Alþýðublaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 10
Leytid Framhald af 7. síðu. fullkominnar sjálfstjórnar. Alþingi ályktaði 17. maí að endurnýja ekki sambandssáttmálann við Dani. Þar með var mörkuð sú stefna, sem leiddi til stofnunar lýðveldisins, þrern árum síðar. Ekki fór það með öllu framhjá íslendingum, hvað var að gerast á bak við tjöldin í Lundúnurn á sérstak- lega Washington. Lausafregnir tóku að berast um áhuga Banda ríkjamanna ó íslandi og hugsanleg skipti milli þeirra oig Breta, en fengust að sjálfsögðu ekki staðfest ar. Roosevelt forseti átti að lialda áriega ræou sina yfir sendiherr um Mið- og buour-Ameríkuríkja 14. mai, en henni var frestað vegna „vanheiisu'.1 hans. Ymsar heimild ir benda til þess að forseti hafi ekki verið þungt haidinn, held ur hafi hann legið undir feldi til að hugsa næstu skref sín, en ekki viijað fiytja innhaldslitla ræðu, þegar ástandið var svo ískyggilegt Kooseveit virðist hafa ákveðið þessa daga að iáta til skarar skríða og bjóðast til að taka við vörnum íslands. Hann sendi Churchill orð sendingu um máiið og fékk svar frá Lundúnum 29. maí. Churchill kvaðst fagna því hjartaniega, að Bandaríkjamenn tækju við vörn um Islands eins fljótt og unnt væri. Roosevelt gat vitaskuld ekki skýrt frá þessum fyrirætlúnum í ræðu, enda ekki farið að semja við íslendinga. Hins vegar sagði hann, að Bandaríkin gætu ekki látið afskiptalaust hernám pazista á íslandi og Grænlandi, en þau lönd væru stökkpallar til Vestur álfu. Þetta var ein frægasta ræða Koosevelts „við arineidinn’‘ eins og hann kallaði þær, og var talið að 85 miljónir manna hefðu hlustað á hana í útvarpi. Þanniig tóku ráðamenn Breta og Bandaríkjamanna ákvörðun er átti eftir að valdla fímamótum í utanríkismálum Islendinga. Verð ur síðar komið að viðhorfum is lendinga sjálfra til málsins, en þessa atburði verður að skoða með sem víðustum sjóndeildarhring, eins og marka má af skeyti Chur chills til Rooseveis 14. júní, þar ér hann sagði meðal annars: „Mér er mikil hughreysting að því. , . að landgönguliðar yðar taki við þessu kalda landi og ég vona, að það verði rækilega tilkynnt, þeg ar fyrstu sveitirnar verða þang- að komnar. Það mun gefa okkur von í hinni löngu baráttu, sem framundan er. Það mun einnig hafa ágæt áhrif á Spán, Vichy- Frakkland og Tyrkland." Cordell Hull skýrði frá þessu skeyti í endurminningum sínum og bætti við: „Það var dálitið furðuleg tilhugsun, að gerðir okk ar á íslandi gætu haft þau áhrif . á hið f jarlæga Tyrkland, en mér vár fyllilega Ijóst, að þetta var rétt“. Þessi furðulega tilhugsun er ekki síður lærdómsrik fýrir íslendinga. Brotar vildu nú, að Baiidaríkja menn létu þess getið, er þeir géngju á lánd í Reykjavík, að þeir váer þangað komnir með samþykki stjórnarinnar í Lundúnum. En Hoosevelt haíði allt annað í huga. Hann krafðist þess að sendiherra Breta í Reykjavík tilkynnti ís- lenzku stjórninni, að þeir yrðu að kalla her sinn heim oig gætu því ekki haldið áfram vörnum landsins. Hins vegar mundu Banda ríkjamenn reiðubúnir. að taka við vörnum landsins, ef þeir væru um það beðnir. Vegna almennings'á lits í Bandaríkjunum, svo og í Mið og Suður Ameríku, yrði þetta svo að vera. Landgönguliðar bandaríska flot ans voru um þessar mundir að búa sig undir aðgerðir í hifabeltis loftslagi, enda var helzt búizt við að þeir yrðu sendir til Azoreyja. Hinn 15. júní skipaði Roosevelt svo fyrir, að sveitirnar yrðu bún •ar til íslandsferðar. Viku síðar, hinn 22. júní,- safnaðist floti her skipa og flutningaskipa saman í Argentía á Nýfundnalandi. Þair [biíið fldtinn i'diðubúinn meðán samið var í Reykjavík. Brezki sendiherrann á íslandi C. Howard Smith, igekk á fund Hermanns Jónassonar forsætisráð herra 24. júní. Skýrði hann svo frá, að aðstæður í styrjöldinni hefðu gerbreytzt þá síðustu daga og berzku hersveitanna á íslandi væri þörf annars staðar, Þær yrðu fiuttar burt að meira eða minna ieyti alveg á næstunni. Lágðfi sendiherrann jafnframt áherzlu á að ísland væri svo mikilvægt í styrjöldinni, að það mætti með engu móti vera óvarið. Hann vakti athygli á þeirri yfirlýsingu forseta Bandaríkjanna, að hann yrði að gera allar nauðsynlegar ráðstafan ir til að tryggja öryggi Vestur heims, þar á meðal aðstoða við hervernd íslands, meðan á styrj öldinni stæði. Forsetinn væri fús að senda hingað hersveitir frá Bandaríkjunum til að taka við vernd landsins, en teldi sér það ekki fært, nema tilmæli kæmu frá ríkisstjórn íslands. Howard Smith flutti þau eindregnu tilmæli brezku stjórnarinnar, að íslending ar bæru fram siíka ósk við for seta Bandaríkjanna. .Sendiherrann krafðist þess að málið yrði leitt til skjótra lykta og því haldið vandlega leyndu af hernaðarlegum ástæðum. Sá ríkis stjórnin sér ekki fært að kalla sam an Alþingi, áður en málið yrði af greitt. Eftir vandlega íhugun á- kvað ríkisstjórnin að senda for- seta Bandaríkjanna orðsendingu, þar sem hún féllst á, að „þessi ráðstöfun sé í samræmi við hags muni íslands og er þess vegna reiðubúin að fela Bandaríkja- stjórn vernd íslands“ — með nokkrum skilyrðum. Voru þau þess efnis að Bandaríkin skuldbindu siig til að hverfa á brott af íslandi með allan herafla sinn þegar er ófriðnum væri lokið, að Banda ríkin viðurkenndu frelsi og full i veldi íslands, svo og að þau beittu | áhrifum síúum í þá átt, að full veldið yrði viðurkennt við friðar samninga í ófriðarlok. Ennfremur skuldbindu Bandaríkin sig til að hlutast ekki til um stjórn landsins og styðja hagsmuni Íslands í öflun nauðsynja, siglingum og fleira. í svari sínu við orðsendingunni staðfesti Bandáríkjaforseti skilyrð in. Barst það svar 1. júlí, og sam dægurs lágði flotadeildin úr höfn í Argentíu oig kom til Reykjavíkur 7. júlí. Jafnframt skiptúsí stjörn ir íslands og Bretlands á orðsend ingum um mál þessi, þar sem Bret ar lofuðu einnig að viðurkenna frelsi og fullveldi íslands, halda viðskiptasamningum áfram, láta lausa íslenzka fanga og fleira. S. H. Framhald af 6. síðu. á fund ríkisstjórnar og Alþingis af hálfu S.H. og SÍS og geri þeim fulla grein fyrir, hvernig komið er málum frystiiðnaðarins og leiti eftir að fá þá aðstoð, sem tryggja megi reksturinn á árinu. Fáist ekki viðunandi lausn á vandamálum frystihúsanna, telúr fundurinn að óhjákvæmilega hljóti að koma til stöðvunar hús- anna. Fundurinn frestar störfum sín- um, þar til nefndin hefur skilað áliti sínu. Almennur aukafundur frysti- húsaeigenda, haldinn 7. febrúar 1967, vill vegna tillagna, sem kom- ið hafa fram um endurskipulagn- ingu á uppbyggingu og rekstri hraðfrystiiðnaðarins, taka fram eftirfarandi: Fundurinn er samþykkur því, að málefni frystiiðnaðarins verði tekin til ýtarlegrar athugunar með það fyrir augum að leitað verði leiða til a® auka, enn frekar en orðið er, framleiðni og bæta skipulag, bæði tæknilega og rekstrarlega, í frystiiðnaði lands- ins. Við slíka athugun telur fund- urinn að leggja beri sérstaka á- herzlu á, að frystiiðnaðinum verði tryggð nægjanleg og hagkvæm stofnlán til eðlilegrar uppbygg- ingar og breytinga, sem unnið sé að í fullu samræmi við þarfir hans. Þó að fundurinn sé meðmælt- ur almennri athugun á málefnum frystiiðnaðarins, ítrekar hann fyrri skoðanir frystihúsaeigenda um að rekja megi aðsteðjandi erfiðleika frystihúsanna til enn veigameiri ástæðna, en hugsan- legs skipulagsleysis þessa at- vinnuvegar, eða að draga þurfi úr framleiðslugetu þeirra, jafnvel með því að leggja mörg þeirra niður. Reynslan hefur sýnt, að svo að segja um allt land anna frysti- húsin ekki því aflamagni, sem að berst á þeim 2—3 mánuðum, sem aðalaflamagnið kemur á land, þ. e. á vetrarvertíðinni. Stórfellt vandamál margra frystihúsa er það, hve starfstími þeirra er stuttur og óreglulegur. Á síðustu árum hefur þetta vandamál auk- izt, þar sem dregið hefur stór- lega úr afla togaranna með fækk- un skipanna og auknum siglingum og jafnframt hefur útgerð smærri báta orðið veikari vegna fjárhags örðugleika þeirra og fólkseklu. Við þetta hefur svo bætzt, að stór- lega hefur dregið úr síldárfryst- ingu, einkum vegna minni síld- veiða Suð-Vesturlands, en einnig á þessu ári vegna minnkandi markaða erlendis, sem m. a. staf- ar af breyttri viðskiptastefnu. FUndurinn varar því við þeim hugsunarhætti að haldá að vanda- mál frystiiðnáðafins nú verði leyst með eihfaldri skipulágsbreyt ingu, og telur enda, að víðást hvar annars staðar í þjóðarbúskapnum sé meiri þörf á hagræðingu í rekstri, en í hraðfrystiiðnaðinum, sem sannað hefur það á erlendum mörkuðum, að hann er fyllilega samkeppnisfær við hliðstæðan iðnað annarra þjóða, sé um sam- bærilegar rekstraraðstæður að að ræða á sviði fjármála og fram- leiðslukostnaðar. Á almennum aukafundi Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem haldinn var 7. febrúar 1967, var rædd framkomin tillaga frá fulltrúum ríkisstjórnarinnar um stofnun verðjöfnunarsjóðs. Sjóð- urinn hafi það hlutverk að jafna á milli ára verulegum hluta þeirra verðbrevtinea á fískafurð- t um. sem otaa cór stað á erlend- um mÖrVir^iTir, Fundurinn getur ekki tekið endanlegá afstöðu til myndunar slíks verðjöfnunarsjóðs fýrr en nánar liggja fyrir tillögur um upp- byggingu lians, fjáröflun og starf- semi. Fundurinn getur þó fallizt á, að samtök frystihúsanna tilnefni fuiltrúa í nefnd til athugunar á þessu máli. TOYOTA CROWN TRYGGSÐ YÐUR TOYÖTA Japanska bifreiðasalan h.f. Ármúla 7. — Sími 34470. Lögtak Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík. og að undangengnum úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrir- vara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dög um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftir_ töldum gjöldum: Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöldum af innlendum tollvörutegundum, matvælaeftir- litsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, lesta, vita- og skoðunar-gjaldi af skipum fyrir árið 1967, almennum og sérstökum útflutningsgjöldum aflatryggingasjóðsgjöld- um, tryggingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt skráningar gjöldum, svo og söluskatti 4. ársfjórðungs 1966 og liækk- unum vegna vanframtalins söluskatts eldri tímabila. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 9. febr. 1967. Kr. Kristjánsson. Tilkynning um breytt símanúmer Eftirleiðis werða símanúmer í veitingasal og eldhúsi 19-4-80. Skrifstofa 19-5-21. SÆLA-CAFÉ Brautarholtf 22. 10 10- febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.