Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 9

Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 9
lögu um sveigjanlegan starfsaldur. Sú tillaga fór fyrir Alþingi og þingið samþykkti þingsályktunartillögu, sem borin var fram af þingmönnum allra flokka um að þetta yrði tekið til athugunar. Síðan var skipuð nefnd í málið. Nefndin hélt einn fund og síðan ekki söguna meir. SöguIok,“ sagði Ólafur Ólafsson, fyrrverandi Iandlæknir og núverandi formaður Samtaka aldraðra í Reykjavík. Hann segir að upphaf þess að far- ið var að miða starfslok við ákveðinn aldur megi rekja til þess þegar Otto von Bismarck fór að hugsa um upp- gjafa hermennina sína fyrir meira en hundrað árum. Hann mun hafa lagt til að eftirlaunaaldur yrði mið- aður við 67 ára en niðurstaðan varð sú að miðað var við sjötugt og þannig varð það í Þýskalandi þar til 1916 að hann var lækkaður niður í 67 ár. Ólafur var spurður hvort samtök hans muni taka upp baráttu fyrir sveigjanlegum starfslokum og kvað hann svo vera. „Eg veit ekld betur en að menn styðji það almennt að hafa sveigjan- Ieg starfslok eins og lagt var til 1991 og eins fundar nefndin góða var stofnuð um. Þar var lagt til að starfslok gætu verið frá 64ra ára aldri til 75 ára aldurs. Þessu hefur landslæknisembættið haldið fram í tæp tíu ár,“ segir Ólafur Ólafsson. Fundarfólk í Tónlistarhúsi Kópavogs hlýðir á rædu forsetans. Fnunkraftur lifir ævina á enda Ræða forseta íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, um aldr- aða á alþjóða heil- hrigðisdeginum. Milli fyrirsagnir eru blaðsins. Eldri borgarar er að mörgu leyti undarlegt orðtak; nýlegt, kannski tískufyrirbæri sem við notum iðulega og höldum að merkingin sé skýr. Við getum spurt: Fellst í því dómur um ákveðna hegðun, athæfi eða lífsstíl? Er það ávísun á brotthvarf úr önn hversdagsins, iðjuleysi og rólegt líf? Eða er það þægileg formúla sem þjóðfélags- þróunin hefur smátt og smátt smíðað til að rýma til á vinnu- markaði og skapa reglur og siði sem henta hinum yngri? Hvað er aldur eða öldrun? Er það einhver ákveðin vegamót, þáttaskil á lífshlaupinu þar sem tilkynnt er með tilstuðlan Iag- anna að nú sé ævistarfið orðið nokkuð gott, best fyrir alla að hætta á sama tímapunkti, telja svo sjálfum sér og öðrum trú um að upp frá því sé hvorki hægt að skapa nokkuð nýtt né vera til gagns og sætta sig við að vera samkvæmt opinberum skilgrein- ingum bara byrði, byrði á lífeyris- sjóðunum, byrði á Trygginga- stofnun, byrði á ríkiskassanum? Hvernig í ósköpunum höfum við og aðrar vestrænar þjóðir náð að koma þessari firru í skipulagt lagakerfi og þar með gefa út leið- arvísi sem færir okkur frá frjóum akri og út í botnlausa mýri? Kraftur til áhrifa Hvaðan er sú speki að sköpunar- krafturinn falli í dá um Ieið og tekið er við fyrstu eftirlauna- greiðslunni? Hvers vegna afsalar samfélagið sér þeim auðæfum sem felast í nýsköpunargetu og framfarasókn þeirra sem komnir eru á efri ár? Dæmin eru samt óteljandi um að frumkraftur til nýrra verka lif- ir ævina nánast á enda, kraftur til nýrra uppgötvana, nýrrar Iist- sköpunar, nýrra hugmynda, nýrra framkvæmda, kraftur til áhrifa á sjálfa sögu mannkyns með mótun örlagríkra atburða og nýrri heimssýn. Á fyrsta ári mínu við háskól- ann í Bretlandi hlýddi ég á heim- spekinginn Bertran Russell, þá rúmlega níræðan halda fyrirlest- ur í troðfullum 2000 manna sal; blaðalaus og í nærri tvo tíma stóð hann einn á sviðinu og snilldin og stílbrögðin voru slík að hægt hefði verið að skrá fyrirlesturinn orðréttan og búa til birtingar án nokkurra breytinga. Og eru þau ekki mörg glæsisöfn heimsborg- anna sem draga til sín hundruð þúsunda ef ekki milljónir manna á hverju ári til að skoða málverk- in sem Picasso og aðrir höfuð- snillingar aldarinnar máluðu á því skeiði ævinnar sem reglu- gerðir svokallaðra þróaðra sam- félaga hafa úrskurðað að eigi að einkennast af verklokum og iðju- Ieysi. Var ekki Winston Churchill lögformlegt gamalmenni þegar hann leiddi lýðræðisríki veraldar til sigurs í hatrammri styrjöld gegn glæpaveldi Hitlers? Var ekki Ronald Reagan venjulegur ellilíf- eyrisþegi þegar hann sigraði í forsetakosningunum í Bandaríkj- unum og var svo endurkosinn með glæsibrag kominn væna leið að áttræðu? Ætli Einstein hafi hætt að hugsa þegar hárið tók að grána? Ágóði og ánægja Væri ekki viturlegra að leita nú leiða sem færa munu samfélagi, atvinnulífi, menningu og vísind- um ágóða og ánægju af sköpunar- verkum hinna eldri og hætta að úrskurða nær alla úr leik á þeim vettvangi um leið og ákveðnu ald- ursmarld er náð? Við heyrum hér í dag texta tveggja aldraðra fræðimanna, Jónasar Kristjánssonar og Páls Bergþórssonar, sem báðir hafa varið hinni svokölluðu elli til að skrifa bækur sem umbylt hafa hugsun okkar um forna tíma. Flutningur Gunnars Eyjólfssonar verður örugglega innblásinn þeir- ri snilli sem einkennt hefur hver- ja persónusköpun hans á fætur annarri í Þjóðleikhúsinu á undan- förnum árum. Væri ég spurður hvort Gunnar sé betri nú sem ellilífeyrisþegi á sviði Þjóðleik- hússins eða þegar ég ungur sá hann skapa Hamlet og Pétur Gaut þá finnst mér hann reyndar snjallari nú en nokkru sinni fýrr þótt reglugerðin segi að hann ætti nú bara að vera hættur þessu stússi. Og málverkin hans Kristjáns Davíðssonar; aldraður hefur hann að undanförnu verði að skapa slíka töfralist Iitanna að verk hans frá síðustu misserum eru nú þegar talin til hins allra besta sem Islandi hefur verið gefið á þessari öld - og eru reynd- ar líka talin til afreksverka í evr- ópskri málaralist. Hver ætlar sér svo þá dul að afþakka tónverk nafnanna Nordal og Þórarins- sonar og Jórunnar Viðar þótt þau séu að ögra aldursmörkum laga- bálkanna um verkalokin? Eða rífa upp með rótum skógarlund- ina sem Leó og aðrir áhugasamir og sívirkir öldungar hafa ræktað með elju og alúð? Eða strika yfir framlag aldraðs athafnafólks, bænda, verkamanna og sjó- manna sem þrátt fyrir ákvæði reglugerðanna eru enn að skapa sóknarfæri í atvinnulífi og á vinnumarkaði. Ólgandi sköpunarkraftur Það er fagnaðarefni að á alþjóða heilbrigðisdeginum sem helgað- ur er málefnum aldraðra skuli hafa verið efnt til þessa mann- fagnaðar og skilaboðin gerð skýr: Að hinir öldruðu búa yfir ólgandi nýsköpunarkrafti sem við eigum að fagna og virkja og gera síðan lög og reglugerðir þannig úr garði að þessi fjársjóður nýtist þjóðfélagi okkar, menningu, mannlífi og framförum til hins ýtrasta. I bréfi sem mér barst nýlega frá hinum nýja framkvæmda- stjóra Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráð- herra Noregs, hvatti hún til nýrr- ar hugsunar í þessum efnum og óskaði eftir því að forseti íslands legði, ásamt öðrum þjóðhöfðingj- um, þeim breytingum lið. Það verður mér sérstök ánægja að lýsa í svarbréfi mínu þeirri hug- myndaauðgi sem endurspeglast í dagskrá samkomunnar hér í dag og flytja Gro Harlem árnaðarósk- ir frá ykkur öllum og hvatningu til hennar um að halda áfram á þeirri braut að skapa um veröld \íða nýjan skilning á málefnum aldraðra. Eg þakka fyrir að fá að vera með ykkur hér í dag og óska ykk- ur farsældar og árangurs um alla framtíð. Lil.it uúiiijaiiritijLiiiiiir.iLi ínÍD InllnBirl fiöl h i~B illtnlril ,11 LEIKFÉLA6 AKUREYRAR Föstud. 9. apríl kl. 20 Laugard. 10. apríl kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS Föstud. 16. apríl kl. 20 Laugard. 17. apríl kl. 20 I kbit F,rI» Yfir 10.000 áhorfendur hafa séð þetta frábæra fjölskylduleik- rit um einelti og fordóma og nú, loksins, komum við norður. Laugard. 17.04. kl. 12.00 og 15.30 Sunnud. 18.04. kl. 12.00 og 15.30 Skólasýningar: Mánud. 19.04. kl. 09.00, 11.30 og 14.00 ATH. Aðeins þessi eina sýningarhelgi! Miðaverð 1.500 fyrir börn 1.800 fyrir fullorðna. Georgsfélagar fá 30% afslátt [LiI tjúi»al?3iULlli>iÍTJlJ Iblrilnli'niflI^Íinl.ilf ?BJcBí;rBfl ILEIKFELA6 AKUREYRAR Miðasala: 462-1400 Miðasalan er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 13-17 og fram að sýningu sýningardaga.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.