Dagur - 22.04.1999, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999 - 3
FRÉTTIR
L
Iitíl andstaða
Frekar fylgjandi
______________________________________19%_________________________________
Aðeins 8% aðspurðra í skoðanakönnun Háskólans á Akureyrir voru andvíg Kísiliðjunni við Mývatn.
Mikill meirihluti kjósenda í Norð-
urlandskjördæmi eystra er fylgj-
andi því að vinnsluleyfi Kísiliðj-
unnar við Mývatn verði framlengt.
Þetta má Iesa út úr skoðanakönn-
un sem Rannsóknastofnun Há-
skólans á Akureyri gerði fyrir Dag
dagana 12.-16. apríl sl. Aðeins 8%
aðspurðra segjast frekar andvíg
eða mjög andvíg framlengingu
vinnsluleyfisins.
Spurt var: Hversu fylgjandi eða
andvígur ertu því að vinnsluleyfi
Kísiliðjunnar verði framlengt?
Þegar svör þeirra sem tóku af-
stöðu eru skoðuð, kemur í ljós að
39,6% segjast mjög fylgjandi.
19,2% eru frekar fylgjandi. 33,2%
segjast hvorki né, 4% segjast frek-
ar andvíg og 4% mjög andvíg.
Athygli vekur að stuðningur við
verksmiðjuna er hvað mestur á
Akureyri.
SMpttr AMueyri miMu máli
Fulltrúum stærstu stjórnmála-
flokkanna á Norðurlandi eystra
kemur saman um að þessar niður-
stöður komi ekki á óvart. Svanfríð-
ur Jónasdóttir hjá Samfylkingu
bendir á að Norðlendingar meti
atvinnuhagsmuni mjög mikils og
trúi því að fyrirtækið skipti sköp-
um íyrir byggðina við Mývatn og
hafi einnig veruleg áhrif bæði á
I lúsavík og Akureyri. „Akureyring-
ar gera sér mjög vel ljóst hvað það
skiptir miklu máli fyrir þá að hafa
öflugt bakland í byggðunum í
kring,“ segir Svanfríður. Hvað
varðar vinnu vísindamanna sem
lagst hafa gegn framlengingu seg-
ir Svanfríður að menn hefðu þurft
að leggja meira í rannsóknir. „Við
höfum ekkert annað í höndunum
í dag en hagsmuni fólksins sem
býr þarna.“
Engin siinnun fyrir skaðsemi
Valgerður Sverrisdóttir, oddviti
Framsóknar, segir: „Það hefur
ekki verið sannað að verksmiðjan
skaði lífríki vatnsins. Þetta er fvT-
irtæki sem rekið er með góðum
hagnaði og veitir mörgum vinnu.
Það er skiljanlegt að menn vilji
það áfram í rekstri.“ Valgerður tel-
ur að lögin um verndun Laxár og
Mývatns séu þess valdandi að
framtíð Kísiliðjunnar ráðist ekki af
pólitískum vilja eða þorra lands-
manna. „Heldur er það tiltölulega
fámennur hópur sem hefur um
þetta að segja og þess vegna er
óvissan svona mikil. I tíð síðustu
ríkisstjórnar var málið sett í ákveð-
inn farveg og út úr honum er ekki
þægilegt að komast," segir Val-
gerður, en bendir á jákvætt skref
hjá iðnaðarráðherra að hyggjast fá
hlutlausa aðila til að fara yfir alla
þætti málsins. A grundvelli þeirra
upplýsinga verði svo nýjar ákvarð-
anir teknar til framtíðar.
Meiri andstaða í Reykjavík
Tómas Ingi Olrich, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokks, túlkar niður-
stöðu könnunarinnar þannig að
rannsóknavinna hafi ekki sýnt
fram á að lífríki Mývatns hafi
skaðast vegna Kísiliðjunnar. „Eg
held að þetta sé bæði stjórnmála-
mönnum og fólkinu í Mývatns-
sveit hvatning í að styrkja grund-
völl starfseminnar. Ég bjóst við
ívið meiri andstöðu en þessi könn-
un leiðir í Ijós, en ég veit að það er
miklu meiri andstaða við Kísiliðj-
una f Reykjavík en í þessu kjör-
dæmi. Þar eru menn fjær hags-
munum fólksins og meta þá
minna,“ segir Tómas Ingi.
Ekki náðist í Steingrím J. Sig-
fússon, oddvita VG-framboðsins.
- BÞ
Seðalabankinn spáir nú örlítið
hærri verðbólgu.
Spáir
aiiMnni
verðbólgu
Seðlabanki Islands hefur endur-
metið verðlagshorfur og spáir nú
2,4% verðbólgu á milli ársmeð-
altala þessa og síðasta árs og
2,8% hækkun frá ársbyrjun til
ársloka.
Vísitala neysluverðs hækkaði
um 0,6% frá fjórða ársfjórðungi
1998 til fyrsta ársfjórðungs
1999, sem samsvarar 2,6% verð-
bólgu á heilu ári. Þetta er svipuð
hækkun og Seðlabankinn spáði í
janúar. Þrátt fyrir það spáir
bankinn nú heldur meiri hækk-
un verðlags það sem eftir lifir
ársins. Spáin í janúar gerði ráð
fyrir 1,9% hækkun neysluverðs á
milli ára og 2,2% hækkun á ár-
inu. Nú er spáð 2,4% hækkun á
milli ársmeðaltala og 2,8%
hækkun frá upphafi til loka árs-
ins. Meginorsökin er mikil
hækkun húsnæðisliðar vísitölu-
neysluverðs og Iíkur á áfram-
haldandi hækkun.
Nokkur óvissa ríkir um erlend
áhrif á verðlagsþróun næstu
missera. Dregið hefur úr lækk-
un innflutningsverðs frá í fyrra
og hefur verð á olíu og bensíni
hækkað verulega á síðustu vik-
um. Aðrar forsendur eru svipað-
ar og áður. — bþ
Árni Einarsson sem rannsakað hefur kísilgúrvinnsluna um áratugaskeið segir ummæli ráðherra, Halldórs Blöndal,
dæma sig sjálf.
Varla svaravert
Árni Einarsson, líffræðingur og
forstöðumaður Náttúrurann-
sóknastöðvarinnar við Mývatn,
hefur rannsakað afleiðingar kís-
ilgúrvinnslu á lífríki vatnsins um
áratuga skeið. Hann segir orð
samgönguráðherra um fyrirfram
gefnar niðurstöður vísinda-
manna við Mývatn og aðra gagn-
rýni varla svaraverða.
„Orð ráðherra í Degi dæma sig
sjálf og eru varla svaraverð. Hall-
dór segist sjálfur ekki hafa kynnt
sér rannsóknastörf við Mývatn
en virðist halda að rannsókna-
niðurstöður mótist af því hvar
vísindamenn eiga heima. Slík
orð vekja manni óneitanlega
nokkurn ugg. Mjivatn og ná-
grenni er kjörinn vettvangur
náttúruvísindamanna og þar
ættu að geta starfað nokkrir
menn árið um kring við rann-
sóknir. Til þess að það geti orðið
þarf að hlúa að þeim vaxtar-
broddum sem þegar eru fyrir. Ef
byggðamál eru Halldóri hugleik-
in væri honum sæmra að efla
rannsóknastarfsemi við Mývatn í
stað þess að ófrægja hana,“ segir
Árni. - BÞ
•Jlihv huí
Rússar reyna nýiar Mðartillögur
RUSSLAND - Rússar ætla ao gera aðra tilraun til þess að binda endi á
stríðið í Kosovo með því að bera friðartillögur undir stjórnvöld í
Júgóslavíu. Viktor TsjernómyTdín, fyrrverandi forsætisráðherra sem Ror-
is Jeltsín forseti hefur gert að sérlegum sendimanni í málefnum
Júgóslavíu, ætlar að halda til Belgrað í dag, fimmtudag, þar sem hann
ætlar að ræða við Slobodan Milosevic og aðra ráðamenn. Reiknað er
með að Tsjernómyrdín komi heim aftur að kvöldi. Jevgení Prímakov hélt
til Belgrað í Iok mars í svipuðum erindagjörðum en hafði þá ekki árang-
ur sem erfiði.
Soniu Gandhi falin stjómarmyndun
INDLAND - I gær var hinni ítalsk-ættuðu Soniu Gandhi, ekkju Rajivs
Gandhis, fengið umboð til stjórnarmyndunar á Indlandi. Hugðist hún
reyna að mynda minnihlutastjórn, en fráfarandi ríkisstjórn missti meiri-
hluta sinn á þingi í lok sfðustu viku. Þjóðernissinnar á Indlandi hafa lát-
ið í Ijós andúð sína á því að hún myndi stjórn, þar sem hún er ekki ind-
versk að uppruna.
Óttast alnæmi meira en kjamorkuvopn
INDLAND - Indverska hernum stendur meiri ógn af alnæmi en kjarn-
orkuvopnum, að [m' er yfirmenn hersins segja. Nú þegar hafa 6.000 her-
menn smitast af alnæmi, og er talið að innan fárra ára geti fjöldi þeirra
sem smitast hafa verið kominn upp í 20.000. í indverska hernum eru um
það bil milljón hermenn, bæði karlar og konur. Hlutfall alnæmissmit-
aðra í hernum er álíka hátt og hlutfallið í þjóðfélaginu almennt.
Palestmumenu sakaðir um manurétt-
indabrot
Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað yfirvöld á
sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna um alvarleg mannréttindahrot, eink-
um að því er varðar pólitíska fanga á Vesturbakkanum og á Gazasvæð-
inu. Fjölmargir fangar hafa setið inni mánuðum saman án þess að koma
fyrir rétt. Þeir hafa mátt sæta pyntingum og sumir hverfa sporlaust. Am-
nesty intemational telur að nú séu um 220 pólitískir fangar í haldi án
þess að neinar kærur hafi verið Iagðar fram á hendur þeim.