Dagur - 13.05.1999, Blaðsíða 13
Tk^ur
FI M MTU DÁGUR 'l 3. MAÍ 19 9 9 - 13
ÍÞRÓTTIR
Bjarki Birgisson, ÍFR, Gunnar Örn Óiafsson, Úsp, og Haraldur Þór Haraldsson, ÍFR.
Sautján íslandsmet
Sautján íslandsmet
voru slegin á Opna
danska meistaramót-
inu í sundi fatlaðra,
sem fram fór í Esbjerg
á Jótlandi um helg-
ina.
Þau Anna Rún Kristjánsdóttir,
Óðni, Eva Þórdís Ebenezersdótt-
ir, IFR, Gunnar Örn Ólafsson,
Ösp, Bjarki Birgisson, IFR og
Haraldur Þór Haraldsson, IFR,
náðu um helgina frábærum ár-
angri á Opna danska meistara-
mótinu í sundi fatlaðra, sem
fram fór í Esbjerg á Jótlandi.
Keppnin fór fram í 50 metra
laug og setti okkar fólk alls
sautján Islandsmet á mótinu.
Bjarki Birgisson, sem syndir í
flokki S7, setti sex met, Harald-
ur Þór Haraldsson, sem syndir í
flokki S10, setti sjö og Eva Þór-
dís Ebenezersdóttir, sem syndir í
flokki S10, fjögur.
Þau Gunnar Örn Ólafsson,
sem syndir í flokki S14, og Anna
Rún Kristjánsdóttir, sem syndir í
flokki S7, náðu einnig mjög góð-
um árangri og bættu sig í flest-
um greinum.
Þjálfarar krakkanna sem öll eru
ung og efnileg, eru þær Kristín
Guðmundsdóttir og Inga Maggý
Stefánsdóttir og að þeirra sögn
komust flestir íslensku keppend-
anna á verðlaunapall. En fyrst og
fremst væri mótið gott æfingamót
fyrir hópinn, en fjögur þeirra
náðu svokölluðum B-lágmörkum,
sem er fyrsta skrefið inn á Evr-
ópumeistaramótið.
Þau sem náðu lágmörkunum
voru þau Anna Rún Kristjáns-
dóttir í 100 m bringusundi, Eva
Þórdís Ebenezersdóttir í 50 m
skriðsundi og 200 m fjórsundi,
Gunnar Örn Ólafsson í 50 og
200 m skriðsundi og 100 m
bringusundi og Bjarki Birgisson í
200 m Ijórsundi. Haraldur Þór
Haraldsson var svo mjög nálægt
Iágmörkunum.
Anna Rún Kristjánsdóttir, Óðni.
Eva Þórdís Ebenezersdóttir, ÍFR.
ÍÞRÓTTA VIÐTALIÐ
r*
Bjarkl til KR
Nú lítur ut fyrir að
Bjarki Guimlaugsson,
leikmaður Braun í Nor-
egi, sé á leiðinni til
KR, ef haun fær sig
lausan frá norska lið-
inu. Bjarki sem kost-
aði Brann tuttugu
milljónir, vill heldur
spila á lægri launum,
en að sitja í stúkunni
fyrir milljón á mánuði.
Norska blaðið Bergensavisen
greindi frá því á þriðjudaginn að
Bjarki Gunnlaugsson væri orðinn
hundleiður á aðgerðaleysinu hjá
Brann. Blaðið veltir því íyrir sér
hvernig stendur á því að knatt-
spymufélag, sem er á hausnum,
hafi efhi á að halda dýrasta leik-
manni sínum og þeim marka-
hæsta á undirbúningstímabilinu,
utan Iiðsins þegar í alvöruna er
komið. Það eru því fleiri en Bjarki
sjálfur sem eru undrandi á stöðu
hans hjá Brann og á rekstri félags-
ins yfirleitt.
Félagið gekk með betlistaf til
Ieikmanna og bað þá að lækka
Iaun sín um tíu prósent og sleppa
öllum bónusgreiðslum. Leik-
mennirnir létu stjórninni eftir
launalækkunina en héldu um-
sömdum bónusum. Þrátt fyrir Ijár-
hagshremmingarnar er félagið
með dýra leikmenn á launaskrá,
sem ekki fá að leika með liðinu, en
eru samt ekki til sölu. Það er þessi
stjómarstefna sem hefur leitt fé-
lagið á barm gjaldþrots. Þetta kall-
ast að pissa í skóinn sinn.
Bjarki villburt
„Mér finnst að nú sé nóg komið af
því að sitja á bekknum, ef maður
fær það þá. Auðvitað langar mig til
að spila fótbolta og ef Brann getur
ekki notað mig þá er eina leiðin
fyrir mig að koma mér í burtu. Það
er bara erfitt þegar maður fær ekk-
ert að spila. Það kaupir enginn
leikmann sem ekki getur sýnt hvað
Bjarki Gunnlaugsson.
hann getur.“
Umhoðsmaður Bjarka, Knut N.
Kristiansen, leitar nú að nýju liði
fyrir Skagamanninn. Hann segir
að Brann bjargi ekki Ijárhag sínum
með því að selja Bjarka. Hins veg-
ar geti félagið lækkað launakostn-
að sinn umtalsvert. Samningur
Bjarka rennur út í sumar og þá fær
liðið ekki krónu fyrir hann.
KR eða Skaginn
Bjarki sagði við Dag að alveg eins
kæmi til greina að fara heim og
Ieika með einhveiju af toppliðun-
um í Landssímadeildinni. Bæði
KR og IA hafi sett sig í samband
við Bjarka og boðið honum að
ganga í sínar raðir.
Samkvæmt heimildum Dags,
hefur Bjarki nú þegar ákveðið að
ganga til Iiðs við KR-inga fái hann
sig lausan frá Brann og bíða menn
nú spenntir eftir svari stjómar fé-
Iagsins.
„Ég hef það mjög gott Ijárhags-
Iega hjá Brann. En það er bara
ekki nóg. Ég er að spila fótbolta af
því ég hef gaman af því og því vil
ég heldur spila með einhveiju liði
þar sem ég fæ einhver tækifæri þó
íaunin séu Iægri. Maður er ekki
lengur 19 ára. Það skiptir öllu
máli fyrir framtíð mína sem at-
vinnumanns að ég fái tækifæri til
að spiia þannig að einhver lið hafi
möguleika á að sjá mig. Ut á það
gengur atvinnumennskan. Það er
alveg á hreinu að ég vil ekki vera
lengur í Noregi. Leikstíll flestra
liðanna hér hentar mér engan veg-
inn og því er best að maður finni
sér lið annars staðar sem fyrst,"
sagði Bjarki Gunnlaugsson. - GÞÖ
Við ])urfuin yfirbyggða velli
Bjami
Jóhannsson
þjálfari ÍBV.
íslands- og bikarmeistar-
arEyjamanna í knatt-
spymu munu hejja titil-
vömina, þegar þeirfá
Leifturfrá Ólafsfirðií
heimsókn til Eyja á
fimmtudaginn í næstu
viftu. Við spurðum Bjama
Jóhannsson, þjálfara,
hvemig hans menn kæmu
undan vetri. .
- Hvemig hefur undirbúningur
verið hjd Eyjamönnum?
„Undirbúningurinn hjá okkur í
vetur er mjög svipaður og í fyrra.
Við byijuðum að æfa í nóvember
og erum búnir að fara í tvær æf-
ingaferðir eftir áramótin, auk þess
að spila leik í Færeyjum, gegn
lands- og bikarmeisturum HB. I
febrúar fórum við til Flórída og
spiluðum þar við bandarísk úr-
valsdeildarlið og einnig gegn
Lyngby frá Danmörku. Síðan fór-
um við til Portúgals rétt fýrir
páskana og spiluðum þar einnig
nokkra leiki. Það er mjög nauð-
synlegt fyrir oI<kur að fara slíkar
ferðir því hópurinn er tvískiptur
allan veturinn. Við erum með tíu
leikmenn í Reykjavík og tíu úti
Eyjum og svo voru þar að auki
tveir erlendis. Kristinn R. Jóns
son, aðstoðarþjálfari, hefur séí
um æfingarnar úti í Eyjum og ég
hér í Reykjavík. Um helgina sam
einast hópurinn svo á Hvolsvelh
þar sem við dveljum yfir helgina
góðu vfirlæti. Upp frá þ\'f verðu
hópurinn saman fram á haustið.”
- Eru miklar breytingar ú lið-
inufrá þvt tfyrra og verður það
sterkara?
„Við höfum misst sjö leikmenn
úr Ieikmannahópnum frá því í
fyrra, sem eru þeir Gunnar Sig-
urðsson og Friðrik Friðriksson
markverðir, Þjóðveijinn Jens Pa-
eslack, Kristinn Lárusson, sem
fór í Val, Sigurvin Ólafsson og
Steinar Guðgeirsson, sem fóru í
Fram og svo Sinisa Zbiljic. I stað-
inn höfum við fengið fjóra nýja og
mjög öfluga leikmenn, sem eru
þeir Birkir Kristinsson og Kristinr
Geir Guðmundsson, markverðir.
og þeir Baldur Bragason frá
Leiftri og Jóhann Möller frá
Siglufirði. Við vitum ekki annað
en að Zoran Miljkovic komi aftur
og það bendir allt til þess. Að öðru
leyti er hópurinn óbreyttur og
engin ákvörðum hefur enn verið
tekin um það hvort við fáum fleiri
útlendinga Við erum líka að fá
inn unga og efnilega stráka, sem
eru farnir að banka á dyrnar og ég
hef verið að skoða þá og gefa
þeim tækifæri í vorleikjunum.
Ég tel að við séum mjög vel
undirbúnir fyrir átökin í sumar og
met það svo að liðið sé mjög svip-
að að st\TÍdeika og í fyrra.“
- Hafa verkefnin verið næg á
undirbúningstímabilinu og ertu
ánægður með útkomuna hingað
til?
„Ég er nokkuð ánægður með
þau verkefni sem við höfum feng-
ið og einnig með árangurinn, þó
auðvitað hefði verið gaman að
komast í úrslit deildarbikarsins.
Við komumst taplausir í undanúr-
slitin, en töpuðum þar naumlega
gegn Skagamönnum.“
- Hvað finnst þér um að látn
liðin spila vorleikina á gervi-
grasi?
„Það er alveg með ólíkindum
hvað þessir gervigrasvellir okkar
eru orðnir daprir, enda er þeim
sama og ekkert haldið við. Við
spiluðum á gervigrasvelli í Fær-
eyjum, þegar við lékum gegn HB
um daginn og það var tvennt
ólíkt. Þeir halda honum mjög vel
við og virðast vel meðHtaðir um
það hvað þarf að gera til að hann
sé í lagi. Hér eru byggðir vellir og
svo er ekkert hugsað lengra Von
andi er það liðín tíð, þ\i' þeii
henta engan veginn íslenskum
aðstæðum. Við þurfum yfirh\ggða
velli og það er stóra málið. Ef \ið
tökum til dæmis völlinn í Laugar-
dalnum, þá er það alveg með ólík-
indum að þar sé enn verið að spila
alvöru kappleiki. Enda veigra
margir þjálfarar sér við að senda
sitt sterkasta lið inn á þessa velli
og bestu leikmenn þjóðarinnar
fást jafnvel ekki til að taka áhætt-
una. Það Iendir því meira á yngri
leikmönnum að spila þessa leiki
og það eykur enn líkurnar á því að
þeir hljóti varanleg meiðsl, vegna
þess álags sem því fylgir. Tilgang-
urinn með vorleikjunum er að
slípa liðin saman og maður er al-
veg gáttaður á því að þetta skuli
viðgangast, því auðvitað eru leik-
mennirnir það dýrmætasta sem
félögin "iga.“
- Hvað lið verða í toppbarátt-
unni í sumar?
„Miðaó dð það sem ég hef séð,
þá sýnist ■ að slagurinn muni
standa á milli Skagans, KR og
Vestmannaeyja og einnig muni
Leiftur og Keflavík hugsanlega
blanda sér i baráttuna. Þessi
fimm lið munu að mínu mati láta
mest að sér kveða í sumar, en svc>
eru það auðvitað alitaf einhveijir
sem koma á óvart."