Dagur - 13.05.1999, Page 1

Dagur - 13.05.1999, Page 1
Hik á Framsókn vegna tilboðsins Enn hefiir ekkert gerst í viöræðiun stjómar- flokkanna. Bak viö tjöldin meta framsókn- armenn tilboð Sam- fylkingar og VG. Samkvæmt öruggum heimildum Dags hefur komið nokkurt hik á framsóknarmenn í stjórnarmynd- unarviðræðunum við Sjálfstæðis- flokkinn vegna tilboðs Samfylk- ingarinnar um að Framsóknar- flokkurinn myndi ríkisstjórn með Samfylkingunni og VG. Það hefur vakið athygli hvað allt gengur hægt í viðræðum stjórnarflokk- anna til þessa. Raunar hefur ekk- ert gerst enn, sem stafar að hluta af þessu hiki framsóknarmanna sem eru að velta fyrir sér þeim möguleikum sem tilboðið býður upp á. Akveðnar þreifingar eiga sér stað bak við tjöldin í því máli. I tilboði Samfylkingarinnar og VG felst það að sjálfsögðu að Halldór Ásgríms- son verði forsæt- isráðherra ríkis- stjórnarinnar og það er Ijóst sam- kvæmt þessu að framsóknarmenn eru alvarlega að hugleiða málið. Þeir framsóknar- menn sem Dagur ræddi við í gær staðfestu þetta, en sögðu málið á ofur viðkvæmu stigi og óvíst um hvað yrði ofan á. Skoða alla möguleika Það sem ákveðnir forystumenn Framsóknarflokksins munu vera að líta til er að þeir fóru illa út úr alþingiskosningunum eftir fjög- urra ára samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn. Þess vegna benda þeir á að afar eðlilegt sé að þeir velti öðrum möguleikum um stjórnar- myndun fyrir sér, þegar þeir bjóð- ast. Framsóknarmenn sem Dagur ræddi við í gær telja að í sjálfu sér sé fátt því til fyrirstöðu að þessir þrír flokk- ar geti unnið saman í ríkis- stjórn. Þó sögðu nokkrir fram- sóknarmenn í gær að enn væri ekki gróið um heilt milli fram- sóknarmanna og ákveðinna þing- manna Samfylkingarinnar vegna fyrri samskipta. En þótt uppi væru efasemdir um að fullar sætt- ir tækjust töldu menn samt að slfkt ætti ekki að koma í veg fyrir stjórnarsamvinnu ef vilji til slíks væri á annað borð til staðar. Tilfærsla málailokka Nú er talið nokkuð víst, hveijir sem mynda ríkisstjórn, að ráð- herrum verði fjölgað úr 10 í 12. Það er sama við hvaða þingmenn er talað, þeir ganga út frá því að svo verði. Sömuleiðis eru uppi hugmyndir meðal þingmanna um tilfærslu málaflokka milli ráðu- neyta. Til dæmis að færa trygg- ingakerfið yfir til félagsmálaráðu- neytisins og létta þannig á ráðu- neyti heilbrigðis- og trygginga- mála. Síðan hafa verið uppi hug- myndir um að iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu verði breytt í efnahagsmálaráðuneyti enda fer ríkið ekki lengur með nein við- skipti á móti því sem áður var. Loks hafa ýmsir nefnt að rétt væri að koma upp atvinnumálaráðu- neyti. Þá hefur Dagur fengið það staðfest að Framsóknarflokkurinn mun leggja þunga áherslu á að fá menntamálaráðuneytið, sama hvaða stjórnarmunstur verður uppi. Framsóknarflokkurinn lagði mikla áherslu á menntamálin í samþykktum sínum á flokksþing- inu síðastliðið haust, ekki síst málefni Ríkisútvarpsins. Það kom til vegna ótta þeirra um framtíð útvarpsins undir stjóm sjálfstæð- ismanna. — S.DÓR Framsóknarmenn leggja þunga áherslu á að fá menntamálaráðu- neytið. Stórtjón í eldsvoða Talað er um allt að hundrað milljóna króna tjón þegar stór- bruni varð f leiktækjasmiðjunni Barnagaman á Smiðjuvegi í Kópavogi í gær. Þrír starfsmenn voru í fyrirtækinu þegar eldurinn kom upp og var einn þeirra hætt kominn. Slökkvistarfið leið fyrir ónógt vatn og varð að fara langa leið eftir vatni. Kallað var eftir aðstoð tankbíla frá slökkviliði Reykja- víkurflugvallar og Reykjavíkur- borg en þó kom ekki til notkunar þeirra þar sem tekist hafði að ná saman nægu vatni um það leyti sem þeir komu á vettvang. I þessu hverfi eru mörg fyrir- tæki og töluverð meðhöndlun eldfimra efna. Mikill eldsmatur var því til staðar. Nælon- og plasthúðun, þynnir og málning meðal annars. Metur slökkviliðið það afrek að takast skyldi að bjarga húsunum við hliðina. Hins vegar er tjón gífurlegt eins og fyrr segir. — BÞ Litlu mátti muna að slys yrðu á fólki þegar stórbruni varð í Kópavogi í gær. Tjónið er talið allt að hundrað milljónir. Þorlákur Jónasson bóndi: Glaður yfir Hverfjallssigrinum. Hverflafl skal pað heita! Ornefnanefnd hefur úrskurðað í deilu Mývetninga um hvort nota skuli nafnið Hverfjall eða Hverfell á heimsfrægum sprengigíg í sveit- inni. Þeir sem stutt hafa nafnið Hverljall höfðu sigur. I úrskurðinum, sem sendur er Landmælingum Islands, segir m.a. að Iög kveði á um að ömefna- nefnd úrskurði ef til ágreinings kemur um ömefni. I jarðfræði nefnist gígurinn Hverfjall og í flestum ritum virðist jafnan notað -fjall, hins vegar séu tvær gamal- grónar orðmyndir í Mývatnssveit og nágrannabyggðum. Örnefnanefnd segir orðliðina fell og Qall náskylda og bendir á að þeir geti verið nauðalíkir í fram- burði. Bent er á að á kortum Landmælinga hafí staðið Hverfjall frá upphafi og til ársins 1987 en frá þeim tíma til 1992 hafi bæði nöfn verið notuð á kortum en þá fóru Landmælingar aðeins að nota -fellið. „Eftirgrennslan hefur ekki leitt í Ijós með óyggjandi hætti hvað réð þessum breyting- um á rithætti," segir í úrskurðin- um. „Við þennan úrskurð vegur löng rithefð á kortum hlutfallslega þyngra en annað. Örnefnanefnd úrskurðar að setja skuli nafnið Hverljall að nýju á landakort, sem gefin eru út á vegum Landmæl- inga íslands eða með leyfi þeirra.“ Dagur innti Þorlák Jónasson, bónda í Vogum í Mývatnssveit við- bragða, en hann hefur barist hart fyrir -fjallsmyndinni. „Gleði," sagði Þorlákur, en gat þess jafn- framt að hann harmaði að til deil- unnar hefði komið. En skiptir í raun nokkru hvort menn nota nafnið Hverfjall eða Hverfell? „Það skiptir engu máli hvað menn kalla þetta Ijall. Hins vegar höfum við lagt áherslu á að hið ritaða mál sem staðið hefur í tvær aldir fái að standa sem og allar merkingar fjallsins," segir Þorlákur. - BÞ Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 mmomoe ðcprgs EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.