Dagur - 22.04.1999, Blaðsíða 1
Alþýðus amb and
á barmi klofnings
Guðmimdur Gunnars-
son, formaður Rafiðn-
aðarsambandsins,
segir sambandið á
leið út úr ASÍ og að
þaö muni beita sér
fyrir stofnun Lands-
sambands starfs-
greinasambanda.
Á fundi laga- og skipulagsnefnd-
ar Alþýðusambands Islands í
gærmorgun var skýrt frá því að
ASI hefði samþykkt að innan
þess raða væru bara sambönd
með iðnlærðu fólki og svo sam-
bönd með öðrum. Blönduð sam-
bönd gætu ekki verið í Alþýðu-
sambandinu. Þessi ákvörðun
verður til þess að hið nýja og
blandaða samband Matvís, sem
er samband matreiðslumanna,
þjóna og starfsfólks í veitinga-
húsum, fær ekld inngöngu í ASÍ
og sömuleiðis
fær Rafiðnað-
arsambandið
ekki að vera
þar ef það tek-
ur inn félaga
úr Félagi síma-
manna og fleiri
óiðnlærða,
sem sótti' um
inngöngu í
Rafiðnaðar-
sambandið í
vetur en var
áður í BSRB.
„Þetta verð-
ur til þess að
Alþýðusam-
bandið klofnar.
Það kemur
ekki til greina
að reka sfma-
menn úr okkar
félagi. Þetta vita menn hjá ASI
og þess vegna eru þetta bara
skilaboð til okkar að fara úr ASI.
Eg mun leggja þessa niðurstöðu
laga- og skipulagsnefndar íyrir
landsfund okk-
ar á morgun (í
dag) og ég er
ekki í vafa um
hver niður-
staðan hjá
mínum mönn-
um verður. Ég
mun í fram-
haldinu síðan
beita mér fyrir
því að stofnað
verði Lands-
samband
starfsgreina-
sambanda,"
sagði Guð-
mundur
Gunnarsson,
formaður Raf-
iðnaðarsam-
bands Islands,
í samtali við
Dag síðdegis í gær.
Gekk af fundi
Guðmundur segir að fram til
þessa hafi Rafiðnaðarsambandið
ávallt verið blandað og því í raun
eina starfsgreinasambandið.
Innan Alþýðusambandsins hafi
það alltaf verið samþykkt þar til
nú.
„Það var svo Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur sem lagðist af
alefli gegn því að Félag síma-
manna gengi í okkar samband og
fyrir því að blönduð sambönd
fengju ekki að vera í ASI. Við
spurðum um ástæður en fengum
aldrei nein svör. Þessi viðbrögð
VR og síðan ákvörðun laga- og
skipulagsnefndar ASI koma okk-
ur fullkomlega í opna skjöldu.
Ég spurði fóíkið á miðstjórnar-
fundi ASI í dag hvort það ætlaði
að hafa þetta svona og því var
svarað játandi. Ég benti þeim þá
á hvað þeir væru í raun að gera
með þessu og gekk síðan út af
fundi,“ sagði Guðmundur Gunn-
arsson.
Engin Ieið var að ná í forystu-
menn ASI í gær, þar sem þeir
voru lokaðir inni á miðstjórnar-
fundi. — S.DÓR
Guðmundur Gunnarsson formaður
Rafiðnaðarsambandsins.
Ljótt að
skrökva
Eldri borgarar og öryrkjar héldu
mikinn baráttufund á Ingólfs-
torgi í gær í þeirri viðleitni sinni
að fá kjör sín bætt. Ólafur Ólafs-
son, formaður Félags eldri borg-
ara í Reykjavík, Benedikt Davíðs-
son, formaður Landssambands
eldri borgara, og Haukur Þórðar-
son, formaður Öryrkjabanda-
lagsins, fluttu ávörp á fundinum.
Benedikt Davíðsson sagði m.a.
í sínu ávarpi að aldraðir væru
ekki kvartsárir og oftast lang-
þreyttir til vandræða, en þeir vilji
engir bónbjargarmenn vera.
Hann sagði dapurlegt að heyra
stjórnmálamenn slá ryki í augu
fólks með villandi talnaleikfimi.
„Og ég vil segja að það sé Ijótt af
embættismönnum að skrökva
tölum inn í ræður ráðherra, sem
svo aðrir stjórnmálamenn hafa
eftir án þess að þekkja rangfærsl-
urnar. Hann sagði ráðherra rang-
túlka niðurstöðurnar í Gallup
könnuninni um hag og aðstæður
eldri borgara sem birt var í vik-
unni. — S.DÓR
Frá útifundi eldri borgara og öryrkja á Ingólfstorgi í gær.
Jón Ásgeir Sigurðsson.
Krefjast
svara
Heitar umræður hafa orðið um
fjármál RUV á síðustu tveimur út-
varpsráðsfundum vegna krafna
starfsmanna og einstakra útvarps-
ráðsmanna um upplýsingar um
hvað hagræðingaraðgerðir síðustu
ára hafa skilað í sparnaði. Á síð-
asta útvarpsráðsfundi Iagði Hall-
dóra Ingvarsdóttir, framkvæmda-
stjóri útvarpsins, fram tölur, sem
útvarpsráð taldi ófullkomnar og
fól Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, formaður útvarpsráðs,
framkvæmdastjóranum að skila
greinarbetri skýrslu á næsta fundi.
Málið má rekja til þess að
Starfsmannafélag útvarpsins hef-
ur um nokkurra mánaða skeið
haldið uppi fyrirspurnum um ár-
angur af hinum ýmsu hagræðing-
araðgerðum sem gripið hefur ver-
ið til. I samtali við Dag staðfestir
Jón Ásgeir Sigurðsson, formaður
starfsmannafélagsins, að félagið
hafi spurt um þessi mál.
„Við höfum enn ekki fengið
neinar tölulegar sannanir fyrir því
að sparnaður hafi átt sér stað og
teljum raunar að ekki hafi ein ein-
asta króna sparast, heldur að þvert
á móti hafi stefnulausar hagræð-
ingaraðgerðir jafnvel Ieitt til út-
gjaldaaukningar. Nú síðast hefur
verið tekin ákvörðun um að ráða
nýjan þul til að lesa frá og með 3.
maí allar morgunfréttir og hádeg-
isfréttir og fær þessi nýja mann-
eskja með sér aðstoðarmann til að
annast um tónlistina. Spytja má
hvað aðrir þulir eiga að gera. Þetta
er nýjasta dæmið um að enginn
sparnaður sé í rauninni í gangi,“
segir Jón Ásgeir.
Móralltim á lágu stigi
Þetta nýjasta ráðningarmál Iýtur
að ráðningu Vilhelms G. Kristins-
sonar og voru heitar umræður um
þau mál og afleysingarmál al-
mennt einnig á síðustu fundum
útvarpsráðs. Umræða um þessi
mál verða áfram á dagskrá út-
varpsráðs á næsta fundi. „Mórall-
inn meðal starfsfólks útvarpsins er
á mjög lágu stigi," segir Jón Ásgeir.
- FÞG