Dagur - 22.04.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 22.04.1999, Blaðsíða 2
2 - FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 199 9 FRÉTTIR Lögreglumenn eru ævareiðir vegna þeirrar tekjuskerðingar sem niðurskurðurinn veldur hjá þeim. Eftirlit með síbrota- iiiöimimi liggur uiðrí Halla á lögreglustjóra- embættiuu í Reykjavík mætt með niðurskurði á eftirviuuu löggæslu- maiina, sem aftur veldur miuui löggæslu í borg- iuui. Lögreglufélag Reykjavíkur hélt félags- fund í gærkveldi til að ræða þann mikla niðurskurð á eftirvinnu þeirra sem búið er að framkvæma og þann vanda sem það veldur. Arnbjörn Snorrason, stjórnarmaður í Lögreglu- félaginu, segir að eftirvinnuniður- skurðurinn valdi því meðal annars að aðeins ein Iögreglubifreið er við eftirlit í miðborginni um helgar í stað þriggja áður. Þá hafi eftirliti með síbrota- mönnum verið hætt fyrir nokkru vegna niðurskurðarins. Þetta eftirlit fer m.a. þannig fram að óeinkennisklæddir lög- reglumenn eru á ferðinni í ómerktum bifreiðum. Arnbjöm segir að lögreglumenn séu að vonum ævareiðir vegna þeirrar tekjuskerðingar sem niðurskurðurinn veldur hjá þeim. Lögreglumenn benda á að þetta eigi sér stað á sama tíma og talað er um góðæri í landinu, launa- skrið og kaupmáttaraukningu. Lög- reglumenn hafa sem kunnugt er ekki samningsrétt og því ekki verkfallsrétt. Úr 62 í SO tíma Síðastliðin 10 ár hafa Iögreglumenn í Reykjavík átt þess kost að vinna 62 stundir á mánuði í aukavinnu og er þetta gert vegna löggæsluþarfar. Arn- björn segir að menn hafi að sjálfsögðu litið á þetta sem tekjur sínar þessi tíu ár sem þetta hefur verið við lýði. „Nú þegar halli er á rekstri embættis lögreglustjóra er honum mætt með því að skera þessa aukavinnu okkar niður úr 62 tímum á mánuði í 50 tíma í stað þess að auka tekjur lögreglustjóraemb- ættisins. Þessi niðurskurður verður að sjálfsögðu til þess að minnka löggæsl- una í borginni á ýmsum sviðum,“ sagði Arnbjörn Snorrason. Hann segir að mikil reiði og ólga sé meðal lögreglumanna vegna þessa nið- urskurðar á eftirvinnunni og þeirri tekjuskerðingu sem henni fylgir. A fundinum í gærkveldi átti að ræða hvernig brugðist verður við þessu. - S.DÓR Ðwptr Kosningafundur Félags stjórnniála- fræðinga í Ráðhúsinu á þriðjudags- kvöld varð á köflum mjög líflegur. Eræðimeiuiimir Svanur Kristjáns- son og Stefanía Óskarsdóttir lentu í mikUli riimnu þegar Svanur gerói athugasemd við þá „fræði- mennsku" Stefamu að segja að hug- myndafræði Samtylkingarinnar hyggði á Marxísk- um grunni og benti hann á að Stefama væri í 11. sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Rimman leiddi til xunræðu um meint vandræði Samfylking- arinnar vegna leiðtogaleysis og skaut Bjöm Bjama- son inn háðsglósum xun að Samfylkingin ætti sér bara talsmann en engan leiðtoga. Svanur spurði á móti hvers vegna nauðsynlegt væri að hafa einn sterkan leiðtoga og hvað Bjöm væri þá að gera á fundinum (en ekki Davíð). Er óhætt að segja að þama hafi skapast hávaðarifrildi af allt of sjaldséðri tegund... í pottinum er nú fuUyrt að ýmsir stuðningsmemi og velunnarar Áma Johnsen séu famir að þiýsta á um að hann fái ráðherrastól fari sjálf- stæðismenn í næstu ríkisstjóm. Fullyrt er að meim séu þá ekki að tala um einhvem ráðherrastól, heldur samgönguráðherrastólinn. Benda menn á að Ámi hafi setið í flugráði og sé auk þess að verða einn helsti jarðgangagúm landsins eítir að hann kom ffam með Vestmannaeyjaganga- hugmyndina... En það em fleiri en Ámi sem beij- ast fyrir ráðherrastól því í potthi- mn er fullyrt að í fjölmörgum kjör- dæmum Kti memi svo á að góð út- koma í kosningunum geti verið ávísun á ráðherrasól. Þaimig þarf Ámi Mathiesen góða útkomu á Reykjanesi tU að fá stól, HaUdór Blöndal þarf að glansa tU að halda sínum stól, og Surla Böðvarsson gæti átt séns ef hann kæmi vel Mathiesen. Árni Johnsen. Svanur Kristjánsson. FRÉTTA VIÐTALIÐ Beintengmg við Wall Street Ámi Pétursson markaðsstjóri hjá Landsbréjum Latidsbréfhafa kynnt þau „tímamót“ í verðbréfavið- skiptum að nú geta íslend- ingar komist í beintfjárfest- ingasamband við Wall Street ígegnum Kauphöll Lands- bréfa. - Hvaða timamótanýjung er þarna áferð- inni? „Við höfum verið með Kauphöll Lands- bréfa frá nóvember 1997, en þetta er þau tímamót á Islandi að þarna kemur merkileg viðbót, sem felst í beinu sambandi við Wall Street. Við höfum löngum talið að íslenski verðbréfamarkaðurinn yrði engin endastöð og höfum því undirbúið þetta lengi. Við bjóðum upp á Wall Street á vefnum og þar með upp á öll félög á New York Stock Exchange, Navstock og Amex. Við erum í samstarfi við verðbréfafyrirtæki sem sérhæf- ir sig í vefviðskiptum, sem heitir Web Street Securities. Af um 60 fyrirtækjum á þessu sviði er þetta eitt hið allra virtasta og hefur unnið til ijölda viðurkenninga." - Hvað þýðir þessi nýjung fyrir Jón og Gunnu? „Nú geta Jón og Gunna farið inn á Inter- netið og skráð sig í Kauphöll Landsbréfa með einföldum hætti. I því felst samningur við Web Street um aðild að viðskiptunum. Þegar sámningur ér kominn á getur þú átt gjaldeyrisviðskipti í gegnum KauphöIIina og sent pening inn á verðbréfareikning úti. Helsti kosturinn er að Jón og Gunna eru að sjá þetta allti íslensku umhverfi og á mjög einfaldan og þægilegan hátt. Það eru engin lágmarksviðskipti, þú getur keypt fyrir fimm þúsund krónur eða milljónir en þóknun er föst, þar sem hver viðskipti kosta 29.95 dollara." - íslendingar hafa verið að jjárfesta er- lendis fyrir þennan möguleika. Hvaðajyr- irtækjum hafa íslendingar áhuga á í þeim efnum? „Jú Iandsmenn hafa verið að gera þetta og þá m.a. í gegnum verðbréfafyrirtækin. Fólk hefur verið að fara mikið í þessi tæknifyrir- tæki, það ríkir spenna fyrir þeim. Þar hafa líka orðið mestu hækkanirnar, en við erum ekki endilega að ráðleggja fólki slíkar áhættufjárfestingar. Við mælumst til þess að fólk velji traust fyrirtæki á markaðnum, en að öðru leyti getur fólk skoðað sína fjárfest- ingamöguleika sjálft á vefnum. Fólk verður að vanda valið vel. Eg vil síður vera að benda á ákveðin fyrirtæki, en þó má segja að fyrirtæki á borð við Microsoft og CitiCorp séu dæmi um traust fyrirtæki með trausta stjórnendur. Við mælum með slíkum fyrir- tækjum." - Haldið þið að landsmenn stökkvi á þetta ogfari að kaupa villt og galið á Wall Street? „Þetta er mjög spennandi verkefni og við teljum að Islendingar verði hrifnir af þessu. Þetta er einfalt í framkvæmd og þarf bara tengingu, samning og reikning f Landsbank- anum. Rannsóknir sýna að erlend Ijárfest- ing landsmanna hefur verið að aukast og við höfum fundið fyrir vaxandi áhuga fyrir þessu sviði. Það er allur gangur á hvaða fjár- festingum menn hafa áhuga á, sumir eru með hluta af sínu sparifé að lj'árfesta í traustum fyrirtækjum, en sumir skoða bara spennandi kosti og taka áhættu, hugsanlega í von um skammtímagróða. Það hefur þó sýnt sig að þessi síðarnefnda leið er ekki endilega góð til árangurs og ekki endilega það sem við ráðleg'gjum.“ ' -'FÞG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.