Alþýðublaðið - 10.02.1967, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 10.02.1967, Qupperneq 13
Ást um vsSa veröld ítölsk stórmynd í litum og cine- mas.eope. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum. Framhaldssaga eftir Molly Lillis: GILDRAN ÓSÝNILFGA Leðurbiakan Blaðaummæli: Leðurblakan í Bæjarbíó er kvik- mynd sem óhætt er að mæla með. Mbl. Ó. Sigurðsson. Sýnd kl. 7. Mynd fyrir alla fjölskylduna. Balletkvikmyndin — RÓMEO og JÚLÍA — Konunglegi brezki balletinn dans ar í. aðalhlutverkunum. Sýnd kl. 9 t—- HJÁLP — með Bítlunum. Sýnd ki. 7. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐSTOFAN Vesturgötu 25. Sími 16012. Opið frá kl. 9—23.30. Jón Finnsson hrl. Lögfræðiskrifstofa Sölvhólsgötu 4 (Sambandshúsið) Símar: 23338 og 12343. FYRSTI KAFLI. VEIZLUR Laurie Kave voru alitaf háværar. Hlátur blandað- ist plötuspili og samtölin heyrð- ust yfir glasaglamrið. En mágkona Laurie, Sara Newman, hafði einstaka hæfi- leika til að einangra sig. Hún gat staðið í miðju herbergi og lokað eyrunum fyrir hávaðanum umhverfis. Hún dreypti á inni- haldi glassins sem bróðir henn- ar hafði sett í hönd hennar, — þegar hún kom í boðið og um leið og hún leit upp, sá hún einkaritara bróður síns Poppy Watson. — Ertu ein, Sara? spurði Poppy. — Já, þangað til Alan kemur að sækja mig. Sara hristi höf- uðið, þegar Poppy bauð henni sígarettu. — Ég er fegin að þú ert ein, sagði Poppy um leið og hún hristi langt, ljóst hárið. — Mig langar til að tala við þig um bróður þinn. — Um hann Bill? Hvað hefur hann gert? — Ekkert, en það hefur Lau- rie. Poppy dustaði ösku af rauð- um kjólnum. — Mér fannst að þú ættir að vara hana við að tala of lengi við manninn, sem hjá henni stendur. Sara leit á mágkonu sína. — Vitleysa! sagði hún hvasst. Þú veizt að Laurie er fullkom- in húsmóðir og reynir að sjá svo um að allir gestirnir kunni vel við sig. — Hún virðist ekki hafa á- huga fyrir neinum öðrum í kvöld. Hún hefur talað við Keith Lavalle síðan hann kom og það er orðið áberandi. — Það kemur okkur ekki við, sagði Sara. — Hann er kann ske einn af viðskiptavinum hans. — Já, það er hann. Þannig hitti Laurie hann fyrst, sagði Poppy. — Laurie kom inn á skrif- stofuna til að biðja Bill að koma með sér í te. Hún gekk fram hjá mér orðalaust og inn til Bills. Nokkrum mínútum síðar kom hún út ásamt Bill og þessum La- valle. En hr. Lavalle bauð henni í te. Sara andvarpaði. — Laurie er svo aðlaðandi að Bill hlýtur að vera vanur því að karlmenn hópist um hana. — Þú ert næstum jafn hrif- inn af henni og allir hinir. Ég hef verið einkaritari bróður þíns í þrjú ár og mig langar ekkert til að hjónaband hans fari út um þúfur. Ilann yrði mjög óham- ingjusamur. Áður en Sara hafði jafnað sig yfir þessu fór Poppy yfir að barnum. Sara leit á bróður sinn og hana sárkenndi til, þegar hún sá hve leiður hann var. Þetta er sjálfsagt af því að hann vinnur of mikið, sagði hún við sjálfa sig og reyndi að sann- færa sig um að ótti Poppy væri ástæðulaus. En mágkona hennar hélt áfram að tala við hinn há- vaxna herðabreiöa Kéith Ha- valle. Laurie virtist skemmta sér vel yfir því, sem hann sagði henni, því hún liló hátt. Laurie leit við og sá að Sara var að horfa á hana og var ein og hún tók um hönd mannsins og gekk með hann til hennar. — Sæl, Sara, heilsaði Laurie. 1 Tókst þér ekki að fá Allan til að koma, — Hann þurfti að hitta mann en hann kemur og sækir mig. — Gott! Laurie leit við og brosti til mannsins. — Má ég ekki kynna þig fyrir Keith La- vanne? Keith, þetta er frú Sara Newman, systir Bills. Sara tók lauslega í hönd mannsins og þrátt fyrir brosið fann Keith Lavalla að lítil hlýja var í kveðju hennar. — Þú 'ættir að fá Söru til að búa húsið húsgögnum, sagði Laurie. — Nú? Hann leit spyrjandi á þær. — Þó hún líkist balletdans- mey verzlar hún með fornmuni. Sara Newman í Newman forn- munaverzlunimii. Svo sagði hún við Sölu: — Keith er búinn að kaupa The Grange. Sara vissi, að The Grange var býli í útjaðri þorpsins. Henni fannst maðurinn harla 'lítt lík- legur til að verða bóndi. — Ég væri feginn að fá góð ráð. Mig vantar enn húsgögn í nokkur herbergi, sagði hann um leið og hann brosti til grann vöxnu, dökkhærðu stúlkunnar. — Ég skal hjálpa þér að velja, sagði Laurie. — Heldurðu ekki að hr. La- valle vilji fremm’ sjá einn um valið? spurði Sara, sem gat ekki þolað hvernig Laurie hékk í honum. — Ja, eða konan hans, bætti hún svo við. — Ég er ekki kvæntur, sagði hann. — Móðir mín býr hjá mér. Hún er listakona og málar alla daga. Svo sagði hann við Bill, sem kom rétt í þessu: — Konan þín yndislega er að reyna að selja mér húsgögn frá systur þinni. — Ég hef alltaf vitað, að hún yrði ómótstæðilegur sölumaður, sagði Bill og tók utan um grannt mitti hennar. — Finnst þér ekki að þú ættir að dansa við mann- inn þinn? Vingjarnleg, brún augu hans voru biðjandi að baki hornspangagleraugnanna. Laur- ie sleit sig lausa. — Það er allt of heitt til að dansa, Bill. Hann roðnaði. — Eins og þú vilt, sagði hann stíft. Hann stóð augnablik þegjandi og snérist svo á hæl og fór yfir að barnum. Sara fann til reiði- og fór að óttast að eitthvað kynni að vera satt í því, sem Poppy hafði sagt. Ef Keith hafði tekið eftir kæruleysi Laurie við mann sinn leyndi hann því vel. Hann brosti vingjarnlega og tók um hönd Laurie. — Farðu nú og segðu Bill að þú hafir skipt um skoðun, sagði hann. — Þetta er þín veizla. Laurie hélt um hönd hans og sýndi augnahárin, löng og þétt. — Ég verð víst að gera það svo þú haldir ekki að ég sé ó- kurteis. Hún brosti töfrandi, en skömmu síðar meðan hún dans- aði við mann sinn, sá Sara, að Laurie brosti til Keith. Átti hún að láta sem í ekkert hefði skorizt eða átti hún að tala fáein orð við mágkonu sína í þeirri von, að kæfa þetta í fæð- ingu? Það gæti orðið hættulegt. — Laurie gæti tekið upp á því að láta enn meira með Keith af bláberri þrjózku. En hún gat ekki liugsað sér, að hjónabandið færi í hundana frekar en Pop- py. Skyndilega kom henni dálít- ið til hugar, svo brjálæðislegt að við lá að hún hætti að hugsa um það, en eftir að hún hafði litið aftur á bróður sinn, tók hún ákvörðun. Hún vissi að mönnum þótti hún aðlaðandi og þvi skyldi hr. Lavalle ekki þykja það líka? Til að byrja með ætl- aði hún að fá hann til að fara áður en Bill og Laurie hættu að dansa. — Finnst vður ekki heitt hérna inni, hr. Lavalle? spurði hún. Mig langar út að ganga. Keith vai’. óviðbúinn hlýjunni í rödd hennar og hann svaraði hiklaust: — Það lízt mér mjög vel á! Hún gekk með honum út í garðinn. Það marraði í hliðinu og svartur köttur læddist með- fram múrveggnum. — Það kemur bráðum frost, sagði Keith og leit upp til tungls- ins. Hann lagði ullarsjal um axl- ir hennar og þau gengu meðfram trjánum. — Ég tók mér það bessaleyfi að taka þetta sjal með, útskýrði hann. — Ég held að Laurie eigi það, Sara brosti. Létt þoka liðaðist milli trjánna og loftið var þrungið ilmi ha.ustblómanna. — Haustið er dásamlegt, sagði hún — og tyllti sér niður á livítan bekk. — Hér er áreiðanlega fallegt á vorin, sagði Keith. — En við hverju var annars að búast af bróður yðar en að hann reisti sér fagurt hús? Mér fannst samt húsið, sem hann bjó í áður vera skemmtilegt. Hann sýndi mér það í síðustu viku. Keith teygði úr löngum leggjunum. — Ég fæddist þar, sagði Sara. Foreldrar mínir áttu það. Þegar ég giftist flutti ég inn í íbúð fyrir ofan búðina. Bill kvæntist skömmu síðar, en Laurie leidd- ist gamla húsið. Hún andvarpaði. Og þá keypti.liann lóð hérna og byggði handa henni nýtt hús. ICeith sagði henni frá heimili sínu, frá bróður sínum og býl- inu, sem þeir höfðu átt saman og frá því, að bróðir lians væri nýkvæntur. — Þér ættuð að koma og heimsækja okkur. Ég er viss um að yður lízt vel á mömmu. Hún er að mála mig með fálka á úlnliðnum sem stendur. — Ég vil það gjarnan, sagði Sara og fann hve auðvelt var að tala við þennan mann. Svo heyrðu þau bílhurð skellt og Sara spratt á fætur. — Guð minn góður, sagði hún. — Ég vissi ekki að það væri orðið svona fram orðið. Hann tók undir hönd hennar og orðalaust gengu þau að hlið- inu. Svöl golan hafði sett roða í kinnar Söru og ýft silkimjúkt, svart hár hennar. Keith virti hana fyrir sér með vaxandi á- huga. Þessi kona, sem hafði heilsað honum svo kuldalega IVðassey Ferguson DRÁTTARVÉLA og GRÖFUEIGENDUR Nú er rétti tíminn til að láta yfirfara og gera við vélamar fyrir vorið. Massey Ferguson-við- gerðaþjónustu annast Vélsmiðja Eysteins Leifssonar hf. Síðumúla 17. sími 30662. 10. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ||3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.