Dagur - 13.05.1999, Side 1
fs
Söngleikur 10. áratug-
arins (segja menn)
verðurfrumsýndur í
Loftkastala á morgun.
Höfundurinn lést
skömmufyrirfrumsýn-
ingu en söngleikurinn
tókfjörkipp, rakaði
inn áhorfendum til að
sjá þennan óð til ástar-
innar og lífsþorstans...
Nóttina áður en forsýningar á
söngleiknum RENT áttu að hefj-
ast, þann 25. janúar 1996, lést
hinn 35 ára Jonathan Larson af
meðfæddum æðasjúkdómi en
hann hafði lengi bögglast við að
koma sér og söngleiknum sínum
á framfæri. Nokkrum vikum síð-
ar var nafn hans um alla menn-
ingarpressuna og söngleikurinn
kominn á Broadway. Nú, þremur
árum síðar, verður söngieikurinn
frumsýndur í Loftkastalanum í
leikstjórn Baltasars Kormáks. Við
kíktum niður í Héðinshús og tók-
um þá Helga Björnsson og Atla
Rafn Sigurðarson tali en þeir
leika kærustupar í sýningunni,
Helgi leikur háskólakennarann
Tom Collins en Atli klæðskipt-
inginn Angel - og þeir eru ást-
fangnir upp fyrir haus.
Elta ekki „kanalúkkið“
Söguþráður er ekki alltaf sterk-
asta hlið söngleikja og hann er
nokkuð óljós einnig í RENT.
Þegar Atli Rafn og Helgi voru
inntir eftir söguþræðinum komu
nokkrar vöflur á þá félaga en
sættust þó á að helsti átaka-
Atli Rafn játar það upp á sig að hafa alltaf þótt söngleikir frekar leiðinlegir. „En hér er ekki þetta blöðrulega efni
sem söngleikir fjalla yfirleitt um. Það sem eimdi afþví í verkinu er farið." Umhverfi og aðstæður persóna í söngleikn-
um eru afar keimlíkar þeim sem höfundurinn Jonathan bjó sjálfur við en hann var fátækur listamaður, kærastan yfir-
gaf hann vegna annarar konu og kunningjarnir að hrynja niður úr eyðni. mynd: hilmar þór.
punktur verksins væri yfirvofandi
brottrekstur tveggja vina úr bygg-
ingu sem þeir hefðu tekið sér til
búsetu. Fleiri koma við sögu og
sýningin rúmar allavega 3 ástar-
sögur en boðskapurinn, segja
þeir, er fyrst og fremst að lifa fyr-
ir líðandi stund og viðhalda lífs-
gleðinni þrátt fyrir utanaðkom-
andi aðstæður, veikindi og aðra
óáran.
- Nú var höfundinum mjög
annt um að efnið skírskotaði beint
til veruleika ungs fólks en þessi
hrdslagalegi eiturlyfja- og eyðni-
sjúki veruleiki ungra listamanna
er ekki mjög umfangsmikill hér á
landi - er leikurinn að einhverju
leyti heimfærður?
„Nei,“ svöruðu þeir, dálítið efa-
blandnir. Sitthvað hafi þó verið
gert til að sníða það al-amerísk-
asta af leikritinu og einnig geri
búningarnir sitt til að dempa am-
eríska stemmninguna en þeir eru
nánast eins og klipptir út af
bekkjarmynd íslensks 10. bekkjar
árið 1999. „Það er ekkert verið
að elta kanalúkkið..."
Þversnið af óperu og söngleik
- Nú upplifir maður þetta ekki
sem venjulegan poppsöngleik
heldur mitt á milli óperu og söng-
leiks, hvemig mynduð þið lýsa
tónlistinni?
„Höfundurinn hafði að leiðar-
Ijósi að búa til söngleik með mús-
ík dagsins í dag, músíkina sem
krakkarnir væru að hlusta á, og
var þá að miða við þær hljóm-
sveitir sem voru inn þá - vildi fá
það fíl fram, U2, Sting og Pearl
Jam og fleiri," svarar Helgi að
bragði og segir tónlistina ekki
líkjast hefðbundinni söng-
leikjatónlist en ástæðan fyrir því
að fólk tengi RENT við óperur sé
sennilega sú að samtölin eru
mikið til sungin.
- Ykkur hefur ekkert fundist
skrýtið að hresta svona t söng þeg-
ar persónurnar þurfa að ræða sín
á milli?
„Það er ekkert skrýtnara en að
flytja Shakespeare eða Grikkina í
bundnu máli,“ segir Atli Rafn og
Helgi telur sungið mál jafnvel
standa okkur nær en Shakespe-
are. „Við lifum og hrærumst svo
mikið í þessari poppmúsík, hend-
um frösum úr henni á milli okk-
Ekki erfitt að leika honuna
- Þuiftuð þið að setja ykkur í sér-
stakar stellingar til að leika ást-
fangna liomma?
„Nei,“ svara þeir báðir hik-
Iaust. „Þetta er bara ástarsam-
band milli tvæggja manneskja og
maður þarf ekkert að setja sig í
spes stöðu til að túlka það,“ segir
Atli og Helgi bætir því við að þeir
hafi ekki farið út í að stúdera ást
milli tveggja karlmanna, þó hafi
Felix Bergsson miðlað ýmsu til
þeirra um þankagang samkyn-
hneigðra karlmanna. „Eg hef
reyndar leikið homma áður,“ seg-
ir Helgi (ógleymanlega kraftmik-
ill í aðalhlutverkinu í Rocky Horr-
or), „sem reið öllum og kyssti allt
sem hreyfðist...“ og telur sig hafa
þá farið yfir alla mögulega þrösk-
ulda í því samhengi.
Atli Rafn þurfti þó að læra að
setja sig inn i hugsunarhátt klæð-
skiptinga og læra að tipla
skammlaust á háum hælum á sex
vikum. Háuhælatiplið virtist
hreint ekki hafa verið honum á
móti skapi, svo mjög ljómaði
hann við að lýsa æfingunum.
„Það hafa allir leikarar voðalega
gaman af því að klæða sig upp,“
skýtur Helgi inní og glottir.
„Hann er orðinn alger príma-
donna," bætir hann við og sagði
að þegar Atla vanti á sviðið þegar
æfingar byrja þá sé viðkvæðið
iðulega að hann sé nú fyrir fram-
an spegiiinn að dytta að smink-
inu... -LÓA
SHARP
AL-1000
10 eintök a mínútu
V
Stafrœn
VilNilMSLA
% -mcirl 'jí'jti!
wmmmmmmmBi
SHARP
AR-280/335
28/33 eintök á rninútu
1-
Stafrt
Vil>
■œn
ilMINiSLA
BetPl prentun meini myndgæðil
Hágæða umhvepfisvænar (jósritunarvélar
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar
B R Æ Ð U R N I R
-ittelrl ocgOI
V
Lógmúla 8 • Sími 533 2800
I
iMrniiiiúMiiSiiirMBmiiiiaítfiniti'it