Dagur - 13.05.1999, Qupperneq 3
l^HT'
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 - 3
FRÉTTIR
i.
Pólitlskt óhróðurs-
dreifibréf stöðvað
Nafnlans „ósmekkleg-
ur“ pólitískur áróður
stöðvaður í dreifingu
hjá íslaudspósti. Átti
að fara iun á 30 þus-
und heimili. Engiun
skráður sem áhyrgðar-
maður.
Yfirmenn Islandspósts fyrirskip-
uðu stöðvun á dreifingu 30 þús-
und eintaka af áróðursbréfi til
kjósenda fyrir kosningarnar, en
bréfið innihélt óhróður í garð
nafntogaðra einstaklinga - þar á
meðal Halldórs Asgrímssonar
utanríkisráðherra. Dreifibréfið
var hins vegar ekki stöðvað vegna
innihaldsins, heldur vegna þess
að ábyrgðarmann vantaði. Tveir
menn á sendibíl komu á föstu-
deginum fyrir kosningar og sóttu
bréfin aftur í póstmiðstöðina við
Armúla frekar en að tilgreina
ábyrgðarmann. Pósturinn neitar
að gefa upp nöfn þeirra.
Bæði Einar Þorsteinsson, for-
stjóri Islandspósts, og Björn Jósef
Arnviðarson, stjórnarformaður
fyrirtækisins, staðfesta að send-
ing hafi verið stöðvuð. Einar
mun hins vegar hafa verið er-
lendis þegar málið kom upp
þannig að það kom í hlut Björns
að taka af skarið í málinu. Björn
sagði Degi að hann hefði fengið
spurnir af því að dreifibréf með
vafasömum málflutningi hafi
verið komið til dreifingar hjá fyr-
irtækinu og fyrir því hafi ekki
verið gefinn upp neinn ábyrgðar-
maður eða prentaðili, eins og
krafa er um í lögum. Það hafi
ekki komið til greina að Islands-
póstur dreifði þessu á eigin
ábyrgð og því hafí sendingin ver-
ið kyrrsett.
„Vægast sagt ósmekklegt“
Dreifíbréfíð átti að bera út í 30
þúsundum eintaka á ýmsa staði.
Einar Þorsteinsson sagði um
þetta mál: „Við skiptum okkur
alla jafna ekki af innihaldi póst-
sendinga, sem í þessu tilviki var
pólitískur málflutningur, en í
öllu falli þarf að koma fram
ábyrgðarmaður fyrir innihaldinu
og þarna vildi enginn kannast við
slíka ábyrgð. Úr því svo var gat
ábyrgðin lent á okkur, ef á hana
reyndi, sem óneitanlega kom til
greina," segir Einar.
Hvorki Einar né Björn Jósef
vildu tjá sig nánar um innihald-
ið né sögðust þeir \áta hver væri
sendandinn. „En ég \ildi gjarnan
finna sendandann og afhenda
honum bunkann. Mér finnst þó
ólíklegt að hann gefi sig fram,“
sagði Einar aðspurður á þriðju-
dag. Þessi ummæli Einars
byggðu að sögn Askels Jónssonar,
framkvæmdastjóra framkvæmda-
sviðs, á misskilningi, þar sem
Einar hefði þá ekki verið búinn
að fá upplýsingar um að sending-
in hafi verið sótt. Askell staðfest-
ir að nöfn sendenda liggi fyrir, en
vill ekki upplýsa um þau og vísar
til póstleyndar.
Samkvæmt upplýsingum Dags
mun einhverjum starfsmönnum
sem sáu dreifibréfið hafa blöskr-
að málflutningurinn og frágang-
ur þessa dreifibréfs og haft orð á
því. „Þetta var vægast sagt
ósmekklegt,“ sagði einn starfs-
manna Islandspósts \að Dag.
- fþg/bg
Kuldi sciiikar
komsáningu
Kornbændur í Eyjafirði eru fyrst
núna að sá korni sínu og er það
2-3 vikum síðar en undanfarin
ár. Astæðan er mikil snjóalög
fram eftir vetri og kaldur apríl.
Því fyrr sem sáð er, því betra.
Benedikt Hjaltason er korn-
bóndi í Eyjafirði: „í lyrra sáði ég
á síðasta degi vetrar. Tilraunir
sýna að mikilvægt er að koma
korninu sem fyrst niður til að
nýta ljósaganginn yfir sumarið.
Vika á vorin gerir meira en þrjár
vikur á haustin í sprettutíma.
Kornið þolir öll hret bara ef
maður kemur því niður,“ segir
Benedikt, bóndi á Hrafnagili.
Benedikt segir tæknina við
kornrækt vera í sífelldri þróun
og eitthvað mun um að bændur
skipti með sér vélakosti, sérstak-
Iega við sáningu.
I Skagafirði eru menn heldur
fyrr á ferðinni en í Eyjafirði og
sömu sögu er að segja á Suður-
landi. - bþ
Kombændur i Eyjafirði hafa orðið að
sá mun seinna en í fyrra vegna kulda.
AfLaverðmætið íiniin
mflljnnir króna á dag
Góð grálúðuveiði á
Hampiðjutorginu, en
staðuriim einnig set-
inn af ís, búrhvölum
og blöðrusel.
Frystitogari Snæfells á Dalvík,
Björgvin EA, kom til heimahafn-
ar á sunnudag með 60 milljóna
króna aflaverðmæti eftir aðeins
12 daga veiðiferð. Það táknar að
aflaverðmæti togarans hafi verið
5 milljónir króna á dag, sem ef-
laust er einsdæmi. Hásetahlutur
hefur numið um 760 þúsund
krónum, eða um 63 þúsund
krónum á dag, eða sem svarar
1,9 milljónum í mánaðarlaun.
Nýlega setti frystitogari Skag-
strendings met er hann kom með
að Iandi afla að verðmæti 106
milljónir króna eftir 36 daga
veiðiferð, eða 2,9 milljóna króna
aflaverðmæti hvern úthaldsdag.
Veiðiferðin hjá Björgvini EA
byrjaði á Hampiðjutorginu, sem
er djúpt vestur af Víkurál, þar
sem fengust um 200 tonn af grá-
lúðu. A þeim slóðum var töluvert
af ís og ísjökum, og á ísnum og
allt í kring var mikið líf, þ\á þar
var mikið af búrhvölum og
blöðrusel. Þess má geta að
Hampiðjutorgið fékk þetta nafn
þegar togarar byrjuðu veiðar
þarna í fyrstu en þá var mikið um
að menn hengilrifu á þessu
svæði, sem auðvitað var „óður“
til Hampiðjunnar. I dag kallast
þetta svæði yfirleitt Torgið, eða
Torg hins himneska friðar. I lok
túrsins fékk Björgvin svo 50 tonn
af þorski norðvestur af Kolbeins-
ey. Lftið varð vart við kviðbitinn
þorsk eftir sel þar, en togarinn
Páll Pálsson frá Hnífsdal fékk
þar töluvert af k\áðbitnum þorski
nýverið. Einnig á þessum slóðum
er töluvert af sel, en minna af
hval. Björgvin heldur í dag frá
Dalvík á rækjuveiðar. - GG
Meint tryggingasvik raimsökuð
„Rannsóknin er enn í fullum
gangi hjá Rannsóknardeild og
misskilningur hjá blaðinu að mál-
ið liggi nú hjá lögfræðideild til úr-
skurðar. Þó Tæknideildin hafi
skilað af sér tilteknum niðurstöð-
um þá vinnur Rannsóknardeildin
enn að málinu og þar beinist
rannsóknin fyrst og fremst að ætl-
uðum svikum er varða trygginga-
mál," segir Egill Stephensen, sak-
sóknari hjá Lögreglunni í Reykja-
vfk, um gang rannsóknarinnar á
bruna Gallerís Borgar í febrúar.
Dagur greindi frá því nú f vik-
unni að tæknideildin hefði lokið
sinni vinnu og sent málið til lög-
fræðideildar til úrskurðar, sem
Egill segir vera misskilning. „Mál-
ið er yfirgripsmikið og flókið og er
rannsóknin enn í fullum gangi.
Eg get ekki sagt til um hvenær
rannsókninni muni ljúka, en
áfangaskýrsla verður fljótlega
lögð fram og þá vitum við betur
hvar við stöndum," segir Egill.
- FÞG
Lægstu laun hækki um 30%
Stjórn og trúnaðarmannaráð Verkalýðsfélags Húsavíkur fagnar því að
nú skuli hafa verið gert lýðum ljóst hvaða svigrúm ríkisstjórnin telur
vera til launahækkana án þess að stöðugleika í efnahagslífi sé stefnt í
hættu. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var sl. þriðjudag.
Þar segir enn fremur að ákvörðun kjaradóms um 30% launahækkun
til ráðherra og alþingismanna gefi tóninn út í þjóðfélagið. „Þ\á er lagt
til, að í stað þess að aðilar vinnumarkaðarins standi í langvinnu samn-
ingaþófi með þeim kostnaði sem því fylgir, setji nýkjörið Alþingi, þeg-
ar það kemur saman, lög um að laun almenns verkafólks, öryrkja og
ellilífeyrisþega, skuli hækka um 30% frá og með 9. maí síðastliðnum."
segir í ályktuninni.
Enn fremur að bregðist ráðamenn ekki við þessum tilmælum verði
þeir að sitja undir því að vera „sjálftökulið launa, sem vart þekkist ann-
ars staðar en í aumustu einræðisríkjum jarðar." - js
Sex prósenta verðbólga
Um 0,5% hækkun varð á vísitölu neysluverðs í maí, þriðja mánuðinn í
röð. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan þannig hækkað um 1,5%,
sem jafngildir 6,2% verðbólgu á ári, samkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar. Síðustu þijá mánuði hafa verðlagshækkanir verið nær fjórfalt
meiri en næstu níu mánuðina þar á undan. Þessar hækkanir hafa fyrst
og fremst orðið á íbúðaverði, matvælum, fatnaði og rekstrarkostnaði
heimilisbílanna. Milli apríl og maí hækkaði t.d. matvöruverð um 1%,
fatnaður um 2,5% og bensín/olíur um 2,1%.
„Ferðir og flutningar" er nú orðinn stærsti útgjaldaliður vísitölufíöl-
skyldunnar, 17,7% af heimilisútgjöldunum og húsnæðiskostnaður í
öðru sæti. „Matur og drykkjarvörur“ sem jafnan hefur gleypt stærstan
hlut heimilisútgjaldanna er nú kominn niður í þriðja sæti, með 16,9%
- sem er aðeins ríflega þrisvar sinnum meira heldur en \a'sitölufíöl-
skyldan eyðir nú í mat og drykki á veitingahúsum. - HEI
Lágheiði ekki opnuð á næstunni
Lágheiði, milli Fljóta og Ólafefjarðar, er alveg á bólakafi í þess orðs
fyllstu merkingu. Vettvangskönnun vegagerðarmanna á Sauðárkróld
leiddi í ljós að aðeins sást grilla f eitt umferðarmerki og sæluhúsið sem
þarna var uppi síðast þegar vitað var, er enn á kafi í snjó. Gífurlegt
fannfergi er því enn á heiðinni sem gleður hjörtu vélsleðamanna
óstjórnlega. Engin ákvörðun hefur verið tekin um mokstur, og að sögn
vegagerðarmanna er mjög ólíklegt að það verði fyrr en í fyrsta lagi í lok
þessa mánaðar. - GG
11JK;
-t
-^æd§np§| }il fílHTgíY^ :§§?líT!¥Y/iSr| ,yþ,