Dagur - 13.05.1999, Qupperneq 5

Dagur - 13.05.1999, Qupperneq 5
 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 - S FRÉTTIR í tugthúsið fyrír að pretta gamla konu Hæstiréttur hefur staðfest 20 mánaða fangelsisdóm yfir Sigurði Kárasyni, sem sakfelldur var fyrir að hafa stórfé afaldraðri konu. Hæstiréttur staðfesti í gær fangelsisddm yfir iiiíiniii sem sak- feHdur var fyrir að pretta fuUorðna konu og var hann einnig dæmdur tH að greiða henni rdinar 30 miHj- ónir króna. Hæstiréttur hefur staðfest 20 mánaða fangelsisdóm yfir Sig- urði Kárasyni, sem sakfelldur var fyrir misbeitingu, með því að hafa fengið konu um áttrætt til að taka mikið fé út af reikningi sínum og ráðstafa til sín, auk þess að fá hana til að ráðstafa veðskuldabréfi í sfna þágu og undirrita erfðaskrá þess efnis að skuldir hans við hana skyldu falla niður við andlát hennar. Sigurður á að greiða konunni 30,8 milljónir ásamt vöxtum. Ekki var fallist á kröfu Sigurð- ar um ómerkingu héraðsdóms sem reist var á því að héraðs- dómur hefði átt að vera fjölskip- aður og að konan hefði átt að koma fyrir dóminn, en til þess var hún ekki talin fær af heilsu- farslegum ástæðum. Fyrir Hæstarétt var lögð fram ný yfirlýsing með viðhorfi kon- unnar til sakarefnisins og fram- gangs málsins. „Þessarar yfirlýs- ingar, sem ekki er vottfest, aflaði Sigurjón Ragnarsson án samráðs við sakflytjendur, en hann var eitt vitna í málinu og hafði hags- muna að gæta í tengslum við sakarefni,'1 segir í niðurstöðu Hæstaréttar um þetta og læknir vottaði að undirskrift konunnar á skjali þessu væri marklaus vegna sjúkdóms hennar. Notfærði sér bágindi hennar Mál þetta var höfðað á hendur Sigurði fyrir misbeitingu gagn- vart hinni öldruðu konu og talið að með því hafi hann „notfært sér bágindi konunnar sökum heilarýrnunar, einfeldni hennar og að hún var ákærða háð, til að hafa af henni fé og áskilja sér hagsmuni er ekkert endurgjald skyldi koma fyrir“. Sigurður fékk konuna til að taka nítján sinnum út af reikn- ingum sínum í Búnaðarbanka ís- lands, alls kr. 28.400.000, og ráðstafa allri fjárhæðinni til sín með bankamillifærslum. Einnig fékk hann konuna til að afhenda Sigurjóni ofangreindum veð- skuldabréf að fjárhæð kr. 2.425.986. Þá fékk Sigurður konuna til að gefa út yfirlýsingu sem hún undirritaði 3. júlí 1997 í viðurvist lögbókandans í Reykjavík og var viðbót við erfða- skrá frá 20. mars 1996, þess efn- is að standi eitthvað eftir af skuld ákærða við hana þá er hún fellur frá skuli skuldin falla að öllu leyti niður. - FÞG Samnuii ein- róma samþykktiir Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Siv Friðleifs- dóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, ræða málin á aðalfundi VSÍIgær. mvnd e.ól Emstefna vegna eins húss? Bæjarráð Akureyrar fjallaði í gær um erindi Minjasafnsins á Akur- eyri varðandi húseignina Lækjar- götu 6. Fram kom að ekkert til- boð barst í húseignina í febrúar sl. en þá var það auglýst með þeim skilmálum að færa þyrfti það frá grunni til vesturs. Bæjarráð samþykkti að auglýsa húsið aftur til sölu og að þessu sinni með þeim hætti að gert verði ráð fyrir að byggingin standi á núverandi grunni. Þá verði miðað við að neðri hluti Spítalavegar verði gerður að ein- stefnuakstursgötu. Lækjargata 6 fór illa í bruna og hefur verið tekist á um framtíð hússins. Nokkur umræða hefur m.a. farið fram um hvort rífa eigi húsið. A hinn bóginn geymir það merkilega byggingasögu. - BÞ Rautt ljós á kennara Bæjarráð Akureyrar ályktaði í gær vegna kjaradeilunnar við kennara Tónlistarskólans á Ak- ureyri og má segja að ráðið hafi gefið rautt Ijós. „Bæjarráð lítur svo á að túlka verði þá samþykkt sem kennarafundur Tónlistar- skólans sendi fjölmiðlum og kjaranefnd þann 7. maí sl. á þann veg, að þeim viðræðum hafi verið slitið sem í gangi voru um þetta mál milli aðila,“ segir í bókun bæjarráðs. Það orðalag sem líklegt er að kjaranefnd hafi sett lyrir sig, er að líkindum hvað helst „smánar- legt tilboð" sem kennarar sögðu bæinn hafa sett fram. - BÞ Aöalíundur Viiinu veitendasambandsins samþykkti einróma í gær tiUögu aö nýjii skipulagi heHdarsam- taka atvinnulífsins. Aðalfundur Vinnuveitendasam- bands samþykkti í gær einum rómi tillögur um róttæka endur- skipulagningu heildarsamtaka atvinnurekenda. Samkvæmt til- Iögunum sameinast VSl og Vinnumálasambandið í nýjum heildarsamtökum þar sem verða 7 atvinnugreinafélög. Gert er ráð fyrir að samtökin taki til starfa í haust. Skipulag samtakanna á að miðast við tvíþætta aðild, annars vegar beina aðild fyrirtækja að sameiginlegum heildarsamtök- um og hins vegar aðild að hlutað- eigandi atvinnugreinafélagi. Gert er ráð fyrir að Samtök atvinnu- lífsins fari með forsvar við gerð kjarasamninga sem félag at- vinnurekenda. Fyrirtæki geti þó valið aðild að þjónustudeild en Fulltrúar Norsk-Hydro, sem dvalið hafa austur á fjörðum til að skoða væntanlegt verksmiðju- svæði álverksmiðju á Reyðarfirði, áttu fund með Finni Ingólfssyni, iðnaðarráðherra, á miðvikudags- morgun áður en þeir héldu úr landi. Iðnaðarráðherra segir að fulltrúarnir hafi tjáð sér að þeir teldu að aðstæður væru góðar á með því framselja þau ekki um- boð til að gera kjarasamninga fyrir þeirra hönd. Aðalfundurinn heimilaði stjórn VSI að vinna áfram að málinu samkvæmt fyrirliggjandi tillögum, m.a. með fullri þátt- töku í nefnd sem á að undirbúa stofnun og starfsemi Samtaka at- vinnulífsins, og að ljúka gerð samnings VMS um samruna með fyrirvara um endanlegt sam- Reyðarfirði, og staðsetningin mundi ekki hamla samningum um álverksmiðju. Engar ákvarðanir voru teknar og er málið í nákvæmlega sömu stöðu og það var fyrir komu Norðmannanna til Islands. I lok júnímánaðar verður fundur hér- Iendis sem skera mun úr hvert verður framhald málsins. Norð- þykki aðalfundar. Aðalfundurinn samþykkti einnig tillögu um að fresta kosningum í trúnaðarstöð- ur í sambandinu og boða til framhaldsaðalfundar í haust. Áð- urnefnd nefnd á að ráða samtök- unum framkvæmdastjóra og gera tillögu um skipan 100 manna fulltrúaráðs. A stofnfundi í haust er síðan áætlað að fulltrúaráðið kjósi formann og 20 manna stjórn. mennirnir ítrekuðu það í þessari ferð að ef álver )TÖi reist á Reyð- arfirði með aðild Norsk-Hydro, yrði það í meirihlutaeigu ís- lenskra fyrirtækja eða fjárfesta og ríldssjóðs. Aætlað er að álverið kosti ekki undir 28 milljörðum króna og að hlutur íslenskra fjár- festa yrði ekki undir 7 milljörð- um króna. - GG Allt óbreytt í áJmáluin HÆ STIRÉTTUR Sýknaður af gáleysis- manndrápi Hæstiréttur hefur snúið dómi undirréttar við og sýknað mann sem var ákærður fyrir manndráp af gáleysi, með því að hafa ekið sendibifreið sinni á gangandi vegfaranda sem lést af áverkum eftir slysið. Ekki þótti sannað að maðurinn hefði ekið of hratt miðað við aðstæður og var talið að hann hefði ekki haft tök á að afstýra slysinu. I undirrétti var maðurinn hins vegar dæmdur í 20 daga skilorðs- bundið fangelsi og til 6 mánaða ökuleyfissviptingar. Banaslysið varð á Suðurgötu á móts við norðurenda aðalbyggingar Há- skólans að morgni 17. desember 1997. Myrkur var en götulýsing góð og yfirborð malbiksins á göt- unni þurrt. Hámarkshraði þama var 50 km. Akæruvaldið taldi að maður- inn hefði ekið bifreiðinni sinni án nægjanlegrar aðgæslu að gatnamótunum og of hratt mið- að við aðstæður og almenn hraðamörk, í myrkri á gatnamót- um í þéttbýli, þannig að hann gat eigi stöðvað bifreiðina í tæka tíð er öldruð kona gekk vestur yfir götuna þar við gatnamótin, með þeim afleiðingum að konan varð fyrir bifreiðinni og hlaut slíka áverka að hún lést skömmu síð- ar. Maðurinn bar hins vegar að hann hefði verið á eðlilegum hraða og að konan hefði gengið skyndilega og fyrirvaralaust út á götuna. - FÞG Missti af tveimur milliim Hæstiréttur hefur sýknað Há- skólabíó af kröfum Sigurbjörns Þorgrímssonar fyrrum starfs- manns bíósins, en Sigurbirni höfðu í undirrétti verið dæmdar tvær milljónir króna. Málið snérist urn hvort Sigur- björn teldist ríkisstarfsmaður, en Hæstiréttur komst að þeirri nið- urstöðu að þar sem bíóið væri eign Sáttmálasjóðs HI væri ekki um ríkisstofnun að ræða, heldur sjálfseignarstofnun með sjálf- stæðan Ijárhag. Hefði Sigurbjörn því ekki verið ríkisstarfsmaður. Krafa Sigurbjörns var upp á 6,6 milljónir króna. Sigurbjörn starfaði sem húsvörður og dyra- vörður hjá bíóinu allt frá árinu 1968 þar til honum var sagt upp störfum með bréfi 24. maí 1995. Aldrei var gerður skriflegur ráðn- ingarsamningur við hann. I Hæstaréttardómnum segir: „Svo virðist sem héraðsdómari byggi á því í niðurstöðu sinni að fram hafi komið hjá fram- kvæmdastjóra [bíósins] fyrir dómi að [bíóið] hafi gert skrif- lega ráðningarsamninga við flestalla aðra starfsmenn sína. Þessu hefur [bíóið] mótmælt í greinargerð sinni fyrir Hæsta- rétti og verður að fallast á það með honurn að þetta liafi ekki komið fram í framburði fram- kvæmdastjórans, eins og hann liggur fyrir í endurriti. Heldur aðaláfrýjandi því fram í greinar- gerð sinni að einungis þrír af starfsmönnum hans í dag hafi skriflega ráðningarsamninga, þ.e. framkvæmdastjórinn og tveir aðrir, sem einnig gegni stjórnunarstörfum."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.