Dagur - 12.05.1999, Qupperneq 4
#- M'tfíVtebbHg&A i'2’/ m'A'í
FRÉTTIR
i>^Kr
tílfar til Nýsköpimarsjóðs
Stjórn Nýsköpunarsjóðs nefur ráðið Úlfar Steindórsson fram-
kvæmdastjóra sjóðsins í stað Páls Kr. Pálssonar sem sagt hefur starfi
sínu lausu. Úlfar hefur síðustu þrjú ár verið framkvæmdastjóri
Union Islandia, dótturfyrirtækis SIF í Barcelona á Spáni. Tuttugu
umsóknir bárust um starfið.
Mennmgarsjóðiir
Svarfdæla veitir stvrki
Menningarsjóour Svarfdæla úthlutaði á aðal-
fundi Sparisjóðs Svarfdæla í Hrísey 9 styrkjum að
upphæð 1200 þúsund krónur. Frá því að Menn-
ingarsjóður Svarfdæla var stofnaður árið 1984 á
100 ára afmæli sparisjóðsins hefur hann úthlut-
að nær 20 milljónum króna í styrki á uppreikn-
uðu verði. 250 þúsund í styrk hlutu Nýibær á
Dalvík til endurbóta og gerð sjónvarpsmyndar um
Jóhann Svarfdæling; 150 þúsund króna styrk
hlutu kór Dalvíkurkirkju og barnakórinn Góðir
hálsar (barnakórinn hlaut einnig 50 þúsund króna styrk úr sveitar-
sjóði Dalvíkurbyggðar); 100 þúsund krónur til Útvarps Dalvíkur; 75
þúsund krónur til Friðriks Hjörleifssonar Dalvfk vegna tónlistarút-
gáfu; Vignis Hallgrímssonar Dalvík vegna myndlistarnáms, Völvu
Gísladóttur Svarfaðardal vegna myndlistarsýningar og Halldórs
Gunnlaugssonar Svarfaðardal vegna myndlistarnáms. 20 milljóna
króna hagnaður varð af rekstri Sparisjóðs Svarfdæla, sem er heldur
lakari útkoma en árið 1997. Formaður stjórnar er Sveinn Jónsson,
athafnamaður í Kálfsskinni.
Eignarhaldsfélag Austurlands
mikilvægt fjórðungnum
Stofnað hefur verið Eignarhaldsfelag Austurlands af Atvinnuþróun-
arfélagi Austurlands, Fjárfestingafélagi Austurlands og Byggðastofn-
un og er stofnfé 4 milljónir króna. Stefnt er að því að auka hlutafé í
100 milljónir króna á fyrsta starfsárinu og hefur Byggðastofnun þeg-
ar samþykkt að auka framlag sitt í 40 milljónir króna. Með stofnun
Eignarhaldsfélagsins er stigið eitt mikilvægasta skrefið í nýsköpun á
Austurlandi. Þátttaka Eignarhaldsfélagsins í öðrum félögum verður í
formi hlutafjárkaupa en fjárfestingar verða í samræmi við fyrirfram
mótaða fjárfestingastefnu sem stjórn félagsins setur. Skilyrði er að
félögin séu rekin á grundvelli arðsemissjónarmiða, fela í sér nýmæli
í atvinnulífi eða eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífsins.
Leitað verður eftir samstarfi við banka og aðrar fjármálastofnanir,
fjárfestingasjóði, sveitarfélög og fyrirtæki sem og aðra sem vinna að
nýsköpun og atvinnuþróun.
Þveitin
Nýtt héraðsfréttablað hefur hafið
göngu sína á Homafirði og heitir
það því sérstaka nafni Þveitin eft-
ir stöðuvatninu Þveitin í Nesjum.
Þveit mun þýða lægð eða jarðfall
en sögnin að þveita getur þýtt að kasta eða þeyta burt. Ekki er þetta
eina blað Hornfirðinga því að í hartnær 18 ár hefur Eystrahorn kom-
ið út með fréttir úr Austur-Skaftafellssýslu sem og öðrum hlutum
Austurlandskjördæmis. Útgefandi er Eldsmiðurinn, en hluti starfs-
manna fyrirtækisins hefur gengið til Iiðs við Þveitina en bæði blöðin
eru prentuð í Prentsmiðju Hornafjarðar. Nokkrar breytingar voru
fyrirhugaðar á starfsmannahaldi Eldsmiðsins.
Lífróður til hjargar Búlandstmdi
Mikil endurskipulagning, nánast lífróður, fer fram á rekstri Bú-
landstinds á Djúpavogi sem miðar fyrst og fremst að því að stöðva
taprekstur fyrirtækisins sem m.a. hefur stafað af offjárfestingu í
framleiðslutækjum miðað við kvótastöðu þess. Fyrstu sex mánuði
rekstrarársins sem hófst I. september sl. er tapið 362 milljónir króna
og að óbreyttu stefnir í gjaldþrot fýrirtækisins. Meginmarkmiðið er
að halda veiðiheimildum, selja hluta af öðrum eignum og samhæfa
þær eignir sem eftir standa framleiðslunni. I fiskverkunarhúsi Bú-
landstinds er aðallega verkaður saltfiskur en ákveðið hefur verið að
stækka vinnsluhúsnæðið um 1.750 fermetra í sumar. Frystihús fé-
Iagsins á Breiðdalsvík, Mánatindur SU og fiskimjölsverksmiðjan hafa
verið seld ásamt frystitogaranum Sunnutindi SU.
Stjóm KASK í uppnámi
Stjórn Kaupfélags Austur-Skaftlellinga, KASK, er í uppnámi þar sem
báðir fulltúar Hafnardeildar í stjórn félagsins, þeir Guðjón Pétur
Jónsson og Páll Kristjánsson, sögðu sig úr stjórninni eftir að tillaga
þeirra um að Guðjón Pétur tæki við stjórnarformennsku var felld en
meirihlutinn stóð að baki endurkosningu Arnar Bergssonar, bónda
að Hofi í Oræfum, sem stjórnarformanns. Annar tveggja varamanna
sem komu í stjórn, Jón Kr. Jónsson, hefur gefið eftir atkvæðisrétt
sinn til þriðja varamanns, Guðrúnar Jónsdóttur, til að auka vægi
Hafnardeildar í stjórn KASK. Sem Iiður í sáttargerðinni hefur íngu
Kristínu Sveinbjörnsdóttur, formanni Hafnardeildar, verið boðió að
sitja stjórnarfundi KASK með tillögurétti og málfrelsi. Gífurlegt tap
var á rekstri vASK á síðasta ári, eða 178 milljónir króna Nýverið
tóku Örn Bergsson stjórnarformaður, og Páll Guðmundsson, kaup-
félagsstjóri. fyrstu skólfustunguna að nýju verslunarhúsi KASK í
miðbæ Flornafjarðar. Stefnt er að því að taka verslunarhúsnæðið í
notkun í aprílmánuði árið 2000, á 80 ára afmæli kaupfélagsins. GG
Þveitin, nýtt héraðsfréttabiað.
Sveinn Jónsson í
Kálfskinni.
1
Skoðanakönnuðir virtust ekki finna Guðjón A. Kristjánsson og félaga á Vestfjörðum, sem þó komust inn á þing
með tveggja manna þingflokk.
Kaimanir fundu
ekki frjálslynda
Félagsvísindastofnun Háskólans
(FSH) reyndist kannana á milli
með minnsta frávikið frá kosn-
ingaúrslitinum; þó ekki síðasta
könnun þeirra, heldur sú næst-
síðasta. Þar var Sjálfstæðisflokk-
urinn ofmetinn minnst og styrk-
ur Vinstri-Grænna næstur Iagi.
Hins vegar vanmat FSH fylgi
Fijálslynda flokksins mest, en í
öllum könnunum fyrir kosningar
mældist fylgi hans ekki nema um
helmingurinn af því sem í ljós
kom.
Sú könnun sem var órafjærst
niðurstöðum kosninganna var
könnun Pricewaterhouse
Cooper (PC), sem birt var um
mánaðamótin á Stöð 2 en fram-
kvæmd dagana áður. Þar mældist
Sjálfstæðisflokkurinn með
49;2% en Fijálslyndir með 0,8%.
I könnunum Gallups, DV og
FSH frá síðustu vikunni í apríl til
7. maí mældist Fijálslyndi flokk-
urinn með 2,2-2,9%, en 3,4%
hæst hjá Gallup 5. maí, en flokk-
urinn fékk 4,2% í kosningunum.
I kjördæmakönnun Gallups á
Vestfjörðum mældust Frjálslynd-
ir með 9,8% dagana 22.-27. apr-
íl, en þar endaði flokkurinn með
17,7%. I ítarkönnunum Gallups
18. apríl og svo síðar í raðkönn-
unum mældist Sjálfstæðisflokk-
urinn í Reykjavík með um 51%
fylgi, en stóð uppi með 45,7%. I
síðustu raðkönnunum leitaðist
Gallup við að meta fylgi flokka í
Norðurlandskjördæmi eystra,
eftir takmörkuðu úrtaki þó, og
þar mældust Samfylkingin og VG
á svipuðum slóðum með um 19%
hvor flokkur, en þegar á hólminn
var komið reyndist VG vera með
5 prósentustiga meira fylgi.
Af raðkönnunum Gallups fyrir
landið allt 3.-7. maí reyndist
könnunin 4. maí nær raunveru-
leikanum en þær sem á eftir
komu og frávikið svipað og í
bestu könnun FSH. Niðurstöður
allra kannananna sýna annars
vanmat á „litlu“ flokkunum og
ofmat á þeim stærstu. - FÞG
Uggur uni fr aiutí ð
Viimslustödvariimar
Bæjarráð Vestmanna-
eyja hefur lýst yfir
þimgiun áhyggjum
vegna afkomu
Vinnslustöðvarinnar
og telur ljóst að grípa
verði til víðtækra ráð-
stafana til þess að fyr-
irtækið verði áfram
burðarás í atvinnulífi
Vestmannaeyja.
Mikil óvissa ríkir um framhald
reksturs Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum en fyrstu sex
mánuði rekstrarársins nam tapið
um 600 milljónum króna.
Stjórnarformaðurinn; Geir
Magnússon, forstjóri Olíufélags-
ins, hefur sagt að hluthafarnir
séu farnir að krefjast arðs af fjár-
festingunni og því hlýtur sala á
hluta eða öllu hlutafé í fyrirtæk-
inu að vera til skoðunar. Jón
Kjartansson, formaður Verka-
Iýðsfélags Vestmannaeyja, segir
það mjög alvarlegt ef landvinnsla
Vinnslustöðvarinnar hætti en
það merkilega við þetta allt sé að
gengi hlutabréfa í fyrirtækinu
fari hækkandi sem bendi ein-
dregið til þess að eitthvað sé í
farvatninu, t.d. sala eða samein-
ing við annað fiskvinnslufyrir-
tæki. Skuldir Vinnslustöðvarinn-
ar nema í dag um 2 milljörðum
króna, en námu 5 milljörðum
króna fyrir nokkrum árum.
„Hjá Vinnslustöðinni hafa at-
vinnu af bolfiskvinnslunni um
230 manns hér í Vestmannaeyj-
um og um 80 manns í Þorláks-
höfn. Sjómennirnir eru um 80
ialsins. Það yrði gríðarlegt áfall
ef vinnslan legðist af. Það er ekki
bara verið að tala um þessi störf
heldur verða magfeldisáhrifin
mjög mikil. Vestmannaeyingar
eru því mjög uggandi um at-
vinnuástandið,11 segir Jón Kjart-
ansson. Formaður verkalýðsfé-
lagsins fór til Reykjavíkur um
helgina til þess að ná tali af Geir
Magnússyni, en fór bónleiður til
búðar. Stjórnarformaður
Vinnslustöðvarinnar var farinn
til Isaíjarðar, en sem kunnugt er
á Olíufélagið stóran hlut í Bása-
felli. Hvort eitthvert samhengi er
þar á milli skal ósagt látið, í bili.
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur
Iýst yfir þungum áhyggjum vegna
afkomu Vinnslustöðvarinnar og
telur Ijóst að grípa verði til víð-
tækra ráðstafana til þess að fyrir-
tækið verði áfram burðarás í at-
vinnulífi Vestmannaeyja. Bæjar-
yfirvöld \dlji einskis láta ófreistað
til þess að á málinu finnist við-
unandi lausn. Atvinnuöryggi
mörg hundruð starfsmanna og
framtíð Vestmannaeyja sem öfl-
ugs byggðalags sé í húfi. Bæjar-
ráð samþykkti að fela bæjar-
stjóra, Guðjóni Hjörleifssyni, að
fylgjast áfram með málinu og
ræða við forsvarsmenn félagsins
í þeirri viðleitni að snúa vörn í
sókn. GG