Dagur - 13.04.1999, Blaðsíða 1
Geng í fötum - ekki merkjum
Hún vill ekki okra,
launin hennareru
ánægjan. Hún sel-
urföt, húsgögn,
skrautmuni, skart-
gripi, myndirog
málverk.
Fatasqfnið. Allar tegundir af
fatnaði, til dæmis leðurfatn-
aði, skmutmunir úr listgleri,
fótstigin saumavél, eikarstofu-
borð og fjórir stólar. Handa-
vinna (unnin), skurtgripir -
gull, silfur, perlur og semeliu-
steinar. Bólstraðir skmutkass-
ar. Málverk og ýmsir munir,
gamlir og nýir, og alla vega
drasl. Upplýsingar i síma 462
2261. Ingibjörg.
Þannig auglýsir Ingibjörg
Tryggvadóttir sem býr í
Hafnarstrætinu á Akureyri.
Fyrir um Ijörutíu og fimm
árum hóf hún að safna föt-
um, alls kyns fallegum flík-
um, glæsikjólum, höttum og
mörgu öðru. En hvers vegna
byijaði hún að safna?
IJIlm stakk
„Upphafið að þessu er
sennilega það að ég átti
heima í torfbæ til tíu ára aldurs,"
segir Ingibjörg. „Þá var allt úr ull.
Hún stakk mig og mér var of-
boðslega illa við hana. Maður var
í prjónasokkum, pijónaskyrtum,
prjónanærbuxum, prjónakjól og
prjónapeysu. Eg vissi að það voru
til falleg föt en ég hef ekki hug-
mynd um hvaðan ég hef haft þær
hugmyndir. Strax þegar ég fór að
heiman og fór að vinna fyrir mér
lagði ég mikið í að eignast falleg
föt, bæði til að nota og eins ef
var að ég var beðin um að
taka dánarbú til að selja.
Forsendan fýrir því að ég
gerði það er trjáreitur
frammi í Eyjafjarðarbotni
í eigu systranna frá
Torfufelli. Þar er stór og
veglegur skógarreitur og
verið að girða og koma
upp sumarbústað þar,“
segir Ingibjörg. Hún tek-
ur rétt svona fyrir auglýs-
ingakostnaðinum en læt-
ur ágóðann annars renna
í þessa skógrækt. „Ég
leigði mér herbergi hérna
á neðri hæðinni og fyllti
það. En þetta hefur breitt
úr sér og ég er komin
með þetta hérna inn á
hæðina hjá mér líka. Síð-
an hefur þetta hlaðið
svolítið utan á sig. Eg
auglýsti einu sinni að
þetta væri eitt tonn af
fötum en sennilega væri
nær lagi að þetta séu tvö
tonn.“ Ingibjörg segir
mest gaman við þessa
iðju hve allir fara ánægð-
ir eftir að hafa komið til
hennar. Sérstaklega seg-
ist hún ánægð með hve
mikið af ungu fólki kaup-
ir hjá henni falleg föt og
muni.
- Ertu mikið í því að
leita sjálf uppi muni eða
föt?
„Eg var það, ég var um allt,
uppi á öllum háaloftum og alls-
staðar þegar ég var með æðið.
En sextíu og fjögurra ára gömul
kona verður að fara að stilla
sig.“
- Eitthvað þarft þú sjálf að hafa
fyrir þinn snúð?
„Veistu það, ég hef bara haft
ánægjuna fram að þessu. Ég vinn
bara fyrir mér á öðrum stað. Ég
er þjónn í Smiðjunni,“ segir Ingi-
björg Tryggvadóttir. - H1
Ingibjörg Tryggvadóttlr er ekki mikið fyrir að trana sér fram. „Ef ég fæ að skýla mér á bak við kjóiana, “ sagði hún þegar hún féllst á
myndatöku. Ingibjörg skartar forláta hatti og heldur á tveimur kjólum. mynd: brink
fötin voru falleg. Það skipti í
rauninni ekki máli þó ég notaði
þau ekkert, ég hafði gaman af að
eiga þau og horfa á þau. Ég á
marga kjóla sem ég hef aldrei
komið í. Ég safnaði bara fötum.
Ég lærði ekki á bíl og drakk ekki
vín en það fór allt í föt. Ég hikst-
aði ekki á því þegar ég var tvítug
að láta rúm mánaðarlaun fyrir
flík í Bárubúð í Reykjavík ef mér
þótti flíkin falleg. Svo var vin-
kona mín sem var alveg sama
sinnis og hún safnaði líka fötum.
Við slógum þessu saman og fór-
um að setja niður í kassa en
höfðum alltaf jafngaman af að
taka þetta upp og skoða.“
- Spáðirðu mikið í gæðin þegar
þú keyptir þér flíkur?
„Ég horfi ekki á merkin heldur
skoða flíkurnar. Ef þetta eru ein-
hver dýrindis merki þá eru aðrir
sem sjá það en ekki ég. Ég fer
bara eftir því hvernig er að koma
við flíkurnar. Ég klippi merkin af
fötunum því ég geng í fötunum
en ekki merkjunum."
Tvö torai af fötum
Þegar ákveðið var að safna fötum
fyrir Kúrda gáfu þær úr safninu
sinu allt sem heita mátti utanyf-
irflíkur. „Allt sem hét skjólföt lét-
um við fara þá, úlpur, pelsa,
peysur og fleira,“ segir Ingibjörg.
Fyrir rúmu ári ákvað hún að
reyna að losa sig við eitthvað
meira úr safninu og hóf að koma
fatasafninu sínu á framfæri.
„Upphafið að því að ég fór í að
koma þessu fatasafni á framfæri
Magnari: 2 x 100W RMS • Utvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing
RDS • Þriggja diska spilari • Hátalarar þrískiptir: 100W -16 sm bassi
3 ára ábyrgð
hljómtaekl sklpta máll
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing
RDS • Þriggja diska spilari • Hátalarar þrískiptir: 100W -17 sm bassi
Power Bass