Dagur - 13.05.1999, Page 11

Dagur - 13.05.1999, Page 11
FIMMTUDAGUK 13. MAÍ 1999 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Fjórði forsætisráð- herrann á tæpu ári Sergei Stepashiu var í gær tilnefndur í emh- ætti forsætisráðherra Rússlauds eftir að Jev- gení Prímákov vær lát- inufjúka. Ríkisstjórn Prímakovs var sömu- leiðis látin fara, öll nema Nikolaí Aksenenko, sem verið hefurjárn- brautamálaráðherra en var settur í embætti aðstoðarforsætisráð- herra. Stepashin var sjálfur að- stoðarforsætisráðherra Prima- kovs. Stepashin sagðist þó í gær ætla að halda öllum ráðherrum gömlu stjórnarinnar, en þeir sitja áfram í embætti þangað til tilnefning nýs forsætisráðherra hefur verið staðfest af þinginu og hann hef- ur formlega myndað nýja ríkis- stjórn. Primakov er þriðji forsætisráð- herrann sem Jeltsín rekur á tæpu ári, og hefur þeim öllum verið gefið að sök að ráða ekki við efnahagsástandið. „Erfið ákvörðun“ „I dag tók ég erfiða ákvörðun," hóf Jeltsín mál sitt þegar hann Sergei Stepashin ásamt forsetan- um, sem er þungur á brún eftir að hafa tekið hina erfiðu ákvörðun. tilkynnti rússnesku þjóðinni að hann hafi látið Jevgení Prímakov víkja úr embætti forsætisráð- herra. Síðan þakkaði hann Primakov kærlega fyrir viðleitn- ina og fyrir að hafa tekið að sér þetta embætti við erfiðar aðstæð- ur, en sagði svo að efnahags- ástandið væri „samt ekki að batna“ og engin Ieið væri að draga lengur að taka ákvarðanir sem nauðsynlegar eru. Sagðist Jeltsín fullviss að nýi forsætisráð- herrann væri fær um að koma starfi ríkisstjórnarinnar á skrið. Varla hefur þessi leikur þó orð- ið til að auka vinsældir Jeltsfns meðal þjóðarinnar, og virðist sem samúð almennings sé öll með Primakov. Fréttaskýrendur hafa fullyrt að Jeltsín hafi þótt nóg um vinsældir Primakovs, og það hafi átt sinn þátt í uppsögninni. Hvað eftir annað hefur verið tal- að um Primakov sem vænlegt forsetaefni, en sjálfur hefur hann jalrían vísað slíkum vangaveltum á bug. Með ákvörðun sinni er Jeltsín í raun að lýsa stríði á hendur neðri deild þingsins, þar sem andstæð- ingar forsetans ráða ríkjum með Kommúnistaflokkinn í farar- broddi. Primakov hefur jafnan notið stuðnings þingsins og tek- ist að halda nokkru jafnvægi í stjórnmálum Iandsins, sem ein- kennst hafa af stöðugum árekstr- um milli forsetans og þingmeiri- hlutans. Einn slíkur árekstur er til umræðu á þinginu í dag, sem er kæra í fimm liðum á hendur Jeltsín vegna embættisbrota. Þingið þarf að staðfesta skipun Stepashins í embætti forsætis- ráðherra, en afar ólíklegt þykir að þingmeirihlutinn geri forsetan- um það til geðs. Fallist þingið ekki á nýja forsætisráðherrann getur Jeltsín gert tvær aðrar til- raunir, líkt og gerðist þegar hinn ungi Sergei Kirijenkó var á end- anum settur í embættið fyrir tæpu ári. Að því búnu verður Jeltsfn að Ieysa upp þingið og boða til nýrra þingkosninga. - GB Schröder biðst afsökunar í Kína KINA - Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, kom til Kína í gær og hugðist biðjast þar afsökun- ar fyrir hönd NATO á árásinni á kínverska sendi- ráðið í Belgrað á föstudag. Afsökunarbeiðnina sagði Fischer vera án allra málalenginga og afsök- unartilrauna. Kínverjar hafa fallið frá kröfu sinni um að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmi árásina á sendiráðið. Rugova til Þýskalands ÞYSKALAND - Ibrahim Rugova, leiðtogi hófsamra Kosovo-Albana, er væntanlegur til Þýskalands þar sem hann mun dveljast í útlegð ásamt fjölskyldu sinni og fjölmennum hópi ráðgjafa. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, bauð honum hæli í útlegðinni frá Kosovo og mun Rugova a.mk. fyrst um sinn búa í gestabústað þýsku stjórnarinnar skammt frá Bonn. Rugova var óvænt hleypt út úr Júgóslavíu til Ítalíu í síðustu viku. Flugáhugamenn Flugöryggisfundur FMÍ verður haldinn laugardaginn 15. maí í Stássinu Glerárgötu 20 (Greifinn) kl. 14:00. Fyrirlesarar eru: Höskuldur Frímannsson, stutt ávarp. Skúli Jón Sigurðsson, atburðir vetrarins skoðaðir. Hallgrímur N. Sigurðsson, ertu týndur eða er kerfið búið að týna þér? Leit og Björgun, sýning fræðslu- mynda. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands. Mikill fjöldi ánægðra notBnda IBM Aptiva tölvanna á íslandi ber glöggt vitni um ágæti þeirra. Öflugur vél- ug hugbúnaður þeirra skilar sér í skemmtilegri vinnslu sem er bæði hröð og auðveld. Þessir einstöku eiginleikar og frábært verð gera Aptiva- tölvurnar mjög hentugar til heimilisneta. Fjölmargir notendur IBM Aptiva á íslandi gera sér grein fyrir þessu. - Hvað um þig? NÝHERJI Skaftahlíð 24 Sími 569 7700 www.nyherji.is flBM A, Lptiva C 129,900,-") ^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^r m. vsk. IBM Aptiva turntölva / margmiðlunartölva AMD KB II 400MHz 3DNow örgjörvi. 512KB skyndiminni, B4MB SDRAM vinnsluminni (mest 25BMB) 8,0GB EIDE haröur diskur, ATI Rage Pro 3D 2X AGP 8MB SGRAM skjákort Innbyggt 5BK mótald (v.90) 32 hraða geisladrif, Víðóma SRS 3D hljóðkort, 40W Infinity hátalarar meö góöum hljómburði IBM lyklaborð með flýtihnöppum og IBM Scrollpoint ilýtimús IBM 17" Aptiva lággeisla litaskjár Hugbúnaður Windows 98 Configsaia (takur öryggtsairit af stýrikBríi) Norton Antivirus vírusvarnarforrit Battlezone leikur IBM Worldbook aliræðiorðabók Intarnethugbúnaður Hjálparhugbúnaður ofl. ofl. ___________I .U283m liflo i mmugior!

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.