Dagur - 17.04.1999, Blaðsíða 4
f - ri V i' t \ \ < i I f l t
4 -LAUGARDAGUR
• í *' ». tí ; #> Vt i\ Ji
17. APRÍL 1999
FRÉTTIR
Líknardeild opnuð í Kópavogi
í gær var opnuð fyrsta líknardeildin hér á landi en níin er til húsa þar
sem Kópavogshælið var áður. I fréttatilkynningu frá ríkisspítölum
segir að fyrir um áratug hafi verið farið að ræða stofnun líknardeild-
ar hér á landi í anda hospice hugmyndafræðinnar en hún byggi á því
að þegar sjúklingur verði ekki læknaður fái hann meðferð sem miði
að því að honum líði sem best. A deildinni eru 10 sjúkrarúm og öll
aðstaða fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra sögð góð.
Oddfellow reglan gaf veglega peningagjöf í fyrra til að standa und-
ir kostnaði við endurbætur á húsnæðinu í Kópavogi og búnaði fyrir
líknardeildina. I framhaldinu ákváðu heilbrigðisyfirvöld að fela ríkis-
spítölunum að reka deildina.
Ekkert athugavert við
Miðstjórn Frjálslynda flokksins segir
ekkert athugavert við þá ákvörðun
kjördæmisfélags flokksins á Suður-
landi að velja Eggert Haukdal í efsta
sæti á framboðslista flokksins í kjör-
dæminu, segir í tilkynningu frá mið-
stjórninni. Eins og fram hefur komið
er hafin opinber rannsókn á embættis-
færslum Eggerts sem oddvita í V-
Landeyjum en vegna þeirrar umræðu
minnir miðstjórnin á að það sé undir-
stöðuatriði í réttarríki að einstaklingur
teljist saklaus uns sekt hafi verið sönn-
uð.
Hreppsnefnd í héraði hafi talið
málið upplýst og ekki óskað eftir frek-
ari rannsókn „enda hafði Eggert lagt
öll spilin á borðið og m.a. greitt sem sína skuld stórfé vegna brigða
annars manns“, eins og segir orðrétt í ályktun miðstjórnar.
Eggert
Eggert Haukdal.
Morgunkaffi á
laugardegi!
MörðurÁrnason kemur í heim-
sókn á kosningamiðstöð
Samfylkingarinnar í Skipagötu
18, annarri hæð, í dag kl. 10 -
12. Frambjóðendur í
kjördæminu verða einnig á
staðnum. Komum og spjöllum
um starfið framundan yfir
kaffibolla og vöfflum.
Opnun á Dalvík
Samfylkingin opnar kosninga-
skrifstofu á Dalvík kl. 14 í dag.
Efstu menn í kjördæminu koma
á staðinn og sérstakur heiðurs-
gestur verður Mörður Árnason.
Ásta Ragnheiður og
Svanfríður
funda með eldri borgurum og
lífeyrisþegum í Húsi aldraðra á
mánudaginn kl. 17.
Kristín Sigursveinsdóttir og
Heimir Ingimarsson verða
einnig á staðnum.
Breytum rétt
Samfylkingin
Páll Pétursson og Sigrún Magnús-
dóttir eiginkona hans á Landspítalan-
um, þar sem Páll gekkst undir erfiða
hjartaaðgerð í fyrri viku. Páli heilsast
vel eftir aðgerðina og eflist með
hverjum degi. mynd: gva
Pállá
batavegi
„Páli heilsast vel og af honum
eru góðar fréttir,“ segir Gunnar
Bragi Sveinsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra. Páll Péturs-
son gekkst á þriðjudag í fyrri
viku undir hjartaaðgerð á Land-
spítaianum, þar sem hann dvelst
nú.
„Þetta hefur gengið allt mjög
vel og Páll eflist og styrkist með
hverjum degi. Hann er nú kom-
inn með síma og sjónvarp á
sjúkrastofuna til sín og fylgist
vel með því sem er að gerast og
binda má vonir við að Páll geti
jafnvel komið í baráttuna á
Norðurlandi vestra síðustu vik-
una fyrir kosningar. Þau Arni
Gunnarsson og Herdís Sæ-
mundardóttir hafa staðið í fylk-
ingarbrjósti að undanförnu og
hefur tekist vel upp, þó þetta sé
fyrsta barátta þeirra beggja,"
segir Gunnar Bragi. - SBS.
Björn Hermannsson og Úlafur Proppé frá Landsbjörgu og Gunnar Tómasson og Ester Guðmundsdóttir frá Slysavarnafé-
laginu skrifuðu undir sameiningu þessara tveggja félaga um borð í Sæbjörgu, slysavarnaskipi sjómanna, við hátíðlega at-
höfn í gær.
Risafélag í björgun
og slysavömiun
Bjartsýni og gleði.
Nýr framkvæmda-
stjóri. Félagatala um
20 þiísuiid. Ársvelta
um 200 milljónir.
„Við erum full bjartsýni og gleði
ineð sameiningu í eitt stórt og
öflugt slysavarna- og björgunarfé-
lag,“ sagði Olafur Proppé verð-
andi formaður Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar, landssambands
björgunarsveita.
20 þixsimd félagar
í gær var skrifað undir samein-
ingu Slysavarnafélags Islands og
Landsbjargar í eitt félag. Athöfn-
in fór fram í Sæbjörgu, skipi
Slysavarnaskóla sjómanna. Form-
Ieg starfsemi hins nýja félags
hefst 1. júlí nk. Fulltrúaráðs-
fundir beggja félaganna hafa
samþykkt að leggja til við lands-
þing þeirra, sem haldin verða í
lok næsta mánaðar að félögin
verði sameinuð í eitt. Stofnþing
nýja félagsins verður svo haldið í
haust, eða 2. október. Höfuð-
stöðvar félagsins verða í Reykja-
vík og verða allar núverandi fé-
lagseiningar Landsbjargar og
Slysavarnafélagsins aðilar að nýja
félaginu. Heildarfélagar í nýja fé-
laginu verða um 20 þúsund og
áætluð ársvelta þess er um 200
milljónir króna.
Nýr franikvæmdastjóri
Gunnar Tómasson, forseti Slysa-
varnafélags Islands, verður vara-
formaður nýja félagsins. Þá verð-
ur á næstu vikum ráðinn fram-
kvæmdastjóri til að stýra skrif-
stofu félagsins. Verðandi formað-
ur segir að hvorugur af núverandi
framkvæmdastjórum félaganna,
Ester Guðmundsdóttir hjá Slysa-
varnafélaginu né Björn Her-
mannasson hjá Landsbjörgu,
muni skipa þá stöðu. Verðandi
formaður segir að full samstaða
sé um þetta. Hann segir að þetta
þýði þó ekki að þau tvö muni ekki
vinna með nýja félaginu að ýms-
um verkefnum nema síður sé.
Aukiii skilvirkni
Á blaðamannafundi í gær kom
fram að aðalmarkmið sameining-
arinnar sé að bæta slysavama- og
björgunarstarf í landinu, auk
þess sem stjórnun björgunarað-
gerða og fræðslustarf mun eflast.
Sameiningin mun jafnframt gefa
smærri björgunareiningum víða
um land tækifæri til að samein-
ast. Þá er talið að sameiningin
muni stuðla að aukinni sam-
heldni björgunarsveita, einfalda
og auðvelda samskipti við opin-
bera aðila og önnur hagsmuna-
samtök. Síðast en ekki síst er
þess vænst að stjórnun félaga-
starfsins verði skilvirkari með
betri nýtingu fjármuna. - GRH
Hærri bílastyrkir
til hreyfihaiHlaóra
Ingibjörg Pálmadóttir hefur und-
irritað reglugerð þar sem fjölgað
er bifreiðastyrkjum til hreyfi-
hamlaðra og styrkirnir jafnframt
hækkaðir. Er þetta gert að höfðu
samráði við nefnd sem skipuð
var fulltrúum Sjálfsbjargar, Ör-
yrkjabandalagsins og heilbrigðis-
ráðuneytisins.
Viðbótarkostnaður vegna þess-
ara breytinga mun nema um 60
milljónum króna en þar af ktístar
fjölgun styrkjanna 16 milljónir.
I samtali við Dag sagði Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra það sérstaklega ánægjulegt
að Ijúka þessu máli því þar með
hefði verið komið til móts við
þau þrú atriði sem fulltrúar Ör-
yrkjabandalagsins hefðu skil-
greint sem brýnustu vandamál
öryrkja á fundi með henni um
áramótin. Þessi þrú atriði hafi
verið að rétta stöðu einstæðra
foreldra í hópi öryrkja, hækka
vasapeninga fólks á stofnunum
og síðan þessi bílamál. Ráðherra
bendir á að þegar sé búið að
Ingibjörg Pálmadóttir og Arnór Pét-
ursson, formaður Sjálfsbjargar, eftir
útgáfu reglugerðar um hærri bifreiða-
styrki til hreyfihamlaðra.
breyta reglum í tryggingaráði
varðandi það að einstæðar mæð-
ur sem eignist barn fái skerðingu
á heimilisuppbót eins og áður
var. Nú sé ekki lengur talið að
fólk hafi „fjárhagslegt hagræði af
sambýli" við börn sfn sem ekki
séu orðin 18 ára. Jafnframt hafi
vasapeningar fólks á stofnunum
hækkað um einar 5000 krónur.
Aðspurð hvort það væri tilvilj-
un að þessi bílastyrkjaviðbót
kæmi nú svo skömmu fyrir kosn-
ingar sagðist ráðherra ekki geta
stöðvað starfsemi ráðuneytisins
bara vegna þess að kosningar
væru framundan. Málið hafi ver-
ið í vinnslu frá því í haust og það
hafi einfaldlega verið tilbúið
núna.
Hækkunin á bifreiðastyrkjun-
um verður þannig að hærri
styrkirnir verða ein milljón króna
til fjögurra ára í stað 700 þúsund
króna til þriggja ára (að meðaltali
7,1% hækkun), en lægri styrkirn-
ir úr 235 í 250 þúsund til fjög-
urra ára. Þeim sem sækja um í
fyrsta sinn gefst kostur á að
sækja um tvöfaldan styrk og eins
gefst þeim sem þurfa á sérstak-
lega mikið útbúnum bílum að
halda kostur á hærri styrkjum.
Með nýju reglugerðinni íjölgar
styrkjum um 70, þeim hærri úr
50 í 60, en hinum lægri úr 335 í
375. Breytingar þessar kosta rík-
issjóð um 60 milljónir króna á
ári, en 16 milljónir á þessu ári.