Dagur - 13.05.1999, Page 8

Dagur - 13.05.1999, Page 8
8 -FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 - 9 GUÐSTEINN BJARNASON SKRIFAR Flóttamenn frá Kosovo hafa skýrt frá fjðldamorðiun, þorps bremmm og oðrum óhæfuverkum sem vart eiga siuu líka í Evrópu frá lokum seinui heimsstyrjald- ar. Stöðugt eru að berast nýjar frá- sagnir af voðaverkum af ýmsu tagi í héraðinu og svo virðist sem um markvissar aðgerðir hafi verið að ræða sem skipulagðar voru löngu áður en NATO hóf loft- árásir á Júgóslavíu. Nú um helgina sendi banda- ríska utanríkisráðuneytið frá sér skýrslu þar sem teknar eru saman upplýsingar um þau voðaverk sem framin hafa verið í stríðinu í Kosovo. Telst ráðuneytinu svo til að frá því í haust hafi meira en 4.600 Kosovo-Albanir verið myrt- ir. Fjöldamorð hafa átt sér stað á um 70 stöðum í héraðinu og enn er um 100.000 karlmanna á her- mennskualdri saknað, og ekkert vitað hvort þeir séu lffs eða liðnir. Frásagnir hafa borist af Ijölda- gröfum á nokkrum nafngreindum stöðum, meðal annars í Cirez, Drenica, Izbica, Kaaniku, Malisevo, Pusto Selo, Rezalla og Pagarusa. Bandaríska utanríkis- ráðuneytið fullyrðir að það hafi fengið staðfestar fréttir af fjölda- gröfum í Pusto Selo og í Izbica. Frá því loftárásirnar hófust hafa hús verið brennd í um 500 þorpum og bæjum í Kosovo, þar af hafa rúmlega 70 þorp verið brennd til grunna og lögð algjör- Iega í rúst. Vopnaðir hópar Serba hafa farið um þorpin, oft grímu- klæddir, handtekið alla karlmenn sem komnir eru af barnsaldri og fram undir fimmtugt en hrakið konur, börn og gamalmenni á brott. Oft hafa karlarnir verið myrtir á staðnum eða skömmu eftir handtöku. Búið að brenna allt sem brenna þarf? Heldur hefur þó dregið úr frétt- um af þorpsbrennum síðustu tvær til þijár vikurnar. Serbnesk stjórnvöld, þar á meðal Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti, segja voðaverkin, sem þó er viðurkennt að hafi átt sér stað í einhveijum mæli, hafa eingöngu átt sér stað strax eftir að loftárásirnar hófust, og þar hafi eingöngu verið að verki vopnaðir hópar sem ekki voru á vegum hersins. Bandarísk stjórnvöld geta sér hins vegar til þess að dregið hafi úr þorps- brennunum vegna þess að ekki sé lengur þörf á að brenna heilu þorpin - fólkið er hvort sem ei komið á flótta meira eða minna. Omögulegt er að fullyrða ná- kvæmlega hve margir flóttamenn frá Kosovo eru núna, en áætlað hefur verið að þeir séu á bilinu ein til ein og hálf milljón, en alls voru Kosovo-Albanir um 1,8 milljónir áður en allt fór í bál og brand. Samkvæmt mati flótta- mannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNCHR) eru nú nærri 430.000 flóttamenn frá Kosovo í Albaníu, um 240.000 í Makedón- íu og nærri 65.000 í Svartfjalla- landi. Frá því Serbar hófu sókn gegn Frelsisher Kosovo og al- menningi þar fyrir rúmu ári er talið að alls hafi um 900.000 manns flúið úr héraðinu. Auk þess eru nokkur hundruð þúsund manns, e.t.v. allt að sex hundruð þúsund, á vergangi í Kosovohér- aði og hafa flúið heimili sín. Enn eru nokkur þúsund manns að fara yfir Iandamærin frá Kosovo á hveijum degi. Á mánudag fóru 3.600 flóttamenn yfir landamær- in til Albaníu. Landamærum Makedóníu hefur verið lokað að mestu, enda telja stjórnvöld þar útilokað að taka við fleiri flótta- mönnum, en samt eru enn að koma flóttamannalestir að landa- mærunum frá Kosovo. Fjöldamorð í Djakovica Svo virðist sem verstu hryðju- verkin hafi verið unnin í bænum Djakovica og nágrannaþorpum þar í kring, en Djakovica er skammt frá landamærum Alban- íu. Að sögn bandaríska dagblaðs- ins Washington Post hafa fréttir af voðaverkum í Djakovica í það minnsta verið ítarlegri en fregnir af öðrum voðaverkum, þar sem íbúar bæjarins höfðu skipulagt nákvæmt eftirlitskerfi og hafa unnið að því að setja saman upp- lýsingar um það sem gerst hefur í bænum. Þar er allt tínt til og hvert einasta morð rakið hús frá húsi og götu eftir götu og er meiningin að nota þessi gögn þegar mál þessi koma á endanum til kasta alþjóðlegs stríðsglæpa- dómstóls. Þann 1. apríl síðastliðinn fóru serbneskar öryggissveitir og Iög- reglusveitir hús úr húsi í einu hverfi í Djakovica. Allir meðlimir sveitanna báru svartar grfmur. Fimmtíu og fimm manns Iágu í valnum eftir sex klukkustunda of- beldishrinu. Meðal hinna Iátnu voru 20 konur og börn sem höfðu falið sig í kjallara. Mörg líkanna voru brunnin eftir að Serbarnir höfðu lagt eld að íbúðum og hús- um eftir að hafa skotið þá sem voru inni. Næstu daga héldu þessi óhæfu- verk í Djakovica og nágrenni áfram og fullyrðir bandaríska utanríkisráðuneytið að allt að 300 manns hafi verið myrtir þar frá því stríðið hófst. Áður en loftárásir NATO hófust bjuggu um 100.000 manns í Djakovica, sem er gömul iðnaðarborg og heitir eftir Jakob úr Gamla-Testamentinu. Banda- ríska dagblaðið Washington Post hefur það eftir 32ja ára gamalli konu sem flúði frá Djakovica ásamt börnum sínum þremur að þar sé nú eyðimörk ein. „Það eru engin hús. Það eru engar verslan- ir. Það eru engir skólar. Það eru engar verksmiðjur. Það er ekkert þarna.“ Líkhrugur í Meja Þann 28. apríl bárust frekari fréttir af fjöldamorðum þegar flóttamenn komu yfir landamær- in til Albaníu og sögðu frá því að daginn áður hafi Serbar myrt hundruð manna i bænum Meja, sem er skammt norður af Djar kovica. Hópar flóttamanna sem fóru um Meja seinni part dagsins sögðust hafa séð stóra líkhrúgu skammt frá vegarbrúninni, og töldu sumir að þar hafi verið um 300 lík. Starfsmenn mannréttindasam- takanna Human Rights Watch ræddu við nítján manns úr þess- um hópi innan þriggja daga frá því hann kom til Albaníu. Fram- burður þeirra var það nákvæmur og bar það vel saman að samtök- in telja óhætt að fullvrða að Serbar hafi hrakið fbúa þorpsin* á brott, beitt ofbeldi og hótunum, rænt og eyðilagt eigur þorpsbúa og þá hafi fjölmargir karlmenn verið myrtir á staðnum. „Vegurinn var allur ataður í blóði,“ sagði átján ára stúlka í við- tali við Human Rights Watch. „Hægra megin vegarins voru fimmtán menn. Eg taldi þá. Þeir lágu á grúfu og það var blóð allt í kring, og þeir hreyfðu sig ekki.“ Átján ára maður og nítján ára kona sögðust hafa sé stóra hrúgu af líkum um það bif þrjá metra frá hægri vegarbrúninni í miðju þorpinu. Hrúgupa sögðu þau hafa verið um tólf sinnum' tútt- ugu fet og um fjögur fet á hæð. Giskuðu þau á að líkin hafi verið um þrjú hundruð talsins, en. sögðu það vera mjög grófa ágisk- un vegna þess að þau voru ótta- slegin mjög og lögreglan rak þau hratt áfram þannig að þeim gafst lítið ráðrúm til að velta umhverf- inu fyrir sér. Auk þess sögðu þau að um fimmtán menn hafi setið á jörðinni með baldð í líkhrúguna en hópur öryggissveitarmanna var fyrir framan þá. Hefndaraðgerð? Ollum vitnunum bar saman um að bærinn væri morandi af bæði lögreglumönnum og sérsveitar- mönnum klæddum í bláa og græna felubúninga. Margir þeirra voru með svartar grímur og sum- ir með rauða ennisborða. Ekki er hægt að fullyrðá með vissu hve margir menn hafi verið myrtir þarna á einu bretti, en Human Rights Watch telur ör- uggt að þeir hafí skipt hundruð- um og að eingöngu hafi verið um karlmenn eða unglingspilta að ræða. Sögur hafa borist af því að alb- anskir karlmenn, sem e.t.v. hafa verið liðsmenn í Frelsisher Kosovo, hafi myrt fimm serbneska lögreglumenn í Meja þann 21. apríl, tæpri viku áður en fjöldamorðin þar áttu sér stað Þessir fimm lögreglumenn höfðu þá skömmu áður leitað að vopn um í húsi í bænum, en þessi saga hefur reyndar ekki enn fengist staðfest. Albanir hreint ekki saklausir Hvað sem því líður þá er ljóst að Serbar eru ekki einir um að hafa framið hryðjuverk af versta tagi í Kosovohéraði. Herskáir Kosovo-Albanir hafa árum og jafnvel áratugum saman beitt hryðjuverkum þar sem ráðist er ýmist á serbneska sérsveitar- menn eða óbreytta borgara, jafn- vel af albönskum uppruna ef þeir þykja hafa verið Serbum of hlið- hollir. Þá hafa virt dagblöð á borð við New York Times alloft birt frá- sagnir af mafíustarfsemi í nánum tengslum við Frelsisher Kosovo, þótt minna hafi farið fyrir þeim fréttum eftir að spjótin fóru að beinast meira að Serbum. Fullyrt hefur verið að liðsmenn Frelsis- hers Kosovo hafi stundað eitur- lyfjasmygl í stórum stíl og notað það til að fjármagna vopnakaup og aðra starfsemi sína. Serbnesk stjórnvöld í Júgóslavíu, með Slobodan Milos- evic f broddi fylkingar, hafa enda alltaf talað um Frelsisher Kosovo sem hóp hryðjuverkamanna sem fullvalda ríki geti engan veginn látið vaða uppi. Engan veginn sé veijandi að láta undan kröfum þeirra sem beita slíkum aðferð- um, ekki frekar en vesturevrópsk ríki hafa viljað taka mark á hryðjuverkahópum á borð við að- skilnaðarsamtök Baska á Spáni, Kúrda í Tyrklandi og IRA á Norð- ur-írlandi, enda gengur baráttu- aðferð þeirra þvert á allar lýðræð- ishefðir. Upphafið í Drenica En þótt skærur hafi staðið yfir árum saman í Kosovo hófust átök- in þó fyrst fyrir alvöru um mán- aðamótin febrúar og mars á síð- asta ári þegar sérsveitir serbnesku lögregiunnar réðust á þorpin Likosane og Cires í Drenicadal. Beittu þeir þungavopnum, þyrlum og skriðdrekum og lágu 7 5 alb anskir Kosovobúar í valnum eftir þessa hrinu. Þar af voru tíu manns úr einni og sömu fjölskyld- unni og fjórir bræður úr annarri fjölskyldu myrtir með köldu blóði. Nokkrum dögum síðar, þann 5,- 7. mars, myrtu serbnesku sveitirn- ar 58 manns í Donji Prekaz, sem allir tilheyrðu einni og sömu fjöl- skyldunni sem talin var hafa starf- að mikið með Frelsisher Kosovo. Þar á meðal voru átján konur og tíu börn. Þessar árásir héldu áffam næstu mánuði og ollu miklu róti í fjöl- miðlum og meðal ráðamanna er- lendis. Þann 19. júlí á síðasta ári hófst svo fyrsta stórsókn Frelsishers Kosovo þegar þeir réðust á þorpið Orahovac. Rúmlega fjörutíu manns tíndu þar lífinu að minnsta kosti, en síðan hefur ekkert spurst til Ijörutíu manns að auki. Fréttir hafa borist af fjöldamorðum og fjöldagröfum, en ekkert af því hef- ur enn verið staðfest. Racak ýtti við NATO Næstu vikurnar frömdu Kosovo- Albanir voðaverk sem Iítið gefa áþekkum verknaði Serba eftir. 27. ágúst er talið að KLA hafi myrt 22 óbreytta borgara í þorpinu Klecka, og þann 9. september myrtu þeir að öllum líkindum 34 manns, bæði af serbneskum og albönsk- um uppruna, í þorpinu Glodjane. Nokkrum vikum síðar tóku Serbar svo upp þráðinn að nýju og myrtu 28 manns í Gornje Obrinje, þar á meðal konur og börn. Öll fórnarlömbin tilheyrðu einni og sömu fjölskyldunni. Sama dag voru þrír aðrir þorpsbúar myrtir og sömuleiðis 13 manns í þorpinu Golubovac, skammt frá Gornje Obrinje. Eftir áramótin, þann 15. mars, áttu sér svo stað fjöldamorðin í Racak þegar 45 manns voru myrt- ir. Þessi fjöldamorð virðast hafa orðið tiJ þess að sannfæra stjórn- völd NATO-ríkjanna um að ekki verði lengur komist hjá hernaðar- aðgerðum, ekki ósvipað því sem gerðist eftir sprengjuárásina á úti- markaðinn í Sarajevo, sem varð til þess að hafnar voru loftárásir á Serba í Bosníustríðinu eftir mikið og Iangt hik. Afreksverk NATO Loftárásir Atlantshafsbandalags- ins á Júgóslavíu hófust svo þann 24. mars síðastliðinn beinlínis í þeim tilgangi að koma í veg fyrir frekari voðæerk serbnesku sér- sveitanra^JýQsovóhéfaði. JEftir að loftárásirnar hófust hafa hryðju- verkin þó færst í aukana um allan helming og sömuleiðis hefur NATO með loftárásunum beinlín- is valdið gríðarmiklu tjóni eins og kunnugt er, og þar á meðal mann- tjóni í röðum óbreyttra borgara. I síðustu viku fullyrtu stjórnvöld í Júgóslavíu að meira en 1.200 óbreyttir borgarar hafi látið lífið af völdum Ioftárásanna, og meira en 5.000 manns hafi særst. Erfitt er að meta hversu áreiðanlegar þess- ar tölur eru, en óhætt er að full- yrða að mannfall óbreyttra borg- ara af völdum loftárásanna nemi nokkur hundruð manns að minnsta kosti. ÁAKUREYRI Háskólinn á Akureyri Kennslufræði til kennsluréttinda Nám í kennslufræði til kennsluréttinda fyrir starfandi leiðbein- endur hefst á haustri komanda ef næg þátttaka fæst. Námið miðast við kennslu á framhaldsskólastigi og í efri bekkjum grunnskólans. Til námsins er stofnað á grundvelli laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn- skólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, nr. 86/1998. Áskilinn er réttur til þess að takmarka fjölda innritaðra ef þörf krefur. Umsóknarfrestur er til 1. júní nk. Sækja ber um námið á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem fást á aðalskrifstofu háskólans að Sólborg, kl. 8:00-16:00, sími 463 0900 og á deildarskrifstofum, Þingvallastræti 23, sími 463 0930 og Glerárgötu 36, sími 463 0961/0940. Afgreiðslutími deildar- skrifstofa er frá kl. 8:00 til 12:10. Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri námsins í síma 463 0923 eða 463 0900. Háskólinn á Akureyri. Málþing Kynning á lokaverkefnum hjúkrunarffæði- nema við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri mánudaginn 17. maí 1999 í Oddfellowhúsinu Akureyri. 13:00 Setning: Elsa B. Friðfinnsdóttir, lektor og settur forstöðu- maður heilbrigðisdeildar H.A. 13:05 Stuðningur við foreldra andvana fæddra barna - Hrafn- hildur Rós Gunnarsdóttir og Magna Lilja Magnadóttir. 13:20 Stuðningur/stuðningsleysi við aðstandendur langveikra barna - Friðgerður Ólöf Jóhannsdóttir. 13:35 Rannsóknaráætlun: Viðhorf hjúkrunarfræðinga til eigin þekkingar og hæfni í endurlífgun - Jóhanna Júlíusdóttir. 13:50 Leikir og leikmeðferð barna - Nína Hrönn Gunnarsdóttir. 14:05 Hlé. 14:10 Spegill, spegill herm þú mér: Notkun speglunar í hjúkrun - Helgi Þór Gunnarsson og Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir. 14:25 Karlmenn og ófrjósemisaðgerðir - Sigrún Rósa Vilhjálms- dóttir. 14:40 Frjósemi - frjósemisvitund - Friðrikka Jóhanna Jakobsdóttir. Hlé: Hollt og gott fyrir sál og líkama. Fræðsluþarfir þungaðra unglingsstúlkna - Hrafnhildur Grímsdóttir og Hrafnhildur Ólafsdóttir. Fræðsluþarfir og líðan feðra á barneignatímabilinu - Aðalbjörg Albertsdóttir og Fjóla Sveinmarsdóttir. Að hika er sama og tapa: Viðhorf og líðan kvenna í téngslum yið leghálskrabbamein og krabbameinsskoðun - Halldóra Karlsdóttir og Jenný Guðmundsdóttir. Hlé. 5- 16Jp5 . Bak við luktar dyr: Reynsla hjúkrunarfræðinga á Norður- ' lándi af ofbeldi gegn öldruðum - Brynhildur Smáradóttir, '/••v.:.&Ja%@úðlaug Sigurðardóttir og Helga Sif Friðjónsdóttir. 16:25 Örvun meðvitundarlausra - Elín Hjaltalln Jóhannesdóttir. 16:40 Starfsaðlögun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga: Áhrif á festu í starfi - Eyrún Ölafsdóttir. 16:55 Ráðstefnuslit. Veggspjöld: Rannsóknaráætlun, þekking og endurmenntun hjúkrunarfræðinga í endurlífgun - Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir. Fræðsla um næringu til verðandi mæðra - Guðrún Valdimarsdóttir. Málþingsstjóri: Sigfríður Inga Karlsdóttir, lektor. Allir hjartanlega velkomnir - aðgangur ókeypis. 14:55 15:15 15:30 15:45 16:00

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.