Dagur - 12.05.1999, Side 12
^1****^^********* *1 * * *1 miiilAiAi Miniiiniiiiniiq ..............unnnmnmni......................mnmi.............
ÍÞRÓTTIR
12 - M IÐ VIK U D A G b R 'l 2 . MÁÍ 1999
Simi 462 3500 • Hóiabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
II í LÁ
fAwraw \\\\
TVÆR SYSTUR - TVO Llf * A - FIM Á5T NÝJASTA NIYND CAMERÖN DIAZ /r AimrTiime a haiit mha rfx/i n
L 1 11 r\ J 1 • ■ TIINEFND TIL 2 (SOMETHING ABOUT MARY) & CHRISTIAN SLATER. ‘
OSKAR SVERÐLAUNA KOLSVÖRT KOMEDIA... •
"•Éwidvikutí. 1(1. 23 Miðvíkud. kl. 21. b.i. iHIIa ift
Sýnd kl. 11.15 - B.i. 16
Sýndkl.9 og 11 - B.i. 16
Sýnd kl. 7
Sýnd kl. 5
FORSÝND kl. 9
Sýnd kl. 6.40
.O^ur
Skyldi Brian Kidd sakna gömiu góðu daganna hjá Manchester United.
Engin samuð
með Brian Kidd
í kvöld mætast Black-
bum Rovers og
Manchester United á
Ewood Fark, heima-
velli Blackbum, í mikl-
um baráttuleik um það
hvort Blackbum fellur
í 1. deild og hvort
United verði áfram
með í baráttimni um
euska meistaratitilinu
gegn Arseual.
Samkvæmt ummælum Steve
Briscoe, varaformanns stuðnings-
mannaklúbbs Manchester
United, munu stuðningsmenn fé-
lagsins ekki hafa neina samúð
með Brian Kidd, fyrrum félaga
sfnum, þó Iið hans tapi fyrir
United f kvöld og falli þar með
niður í 1. deild. „Við munum ekki
gráta það, hvorki vegna hans né
Brians McCIairs, aðstoðarmanns
hans,“ sagði Briscoe.
„Sjálfur mundi ég frekar kætast
yfir því. Eg hef enga samúð með
Brian Kidd. Hann tók sína
áhættu með að gerast fram-
kvæmdastjóri Blackburn, en í
sannleika sagt hefur honum mis-
tekist. Hann er allt of tilfinninga-
næmur, eins og John Gregory hjá
Aston ViIIa,“ bætti Briscoe við.
Veik von hjá Blackbum
Blackburn verður að vinna leik-
inn gegn United til að eiga mögu-
leika á að halda sér í deildinni.
Liðið er nú í næstneðsta sæti
deildarinnar með 33 stig, þremur
stigum minna en Charlton sem er
í þriðja neðsta sætinu með 36 stig
og sex stigum á eftir South-
ampton sem er í næsta sæti þar á
undan. Blackburn heldur því enn
í veika von, með því að vinna sig-
ur á United í kvöld og síðan á
Newcastle í sfðasta leik á sunnu-
Leeds vann í gærkvöld 1 -0 sigur á
Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Með sigri gegn
Leeds gat Arsenal tryggt sér 3ja
stiga forystu á Manchester
United, en í staðinn vænkast nú
hagur United, þar sem liðið getur
í staðinn náð 3ja stiga forystu
með sigri á Blackburn í kvöld.
Leikurinn í gær var nokkuð
harður og bar keim af spennunni
sem er á toppi deildarinnar og
fengu níu leikmenn að líta gul
spjöld, Ijórir hjá Leeds og fimm
hjá Arsenal.
Leikmenn Arsenal fengu góð
dag. Um leið þurfa þeir að treysta
á að bæði Charlton og South-
ampton tapi sínum Ieikjum, en
Charlton fær Sheffíeld Wednes-
day f heimsókn á sunnudag í síð-
asta leik og Southampton Ieikur
gegn Everton heima.
Sama máli gegnir um Man-
chester United. Þeir verða að ná
öllum stigunum í kvöld til að
halda stöðu sinni í baráttunni við
Arsenal um enska meistaratitil-
inn og það ætti þeim að takast
miðað við frammistöðu Black-
burn í síðustu leikjum.
Martröð á lokasprettmuin
Gengi Blackburn hefur verið
martröð líkast á lokasprettinum
og Kidd hefur engan veginn náð
að breyta nokkru þar um. Black-
burn fékk háðuglega útreið gegn
fallliðinu Nottingham Forest á
laugardaginn, þegar það tapaði 1-
2 á heimavelli og mun því eiga
erfitt uppdráttar í kvöld.
„Ég held að ummæli Kidds eft-
ir tapleikinn gegn Forest hafi
dregið allan kjark úr liðinu og að
þetta sé fyrirfram vonlaust hjá
þeim. Alex Ferguson hefði aldrei
komið svona fram við sína leik-
menn og kennt þeim um allt, þó
þeir ættu slakan leik. Þetta voru
aðeins Iélegar afsakanir hjá Kádd
og þess vegna vorkenni ég honum
ekkert. Þeir hafa eytt næstum
eins miklu í Ieikmenn og United
hefur gert, en eru þó langt að
baki að getu. Þess vegna hef ég
enga samúð með þeim,“ sagði
Steve Briscoe, varaformaður
stuðningsmannaklúbbs United.
Leikir síðustu umferðarinnar á
sunnudag:
Charlton - Sheff. Wed.
Chelsea - Derby
Coventry - Leeds
Arsenal - Aston Villa
Liverpool - Wimbledon
Man. United - Tottenham
Newcastle - Blackburn
Nott. Forest - Leicester
Southampton - Everton
West Ham - Middlesbr.
færi til að gera út um leikinn en
Leeds-vörnin var sterk fyrir og
einnig átti Nigel Martin, mark-
vörður Leeds, mjög góðan leik.
I fyrri hálfleik var dæmd víta-
spyrna á Arsenal, en Ian Harte
skaut yfir markið. Það var svo
ekki fyrr en á 85. mínútu sem
Leeds skoraði sigurmarkið, en
þar var að verki Jimmy Floyd
Hasselbaink, eftir sendingu frá
Harry Kewell.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
Iét hafa eftir sér eftir leikinn að
nú væri draumurinn um meist-
an'titilinn líklega úti.
Ilugsaði Heiðari þegjandi
þörfina
Þjálfari nýliðanna í norsku úr-
valsdeildinni, Odd-Grenland,
hugsaði Heiðari Helgusyni þegj-
andi þörfina í Ieiknum gegn Lil-
leström. Ekki nóg með að Heið-
ar ætti bæði mörkin heldur lék
hann vörn nýliðanna oft grátt.
Þegar einn varnarmaður
heimaliðsins lá veinandi á vell-
inum, eftir skallaeinvígi við
Heiðar, var þjálfaranum, Tom
Nordli, nóg boðið. Hann æddi
inn á völlinn og ætlaði að heilsa
Islendingnum að sjómanna sið.
Þeim viðskiptum lauk með því
að aðstoðardómari tók í þjálfar-
ann og hélt honum meðan dóm-
arinn seildist í vasann eftir
rauða spjaldinu. Eftir leikinn
sagði Nordli að hann væri hrif-
inn af Heiðari og hann vildi
gjarnan hafa hann í liði sínu. En
hann þyrfti að hugsa sig um
hvort þessi harði leikstíll hans
væri ekki of mikið af því góða.
Þjálfari Lilleström, Arne Erland-
sen, var á öðru máli og sagði að
Heiðar væri besti skallamaður í
norsku úrvalsdeildinni og það
væri með ólíkindum hvað varn-
armenn kæmust upp með að
tækla hann aftan frá. „Heiðar
átti frábæran Ieik í kvöld og var
langt frá því að vera grófur,"
sagði Erlandsen.
Heiðar og Helgi berjast um
guUskóinu
Heiðar Helguson og Helgi Sig-
urðsson hafa báðir skorað þrjú
mörk í deildinni til þessa og eru
með í baráttunni um marka-
kóngstitilinn. Markahæstu leik-
mennirnir til þessa eru Andreas
Lund, Molde, Totto Dahlu, Ros-
enborg og Andreas Ottoson,
Tromsö, allir með 5 mörk.
Markakóngur síðustu Ieiktíðar,
Sigurd Rushfeldt, er í öðru sæti
með 4 mörk. Ríkharður Daða-
son hefur aðeins leikið hálfan
Ieik fyrir Viking og skoraði þá
tvö mörk. Hann er því með
besta meðalskor deildarinnar.
Breytingar hjá Derby?
Kosta Rica-búinn Paulo
Wanchope, framherji Derby
County í ensku úrvalsdeildinni,
lét hafa eftir sér á dögunum að
hann væri ekki ánægður með
frammistöðu sína hjá liðinu í
vetur. „Ég er ekki ánægður með
hvernig liðið hefur spilað. Við
skorum ekki nógu mikið af
mörkum og of margir leikir hafa
tapast af hreinum klaufaskap.
Þó við séum nú í sjötta sæti
deildarinnar eru nokkrir leik-
menn mjög óánæfeuu ha .
talað um að fara fram á sölu,“
sagði Wanchope.
Sjálfur vildi hann ekki stað-
festa þann orðróm að hann væri
á leiðinni frá félaginu eftir leik-
tíðina og sagði að Jim Smith
framkvæmdastjóri vildi fresta
öllum viðræðum við sig þar til
leiktímabilinu lyki. Hann stað-
festi þó að Jim Smith væri að
leita nýrra leikmanna og þá sér-
staklega að nýjum sóknarmanni,
en það þýddi ekki endilega að
hann væri á förum.
„Ég veit að Dean Sturridge vill
losna frá félaginu og það getur
vel verið að Smith sé að leita að
nýjum sóknarmanni til að fylla
hans skarð í framlínunni,11 bætti
Wanchope við.
Leeds vami Arsenal