Dagur - 13.05.1999, Qupperneq 2
18 — FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
ro^tr
LÍFIÐ t LANDINU
■ SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Sigurður Ragnarsson.
„Það er ótrúlegt
til þess að hugsa
að fyrir ijórum
mánuðum lá Kanu
undir skemmdum
í Mílanó. Hann
var samnings-
bundinn Inter en
fékk ekki tækifaeri
frekar en púkinn
á fjósbitanum."
Orri Páil Orrason í
grein um knatt-
spyrnumanninn
Kanu í Mbl.
Reykingaspá
Mjög er þrengt að reykingafólki á vinnustöð-
um. Mjög vfða verður fólk að fara út til að
reykja og það fagnar því sumri meira en aðrir.
Nú sér maður í góða veðrinu fólk standa fyrir
utan fyrirtældn og reykja. Glöggur vinnufélagi
minn, reykingamaður, benti á að í veðurspá
Stöðvar 2 sé birt mynd af börnum í mismun-
andi klæðnaði og þeim sagt að vera klædd eftir
því hvernig veðurspáin er. Vinnufélagi minn
vill að birt verði mynd á veðurkortinu af fólki
að reykja, í þeim íandshlutum þar sem gera
má ráð fyrir nægilega góðu veðri til þess að
hægt sé að standa utan dyra og reykja í friði.
Þessu er hér með komið á framfæri við Ara
Trausta og vinnufélagann Sigurð Ragnarsson.
Langþráður llfskjarabati
Ingvari Gíslasyni, fyrrum menntamálaráð-
herra, er eins farið og mér og fleirum aðdá-
endum hagmælskunnar, að ofbjóða Ieirburður-
inn sem birtur er hvað eftir annað í blöðum og
tímaritum. Hann bendir á greinastúf, sem
birtist í Morgunblaðinu eftir formann ungra
sjálfstæðismanna á Akureryi undir fyrirsöginni
„Traust stjórn." Greinin hefst á þessari speki:
„Bú þig í góðviðri við illviðri, segir íslenskur
málsháttur." Og henni líkur á þessum skáld-
skap:
Langþráður lífskjarabati,
lækkandi skuldir rtkisjóðs,
hagvöxtur er hagsæll hvati,
hagldir og tögl í höndurn góðum.
Á ári hverju hækkar kaupmáltur,
árangur hér öllum bjóðum,
vinnumarkaður virðist sáttur,
víst er það til góðs.
Allt í himnalagi
Og Ingvar bendir á „vísu“ eftir Asgeir Sverris-
son, pistlahöfund í Mbl. sem birtist í pistli
hans Kosningar í þátíð. Þar segir hann:
Ráðamenn hafa enda kveðið við raust:
jepparfinir, húsin flott,
finnst ei svangur magi.
Hér er lífið æði gott,
allt í himnalagi.
Loks bendir Ingvar á vísu eftir Vestfirðing-
inn Sólon í Slunkaríki sem uppi var í byrjun
aldarinnar, og „orti“ margt skrýtið, til saman-
burðar kveðskapnum í Mbl.:
Morgunmjöllin fríð og blíð,
flytur margan kajfisopa.
I laun skal hafa litinn prest
og bera hann undir svuntunni.
Eftir að hafa lesið þessi ósköp orti Ingvar
Gíslason:
Moggaliðs er menntin góð,
þótt mærðargáfan svtki.
Sýnu betri samdi Ijóð
Sólon í Slunkaríki.
„Þetta er hugsað
sem alþýðlegt
fræðirit. Ég reyni
að sneiða hjá því
að vera mjög
fræðilegur en ég
vitna að sjálf-
sögðu í fræði-
menn á þessu
sviði. Við getum
sagt að þetta sé
handbók fyrir hjá-
trúarfuiia, “ segir
Símon Jón Jó-
hannsson þjóð-
fræðingur. -mynd:
PJETUR.
Hjátrú tengd galdri
Símon Jón Jóhannsson, þjóð-
fræðingur og framhaldskóla-
kennari, tók saman handbók um
hjátrú sem bókaforlagið Vaka-
Helgafell hefur gefið út. Hann
segir það vera svolítið um hjátrú
hér á landi og nefnir að hún sé
ekki endilega bundin við svarta
ketti, stiga eða brotna spegla.
„Eg held að það séu mjög margir
sem reikna með því að það sé
eitthvað meira í kringum þá en
sýnist í fljótu bragði. Ahugi
manna á draumum er eitt af því
sem bendir til þess að þessi þjóð
sé hjátrúarfull. Mér finnst ég
heyra mjög mikið af því í kring-
um mig að menn eru að spá í
drauma."
Alþýðlegt fræðirit
Símon Jón segist alltaf hafa haft áhuga á hjátrú,
hann sé alinn upp við þjóðsögur. Hann segist
hafa haft gaman af draugasögum frá blautu
barnsbeini. Unglingar hafi oft gaman af
„mystík" og ýmsu dularfullu. Hjátrú er ein af
sviðum þjóðtrúarinnar og tengist þannig þjóð-
fræðinni. „Þetta er hugsað sem alþýðlegt fræði-
rit. Eg reyni að sneiða hjá því að vera mjög
fræðilegur en ég vitna að sjálfsögðu í fræðimenn
á þessu sviði. Við getum sagt að þetta sé hand-
bók fyrir hjátrúarfulla.“
í bókinni er sagt frá ástarlyfinu
sýkisgrasi og verkan þess vilji
karlar ná ástum kvenna. Símon
Jón segir að stutt sé á milli hjá-
trúar og galdurs. „Það er útskýrt í
formálanum að um leið og maður
rekst á váboða eins og hrafna,
svarta ketti geti maður gripið til
galdurs, krossa fingur, hrækja,
snúa sér í þrjá hringi, berja í við
eða eitthvað annað. Það er margt
sem menn framkvæma til þess að
hafa áhrif á hjátrúarfyrirbærin.
Það er auðvitað ekkert annað en
galdur.“
Hjátrú í kringum ný tæki
Símon segist geta nefnt dæmi um
ýmsa nýlega hjátrú. Það sé til að
mynda mjög algengt með ný tæki, að það mynd-
ist hjátrú í kringum þau. „I bókinni er kafli um
örbylgjuofna, það er tvennskonar hjátrú tengd
þeim. Annarsvegar er að menn geti orðið nátt-
úrulausir ef örbylgjuofninn er hafður í ákveð-
inni hæð í eldhúsinu, eins líka að ef menn horfa
á hann í gangi þá geti menn orðið blindir. Mér
skilst það á eðlisfræðingum að þetta sé bara rugl
frá rótum. Þegar útvarpið kom fyrst til sögunnar
var það trú hjá eldra fólki að það gæti fylgst með
mönnum. Eg er viss um að það er til einhver
hjátrú sem tengist tölvubransanum." -pjesta
„Hjátrúin eröll
þannig að eitíhvað er
í kringum okkursem
menn óttast. Þá
verða þeirað búa sér
til einhverskonar
vöm við því. “
8PJALL
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
Þetta mannlíf er undarlegt fyllerí.
Halldór Laxncss
Þettagerðist 13.maí
• 1643 varð mikill jarðskjálfti í Santiago í
Chile, og fórst þar þriðjungur íbúanna.
• 1830 var lýðveldið Equador stofnað í
Suður-Ameríku.
• 1940 hélt Winston Churchill fyrstu
þingræðu sína sem forsætisráðherra
Bretlands, og sagðist ekkert hafa að
bjóða Bretum nema „blóð, erfiði, tár og
svita."
• 1965 tóku ísrael og Vestur-Þýskaland
upp stjórnmálasamband, sem varð til
þess að nokkur Arabaríki slitu stjórn-
málasambandi við Vestur-Þýskaland.
• 1968 hófust í París formlegar friðarvið-
ræður milli Bandaríkjanna og Norður-
Víetnam, en stríðinu lauk þó ekki fyrr
en 1973.
• 1981 skaut tyrkneskur maður, Mehmet
Ali Agca að nafni, á Jóhannes Páll II.
páfa á Péturstorginu í Róm, og hlaut
páfi alvarleg sár af.
Þaufæddust 13.maí
• 1717 fæddist María Therea, keisara-
ynja í Austurríki.
• 1882 fæddist franski málarinn Georges
Braque.
• 1894 fæddist Ásgeir Ásgeirsson forseti.
• 1907 fæddist enska skáldkonan Dap-
hne du Maurier.
• 1914 fæddist bandaríski boxarinn Joe
Louis.
• 1948 fæddist Sverrir Olafsson mynd-
listarmaður.
Vísa dagsins
Bragi Sigurjónsson á þessa snotru sumar-
vísu, sem reyndar er bara brot úr ljóði:
Sat ég undir sólvegg,
svalg af tærri ilmskál,
helg og þögul hlýjörð
hvfld og sæld mér gaf.
Afmælisbam dagsins
Stephen Judkins Hardaway fæddist
13. maí árið 1950. Hann hefur verið
blindur fá fæðingu. Barn að aldri
fékk hann sex gata munnhörpu að
gjöf frá frænda sínum. Þegar hann
var tíu ára gekk hann inn á skrifstof-
ur Mowtown fyrirtækisins og fór að
syngja. Hann varð þekktur sem
barnastjarna undir nafninu Stevie
Wonder. Hann hefur átt Qölda eftir-
minnilegra Iaga sem trónað hafa á
toppi vinsældalista.
Jeppi til sölu!
Hinrik, maðurinn hennar Hönnu, andaðist
og daginn eftir skrapp hún Hanna til að
láta andlátstilkynningu í dagblað. Til þess
að spara kostnað hafði hún hugsað sér að
hafa tilkynninguna stutta, aðeins þijú orð:
„Hinrik er látinn.“ Það fannst konunni á
afgreiðslu blaðsins óþarflega snubbótt, og
sagði að hún þyrfti hvort eð er ekki að
borga neitt meira þótt sex orð væru í aug-
lýsingunni. Hanna hugsaði máli svolitla
stund, en sagði síðan: „Hinrik er látinn.
Jeppi til sölu ..."
Veffang dagsins
Margt kostulegt er að finna á Netinu, þar
á meðal ljósmyndir sem teknar eru víða
um heim og birtar samstundis. Á
www.oIywa.net/jandrews/beta.htm er ein
slík myndavél þar sem fylgjast má með líf-
inu í svínastíu nokkurri einhvers staðar á
vesturströnd Bandaríkjanna.