Dagur - 13.05.1999, Page 5
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
Dagwr
Þrennir útskriftartónleikar
Þrír nemendur Tón-
listarskólans á Akur-
eyri halda útskriftar-
tónleika um helgina.
Álaugardag kl. 14.00
heldur VilhjálmurSig-
urðarson trompetleik-
ari útskriftartónleika í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Hann mun flytja verk eftir J.S. Bach,
J.N. Hummel og A. Arutjunjan. Á sunnudag kl. 16.00 heldur Bjarkey
Sigurðardóttir sópran útskriftartónleika í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Á efnisskrá eru meðal annars verk eftir G. Puccini, J. Haydn,
W.A. Mozart, auk íslenskra höfunda. Á sunnudag kl. 17.00 heldur
Sigrún Arna Arngrímsdóttir messósópran útskriftartónleika í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju. Á efnisskrá eru meðal annars verk eftir W.A.
Mozart, R. Schumann, F. Mendelsohn og Jón Leifs. Tónleikarnir eru
öllum opnir og aðgangur er ókeypis.
im&
.11 I,1M
Maturinn hans Þorra
„Humar í
hvítvínshlaupi"
heitir þetta
málverk eftir
Porra Hrings-
son en hann
opnar sýningu
í Listasafni ASÍ
f Ásmundarsai
við Freyjugötu
á laugardag-
inn. Eins og
stundum áður er viðfangsefni hans matur eða eins og Úlfhildur Dags-
dóttir orðar það I sýningarskrá þá tekur hann „klisjur um list og lyst og
matargerðarlist og snýr þeim á hvolf í þessum ólystugu listaukum.”
Sýningin stendur til 30. maí.
Ung þýsk leikkona, Kerstin
Marie Mákelburg, sló i gegn fyn'r
um tveimur árum í Hámborg
með söngdagskrá sem byggð
er á lögum Marlene Dietrich.
Túlkun hennar þykir nútímaleg
en Kerstin hejúr einnigleikíð sér
að gyðjuþættinum í goðsögninni
um söngkonuna frægu og mun
dagskrá Kerstinar hafa hleypt af
stað hálfgerðu Marléne-æði (
Hamborg. Nú er Kerstin komin
til (slands fyrir tilstilli Goethe-
Zentrum og syngur lög;Marlene
ífjamarbíói 14. og 15. maí og
verður þá einnig Ijósmyndasýning sem nefnd er Goðsögn imyndum.
Þýska divan
■ HVAfl ER Á SEYOI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SÝNINGAR
Ástarútrásarpúði
Kústahlíf, hjálparhönd, vaxhaldari,
fótahaldari, tónlistarskór, hringsigti,
dekkjaormur, blikkbelti, dótatínir, ást-
arútrásarpúði, tvöfaldur tannbursti,
sjómannahringur, eksemputtar. Allt
þetta og margt fleira á sýningunni
„Hugvit og hönnun“, nýsköpunar-
keppni grunnskólanemenda og Fantasi
design. Menningarmiðstöðinn Gerðu-
bergi laugardaginn 15. maí kl. 14.00.
Listhús Ofeigs
Páll S. Pálsson opnar sýningu í Listhúsi
Ofeigs, Skólavörðustíg 5 laugardaginn
15. maí kl. 14 - 16. Að þessu sinni sýnir
Páll aðallega smá skúlptúra unna í ýmis
efni, svo sem, tré, bein, stein og málma,
ásamt nokkrum málverkum. Þetta er
tuttugasta einkasýning hans. Páll hefur
lamgtímum búið erlendis og haldið ell-
efu sýningar utanlands ásamt þáttöku í
sýningarhaldi með samtökum myndlist-
armanna heima og erlendis. Sýningin er
opin á almennum verslunartíma, henni
lýkur 29. maí.
Þá og nú
Guðný Hafsteinsdóttir, Iistmálari opn-
ar einkasýningu í Sverrissal Hafnar-
borgar, laugardaginn 15. maí kl. 16.00.
Verkin sem Guðný sýnir eru úr gleri,
postulíni og steinleir. Sýningin ber yf-
irskriftina „Þá og nú“ og er einskonar
skýrskotun í söguna. Sýningin stendur
til 31. maí og er opin alla daga frá kl.
12 til 18 nema þriðjudaga.
Myndmál er tungumál
Margrét Jónsdóttir, listmálari opnar
einkasýningu í Hafnarborg laugardag-
inn 15. maí. Margrét sýnir olíumálverk
sem hún vinnur út frá veruleika sínum
og tilfinningum, hún telur sig ekki get-
að túlkað neitt nema tilfinningar og
reynslu sem hún hafi upplifað og að
ekkert okkar upplifi eins, myndmál sé
tungumál sem orð fá ekki tjáð. Sýning-
in stendur til 7. júní og er opin alla
daga frá kl. 12 til 18 nema þriðjudaga.
Myndasögur í Mýrinni
Sunnudaginn 16. maí kl. 15.00 kynna
tveir myndasöguhöfundar verk sín í
fundarsal Norræna hússins. Tomi
Riionheimo frá Finnlandi segir frá
þekktustu myndasögu sinni um han-
ann og hænuna Rieko og Raiku og
sýnir myndband með þeim. Agneta
Persson frá Svíþjóð talar um Babsan
myndasöguna sem hún hefur hlotið
hvað mesta frægð fyrir. Sýnd verða tvö
stutt myndbönd um Babsan; Babsan
og nýi nágranninn sem er fyrsta
teiknimynd Agnetu Persson og Babsan
og Bússi.
Púshkin-myndir í bíósal MIR
Kvikmyndasýning verður í bíósal MIR,
Vatnsstíg 10 í dag, uppstigningadag, kl.
15.00. Þá verður sýnd kvikmyd frá ár-
inu 1982, byggð á sögu Alexanders
Púshkin, „Spaðadrottningin.“ Margir
kunnir rússneskir leikarar fara með
hlutverk í myndinni. Myndin er sýnd
án texta en efnisútdrætti dreift til bíó-
gesta. Sunnudaginn 16. maí kl. 15.00
verður myndin „Rúslan og Ljúdmíla“
sýnd. Sýndir verða báðir hlutar mynd-
arinnar, sem að mestu er talsett á
ensku.
Hátíð í Vogaskóla
I dag, uppstigningadag, verður sérstök
hátíðardagskrá ( skólanum í tilefni af
40 ára starfsafmæli skólans. Þar verð-
ur m.a. sýning á verkum nemenda,
gömlum Ijósmyndum úr skólastarfinu
og kaffihús verður opið þar sem nem-
endur koma fram svo fátt eitt sé talið.
Dagskránni Iýkur kl. 15.30. Allir eru
velkomnir.
TÓNLIST
Forn-funk og frum-fusion
Mánudaginn 17. maí verður sfðasta
dagskrá vetrarins f Listaklúbbi Leik-
húskjallarans. Djasssveitin „Krókódíll-
inn", skipuð þeim Sigurði Flosasyni á
saxófón, Þóri Baldurssyni á hammond
orgel, Eðvarð Lárussyni á gítar og
Halldóri G. Haukssyni á trommur mun
sjá til þess að gestir klúbbsins hverfi á
vit sumars með djassaðan takt í blóð-
inu. Sigurður skilgreinir tónlist þeirra
félaga sem „forn-funk og frum-fusion"
tónlist, tónlist þar sem blús og rokk
verður að djassi. í tilefni þess að 17.
maí er þjóðhátíðardagur nágranna okk-
ar norðmanna verður óvænt uppákoma
þeim til heiðurs. Húsið opnar kl.
19:30 en dagskráin hefst kl. 20:30. Að-
gangseyrir er kr. 800.-
Tíbrá í Salnum
100 ára afmælis Helga Pálssonar tón-
skálds verður minnst í kvöld kl. 20.30
á sérstökum Kópavogstónleikum. A
fyrri hluta tónleikanna verða eingöngu
flutt verk eftir Helga, en síðari hluti
þeirra er tileinkaður verkum annarra
tónskálda úr Kópavogi. Helgi stundaði
alhliða tónlistarnám í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík. Kontrapunkt hjá dr.
Franz Mixa, tónsmíði hjá dr. Victor
Urbancic. Hann lagði sérstaka rækt við
Kammermúsik, samdi strengjakvartetta
og svítur fyrir stroksveit en einnig fyrir
fiðlu og píanó. Helgi Pálsson samdi
þó nokkuð af sönglögum og fleira
mætti nefna. Efnisskrá tónleikanna er
fjölþætt. Þórunn Guðmundsdóttir
syngur við undirleik lngunnar Hildar
Hauksdóttur lög eftir Helga Pálsson,
Þorkel Sigurbjörnsson, ingibjörgu Þor-
bergs, Sigfús Halldórsson, Hjálmar H.
Ragnarsson og íslensk þjóðlög í útsetn-
ingu Fjölnis Stefánssonar.
Franskar gítarperlur í reyklausu
kaffihúsi
Föstudagskvöldið 14. maí kl. 20.30
munu Pétur Jónasson og Hrafnhildur
Hagalín leika létta gftartónlist í
reyklausa kaffihúsinu Nönnukoti í
Hafnarfirði. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill meðan húsrúm leyfir. A
efniskránni verða verk af ýmsum toga,
þ.á m. suður-amerísk þjóðlög, franskar
kaffihúsaperlur og sfgild ítölsk
skemmtitónlist. Pétur lærði f Tónlist-
arskóla Garðabæjar og stundaði fram-
haldsnám í Mexíkó og á Spáni. Hrafn-
hildur, sem er betur þekkt sem leik-
skáld, lauk burtfararprófi f klassískum
gftarleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og var síðar við framhalds-
nám á Spáni.
Asgarður, Glæsibæ
Brids í dag kl. 13.00. Bingó í kvöld kl.
19.45. Félagsvist föstudag kl. 13.30.
Föstudagskvöld koma danskir eldri
borgarar í heimsókn í Asgarð, matur
kl. 19.30, skemmtiatriði og dansleikur
kl. 22.00. Eldri borgarar tökum vel á
móti dönskum eldri borgurum. Borða-
pantanir í síma 588 2111. Göngu-
Hrólfar fara frá Asgarði laugardags-
morgun kl. 10.00. Suðurnesjaferð 20.
maí.
Félag kennara á eftirlaunum
Vetrarstarfinu lýkur með skemmti-
fundi, sem einnig er aðalfundur félags-
ins, laugardaginn 15. maí kl. 14.00 í
kennarahúsinu við Laufásveg.
FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR
Radíusbræður á Grandrokk
Föstudagskvöldið 14. maí kl. 22.00,
troða Radíusbræður upp á Grandrokk.
Þetta er í fyrsta sinn í rúmt ár sem
þessir vinsælu skemmtikraftar koma
fram í Reykjavík. Þeir Steinn Armann
Magnússon og Davíð Þór Jónsson hafa
að undanförnu samið og æft nýja dag-
skrá, sem verður frumflutt á
Grandrokk á föstudaginn.
Hvað geymir jörðin
Sunnudaginn 16. maí verður haldin
Oddastefna 1999 á Keldum og í
Gunnarsholti. Klukkan 13.00 verður
messa í Keldnakirkju. Séra Sigurður
Jónsson í Odda predikar. Þór Jakobs-
son formaður Oddafélagsins setur
Oddastefnu, Keldnabær verður skoð-
aður undir leiðsögn Drífu Hjartardótt-
ur. Um kl. 16.00 verður Oddastefnu
haldið áfram í Gunnarsholti í fundar-
sal fræverkunarstöðvarinnar. Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri býður
fundargesti velkomna. Þema Odda-
stefnu verður „Hvað geymir jörðin?“
Fundarstjóri verður Friðjón Guðröðar-
son sýslumaður og erindi halda Þór
Hjaltalín sagnfræðingur, Hallgerður
Gísladóttir þjóðháttafræðingur, Arni
Hjartarson jarðfræðingur og Þórður
Tómasson safnvörður í Skógum.
Oddastefnu verður slitið klukkan
18.00.
Holtarahátíð
Ibúar sem bjuggu í Holtahverfi í
Reykjavík á árunum 1940-1960, eða
frá því að fyrstu íbúar hverfisins fluttu
inn í íbúðir sínar, ætla að hittast í Iðn-
aðarmannahúsinu laugardaginn 15.
maí. Hófið hefst kl. 20.30. Holtarahá-
tíð var síðast haldin í Iðanaðarmanna-
húsinu (Gullhömrum) í maí 1997. Þá
fór aðsókn fram úr vonum þeirra sem
að hátíðinni stóðu og var mikil ánægja
með framtakið. Þar hittist fólk sem
ekki hafði sést í áratugi og mikið var
talað, hlegið og mörg bernskubrek rifj-
uð upp. Listamenn uppaldir í hverfinu
stigu á stokk og fóru á kostum, má þar
nefna Ómar Ragnarsson, sem samdi
brag af þessu tilefni, Helenu Eyjólfs-
dóttur, Ragnar Bjarnason, og Pétur
Kristjánsson. Það er ósk þeirra sem að
hátíðinni standa að sem flestir sjái sér
fært að koma og skemmta sér með
gömlum nágrönnum og vinum.
Afmælisráðstefíia Líffi,æðifé-
lagsins
Þann 15 maí rennur út skilafrestur á
þátttökutilkynningum fyrir ráðstefnu
Líffræðifélags Islands sem verður í
haust. Ráðstefnunni er ætlað að ná til
allra sem stunda líffræðirannsóknir og
er yfirskrift hennar Líffræðirannsóknir
á Islandi. Hægt er að skila þátttökutil-
kynningum til Sigurðar S. Snorrason-
ar, Líffræðistofnun Háskólans, Grens-
ásvegi 12, Reykjavfk. Einnig er hægt
að senda tilkynningar í tölvupósti og er
netfangið, sigsnor@hi.is.
Vopnfirðingakaffi
Sunnudaginn 16.maí halda Vopnfirð-
ingar búsettir á stór Reykjavíkursvæö-
inu sinn árlega kaffidag. Eins og und-
anfarin ár hefst hann með guðsþjón-
ustu í Bústaðarkirkju kl. 15.00. Allir
Vopnfirðingar og gestir þeirra eru vel-
komnir.
QG SVQ HITT...
Kirkjureið til Langboltskirkju
Sunnudaginn 16. maí eru hestamenn
boðnir sérstaklega velkomnir í Lang-
holtskirkju. Hestamenn leggja af stað á
gæðingum sínum frá félagsheimili
Fáks kl. 9.30 og kl. 10.30 frá hesthús-
unum við Bústaðaveg, en messan hefst
kl. 11.00. Hestamannafélagið Fákur
sér um gæslu hestanna meðan á
messu stendur og setur upp girðingu
við kirkjuna. Lesarar og tónlistarmcnn
koma úr röðum hestamanna. Prestur
er séra Jón Helgi Þórarinsson. Eftir
messu gefst kirkjugestum kostur á að
kaupa sér kjötsúpu í safnaðarheimili
kirkjunnar.
Ferðafélag Islands
I dag verður farið í skfðagöngu á Esju,
gengið verður á Esjuna úr Kjós og á
skíðum um fjallið. Eins verður Esju-
gangan þann sama dag. Báðar ferðirn-
ar hefjast kl. 10.30. Farið verður í
stutta göngu um Kjalarnes og Kolla-
fjörð. Skoðaður verður forn aftöku-
staður, Sjálfkvíar. Leiðsögumaður verð-
ur Páll Sigurðsson prófessor og mun
hann segja frá liflátshegningum fyrr*
tíma. Lagt verður af stað frá Mörkinni
6 og BSI, austanmegin kl. 13.00.
Ný Ijóð
I kvöld les Hjalti Rögnvaldsson leikari
uppúr ljóðabók Þorsteins frá Hamri Ný
Ijóð sem kom út árið 1985 á Næsta
bar, Ingólfstræti la (gegnt Islensku óp-
erunni). Flutningur Hjalta hefst kl.
22.00 og er áætlað að hann standi í
um klukkutíma. Aðgangur er ókeypis.
Póstgangan 1999
Aðalgöngudagur Póstgöngunnar milli
pósthúsa er í dag. Áfangastaðir verða
alls fimm. Farið verður frá Bessastöð-
um kl. 10.00. Forseti Islands, herra
Ólafur Ragnar Grímsson, heilsar uppá
göngumenn áður en þeir leggja íann.
Gengið verður að pósthúsinu í Hafnar-
firði og áfram suður í Kúagerði þar
sem boðið verður uppá grillaðar pylsur.
Tilefnið er að þennan dag árið 1776
gaf Kristján konungur VII út fyrstu til-
skipun um póstferðir á Islandi. Leið-
sögumenn ganga með hópnum og
segja sögur af stöðum þar sem gengið
verður um. Rútuferðir eru til baka á
brottfararstaði, en boðið er uppá fríar
rútuferðir að Bessastöðum frá BSI kl.
9.15 og frá pósthúsinu í Kópavogi kl.
9.30 og pósthúsinu í Garðabæ kl.
9.45. Allir eru velkomnir.
LANPIÐ
TÓNLIST
Alþýðufónlist á Græna hattinum
Tónlistarskólinn á Akureyri etnir til tón-
lcika á Græna hattinum í dag kl. 16.00,
þar sem nemendur úr Alþýðutónlistar-
deild skólans koma fram. Suzukincm-
endur munu spila fyrir gesti í blómaskál-
anum Vín í dag frá kl. 14.30.
KáKá og MaggiEiríks
KK lætur ekki deigan síga, þenur bark-
ann og lemur gítarinn fyrir Akurnes-
inga á föstudaginn í Akranes-kaffi kl.
21.00. Maggi Eiríks slæst í för með
honum á Hellu á Iaugardaginn þegar
þeir troða upp í Hellubíó kl. 22.00. Nú
og Hólmarar geta átt langa helgi því
kappinn verður á Knudsen í Stykkis-
hólmi á sunnudagskvöldið kl. 20.00.
Barokktónleikar
Kristín R. Sigurðardóttir sópran, Jó-
hann Stefánsson trompettleikari og
Brynhildur Asgeirsdóttir pfanólcikari
halda tónleika í Ylri-Njarðvfkurkirkju í
dag kl. 17.00, Stykkishólmskirkju
sunnudaginn 16. maí kl. 16.00 og í
Reykholtskirkju laugardaginn 22. maí
kl. 16.00. A efnisskrá eru barokkverk
fyrir sópran, trompett og píanó eftir
Ailessandro Scarlatti, Johann Sebasti-
an Bach, Georg Friedrich Handel,
Henry Purcell og fleiri.
Kórsöngur í Vinaminni
Laugardaginn 15. maí heimsækja tveir
kórar Akranes og halda söngskemmtun
f safnaðarheimilinu Vinaminni kl.
16.00. Þetta eru Ragnæingakórinn í
Reykjavík og Húnakórinn. Efnisval
kóranna er fjölbreytt og við allra hæfi.
SÝNINGAR
Listasafhið á Akureyri
Jesús Kristur - eftirlýstur. Sýningin
stendur til 5. júnf. Safnið er opið alla
daga frá kl. 14.00 til 18.00 nema
mánudaga.
Gallerí Svartfugl á Akureyri
Med danske ojne. Sýning á dönskum
íslandsmyndum, stendur til 16. maf. I
Svartfugli er opið frá kl. 14.00 til
18.00 alla daga nema mánudaga.
OG SVO HITT...
Uppskeruhátíð hjá KA
Uppskeruhátíð yngri flokka KA í hand-
knattleik verður haldin í dag klukkan
15.30. Utnefndir verða bestu leikmenn
allra flokka og þeir verðlaunaðir sem
mestar framfarir hafa sýnt. Farið verð-
ur í leiki og boðið upp á grillmat. For-
eldrar eru hvattir til að koma með
börnum sínum. Forntlegu vetrarstarfi
lýkur nú um mánaðamótin en boðið er
upp á áfranthaldandi æfingar hjá flest-
um flokkum fram til 15. júní. Fjórði,
þriðji og annar flokkur karla verða á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19-
20.30, sömu flokkar kvenna á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 18.30-
20.00, 5. og 6. flokkur karla og kvenna
á þriðjudögunt og fimmtudögum
klukkan 16.00-17.30. Æfingagjald er
1.500 krónur sem greiðist hjá þjálfur-
um í fyrstu viku tímabilsins. Þjálfarar
cru Jóhannes Bjarnason, Erlingur
Kristjánsson, Hlynur Jóhannsson og
Jónatan Magnússon.