Dagur - 16.04.1999, Síða 8
24- FÖSTUDAGUR 16. APRlL 1999
Áhrif texta á myndefni
Kristín Arngrímsdóttir opnar
á morgun ki.14 sýningu í ;
Gaileríi Sævars Karls en á
henni munu vera verk sem
eiga upptök í námsdvöl
hennar í EnglandL Þar.rann-
sakaði hún m.a. „rými" í
myndlist og samspil texta
og myndar í gegnum tíðina.
„Ég beini sjónum rriínum að
áhrifum texta á myndefni.
Bætir hann einhverju við
túlkunarmöguieika þess eða
skerðir hann þá?“ Sýningin
stendur til 6. maí.
Ávaxtakarfan
á Akureyri
Nú um helgina verða sýningar
á tslenska fjblskylduleikritinu i
Ávaxtakörfunni í samkomu-
húsinu á Akureyri, Laugardág-
inn 17. apríl eru sýningar kl.
i 2 og 15.30 og eru örfá sæti
lausá þær báðar. Sunnudag-,;
inn 18. april eru sýningar ki.
12 og 15.30 og er uppselt á
þær báðar. Bætt hefur verið við aukasýningu kl. 18 sama dag. Miða-
pantanir í síma 462-1400.
Vegna fjölda áskorana verða nokkrar aukasýningar I íslensku Óper-
unni frá og með 24. april fram í miðjan maí en sýningin varð að hætta
fyrir fullu húsi og komust færri að en vildu. Miðapantanir í síma 551-
1475.
Helgi og hljóð-
færaleikar-
arnir í reisu
Islandsvinirnir Helgi og
hljóðfæraleikararnir ætla
áð sýna vinskap sinn við
land og þjóð í verki. Þessi
einlæga vinátta kristallast í
pílagrimsferð til höfuðborgarinnar
með viðkomu í Kántríbæ á heimleiðinni.
Fyrsti áfangastaðurinn er Bíóbarinn. Þar flutti hljómsveitin nokkur afar
sjaldgæf dægurlög af nýútkomnum diski sveitarinnar í gærkvöld og
verður sú dagskrá endurflutt á sama stað I kvöld klukkan 21.00. í
millitíðinni verður komið við hjá ríkisfjölmiðlunum. Á morgun mun hóp-
urinn svo upp rísa og halda norður með Ijóö sín og lírur og flytja
Skagstrendingum erindi sitt í Kántríbæ kiukkan 21.30.
■ HVAD ER Á 8EY0I?
Walsum á Hominu
Hollenski listamaðurinn Danny van
Walsum sem dvelst nú í Straumi opnar
á morgun kl.16 sýningu á olíumálverk-
um og verkum unnum með blandaðri
tækni í Galleríi Horninu að Hafnar-
stræti 15. Munu útsendarar safna og
listaverkasafna bæði austan hafs og
vestan vera væntanlegir við opnunina
en Danny er talsvert eftirsóttur þrátt
fyrir ungan aldur. Hollenski rithöfund-
urinn Frans Vogel flytur ávarp við opn-
unina. Sýningin stendur til 5. maí.
Prímadonnur ástarsöngvanna
Tólf söngvarar taka lög eftir þekktustu
söngkonur heims, s.s. Tinu Turner,
Barböru Streisand, Celine Dion,
Madonnu og Whitney Houston, á
Broadway annaðkvöld en hljómsveit
Gunnars Þórðarsonar leikur undir hjá
Prímadonnunum. Ef marka má
skríbent Morgunblaðsins er þess virði
að hlusta á prógrammið en hann segir
að Ólafur Laufdal megi „sannarlega
vera stoltur af þessari sýningu sem
hver næturklúbbaeigandi í stórborgum
Evrópu getur öfundað hann af.“
Leggöng tunglsins
Síðdegistónleikar Hins Hússins og
Rásar 2 bjóða að þessu sinni hljóm-
sveitunum Leggöng tunglsins og Svört
verða sólskin að spila á tónleikunum
sem verða í dag kl. 17.00. Hljómsveit-
in Leggöng tunglsins er skipuð stelpu
og strákum á aldrinum 17-20 ára, hún
tók nýjega þátt í músiktilraunum
Tónabæjar. Hljómsveitin Svört verða
sólskin er fimm manna metal band.
Staðsetningin er sú sama, á Geysi-
Kakóbar og aðgangur ókeypis og öllum
opinn.
Sjálfstætt fólk
I Listaklúbbi Leikhúskjallarans á
mánudaginn næsta verðu dagskrá um
uppfærslu Þjóðleikhússins á Sjálf-
stæðu fólki Halldórs Kiljan Laxness.
Sýndir verða kaflar úr verkin og um-
ræður með aðstandendum þess, m.a.
annars Ieikstjóranum Kjartani Ragn-
arssyni, verða á eftir. Húsið opnar kl.
19.30 en dagskráin hefst kl. 20.30.
Umsjón dagskrárinnar er í höndum
Melkorku Teklu Ólafsdóttur.
Veggspjaldasýning
Veggspjaldasýning er í anddyrum
Sjúkrahúss Reykjavíkur dagana 14.-21.
apríl. Þar er að finna 42 rannsóknar-
verkefni kynnt sem unnin hafa verið af
starfsfólki Sjúkrahúss Reykjavíkur á
hinum ýmsu deildum í Fossvogi og á
Landakoti. Verkefnin fjalla m.a. um
björgun og greiningu slasaðra úr hóp-
ferðabílum við erfiðar aðstæður, al-
gengi átröskunar meðal unglinga og
fullorðinna, geðlyfjanotkun á hjúkrun-
arheimilum í Reykjavík, svefnrann-
sóknir á íslenskum börnum, sjóveiki
meðal sjómanna og D-vítamínþörf sjö-
tugra kvenna svo eitthvað sé nefnt.
Öllum er heimilt að skoða veggspjalda-
sýninguna.
Myndlist í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 18. apríl verður opnuð
sýning í anddyri Hallgrimskirkju á sex
málverkum eftir Björgu Þorsteinsdótt-
ur, myndlistarkonu. Myndirnar eru
flestar unnar á þessu ári og eru gerðar
með akryllitum á striga. Einnig eru
fjórar vatnslitamyndir Bjargar til sýnis í
Safnaðarsal kirkjunnar. Sýningin er
opin daglega frá kl. 10-18 og stendur
út maí.
Kynstrin öll
Laugardaginn 17. apríl stendur
ReykjavíkurAkademían fyrir málþingi
og myndlistarsýningu sem ber yfir-
skriftina Kynstrin öll: sköpun kynja-
tnunar. Þar verður m.a. fjallað um
hugtökin kyn, kyngervi og kynjamun
og hvernig þau birtast í dægurminn-
ingu, Iistum og fræðilegri umfjöllun.
Málþingið fer fram í ReykjavíkurAka-
demíunni, Hringbraut 121, 4. hæð og
hefst kl. 16.00 sýningin opnar kl.
18.00.
Húnvetningafélagið
Félagsvist í Húnabúð, Skeifunni 11,
Iaugardaginn 13.00. Allir velkomnir.
íslenskt landslag
Laugardaginn 17. apríl verður opnuð
kl. 16.00 sýning í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar á
verkum norska myndlistarmannsins
Egil Roed. Egil Roed hefur starfað sem
kennari við Listaháskólann í Bergen í
mörg ár. Hann hefur haldið einkasýn-
ingar í Noregi og annarsstaðar og tekið
þátt í mörgum samsýningum. Sýningin
er opin alla daga nema þriðjudaga frá
kl. 12.00 til 18.00 og stendur til 10.
maí n.k.
LANPIÐ
Einar Askell á Hvolsvelli
Möguleikhúsið er komið til Hvolsvallar
með leikritið Góðan dag Einar Áskell
sem öll börn elska. Sýningin er í fé-
lagsheimilinu Hvoli laugardaginn 17.
apríl kl. 14.00 og er miðaverð kr. 800.
KK á austurleið
KK (Kristján Kristjánsson) er á tón-
leikaferð um landið undir heitinu Vbr-
boðinn ijií/i og verður á Kirkjubæjar-
klaustri í kvöld nánar tiltekið á Hótel-
inu kl. 21.00. Á morgun laugardag
verður hann kominn til Hafnar í
Hornafirði og heldur í Pakkhúsið kl.
21.00 og Hornfirðingar (jölmenna á
staðinn og leggja við hlustir því KK
klikkar ekki. Og svo á sunnudag cr
Djúpivogur áfangastaður og hefjast
tónleikarnir í Löngubúð kl. 16.00 og í
Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík á mánu-
dagskvöldið ld. 20.30.
Opinn dagur í Hólaskóla
Á morgun verður opinn dagur í Hóla-
skóla að Hólum í Hjaltadal. Þar verður
kynnt það nám og starf sem fram fer
við skólann. Dagskráin hefst klukkan
13.30 með reiðsýningu og reiðkeppni
við reiðhöll skólans þar sem nemendur
leika listir sínar. Klukkan 15.00 verður
helgistund í Hóladómkirkju þar sem
fagnað verður þeim áfanga að nú er
gagngerum endurbótum á skólahúsinu
að Ijúka, en þær hafa staðið yfir meira
og minna í 4 ár. I skólahúsinu ætla
nemendur á ferðamálabraut, fiskeldis-
braut og hrossabraut, ásamt nemum á
reiðkennarabraut skólans að kynna
námsbrautirnar við skólann. Dag-
skránni lýkur klukkan 17.00. Kaffiveit-
ingar í boði skólans.
vi>ou iUf I wUútvo UTOlft úatÁ
Menningardagur á Laugum
Á sunnudag stendur Framhaldsskólinn
á Laugum í Reykjadal fyrir tvegga tíma
skemmtun til styrktar llóttamönnum
frá Kosovo. Þar munu koma fram
Söngfélagið Sálubót, Karlakórinn
Hreimur, Þríund frá Húsavík, Efling
og nemendur Framhaldsskólans að
Laugum (Láttu ekki deigan sfga, Guð-
mundur". Þá verður flutt lagið sem var
framlag FL í Söngkeppni framhalds-
skólanna, tónlistarfólkið frá Eistlandi
slær á létta strengi, félagar úr leikfé-
laginu Búkollu sletta úr klaufunum,
nemendur úr Tónlistarskóla Aðaldæla
og Reykdæla bregða á leik, Kór Fram-
haldsskólans á Laugum syngur, Arnór
Benónýsson leikari les Ijóð. Sérstakur
gestur samkomunnar verður Þórarinn
Eldjárn rithöfundur. Dagskráin hefst
klukkan 15.00 en húsið verður opnað
14.30. Frftt er fyrir börn 12 ára og
yngri og gæsla verður á staðnum lyrir
yngstu börnin. Aðgangseyrir er 1.000
krónur. Allur ágóði rennur til Rauða
kross Islands í þágu flóttamanna frá
Kosovo.
Farsi og fleira hjá Búkollu
Hið samþingeyska leikfélag Búkolla
frumsýnir í kvöld kl. 21.00 í Ljósvetn-
ingabúð stuttan breskan farsa, „Hús-
bóndinn er ekki með sjálfum sér“. Það
er Sigurður Hallmarsson sem leikstýr-
ir. Auk farsans verður fleira menning-
arlegt góðgæti á boðstólum þetta kvöld
í Ljósvetningabúð. Nemendur 8.
bekkjar Hafralækjaskóia sýna nútíma-
útgáfu af Mjallhvíti, Elín Kjartansdótt-
ir annast upplestur og um söng sjá
Margrét á Fitjum, Bergljót á Hjarðar-
bóli og Einar á Jarlsstöðum. Kvenfélag
Þóroddsstaðasóknar selur kaffi á
staðnum.
Dagskráin verður endurtekin á sunnu-
dagskvöld kl. 21.00.
Land og synir á Húsavík
Hljómsveitin Land og synir verða í
Hlöðufelli á Húsavík í kvöld og hristir
fjör í þingeyinga. Annaðkvöld verða
þeir svo f Sjallanum á Akureyri og sína
áfram sínar bestu og hressustu hliðar.
Kór ML á Sauðárkróki
Kór Menntaskólans á Laugarvatni
heldur tónleika fyrir Sauðkræklinga í
kvöld kl. 20.30 í sal Bóknámshúss
Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Á
laugardag halda þau síðan til Akureyr-
ar og þenja raddböndin í Gamla sal
Menntaskólans á Akureyri frá kl.
17.00. Á efnisskránni er fjölbreytt úr-
val laga eftir erlenda og innlenda höf-
unda. Stjórnandi kórsins er Hilmar
Örn Agnarsson, organisti í Skálholts-
dómkirkju.
Handverksfólk
Laugardaginn 17. apríl milli kl. 13.00
og 17.00 mun handverksfólk á Akur-
eyri verða með markað í húsi aldraðra
á Akureyri í Lundargötu. Þar verða
seld handverk af ýmsu tagi, listmunir
og kökur.
Vestfírskur hittingur
fyrir norðan
Vestfirðingafélagið á Akureyri og ná-
grenni fagnar vori í kvöld klukkan
20.00 á Fosshótel KEA, þar sem hald-
inn verður vorfagnaður. Ræðuskörung-
ur kvöldsins verður Gpðjón Anjuu
írtrití'. Li
Kristjánsson, þekktur sem Addi Kitta
Gauj aflaskipstjóri og formaður Far-
manna- og fiskimannasambands ís-
lands. Þá munu fimmtán vinstrifrjáls-
lyndir og íhaldssamfylkingarsinnaðir
skemmtikraftar efna til framsóknar
með stjórnlausum húmanískum uppá-
komura á sviði. „Selja litla“ verður tek-
in, „Það vaxa ber fyrir vestan" og
„Hvað er svo bjart sem vorið lyrir vest-
an“ - allt Vestljörðum til dýrðar.
Skemmtinefndin hefur lagt sig bæði
hátt og lágt við að ná sambandi við alla
þá sem unna vestfirskum sérkennum
og/eða hafa efst á óskalistanum að
komast í náin kynni við þau. Fengin
var hljómsveit á meðalhæð, 1&70 og
eru því vinir og óvinir Vestfjarða allir
hjartanlega velkomnir og þurfa aðeins
að skrá sig hið bráðasta. Nánari upp-
lvsingar í síma 461 -2609.
Dansað í Sunnuhlíð
Þeir sem lagt hafa Ieið sfna í göngugöt-
una á Akureyri á föstudögum kl. 16.30
til þess að geta séð Önnu spunadrottn-
ingu Richards dansa, þurfa nú að gæta
að því að Anna ætlar að dansa í
Sunnuhlíð þennan föstudaginn. Með
Önnu verða spilararnir og tónlistar-
mennirnir Karl Pedersen á súlu, nei
slagverk og Wolfgang Frosti á sax.
Samkór Vopnafjarðar
Samkór Vopnafjarðar er á ferð um
Norðurland og verður með tónleika í
Glerárkirkju á Akureyri á morgun
klukkan 15.00 og í Dalvíkurkirkju
sama dag klukkan 20.30. Á sunnudag
klukkan 15.00 heldur kórinn tónleika
að Breiðumýri í Reykjadal. Stjórnandi
kórsins er Zbigniew Zuchowicz og
undirleikari er Teresa Zuchowich, sem
einnig mun fyltja einleik á píanó.
Þorgerðartónleikar
Laugardaginn 17. apríl kl. 17.00 verða
haldnir Þorgerðartónleikar á Sal Tón-
listarskólans á Akureyri til styrktar
minningsjóði um Þorgerði S. Eiríks-
dóttur. Á tónleikunum koma fram
kennarar við Tónlistarskólann auk
nemenda á efri stigum og flytja fjöl-
breytta dagskrá. Aðgangur er ókeypis,
en tekið er á móti framlögum í sjóð-
inn.
Gítartónleikar á Akureyri
Hannes Þ. Guðrúnarson heldur gftar-
tónleikar í kappellu Akureyrarkirju
sunnudaginn 18. apríl kl. 17.00. Flutt
verður tónlist frá endurreysnar- og
barrokktímanum.
Kór Frímúrara
Tónleikar Kórs Frímúrara verða haldn-
ir í Akureyrarkirkju laugardaginn 17.
apríl kl. 17.00. Auk félaga úr Kór frí-
múrara í Reykjavík munu félagar úr
Kór frímúrara á Akureyri bætast í hóp-
inn. Einsöngvarar eru Eiríkur Hreinn
Helgason og Friðbjörn G. Jónsson.
Karlakór Eyjafjarðar
Söngskemmtun verður með Karlakór
Eyjaljarðar í Laugaborg í Eyjfjarðar-
sveit laugardaginn 17. apríl kl. 21.00.
Á efnisskránni eru sönglög í öllum
regnbogans litum. Undirleikarar eru;
Daníel Þorsteinsson, Eirfkur Bóasson,
Hannes Þ. Guðrúnarson og Rafn
Sveinsson. Stjórnandi er Atli Guð-
laugsson.
Stjomandi listans er
Þróinn Brjdnsson
SIOASTA VIKUR
VIKA Á LISTA
FLYTJANDI
Eminem
Etipe
Here I go again
You are not olone
The onimol song
Why don't you get a job
Sometimes
Shepps goes to heaven
Einn með þér
Step out
My strongerst suit
Lotus
That don't impress much
No scrubs
Bounce rock skate roll
Tarzan and jane
24 hours from you
Mother
Nothing really matters
The jock jam
Are you ready for the fallout
Savage garden
Offspring
Britney spears
Cake
Skítamórall
Rem
ShaniaTvrain
TLC
Bobydc
Toy box
Next of kin
Era
varíus artists
Fastboll
Listinn er spilaður á föstudögum milli kl. 20 og 22
Hlustaðu á Frostrásina í beinni á internetinu http://nett.is/frosrasin
E-maih frostras@nett.is • Stjórnandi listans er Þráinn Brjánsson
ítttíviW: mkA íí
/ 'ÍOÍ
Tl.
íyíri ís