Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUK 13. MAÍ 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Fjórði forsætisráð-
herrann á tæpu ári
Sergei Stepashiu var í
gær tilnefndur í emh-
ætti forsætisráðherra
Rússlauds eftir að Jev-
gení Prímákov vær lát-
inufjúka.
Ríkisstjórn Prímakovs var sömu-
leiðis látin fara, öll nema Nikolaí
Aksenenko, sem verið hefurjárn-
brautamálaráðherra en var settur
í embætti aðstoðarforsætisráð-
herra. Stepashin var sjálfur að-
stoðarforsætisráðherra Prima-
kovs.
Stepashin sagðist þó í gær ætla
að halda öllum ráðherrum gömlu
stjórnarinnar, en þeir sitja áfram
í embætti þangað til tilnefning
nýs forsætisráðherra hefur verið
staðfest af þinginu og hann hef-
ur formlega myndað nýja ríkis-
stjórn.
Primakov er þriðji forsætisráð-
herrann sem Jeltsín rekur á tæpu
ári, og hefur þeim öllum verið
gefið að sök að ráða ekki við
efnahagsástandið.
„Erfið ákvörðun“
„I dag tók ég erfiða ákvörðun,"
hóf Jeltsín mál sitt þegar hann
Sergei Stepashin ásamt forsetan-
um, sem er þungur á brún eftir að
hafa tekið hina erfiðu ákvörðun.
tilkynnti rússnesku þjóðinni að
hann hafi látið Jevgení Prímakov
víkja úr embætti forsætisráð-
herra. Síðan þakkaði hann
Primakov kærlega fyrir viðleitn-
ina og fyrir að hafa tekið að sér
þetta embætti við erfiðar aðstæð-
ur, en sagði svo að efnahags-
ástandið væri „samt ekki að
batna“ og engin Ieið væri að
draga lengur að taka ákvarðanir
sem nauðsynlegar eru. Sagðist
Jeltsín fullviss að nýi forsætisráð-
herrann væri fær um að koma
starfi ríkisstjórnarinnar á skrið.
Varla hefur þessi leikur þó orð-
ið til að auka vinsældir Jeltsfns
meðal þjóðarinnar, og virðist sem
samúð almennings sé öll með
Primakov. Fréttaskýrendur hafa
fullyrt að Jeltsín hafi þótt nóg
um vinsældir Primakovs, og það
hafi átt sinn þátt í uppsögninni.
Hvað eftir annað hefur verið tal-
að um Primakov sem vænlegt
forsetaefni, en sjálfur hefur hann
jalrían vísað slíkum vangaveltum
á bug.
Með ákvörðun sinni er Jeltsín í
raun að lýsa stríði á hendur neðri
deild þingsins, þar sem andstæð-
ingar forsetans ráða ríkjum með
Kommúnistaflokkinn í farar-
broddi. Primakov hefur jafnan
notið stuðnings þingsins og tek-
ist að halda nokkru jafnvægi í
stjórnmálum Iandsins, sem ein-
kennst hafa af stöðugum árekstr-
um milli forsetans og þingmeiri-
hlutans. Einn slíkur árekstur er
til umræðu á þinginu í dag, sem
er kæra í fimm liðum á hendur
Jeltsín vegna embættisbrota.
Þingið þarf að staðfesta skipun
Stepashins í embætti forsætis-
ráðherra, en afar ólíklegt þykir að
þingmeirihlutinn geri forsetan-
um það til geðs. Fallist þingið
ekki á nýja forsætisráðherrann
getur Jeltsín gert tvær aðrar til-
raunir, líkt og gerðist þegar hinn
ungi Sergei Kirijenkó var á end-
anum settur í embættið fyrir
tæpu ári. Að því búnu verður
Jeltsfn að Ieysa upp þingið og
boða til nýrra þingkosninga. - GB
Schröder biðst afsökunar í Kína
KINA - Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands,
kom til Kína í gær og hugðist biðjast þar afsökun-
ar fyrir hönd NATO á árásinni á kínverska sendi-
ráðið í Belgrað á föstudag. Afsökunarbeiðnina
sagði Fischer vera án allra málalenginga og afsök-
unartilrauna. Kínverjar hafa fallið frá kröfu sinni
um að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmi
árásina á sendiráðið.
Rugova til Þýskalands
ÞYSKALAND - Ibrahim Rugova, leiðtogi hófsamra Kosovo-Albana,
er væntanlegur til Þýskalands þar sem hann mun dveljast í útlegð
ásamt fjölskyldu sinni og fjölmennum hópi ráðgjafa. Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands, bauð honum hæli í útlegðinni frá
Kosovo og mun Rugova a.mk. fyrst um sinn búa í gestabústað þýsku
stjórnarinnar skammt frá Bonn. Rugova var óvænt hleypt út úr
Júgóslavíu til Ítalíu í síðustu viku.
Flugáhugamenn
Flugöryggisfundur FMÍ verður haldinn laugardaginn 15.
maí í Stássinu Glerárgötu 20 (Greifinn) kl. 14:00.
Fyrirlesarar eru:
Höskuldur Frímannsson, stutt ávarp.
Skúli Jón Sigurðsson, atburðir vetrarins skoðaðir.
Hallgrímur N. Sigurðsson, ertu týndur eða er kerfið
búið að týna þér? Leit og Björgun, sýning fræðslu-
mynda.
Gerhard
Schröder, kanslari
Þýskalands.
Mikill fjöldi ánægðra notBnda IBM Aptiva tölvanna á íslandi ber
glöggt vitni um ágæti þeirra. Öflugur vél- ug hugbúnaður þeirra
skilar sér í skemmtilegri vinnslu sem er bæði hröð og auðveld.
Þessir einstöku eiginleikar og frábært verð gera Aptiva-
tölvurnar mjög hentugar til heimilisneta.
Fjölmargir notendur IBM Aptiva á íslandi gera
sér grein fyrir þessu. - Hvað um þig?
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 Sími 569 7700
www.nyherji.is
flBM A,
Lptiva
C 129,900,-")
^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^r m. vsk.
IBM Aptiva turntölva / margmiðlunartölva
AMD KB II 400MHz 3DNow örgjörvi.
512KB skyndiminni,
B4MB SDRAM vinnsluminni (mest 25BMB)
8,0GB EIDE haröur diskur,
ATI Rage Pro 3D 2X AGP 8MB SGRAM skjákort
Innbyggt 5BK mótald (v.90)
32 hraða geisladrif,
Víðóma SRS 3D hljóðkort,
40W Infinity hátalarar meö góöum hljómburði
IBM lyklaborð með flýtihnöppum og IBM Scrollpoint ilýtimús
IBM 17" Aptiva lággeisla litaskjár
Hugbúnaður
Windows 98
Configsaia (takur öryggtsairit af stýrikBríi)
Norton Antivirus vírusvarnarforrit
Battlezone leikur
IBM Worldbook aliræðiorðabók
Intarnethugbúnaður
Hjálparhugbúnaður ofl. ofl.
___________I
.U283m liflo i mmugior!