Dagur - 13.04.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 13.04.1999, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGU R 13. APRÍL 19 99 - 21 T>Mptr LÍFIÐ í LANDINU Ragnheiður ogRúnar Gefin voru saman í Akureyrar- kirkju þann 20. júní á sl. ári, af sr. Svavari Alfreð Jónssyni, þau Ragnheiður Jakobsdóttur og Rúnar Hermannsson. Heimili þeirra er á Akureyri. (Mynd: Þór Gísla, Akureyri.) Hún frá Akureyri en hann er frá Aserbædjan, Unnur Lovísa Steinþórsdóttir og Zakir Gasanov. (Ljósm.: Norðurmynd - Ásgrímur.J „Ég er héðan frá Akureyri en Zakir er frá Aserbædjan," segir Unnur Lovísa Steinþórsdóttir á Akureyri. Þann 26. september á sl. ári gaf sr. Svavar Alfreð Jóns- son þau Unni og Zakir saman í Akureyrarkirkju og eftir annars vel heppnað brúðkaup var veisla haldin á Fiðlaranum, en frá kirkju til veitingahúss var þeim hjónum ekið í rauðum Chervo- Iet Impala, árgerð 1965, sem faðir brúðarinnar gerði upp. Brúðkaupsnóttinni sælu eyddu hin nýbökuðu hjón í sum- arhúsi í Vaðlaheiði, sem vinkona Unnar hafði skreytt allt hátt og lágt með rósablöðum, kertaljós- um, kampavíni og fleiru. „Haustlitirnir í Vaðlaheiðinni voru einkar fallegir þegar við vorum þarna á ferð,“ segir Unn- ur og bætir því við að þau hjónin kunni vel við sig á Akureyri. „Ég er héðan úr bænum, á hér allt mitt fólk og vini og hér líður okkur mjög vel. Þó Zakir sé vissulega langt að kominn hefur hann mig hér. Við erum búin að vera saman í eitt ár, en við kynntumst fyrstu dagana eftir að Zakir kom hingað til að vinna hér við fiskvinnslu. I dag starfar hann við höfnina hér á Akureyri og er lausamaður við löndun úr skipum,“ segir Unnur, sem er sjúkraliði við Hlíð - dvalarheim- ili aldraðra. „Brúðkaupsferðalagið erum við enn ekki búin að fara í, ætl- um kannski suður til Reykjavík- ur í næsta mánuði en telst varla brúðkaupsferð,“ segir Unnur. SBS. Hann hefur mlg Þór og Elísabet Inga Gefin voru saman í Saurbæjar- kirkju þann 3. júní á sl. ári, af sr. Hannesi Erni Blandon, þau Elísabet Inga Ásgrímsdóttir og Þór Jóhannsson. Heimili þeirra er á Krcnustöðum í Eyjafjarðar- sveit. (Ljósm.: Norðurmynd - Ásgrímur.) Hairna Bima og Jóhannes Gefin voru saman í Akureyrar- kirkju þann 25. júlí á sl. ári, Svavari Alfreð Jónssyni, þau Hanna Birna Sigurbjörnsdóttir og Jóhannes Ellingssen. Heimili þeirra er að Nesbala 126 á Sel- tjarnarnesi. (Ljósm.: Norður- mynd - Ásgrímur.) Um fataviðgerðir SVOJMA ER LIFIÐ Pjetur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pjetur svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: rits(jori@dagur.is Sumu fólki þykir afar vænt um fötin sín. Það myndast eitthvað afar sérstakt tilfinningasamband milli manns og fatanna sem hann klæðist dags daglega, yfir húð sfna, til að hylja nekt sína og til að vemda sig gegn kulda. Það er hins vegar kunnara að föt slitna með aldrinum, yfirhafnir trosna upp og það koma saumsprettur á ótrúlegustu stöðum. Sumt fólk hefur gaman af saumaskap. Aðrir eru með svo- kallaða saumvélafælni. Hafa aldrei snert saumavél á ævi sinni og geta ekki hugsað sér að snerta á þessum leyndardómsfullu vélum. Þetta fólk er kannski hrætt við að stinga sig á nálum og fá blóðeitrun eða eitthvað þaðan af verra. Það kom til mín kona á dögunum sem var alveg í öngum sínum. Hún sagði mér að hún ætti svo fallega kápu sem væri farin að trosna pínulítið við faldinn. Þessi kona vildi fá að vita hvað hún ætti að gera. I bænum eru starfandi saumastofur sem taka að sér að gera við flíkur fyrir fólk. Saumakona hjá saumastofunni Artemis sagði mér að það færi eftir eðli viðgerðana hversu langan tíma þær taki og hversu mikið kosti að gera við flíkur. Það færi einnig eftir því hvernig verkefni væru þar í gangi hverju sinni hvort hægt væri að skjóta flíkinni þar inn, en oftast tækju svona viðgerðir frekar fljótt af. I þessum tilfellum þarf oft að meta hvað flíkin hafi kostað í upphafi og hvað sambærilegar flíkur kosti áður en tekin er ákvörðun um það hvort borgi sig að gera við flíkina. Sauma- konan sagist vita til þess að maður hafi komið þar á stofuna með jakka sem ermarnar voru að detta af, hann hafi gengið í þessum jakka í 10 ár og ekki getað hugsað sér að láta hann frá sér. Þessi maður var hinn hamingjusamasti þegar hann fékk jakkann sinn úr viðgerð. ■ HVAD ER Á SEYÐI? SVEINN EINARSON í ALLIANCE FRANCAISE Miðvikudaginn 14. apríl kl. 20.30 heldur Sveinn Einarsson fyrirlestur um Fedru eftir Jean Racine, franskan 17. aldar rithöfund. Fyrirlesturinn nefnist „Að setja upp Fedru á Islandi“ og er í tilefni uppsetningar Þjóðleik- hússins á Fedru í haust. Sveinn er sér- fræðingur í frönskum leikbókmennt- um. Hann var nemandi Jacques Scher- er í Sorbonne háskólanum í París. Hann hefur þýtt og leikstýrt leikverk- um eftir Moliére en núna er hann að undirbúa sýningu á Fedru eftir Racine. Fyrirlesturinn er haldin í húsakynnum Alliance Francaise, Austurstræti 3, og er öllum opin sem áhuga hafa. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Kórtónleikar í Salnum Karlakórinn Stefnir verður með tónleika í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs í kvöld kl. 20.30. Stjórnandi er Lárus Sveinsson, undirleikari er Sigurður Marteinsson. Á efnisskrá eru m.a. hefðbundin íslensk karlakórverk, bæði gömul og ný, syrpa úr Leðurblökunni eftir Strauss og aría Sarastrós úr Töfraflautunni eftir Mozart. Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ Handavinna í umsjón Kristínar Hjalta- dóttur, perlusaumur og fl. kl. 9.00. Skák kl. 13.00. Kaffistofan er opin frá kl. 10.00 til 13.00. Þar getur fólk komið og lesið dagblöðin eða bara til þess að spjalla. Matur í hádeginu. Allir velkomn- ir. Snæfellsferð 14. til 16. maí, upplýs- ingar á skrifstofu. Félag eldri borgara Þorraseli Opið í Þorraseli, Þorragötu 3 í dag. Leik- fimi kl. 12.20. Handavinna, perlusaumur o.fl. kl. 13.30. Spilað alkort kl. 13.30. Kaffi og pönnukökur með rjóma kl. 15.00 til 16.00. Allir velkomnir. Waldorf-fyrirlestur í Ráðhúsinu í kvöld kl. 20.00 heldur Ulrik Hofsöe fyr- irlestur í Ráðhúsi Reykjavíkur um Waldorfuppeldisfræði og þann andlega bakgrunn sem hún hvílir á. Fyrirlesturinn nefnir Ulrik: „Waklorípedagogikens manniskobild." í þessum fyrirlestri fjallar Ulrik um þá sýn á manneskjum sem Waldorfuppeldisfræðin hefur um þroska barna. Fyrirlesturinn er liður í sýning- unni „Hugur, hjarta og hönd“ sem nú stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fyrir- lesturinn er fluttur á skandinavísku og er öllum opinn. LANDIÐ Tónlist fyrir alla í Ólafsvíkurkirkju Gunnar Kvaran, sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir, píanóleikari hafa verið á ferð um Dali og Snæfellsnes. Heimsótt skóla og haldið almenna tónleika. I kvöld verða þau með tónleika í Ólafsvíkur- kirkju. Á efnisskrá kvöldsins eru sónötur fyrir selló og píanó, nr. 5 í e-moll eftir Vivaldi og op. 38 í e-moll eftir Brahms, Fantasiestucke op 73 eftir Schumann auk vel þekktra smáverka fyrir selló og pí- anó s.s. Ave Maria eftir Bach-Gounod, Svanurinn eftir Saint-Saéns og Vacalise eftir Rachmaninoff.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.