmda- stjóri á að ætlunin með auglýsing- unni hafi eingöngu verið að kynna niðurstöðu Samkeppnis- ráðs fyrir almenningi og boðað að þeirri niðurstöðu verði áfrýjað. - FÞG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.