Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 3
l^HT' FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 - 3 FRÉTTIR i. Pólitlskt óhróðurs- dreifibréf stöðvað Nafnlans „ósmekkleg- ur“ pólitískur áróður stöðvaður í dreifingu hjá íslaudspósti. Átti að fara iun á 30 þus- und heimili. Engiun skráður sem áhyrgðar- maður. Yfirmenn Islandspósts fyrirskip- uðu stöðvun á dreifingu 30 þús- und eintaka af áróðursbréfi til kjósenda fyrir kosningarnar, en bréfið innihélt óhróður í garð nafntogaðra einstaklinga - þar á meðal Halldórs Asgrímssonar utanríkisráðherra. Dreifibréfið var hins vegar ekki stöðvað vegna innihaldsins, heldur vegna þess að ábyrgðarmann vantaði. Tveir menn á sendibíl komu á föstu- deginum fyrir kosningar og sóttu bréfin aftur í póstmiðstöðina við Armúla frekar en að tilgreina ábyrgðarmann. Pósturinn neitar að gefa upp nöfn þeirra. Bæði Einar Þorsteinsson, for- stjóri Islandspósts, og Björn Jósef Arnviðarson, stjórnarformaður fyrirtækisins, staðfesta að send- ing hafi verið stöðvuð. Einar mun hins vegar hafa verið er- lendis þegar málið kom upp þannig að það kom í hlut Björns að taka af skarið í málinu. Björn sagði Degi að hann hefði fengið spurnir af því að dreifibréf með vafasömum málflutningi hafi verið komið til dreifingar hjá fyr- irtækinu og fyrir því hafi ekki verið gefinn upp neinn ábyrgðar- maður eða prentaðili, eins og krafa er um í lögum. Það hafi ekki komið til greina að Islands- póstur dreifði þessu á eigin ábyrgð og því hafí sendingin ver- ið kyrrsett. „Vægast sagt ósmekklegt“ Dreifíbréfíð átti að bera út í 30 þúsundum eintaka á ýmsa staði. Einar Þorsteinsson sagði um þetta mál: „Við skiptum okkur alla jafna ekki af innihaldi póst- sendinga, sem í þessu tilviki var pólitískur málflutningur, en í öllu falli þarf að koma fram ábyrgðarmaður fyrir innihaldinu og þarna vildi enginn kannast við slíka ábyrgð. Úr því svo var gat ábyrgðin lent á okkur, ef á hana reyndi, sem óneitanlega kom til greina," segir Einar. Hvorki Einar né Björn Jósef vildu tjá sig nánar um innihald- ið né sögðust þeir \áta hver væri sendandinn. „En ég \ildi gjarnan finna sendandann og afhenda honum bunkann. Mér finnst þó ólíklegt að hann gefi sig fram,“ sagði Einar aðspurður á þriðju- dag. Þessi ummæli Einars byggðu að sögn Askels Jónssonar, framkvæmdastjóra framkvæmda- sviðs, á misskilningi, þar sem Einar hefði þá ekki verið búinn að fá upplýsingar um að sending- in hafi verið sótt. Askell staðfest- ir að nöfn sendenda liggi fyrir, en vill ekki upplýsa um þau og vísar til póstleyndar. Samkvæmt upplýsingum Dags mun einhverjum starfsmönnum sem sáu dreifibréfið hafa blöskr- að málflutningurinn og frágang- ur þessa dreifibréfs og haft orð á því. „Þetta var vægast sagt ósmekklegt,“ sagði einn starfs- manna Islandspósts \að Dag. - fþg/bg Kuldi sciiikar komsáningu Kornbændur í Eyjafirði eru fyrst núna að sá korni sínu og er það 2-3 vikum síðar en undanfarin ár. Astæðan er mikil snjóalög fram eftir vetri og kaldur apríl. Því fyrr sem sáð er, því betra. Benedikt Hjaltason er korn- bóndi í Eyjafirði: „í lyrra sáði ég á síðasta degi vetrar. Tilraunir sýna að mikilvægt er að koma korninu sem fyrst niður til að nýta ljósaganginn yfir sumarið. Vika á vorin gerir meira en þrjár vikur á haustin í sprettutíma. Kornið þolir öll hret bara ef maður kemur því niður,“ segir Benedikt, bóndi á Hrafnagili. Benedikt segir tæknina við kornrækt vera í sífelldri þróun og eitthvað mun um að bændur skipti með sér vélakosti, sérstak- Iega við sáningu. I Skagafirði eru menn heldur fyrr á ferðinni en í Eyjafirði og sömu sögu er að segja á Suður- landi. - bþ Kombændur i Eyjafirði hafa orðið að sá mun seinna en í fyrra vegna kulda. AfLaverðmætið íiniin mflljnnir króna á dag Góð grálúðuveiði á Hampiðjutorginu, en staðuriim einnig set- inn af ís, búrhvölum og blöðrusel. Frystitogari Snæfells á Dalvík, Björgvin EA, kom til heimahafn- ar á sunnudag með 60 milljóna króna aflaverðmæti eftir aðeins 12 daga veiðiferð. Það táknar að aflaverðmæti togarans hafi verið 5 milljónir króna á dag, sem ef- laust er einsdæmi. Hásetahlutur hefur numið um 760 þúsund krónum, eða um 63 þúsund krónum á dag, eða sem svarar 1,9 milljónum í mánaðarlaun. Nýlega setti frystitogari Skag- strendings met er hann kom með að Iandi afla að verðmæti 106 milljónir króna eftir 36 daga veiðiferð, eða 2,9 milljóna króna aflaverðmæti hvern úthaldsdag. Veiðiferðin hjá Björgvini EA byrjaði á Hampiðjutorginu, sem er djúpt vestur af Víkurál, þar sem fengust um 200 tonn af grá- lúðu. A þeim slóðum var töluvert af ís og ísjökum, og á ísnum og allt í kring var mikið líf, þ\á þar var mikið af búrhvölum og blöðrusel. Þess má geta að Hampiðjutorgið fékk þetta nafn þegar togarar byrjuðu veiðar þarna í fyrstu en þá var mikið um að menn hengilrifu á þessu svæði, sem auðvitað var „óður“ til Hampiðjunnar. I dag kallast þetta svæði yfirleitt Torgið, eða Torg hins himneska friðar. I lok túrsins fékk Björgvin svo 50 tonn af þorski norðvestur af Kolbeins- ey. Lftið varð vart við kviðbitinn þorsk eftir sel þar, en togarinn Páll Pálsson frá Hnífsdal fékk þar töluvert af k\áðbitnum þorski nýverið. Einnig á þessum slóðum er töluvert af sel, en minna af hval. Björgvin heldur í dag frá Dalvík á rækjuveiðar. - GG Meint tryggingasvik raimsökuð „Rannsóknin er enn í fullum gangi hjá Rannsóknardeild og misskilningur hjá blaðinu að mál- ið liggi nú hjá lögfræðideild til úr- skurðar. Þó Tæknideildin hafi skilað af sér tilteknum niðurstöð- um þá vinnur Rannsóknardeildin enn að málinu og þar beinist rannsóknin fyrst og fremst að ætl- uðum svikum er varða trygginga- mál," segir Egill Stephensen, sak- sóknari hjá Lögreglunni í Reykja- vfk, um gang rannsóknarinnar á bruna Gallerís Borgar í febrúar. Dagur greindi frá því nú f vik- unni að tæknideildin hefði lokið sinni vinnu og sent málið til lög- fræðideildar til úrskurðar, sem Egill segir vera misskilning. „Mál- ið er yfirgripsmikið og flókið og er rannsóknin enn í fullum gangi. Eg get ekki sagt til um hvenær rannsókninni muni ljúka, en áfangaskýrsla verður fljótlega lögð fram og þá vitum við betur hvar við stöndum," segir Egill. - FÞG Lægstu laun hækki um 30% Stjórn og trúnaðarmannaráð Verkalýðsfélags Húsavíkur fagnar því að nú skuli hafa verið gert lýðum ljóst hvaða svigrúm ríkisstjórnin telur vera til launahækkana án þess að stöðugleika í efnahagslífi sé stefnt í hættu. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var sl. þriðjudag. Þar segir enn fremur að ákvörðun kjaradóms um 30% launahækkun til ráðherra og alþingismanna gefi tóninn út í þjóðfélagið. „Þ\á er lagt til, að í stað þess að aðilar vinnumarkaðarins standi í langvinnu samn- ingaþófi með þeim kostnaði sem því fylgir, setji nýkjörið Alþingi, þeg- ar það kemur saman, lög um að laun almenns verkafólks, öryrkja og ellilífeyrisþega, skuli hækka um 30% frá og með 9. maí síðastliðnum." segir í ályktuninni. Enn fremur að bregðist ráðamenn ekki við þessum tilmælum verði þeir að sitja undir því að vera „sjálftökulið launa, sem vart þekkist ann- ars staðar en í aumustu einræðisríkjum jarðar." - js Sex prósenta verðbólga Um 0,5% hækkun varð á vísitölu neysluverðs í maí, þriðja mánuðinn í röð. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan þannig hækkað um 1,5%, sem jafngildir 6,2% verðbólgu á ári, samkvæmt útreikningum Hagstof- unnar. Síðustu þijá mánuði hafa verðlagshækkanir verið nær fjórfalt meiri en næstu níu mánuðina þar á undan. Þessar hækkanir hafa fyrst og fremst orðið á íbúðaverði, matvælum, fatnaði og rekstrarkostnaði heimilisbílanna. Milli apríl og maí hækkaði t.d. matvöruverð um 1%, fatnaður um 2,5% og bensín/olíur um 2,1%. „Ferðir og flutningar" er nú orðinn stærsti útgjaldaliður vísitölufíöl- skyldunnar, 17,7% af heimilisútgjöldunum og húsnæðiskostnaður í öðru sæti. „Matur og drykkjarvörur“ sem jafnan hefur gleypt stærstan hlut heimilisútgjaldanna er nú kominn niður í þriðja sæti, með 16,9% - sem er aðeins ríflega þrisvar sinnum meira heldur en \a'sitölufíöl- skyldan eyðir nú í mat og drykki á veitingahúsum. - HEI Lágheiði ekki opnuð á næstunni Lágheiði, milli Fljóta og Ólafefjarðar, er alveg á bólakafi í þess orðs fyllstu merkingu. Vettvangskönnun vegagerðarmanna á Sauðárkróld leiddi í ljós að aðeins sást grilla f eitt umferðarmerki og sæluhúsið sem þarna var uppi síðast þegar vitað var, er enn á kafi í snjó. Gífurlegt fannfergi er því enn á heiðinni sem gleður hjörtu vélsleðamanna óstjórnlega. Engin ákvörðun hefur verið tekin um mokstur, og að sögn vegagerðarmanna er mjög ólíklegt að það verði fyrr en í fyrsta lagi í lok þessa mánaðar. - GG 11JK; -t -^æd§np§| }il fílHTgíY^ :§§?líT!¥Y/iSr| ,yþ,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.