Dagur - 16.04.1999, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
LÍFIÐ í LANDINU
ÞAÐ ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlar þú að
gera?
Guðfinna S.
Bjarnadóttir ætlar að
eyða helginni i faðmi
fjölskyldunnar.
Fjölskyldan á skíði
„Hdginni ætla ég að eyða í faðmi fjölskyld-
unnar,“ segir Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor
Viðskiptaháskólans í Reykjavík. „Við gerum
talsvert af því að fara á skíði og þá iiggur leið-
in helst í Bláfjöllin. Eg myndi ekki segja að ég
væri góð skíðamanneskja en mér finnst þó
alltaf gaman að bregða mér á skíði. Síðan ger-
um við líka talsvert af því að fara í gönguferð-
ir, við búum niðri í miðbæ og gerum nokkuð
af því að fara í gönguferðir þá til dæmis með
ströndinni og út á Seltjarnarnes. Stundum
förum við líka í hina áttina og göngum inn
með sundum."
Gunnar Sverrisson
ætlar að halda upp á
brúðkaupsafmæli
foreldra sinna um
helgina.
í brúðkaupsafmæli
„Eg ætla suður um helgina," segir Gunnar
Sverrisson, ljósmyndari Fróða á Akureyri.
„Sitthvað stendur til að gera um helgina í
Reykjavík, meðal annars ætla ég með systkin-
um mínum og mökum þeirra með foreldrum
okkar á GriIIið á Hótel Sögu í tilefni af 45 ára
brúðkaupsafmæli þeirra, Guðrúnar Jóhannes-
dóttur og Sverris Hermannssonar - sem er
alls ekki í framboði. Það er magnaður árang-
ur að vera giftur í 45 ár og geri önnur hjón
betur. Leiðin liggur síðan aftur norður á
sunnudaginn með einn auka farþega, son
minn Guðmund Orn, sem verður hér fyrir
norðan hjá mér og unnustu minni alla næstu
vikuna. Hver veit þá nema við feðgar förum
saman á skíði því nægur er snjórinn í Hlíðar-
fjalli.“
Þorgerður
Ragnarsdóttir selur
kökur í Kringlunni á
laugardaginn.
Kökusala 1 Kringluuni
„Á laugardag mun ég taka þátt í kökusölu í
Kringlunni til styrktar Stúlknakór Breiðholts-
kirkju, sem dóttir mín syngur með. Kórinn
stefnir á Finnlandsferð í sumar og í þeim til-
gangi er nú safnað fé og hverjum og einum er
sett fyrir að koma með sex tegundir af kökum,
sem við mægðurnar bökum á föstudagskvöld-
ið,“ segir Þorgerður Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Afengis- og vímuvarnaráðs.
„Eftir þetta veitir mér sjálfsagt ekkert af því
að slappa af, stundum geri ég slíkt með því að
hreyfa mig eitthvað en síðan getur líka viss
afslöppun verið í því fólgin að grípa í einhver
af þeim verkum á heimilinu sem beðið hafa
alla vikuna."
Jóhannes í Bónus er vinur litla mannsins, rétt einsog Albert Guðmundsson var,
nema hvað þeir eru á sitthvoru sviðinu. Sjálfur er Jóhannes í Bónus þó fráleitt í
hópi lítilla manna því á Bónusbúðum hefur hann síðasta áratug grætt bæði á tá
og fingri og er meðal best stæðu manna landsins. í nýlegu viðtali segist Jó-
hannes aldrei vera í betra formi en nú - og á þessum myndum sem eru teknar á
um áratugs millibili má líka sjá að hann eldist býsna vel.
■ LÍF OG LIST
Snilld
skáldanna
„Eg var að
koma frá
Bandaríkj-
unum þar
sem ég
keypti bókina The Perfect
Storm, eftir Sebastian Junger,
sem íjallar um skipstapa und-
an strönd Nova Scotia og Ný-
fundnalands árið 1991, þar
sem sex menn fórust. Þetta er
mögnuð saga og mjög fróðleg,
en mér fínnst gaman að lesa
sögur sem hafa raunsæislega
tengingu - einsog þessi vissu-
Iega hefur," segir Þórólfur
Amason, forstjóri Tals hf. „Af
þessum toga eru til dæmis
bækur Ernast Hemmingway, sem ég Iá í um
skeið og sama má segja um bækur Halldórs Lax-
ness, þær eru fullar af tilvísunum í það samfélag
sem hann lifði og hrærðist í, og eru líka skýrt
dæmi um hvernig snilld skáldanna getur fært
hversdagslegan raunveruleika í skemmtilegan
búning."
Heyr mitt ljúfasta lag
„Eg sveiflast á milli þess að
hafa gaman af dægurlögum
og sígildri tónlist. I löngum
flugferðum á milli Ianda er
gaman að hafa góða tónlist til að hlusta á og í
ferð mnni til Bandaríkjanna hlustaði ég á
diskinn Heyr mitt ljúfasta Iag, sem hefur að
geyma mörg af bestum Iögum Ragnars Bjarna-
sonar. Þá er ég nýlega farinn að læra að meta
lög Bjarkar Guðmundsdóttur, það er eftir tón-
leikana sem við hjá Tali héldum með henni í
kringum áramótin síðustu. - Þá nefni ég líka
Bítlana, ég er fæddur 1957 og náði því í endann
á þessu skemmtilega tímabili sem við þá er
kennt.“
Lífið er dásamlegt
„Myndbönd horfi ég afskaplega
lítið á. Læt reyndar stundum
taka upp fyrir mig enska bolt-
ann og fréttirnar, en að öðru
leyti læt ég sjónvarp eða mynd-
bönd ekki binda mig. Einstaka sinnum fer ég þó
í bíó, nú síðast í Regnbogann til þess að sjá
myndina Lífið er dásamlegt, sem hefur hlotið
mjög góða dóma. Þetta er eftirminnileg mynd.“
-SBS.
■ frá degi til dags
Allir eiga glappaskot á ævi sinni.
- Islenskt máltæki
Þettagerðist 16. apríl
• 1954 voru AA-samtökin á Islandi stofn-
uð.
• 1982 staðfesti Elísabet Bretadrottning
hina nýju stjórnarskrá Kanada, þar sem
skorið var á síðustu nýlendutengslin við
Bretland.
•1991 skýrði George Bush, forseti
Bandaríkjanna, frá því að bandarískir
hermenn yrðu sendir inn í norðurhluta
íraks til aðstoðar Kúrdum.
Þaufæddust 16. apríl
• 1886 fæddist þýski kommúnistaleiðtog-
inn Ernst Thálmann.
• 1887 fæddist Guðjón Samúelsson
húsameistari.
• 1889 fæddist hinn eini og sanni
Charles Chaplin.
• 1921 fæddist breski leikarinn Peter
Ustinov.
• 1940 fæddist Margrét II., Danadrottn-
ing.
• 1958 fæddist Elísabet Jökulsdóttir rit-
höfundur.
Merkisdagur
I dag er svonefnd Magnúsmessa, helguð
Magnúsi Erlendssyi jarli í Orkneyjum,
sem sagt er frá í Orkneyingasögu og var
lýstur helgur maður um 1135. Hann virð-
ist hafa verið dýrkaður á íslandi allt frá
því um 1200 og var um skeið aukadýr-
íingur í nokkrum kirkjum.
Ueimild: Saga daganna
Vísa dagsins
Sumir eru stoltir af því að hafa engin
stórafrek unnið. Háðfuglinn Káinn orti
svo:
Afþví get ég enn mig stært,
að engu breytt er hér;
ekkert hef ég af öðrutn lært,
og enginn neitt af mér.
Afmælisbam dagsins
Björgvin Helgi Halldórsson, tónlist-
armaður, fæddist í Hafnarfirði 16.
apríl 1951. Hann stundaði nám í
Flensborgarskólanum og hóf ungur
afskipti af tónlistarstörfum.
Snemma á áttunda áratugnum var
hann draumaprins allra íslenskra
ungmeyja og þegar hann kom fram í
sjónvarpsþætti eftir að hafa orðið
lyrir því óláni að brjóta í sér fram-
tennurnar kom hann af stað faraldri
og allir krakkar létu brjóta í sér
framtennurnar. Björgvin hefur
sungið og spilað inná fjölda hljóm-
platna.
Brandari dagsins
„Svarið við stærstu spurningu heimsins
...,“ sagði Djúpvitur, næst-fullkomnasta
tölvan í sögu mannkynsins.
„Spurningunni miklu um lífið, um al-
heiminn, um allt ...,“ sagði Djúpvitur og
helstu vísindamenn heims biðu í oívæni
eftir framhaldinu.
„Er ...,“ sagði Djúpvitur með hægð, og
allir ráðamenn helstu ríkja og stofnana
heims sátu í hring með hnút í maganum.
„... nákvæmlega sjötíu og einn komma
fjórir núll sex,“ sagði Djúpvitur rólega og
kímdi.
Veffang dagsins
Empire State byggingin í New York var
reist 1930-31, og var þá hæsta bygging í
heimi. Allt um byggingarsögu hennar og
fjölmargar ljósmyndir frá byggingarvinn-
unni er að finna á www.nypl.org/rese-
arch/chss/spe/art/photo/hinex/emp-
ire/empire.html