Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 1
Hik á Framsókn
vegna tilboðsins
Enn hefiir ekkert gerst
í viöræðiun stjómar-
flokkanna. Bak viö
tjöldin meta framsókn-
armenn tilboð Sam-
fylkingar og VG.
Samkvæmt öruggum heimildum
Dags hefur komið nokkurt hik á
framsóknarmenn í stjórnarmynd-
unarviðræðunum við Sjálfstæðis-
flokkinn vegna tilboðs Samfylk-
ingarinnar um að Framsóknar-
flokkurinn myndi ríkisstjórn með
Samfylkingunni og VG. Það hefur
vakið athygli hvað allt gengur
hægt í viðræðum stjórnarflokk-
anna til þessa. Raunar hefur ekk-
ert gerst enn, sem stafar að hluta
af þessu hiki framsóknarmanna
sem eru að velta fyrir sér þeim
möguleikum sem tilboðið býður
upp á. Akveðnar þreifingar eiga
sér stað bak við tjöldin í því máli.
I tilboði Samfylkingarinnar og
VG felst það að sjálfsögðu að
Halldór Ásgríms-
son verði forsæt-
isráðherra ríkis-
stjórnarinnar og
það er Ijóst sam-
kvæmt þessu að
framsóknarmenn
eru alvarlega að
hugleiða málið.
Þeir framsóknar-
menn sem Dagur
ræddi við í gær
staðfestu þetta,
en sögðu málið á
ofur viðkvæmu
stigi og óvíst um hvað yrði ofan á.
Skoða alla möguleika
Það sem ákveðnir forystumenn
Framsóknarflokksins munu vera
að líta til er að þeir fóru illa út úr
alþingiskosningunum eftir fjög-
urra ára samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn. Þess vegna benda þeir á
að afar eðlilegt sé að þeir velti
öðrum möguleikum um stjórnar-
myndun fyrir sér, þegar þeir bjóð-
ast.
Framsóknarmenn sem Dagur
ræddi við í gær
telja að í sjálfu
sér sé fátt því til
fyrirstöðu að
þessir þrír flokk-
ar geti unnið
saman í ríkis-
stjórn. Þó sögðu
nokkrir fram-
sóknarmenn í
gær að enn væri
ekki gróið um
heilt milli fram-
sóknarmanna og
ákveðinna þing-
manna Samfylkingarinnar vegna
fyrri samskipta. En þótt uppi
væru efasemdir um að fullar sætt-
ir tækjust töldu menn samt að
slfkt ætti ekki að koma í veg fyrir
stjórnarsamvinnu ef vilji til slíks
væri á annað borð til staðar.
Tilfærsla málailokka
Nú er talið nokkuð víst, hveijir
sem mynda ríkisstjórn, að ráð-
herrum verði fjölgað úr 10 í 12.
Það er sama við hvaða þingmenn
er talað, þeir ganga út frá því að
svo verði. Sömuleiðis eru uppi
hugmyndir meðal þingmanna um
tilfærslu málaflokka milli ráðu-
neyta. Til dæmis að færa trygg-
ingakerfið yfir til félagsmálaráðu-
neytisins og létta þannig á ráðu-
neyti heilbrigðis- og trygginga-
mála. Síðan hafa verið uppi hug-
myndir um að iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu verði breytt í
efnahagsmálaráðuneyti enda fer
ríkið ekki lengur með nein við-
skipti á móti því sem áður var.
Loks hafa ýmsir nefnt að rétt væri
að koma upp atvinnumálaráðu-
neyti.
Þá hefur Dagur fengið það
staðfest að Framsóknarflokkurinn
mun leggja þunga áherslu á að fá
menntamálaráðuneytið, sama
hvaða stjórnarmunstur verður
uppi. Framsóknarflokkurinn lagði
mikla áherslu á menntamálin í
samþykktum sínum á flokksþing-
inu síðastliðið haust, ekki síst
málefni Ríkisútvarpsins. Það kom
til vegna ótta þeirra um framtíð
útvarpsins undir stjóm sjálfstæð-
ismanna. — S.DÓR
Framsóknarmenn leggja þunga
áherslu á að fá menntamálaráðu-
neytið.
Stórtjón í
eldsvoða
Talað er um allt að hundrað
milljóna króna tjón þegar stór-
bruni varð f leiktækjasmiðjunni
Barnagaman á Smiðjuvegi í
Kópavogi í gær. Þrír starfsmenn
voru í fyrirtækinu þegar eldurinn
kom upp og var einn þeirra hætt
kominn.
Slökkvistarfið leið fyrir ónógt
vatn og varð að fara langa leið
eftir vatni. Kallað var eftir aðstoð
tankbíla frá slökkviliði Reykja-
víkurflugvallar og Reykjavíkur-
borg en þó kom ekki til notkunar
þeirra þar sem tekist hafði að ná
saman nægu vatni um það leyti
sem þeir komu á vettvang.
I þessu hverfi eru mörg fyrir-
tæki og töluverð meðhöndlun
eldfimra efna. Mikill eldsmatur
var því til staðar. Nælon- og
plasthúðun, þynnir og málning
meðal annars. Metur slökkviliðið
það afrek að takast skyldi að
bjarga húsunum við hliðina.
Hins vegar er tjón gífurlegt eins
og fyrr segir. — BÞ
Litlu mátti muna að slys yrðu á fólki þegar stórbruni varð í Kópavogi í gær.
Tjónið er talið allt að hundrað milljónir.
Þorlákur Jónasson bóndi: Glaður
yfir Hverfjallssigrinum.
Hverflafl
skal pað
heita!
Ornefnanefnd hefur úrskurðað í
deilu Mývetninga um hvort nota
skuli nafnið Hverfjall eða Hverfell
á heimsfrægum sprengigíg í sveit-
inni. Þeir sem stutt hafa nafnið
Hverljall höfðu sigur.
I úrskurðinum, sem sendur er
Landmælingum Islands, segir
m.a. að Iög kveði á um að ömefna-
nefnd úrskurði ef til ágreinings
kemur um ömefni. I jarðfræði
nefnist gígurinn Hverfjall og í
flestum ritum virðist jafnan notað
-fjall, hins vegar séu tvær gamal-
grónar orðmyndir í Mývatnssveit
og nágrannabyggðum.
Örnefnanefnd segir orðliðina
fell og Qall náskylda og bendir á að
þeir geti verið nauðalíkir í fram-
burði. Bent er á að á kortum
Landmælinga hafí staðið Hverfjall
frá upphafi og til ársins 1987 en
frá þeim tíma til 1992 hafi bæði
nöfn verið notuð á kortum en þá
fóru Landmælingar aðeins að
nota -fellið. „Eftirgrennslan hefur
ekki leitt í Ijós með óyggjandi
hætti hvað réð þessum breyting-
um á rithætti," segir í úrskurðin-
um. „Við þennan úrskurð vegur
löng rithefð á kortum hlutfallslega
þyngra en annað. Örnefnanefnd
úrskurðar að setja skuli nafnið
Hverljall að nýju á landakort, sem
gefin eru út á vegum Landmæl-
inga íslands eða með leyfi þeirra.“
Dagur innti Þorlák Jónasson,
bónda í Vogum í Mývatnssveit við-
bragða, en hann hefur barist hart
fyrir -fjallsmyndinni. „Gleði,"
sagði Þorlákur, en gat þess jafn-
framt að hann harmaði að til deil-
unnar hefði komið. En skiptir í
raun nokkru hvort menn nota
nafnið Hverfjall eða Hverfell?
„Það skiptir engu máli hvað menn
kalla þetta Ijall. Hins vegar höfum
við lagt áherslu á að hið ritaða mál
sem staðið hefur í tvær aldir fái að
standa sem og allar merkingar
fjallsins," segir Þorlákur. - BÞ
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
mmomoe ðcprgs
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100