Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 4
FRÉTTIR Fleiri til neyðarsvæðanna Rauði kross íslands hefur ákveðið að senda fleiri starfsmenn til neyð- arsvæðanna á Balkanskaga. Jón Guðni Kristjánsson fréttamaður og Jón Hafsteinsson bílstjóri fara til Albaníu í maf og taka þátt í aðstoð Rauða krossins við flóttafólkið í Kosovo. Jón Guðni verður upplýs- ingafulltrúi fyrir alþjóða Rauða krossinn og er fyrirhugað að hann verði í Albaníu næsta hálfa árið. Jón Hafsteinsson mun aka með hjálpargögn til flóttamannabúða og verður ytra í 3 mánuði. Úlfur Björnsson sendifulltrúi hefur verið í Albaníu frá því í apríl og þar er einnig Sólveig Olafsdóttir, upplýsingafulltrúi Alþjóðasam- bands landsfélaga Rauða krossins. Starfsmenn og sjálfboðaliðar alþjóða Rauða krossins aðstoða nú um 250 þúsund manns í Albaníu, Makedóníu og Júgóslavíu og felst aðstoðin einkum í að útvega matvæli og aðrar nauðsynjar. Rottufaraldur á ísafirði Mikil rottumergð heijar um þessar mundir í holræsakerfi Isafjarðar og víða finnast heilu herirnir af rottum í sorpílátum og annars stað- ar þar sem þessi vágestur Ieitar sér að æti. Eitrað hefur verið í all- flesta brunna á Isafirði og fyrirhugað er að fara aðra umferð síðar þegar árangur þessa eiturhernaðar á rotturnar verður orðinn ljós. Eitrinu er komið fyrir í fituklumpum, en feitmeti er ofarlega á vin- sæidalista þessara loðnu vágesta. Talið er að orsaka þessara öru fjölgunar á rottum megi annars veg- ar Ieita til þess að verulega hefur dregið úr fiskverkun á Isafirði á undanförnum misserum og því minna um æti í frárennsliskerfinu. Einnig var skorin upp herör gegn villiköttum í bæjarfélaginu á síð- asta hausti og auðvitað kann það að hafa áhrif, dauður köttur veiðir ekki. — GG „Sumar 99“ í fþróttahölliimi á Akur- eyri „Sumar 99“ er heiti mikillar sýningar sem fram fer í Iþróttahöllinni á Akureyri 15. og 16. maí nk. kl. 11.00 til 17.00 og er sýningunni greinilega ætlað að höfða til þess að senn kemur sumar því þar má finna allt frá bifreiðum og niður í smæstu tæki til garðræktar. Nýjasta „Volkswagen-bjallan" verður þarna til ánægju og yndisauka en þeir eru ófáir Islendingarnir sem komnir eru á miðjan aldur sem fóru í sína fyrstu ökuferð sem nýbakaðir bílstjórar á bjöllu. Það var líka hreint með ólíkindum hversu þröngt sáttir máttu sitja í þessum bifreiðum þegar t.d. smalað var í þær á skólaböll og inn í þær var troðið a.m.k. 9 manns. Fleiri bílar verða til sýnis, en auk þess felli- hýsi, tjaldvagnar, útileguvörur, hjól, leiktæki, grill og allt það sem nota þarf í garðinn, nú þegar allt fer að springa þar út. A sýningunni verður sérstakt krakkahorn og efnt verður til teiknimyndasamkeppni og veglegir vinningar verða í fjölbreyttri sýningargetraun. Ymis fyrirtæki munu kynna starfsemi sína og vörur á sýningunni. - GG Bágur fjárhagur mun ekki koma í veg fyrir að Vagiaskógur verði opinn í sumar. Vaglaskógi mun ekki lokað Rekstrarvandinn er fyrst og fremst fólgiim í því að fjármagn skortir til að borga laun en fjárveitingar til Skógræktarinnar hafa ekki fylgt launa- þróuninni að mati skógarvarðar Norður- lands. Sigurður Skúlason, skógarvörður Norðurlands, segir að Vaglaskógi verði ekki lokað í sumar þrátt fyr- ir skort á fjármagni til þess að sinna skóginum og útivistarsvæð- um í honum þannig að það sé boðlegt fyrir það fólk sem þangað kemur til dvalar yfir sumarmán- uðina. Vaglaskógur er í eigu Skóg- ræktar ríkisins. Sigurður segir að að óbreyttu ástandi muni koma að því að ekki verði hægt að hafa opið í Vaglaskógi. Hætt er við að mörgum Akureyringnum yrði brugðið ef ekki væri hægt að skreppa í Vaglaskóg, sem stund- um er kallaður „bakgarður" Akur- eyringa, vegna vinsælda hans sem útivistarsvæðis. „Vandinn er fyrst og fremst fólginn í því að okkur skortir pen- inga til að borga laun en fjárveit- ingar til okkar hafa ekki fylgt Iaunaþróuninni. Eg tók þá ákvörðun fyrir tveimur árum að leigja reksturinn á tjaldsvæðun- um til Ketils Tryggvasonar á Hall- gilsstöðum, en hann rekur einnig verslunina við gömlu Fnjóskár- brúna, sem er mjög hagkvæmt. Þetta er andstætt öllum okkar áformum hjá Skógræktinni því við höfum verið að vinna að því að opna öll okkar skóglendi fyrir fólki, og það munum við gera fram í rauðan dauðann. Starfsemi Skógræktarinnar á Norðurlandi hefur einnig verið að skerðast verulega ár frá ári, en á síðustu sjö árum hefur starfsmönnum fækkað um 10 manns. Ætli starfsmannafjöldinn í sumar verði ekki um 12 til 15 manns með sumarstarfsfólki, en ársstörfin eru um 7 talsins," segir Sigurður Skúlason. - Hvemig kemur Vaglaskógur undan vetri? „Nokkuð vel, en það verður einhver sligun á tijám en lítið um brot. Það var mjög mikill snjór hér í vetur, og er enn. Eg er miklu hræddari um Iitlu skógarreitina þvf það skefur miklu auðveldar inn í þá. Þeir eru sumir hveijir al- veg fullir af snjó, og þar er mikið um brotin tré. Þetta á við hér í Fnjóskadal, en ekki síður á Norð- urlandi vestra, enda hefur verið óvenjumikill snjór í Skagafirði í vetur.“ - Verður leyft að gista í skógin- um um hvttasunnuna, sem er fyrsta útivistarhelgi sumarins, ekki síst unglinganna? „Nei. Það verður eldd opnað fyrr en eftir hvítasunnu, enda er hún frekar snemma núna. Ætli við leyfum ekki fyrstu tjöldun í skóginumlO. til 12. júní, en það ræðst af því hvernig veðráttan hagar sér út maímánuð. Vegna mikilla snjóa er minna frost í jörðu svo snjóinn hripar fyrr nið- ur. I öllum auglýsingum er sagt að útivistarsvæði séu opin frá 15. júní til 30. ágúst, svo við erum innan þess ramma." — GG I L vOPNAFJ ORÐUR Fjárhagsáætlim Vopnafjaröarhafnar Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hefur samþykkt fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhafnar samkvæmt tillögu hafnarnefndar en rekstrar- gjöld eru áætluð 28,3 milljónir króna. Til aðkomu að smábátahöfn og lýsingar fari 500 þúsund krónur, bifreiðakostnaður er áætlaður 250 þúsund krónur og tekin verða ný lán að upphæð 750 þúsund krón- Sameining slökkviliða Sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, hefur lagt fram drög að samein- ingu slökkviliða Vopnafjarðar- og Skeggjastaðahrepps. Sveitarstjóri skýrði hvernig undirbúningnum að drögum að sameiningu hefði ver- ið við Skeggjastaðahrepp og hvernig hugsanlega yrði háttað verka- skiptingu og/eða framkvæmd við rekstur slökkviliðsins, fjármögnun og rekstrarkostnaði. Átak í jarðhitaleit á köldum svæðum Samþykkt hefur verið hjá stjórn verkefnisins „Atak í jarðhitaleit á köldum svæðum" að veita Vopnafjarðarhreppi allt að 2 milljóna króna styrk til jarðhitaleitar gegn jafnháu framlagi frá Vopnafjarðar- hreppi. Að tillögu oddvita var það samþykkt. Samið um byggingu 2. áfanga grunn- skólans Leiðrétt kostnaðaráætlun vegna byggingar 2. áfanga grunnskólans var ný\'erið lögð fram á fundi sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps Gert er ráð fyrir 1,7 millj. króna hækkun, og verður kostnaðaráætl unin þá 34 4 milljónir króna. Lagt var fram tilboð frá Mælifelli að upphæð 34,9 milljónir króna, sem er 1,55% hærra en leiðrétt kostn- aðaráætlun. Sveitarstjóra var falið að ganga til samninga við Mælifell um verkið a grundvelli tílboðsins. — GG Sigbjöm segi af hverju haim fór Kristín Sigursveius- dóttir, frambjóðandi Samfylkmgar, vill að Sigbjöm Gunnarsson uppfysi hvers vegna hann tók ekki fyrsta sætið og hætti dylgj- uin í garð þeirra sem eftir vora. Kristín Sigursveinsdóttir sem var í þriðja sæti Samfylkingarinnar í Norðurlandskjördæmi eystra í kosningunum segir vfirlýsingar Sigbjörns Gunnarssonar í Degi í gær ómálefnalegar og ómaldegar. Sigbjörn segir í Degi að það muni aldrei gróa um heilt milli sín og þeirra sem komu að frambuðs- málum hans hér í kjördæminu. Hann segir að kjósendum hafi of- boðið atburðarásin og að niður- stöður prófkjörsins hafi ekki verið Kristín Sigursveinsdóttir segir málatilbúnað Sigbjörns ómaklegan. virtar. í því liggi skýringin á slöku gengi Samfylkingurinnar í kjör- dæminu. Kristín Sigursveinsdóttir segir þessar yfirlýsingar furðulegar því sá eini sem hreyfði við niðurstöð- um prófkjörsins hafi verið Sig- björn sjálfur, sem hafi farið út af listanum, eftir að frambjóðendur hafi verið farnir að starfa saman og skipta með sér verkum. Kristín segir fráleitt og ómaklegt af Sig- birni að vísa sífellt í þá, sem störf- uðu fyrir Samfylkinguna og vera með dylgjur í þeirra garð - fólks sem ekki hafi gefið út nokkrar yf- irlýsingar í garð hans persónu. Það sé Iöngu kominn tími til þess að hann sjálfur gerði grein fyrir því hvers vegna hann tók ekki efsta sæti listans. Kristín segist aldrei hafa átt í illdeilum við Sig- björn en það sé erfitt að sjá að hann eigi samleið með Samfylk- ingunni eftir þetta Hafi hann einhver klögumál eigi hann ein faldlega að koma með þau og segja gegn hverjum þau beinast staðinn fyrir að vera með ein hverjar háltkveðnar vísut „Ég he ekki verið lengi í pólitík en æra mín er mér það rnikils virði að ég á hreinlega erfitt með að sitja undir þessu lengur," sagö Kristín í samtali við Dag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.