Dagur - 13.05.1999, Page 7
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 199 9 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
Glæsilegur, voldugur og góður bíll. - myndir: ohr
BÍLAR
um Toyota Landcruiser
100 (yfirleitt kallaður
„stóri cruiserinn“)
með 4,7 lítra V8 bens-
ínvélinni, eftirað hafa
reynthann um tíma.
Landcruiserinn er Iaglegur bíll, þó framhallandi
hliðarsvipurinn sé örlítill ljóður á útlitinu. Hann
ber það með sér að á ferðinni er voldugur bíll,
glæsilegur með rennilegar línur. Enda er hann
stór og rúmgóður en þrátt fyrir stærðina virkar
hann tiltölulega nettur að sjá. Og krafturinn er
nánast ótrúlegur. V8 bensínvélin sem skilar 232
hestöflum og togar 434 Nm beinlínis þeytir þess-
um 2,4 tonna bíl áfram eins og um væri að ræða
lítinn fólksbíl.
Reynsluakstursbíllinn er búinn tölvustýrðum
fjöðrunarbúnaði sem er aukabúnaður og kostar
kr. 250 þúsund. Með honum er hægt að stilla
fjöðrun bílsins, þ.e. hversu harður eða öllu held-
ur mjúkur hann á að vera. Sömuleiðis er hægt að
hækka og lækka bílinn með einum hnappi. Það
er hægt að lækka hann til að auðveldara sé að
ganga um hann og hækka hann til að komast yfir
hindranir - nú, eða nota búnaðinn til að losa um
bílinn sé hann fastur í snjóskafli.
Stóri cruiserinn er ótrúlega þýður og lipur í
akstri og fer með mann nánast hvert sem mann
langar til. Þetta er sannarlega langbesti ferðabíll
sem ég hef kynnst. Bíllinn er langur, breiður og
mjög stöðugur. Hreyfingarnar eru því mjúkar og
tiltölulega íitlar, jafnvel á grófum og ósléttum
vegum. Sítengt aldrifið límir bílinn við veginn.
Vönduð ABS hemlalæsivörn og líknarbelgir
framan við bæði framsæti auka sfðan á öryggi
bílsins.
Það fer mjög vel um mann undir stýrinu á
stóra cruisernum. Plássið feykinóg, jafnvel fyrir
stóra og mikla menn. Milli framsætanna er rúm-
mikil geymslukista sem oft getur komið að góð-
um notum. Það fer líka vel um farþegana. I aft-
ursætinu er gott pláss fyrir þijá og það fer meira
að segja ágætlega um tvo fullorðna með barna-
bílstól á milli sín. Aukasæti fyrir tvo eru fáanleg
sem aukabúnaður aftur í bílinn fyrir kr. 110.000.
Þau eru traust og góð sæti fyrir unglinga og börn
í bílstólum, en þau sitja heldur lágt fyrir full-
orðna, eins og gengur og gerist um þessi auka-
sæti almennt í stórum jeppum. Fyrir aftan þau
er töluvert farangursrými, jafnvel þó sætin séu í
notkun. Þess vegna er rýmið aftan við aftursætin
gríðar mikið.
Á malbikinu er stóri cruiserinn eins og hugur
manns, léttur og ótrúlega lipur þrátt fyrir stærð-
ina og vinnslan gríðarlega góð. Þegar komið er út
á malarvegina nýtur hann sín enn betur. Holurn-
ar hverfa í fjaðrabúnaði og þyngd bílsins. I hvilft-
um og hvörfum tekur hann svolitlar dýfur. Hægt
er að læsa afturhásingu með hnappi í mælaborði
sem er sannarlega stór plús á jeppa.
I boði er ýmis aukabúnaður með stóra
cruisernum og auk þess hefur Toyota á Islandi
þróað breytingapakka fyrir stærri dekk.
Grunnverðið á stóra cruisernum með bensín-
vélinni er 5.680 þúsund krónur. Þar af er tæp-
lega helmingurinn opinber gjöld í formi inn-
flutningsgjalda og virðisaukaskatts.
Þetta er sannarlega frábær bíll og að mínu
áliti einn af þeim skemmtilegustu sem völ er á
við íslenskar aðstæður.
Sjálfskiptur með tölvustýrðri hæðar- og
fjöðrunarstillingu.
Glæsilegur
kostagripur
Þvílíkurbíll! Maður
getur vart sagt annað
Olgeir Helgí
Ragnarsson
skrifar
Rúmgóð hirsla milli framsætanna.
Þægilegir og stillanlegir stólar.
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: olgeirhelgi@islandia.is
Veðrið í dag...
Vestan- og suðvestan gola eða kaldi, en noróan gola eða
kaldi á Vestfjörðum og síðan einnig norðanlands. Súld eða
dálítil rigning vestantil og einnig á Norðausturlandi undir
kvöld, en annars skýjaö með köflum. Hiti 5 til 15 stig,
hlýjast á Austfjörðum og Suðausturlandi, en kólnandi
veður norðantil síðdegis.
Færð á vegum
Greiðfært er um afla þjóðvegi landsins. Öxulþungi hefur
víóa verið takmarkaður vegna aurbleytu.
SEXTÍU
OG
Sex
NORÐUR