Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
Fleiri til neyðarsvæðanna
Rauði kross íslands hefur ákveðið að senda fleiri starfsmenn til neyð-
arsvæðanna á Balkanskaga. Jón Guðni Kristjánsson fréttamaður og
Jón Hafsteinsson bílstjóri fara til Albaníu í maf og taka þátt í aðstoð
Rauða krossins við flóttafólkið í Kosovo. Jón Guðni verður upplýs-
ingafulltrúi fyrir alþjóða Rauða krossinn og er fyrirhugað að hann
verði í Albaníu næsta hálfa árið. Jón Hafsteinsson mun aka með
hjálpargögn til flóttamannabúða og verður ytra í 3 mánuði.
Úlfur Björnsson sendifulltrúi hefur verið í Albaníu frá því í apríl og
þar er einnig Sólveig Olafsdóttir, upplýsingafulltrúi Alþjóðasam-
bands landsfélaga Rauða krossins.
Starfsmenn og sjálfboðaliðar alþjóða Rauða krossins aðstoða nú
um 250 þúsund manns í Albaníu, Makedóníu og Júgóslavíu og felst
aðstoðin einkum í að útvega matvæli og aðrar nauðsynjar.
Rottufaraldur á ísafirði
Mikil rottumergð heijar um þessar mundir í holræsakerfi Isafjarðar
og víða finnast heilu herirnir af rottum í sorpílátum og annars stað-
ar þar sem þessi vágestur Ieitar sér að æti. Eitrað hefur verið í all-
flesta brunna á Isafirði og fyrirhugað er að fara aðra umferð síðar
þegar árangur þessa eiturhernaðar á rotturnar verður orðinn ljós.
Eitrinu er komið fyrir í fituklumpum, en feitmeti er ofarlega á vin-
sæidalista þessara loðnu vágesta.
Talið er að orsaka þessara öru fjölgunar á rottum megi annars veg-
ar Ieita til þess að verulega hefur dregið úr fiskverkun á Isafirði á
undanförnum misserum og því minna um æti í frárennsliskerfinu.
Einnig var skorin upp herör gegn villiköttum í bæjarfélaginu á síð-
asta hausti og auðvitað kann það að hafa áhrif, dauður köttur veiðir
ekki. — GG
„Sumar 99“ í fþróttahölliimi á Akur-
eyri
„Sumar 99“ er heiti mikillar sýningar sem fram fer í Iþróttahöllinni
á Akureyri 15. og 16. maí nk. kl. 11.00 til 17.00 og er sýningunni
greinilega ætlað að höfða til þess að senn kemur sumar því þar má
finna allt frá bifreiðum og niður í smæstu tæki til garðræktar.
Nýjasta „Volkswagen-bjallan" verður þarna til ánægju og yndisauka
en þeir eru ófáir Islendingarnir sem komnir eru á miðjan aldur sem
fóru í sína fyrstu ökuferð sem nýbakaðir bílstjórar á bjöllu. Það var
líka hreint með ólíkindum hversu þröngt sáttir máttu sitja í þessum
bifreiðum þegar t.d. smalað var í þær á skólaböll og inn í þær var
troðið a.m.k. 9 manns. Fleiri bílar verða til sýnis, en auk þess felli-
hýsi, tjaldvagnar, útileguvörur, hjól, leiktæki, grill og allt það sem
nota þarf í garðinn, nú þegar allt fer að springa þar út. A sýningunni
verður sérstakt krakkahorn og efnt verður til teiknimyndasamkeppni
og veglegir vinningar verða í fjölbreyttri sýningargetraun.
Ymis fyrirtæki munu kynna starfsemi sína og vörur á sýningunni.
- GG
Bágur fjárhagur mun ekki koma í veg fyrir að Vagiaskógur verði opinn í sumar.
Vaglaskógi mun
ekki lokað
Rekstrarvandinn er
fyrst og fremst fólgiim
í því að fjármagn
skortir til að borga
laun en fjárveitingar
til Skógræktarinnar
hafa ekki fylgt launa-
þróuninni að mati
skógarvarðar Norður-
lands.
Sigurður Skúlason, skógarvörður
Norðurlands, segir að Vaglaskógi
verði ekki lokað í sumar þrátt fyr-
ir skort á fjármagni til þess að
sinna skóginum og útivistarsvæð-
um í honum þannig að það sé
boðlegt fyrir það fólk sem þangað
kemur til dvalar yfir sumarmán-
uðina. Vaglaskógur er í eigu Skóg-
ræktar ríkisins. Sigurður segir að
að óbreyttu ástandi muni koma
að því að ekki verði hægt að hafa
opið í Vaglaskógi. Hætt er við að
mörgum Akureyringnum yrði
brugðið ef ekki væri hægt að
skreppa í Vaglaskóg, sem stund-
um er kallaður „bakgarður" Akur-
eyringa, vegna vinsælda hans sem
útivistarsvæðis.
„Vandinn er fyrst og fremst
fólginn í því að okkur skortir pen-
inga til að borga laun en fjárveit-
ingar til okkar hafa ekki fylgt
Iaunaþróuninni. Eg tók þá
ákvörðun fyrir tveimur árum að
leigja reksturinn á tjaldsvæðun-
um til Ketils Tryggvasonar á Hall-
gilsstöðum, en hann rekur einnig
verslunina við gömlu Fnjóskár-
brúna, sem er mjög hagkvæmt.
Þetta er andstætt öllum okkar
áformum hjá Skógræktinni því
við höfum verið að vinna að því
að opna öll okkar skóglendi fyrir
fólki, og það munum við gera
fram í rauðan dauðann. Starfsemi
Skógræktarinnar á Norðurlandi
hefur einnig verið að skerðast
verulega ár frá ári, en á síðustu
sjö árum hefur starfsmönnum
fækkað um 10 manns. Ætli
starfsmannafjöldinn í sumar verði
ekki um 12 til 15 manns með
sumarstarfsfólki, en ársstörfin
eru um 7 talsins," segir Sigurður
Skúlason.
- Hvemig kemur Vaglaskógur
undan vetri?
„Nokkuð vel, en það verður
einhver sligun á tijám en lítið um
brot. Það var mjög mikill snjór
hér í vetur, og er enn. Eg er miklu
hræddari um Iitlu skógarreitina
þvf það skefur miklu auðveldar
inn í þá. Þeir eru sumir hveijir al-
veg fullir af snjó, og þar er mikið
um brotin tré. Þetta á við hér í
Fnjóskadal, en ekki síður á Norð-
urlandi vestra, enda hefur verið
óvenjumikill snjór í Skagafirði í
vetur.“
- Verður leyft að gista í skógin-
um um hvttasunnuna, sem er
fyrsta útivistarhelgi sumarins, ekki
síst unglinganna?
„Nei. Það verður eldd opnað
fyrr en eftir hvítasunnu, enda er
hún frekar snemma núna. Ætli
við leyfum ekki fyrstu tjöldun í
skóginumlO. til 12. júní, en það
ræðst af því hvernig veðráttan
hagar sér út maímánuð. Vegna
mikilla snjóa er minna frost í
jörðu svo snjóinn hripar fyrr nið-
ur. I öllum auglýsingum er sagt að
útivistarsvæði séu opin frá 15.
júní til 30. ágúst, svo við erum
innan þess ramma." — GG
I
L
vOPNAFJ ORÐUR
Fjárhagsáætlim Vopnafjaröarhafnar
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hefur samþykkt fjárhagsáætlun
Vopnafjarðarhafnar samkvæmt tillögu hafnarnefndar en rekstrar-
gjöld eru áætluð 28,3 milljónir króna. Til aðkomu að smábátahöfn og
lýsingar fari 500 þúsund krónur, bifreiðakostnaður er áætlaður 250
þúsund krónur og tekin verða ný lán að upphæð 750 þúsund krón-
Sameining slökkviliða
Sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, hefur lagt fram drög að samein-
ingu slökkviliða Vopnafjarðar- og Skeggjastaðahrepps. Sveitarstjóri
skýrði hvernig undirbúningnum að drögum að sameiningu hefði ver-
ið við Skeggjastaðahrepp og hvernig hugsanlega yrði háttað verka-
skiptingu og/eða framkvæmd við rekstur slökkviliðsins, fjármögnun
og rekstrarkostnaði.
Átak í jarðhitaleit á köldum svæðum
Samþykkt hefur verið hjá stjórn verkefnisins „Atak í jarðhitaleit á
köldum svæðum" að veita Vopnafjarðarhreppi allt að 2 milljóna
króna styrk til jarðhitaleitar gegn jafnháu framlagi frá Vopnafjarðar-
hreppi. Að tillögu oddvita var það samþykkt.
Samið um byggingu 2. áfanga grunn-
skólans
Leiðrétt kostnaðaráætlun vegna byggingar 2. áfanga grunnskólans
var ný\'erið lögð fram á fundi sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps
Gert er ráð fyrir 1,7 millj. króna hækkun, og verður kostnaðaráætl
unin þá 34 4 milljónir króna. Lagt var fram tilboð frá Mælifelli að
upphæð 34,9 milljónir króna, sem er 1,55% hærra en leiðrétt kostn-
aðaráætlun. Sveitarstjóra var falið að ganga til samninga við Mælifell
um verkið a grundvelli tílboðsins. — GG
Sigbjöm segi af
hverju haim fór
Kristín Sigursveius-
dóttir, frambjóðandi
Samfylkmgar, vill að
Sigbjöm Gunnarsson
uppfysi hvers vegna
hann tók ekki fyrsta
sætið og hætti dylgj-
uin í garð þeirra sem
eftir vora.
Kristín Sigursveinsdóttir sem var
í þriðja sæti Samfylkingarinnar í
Norðurlandskjördæmi eystra í
kosningunum segir vfirlýsingar
Sigbjörns Gunnarssonar í Degi í
gær ómálefnalegar og ómaldegar.
Sigbjörn segir í Degi að það muni
aldrei gróa um heilt milli sín og
þeirra sem komu að frambuðs-
málum hans hér í kjördæminu.
Hann segir að kjósendum hafi of-
boðið atburðarásin og að niður-
stöður prófkjörsins hafi ekki verið
Kristín Sigursveinsdóttir segir
málatilbúnað Sigbjörns ómaklegan.
virtar. í því liggi skýringin á slöku
gengi Samfylkingurinnar í kjör-
dæminu.
Kristín Sigursveinsdóttir segir
þessar yfirlýsingar furðulegar því
sá eini sem hreyfði við niðurstöð-
um prófkjörsins hafi verið Sig-
björn sjálfur, sem hafi farið út af
listanum, eftir að frambjóðendur
hafi verið farnir að starfa saman
og skipta með sér verkum. Kristín
segir fráleitt og ómaklegt af Sig-
birni að vísa sífellt í þá, sem störf-
uðu fyrir Samfylkinguna og vera
með dylgjur í þeirra garð - fólks
sem ekki hafi gefið út nokkrar yf-
irlýsingar í garð hans persónu.
Það sé Iöngu kominn tími til þess
að hann sjálfur gerði grein fyrir
því hvers vegna hann tók ekki
efsta sæti listans. Kristín segist
aldrei hafa átt í illdeilum við Sig-
björn en það sé erfitt að sjá að
hann eigi samleið með Samfylk-
ingunni eftir þetta Hafi hann
einhver klögumál eigi hann ein
faldlega að koma með þau og
segja gegn hverjum þau beinast
staðinn fyrir að vera með ein
hverjar háltkveðnar vísut „Ég he
ekki verið lengi í pólitík en æra
mín er mér það rnikils virði að ég
á hreinlega erfitt með að sitja
undir þessu lengur," sagö Kristín
í samtali við Dag