Dagur - 03.06.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 03.06.1999, Blaðsíða 1
S t ö ömjleikaimjti er efld ógnað Utanríkisráðherra kveðst ekki einn af þeim sem alltaf sé til- búinn að segja að allt sá að fara fjandans til. Hann telur ástæðu til varkámi en stöð- ugleika sé ekki ógnað. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, vísar því á bug að stöðugleikanum sé ógnað. I harðorðri ályktun ASI eru stjórn- völd dregin til ábyrgðar og gagn- rýnt að aðgerðir þeirra nú séu verðbólguhvetjandi og óásættan- legar fyrir almenning. Sérstaklega hvað hækkun vegagjaldsins varðar segir Hall- dór: „Það hefur Iegið fyrir í marga mánuði að bensíngjald myndi hækka um þessi mánaða- mót. Forsendur fjárlaga voru með þeim hætti, enda mikil áhersla lögð á að bæta vegi í Iand- inu. Þar er ekki bara um aukin út- gjöld að ræða held- ur líka ávinning fyrir suma hópa landsins. Halldór telur að bensínhækkunin ein og sér ógni ekki stöðugleikanum en segir tryggingaiðgjaldahækkun- ina koma á óvart: „Þegar við spurðumst fyrir um hvort þessar upplýsingar hafi komið fram þegar Alþingi stóð að lagabreyt- ingunum á síðasta vetri, var svar- að að tryggingafélögin hefðu ekki treyst sér til að leggja fram neinar upplýsingar um það.“ Halldór segist aldrei hafa verið sérstaldega svartsýnn þótt ein- hveijir séu alltaf tilbúnir að spá því að allt sé að fara fjandans til. „En það er alltaf ástæða til að fara varlega og ríkis- stjórnin ætlar sér það við gerð næstu fjárlaga. Vonandi er það svo að þeir sem hvetja okkur nú til varkárni, séu sjálfir tilbúnir til að standa frammi fyrir mikilli var- kárni í aukningu útgjalda," segir Halldór. Ályktim ASÍ Miðstjórn ASI segir verðlags- hækkanir draga mjög úr kaup- mætti launafólks og ógna stöð- ugleikanum. Sem kunnugt er hefur bensínverð hækkað, ið- gjöld tryggingafélaganna, verð á áfengi og síðast í gær var tilkynnt um hækkað raforkuverð. ASI bendir á að þessar hækk- anir eigi flestar rætur að rekja til ákvarðana Alþingis og að fram- kvæmd þeirra sé á ábyrgð ríkis- stjórnarinnar. Miðstjórnin telur að hið opinbera verði að sýna vilja í verki til að tryggja áfram- haldandi stöðugleika í efnahags- lífinu. Það sé ekki góð hagstjórn að kynda undir verðbólgu með t.d. sköttum á bensínverði. Þá krefst ASI þess að bótasjóðir tryggingafélaganna verði notaðir til að lækka iðgjöld. í ályktuninni segir enn fremur: ,Að gefnu tilefni vill miðstjórn ASI árétta að stöðugleiki í efna- hagsmálum verður ekki til af sjálfu sér - honum var komið á með fórnum launafólks í upphafi þessa áratugar og honum þarf að viðhalda með ákveðni og ábyrgri hagstjórn. Þær hækkanir sem nú hafa orðið voru flestar fyrirsjáan- legar og því er eðlilegt að kreljast þess að stjórnvöld axli ábyrgð og grípi til viðnámsaðgerða." -Bþ/bjb Halldór Ásgrímsson: Ástæöa til að fara varlega. Kristinn H. Gunnarsson segir það ekki hafa „skaðað land og þjóð “ hefði hann verið áfram formaður sjávarútvegsnefndar. a nefnd- arskipan Samkvæmt heimildum Dags flyst formennska í sjávarútvegsnefnd Alþingis frá Framsóknarflokknum yfir í Sjálfstæðisflokk. I staðinn fá framsóknarmenn formennsku í heilbrigðis- og tryggingarnefnd og hafa áfram formennsku í um- hverfis-, fjárlaga- og iðnaðar- nefnd. Samkvæmt því verður Sjálfstæðisflokkurinn með for- mennsku í utanríkis-, félagsmála-, allsheijar-, samgöngu-, mennta- mála-, landbúnaðar-, efnahags- og viðskiptanefnd, auk sjávarút- vegsnefndar, eins og áður sagði. Sterkur fyrirvari Dagur hefur kauptilboð Kaup- þings í Mjólkursamlag KÞ undir höndum og vekur athygli hve efn- isrýrt tilboðið er og að það er ekki sett á bréfsefni Kaupþings. Aðeins segir: „Kaupþing hf. f.h. viðskipta- vinar gerir hér með svohljóðandi kauptilboð í Mjólkursamlag Kaup- félags Þingeyinga, þ.m.t. fasteignir félagsins, vél- ar og tæki, lausaljár- muni, birgðir, eignarhluti í öðrum félög- um og hvers Kauptilboð Kaup- konar aðrar Þlngs- eignir hverju nafni sem nefnast. Kaupverð er kr. 350 milljónir." Að auki kemur fram að Kaup- þing setji þann fyrirvara að fyrir- tækið geti gert ítarlega skoðun á stöðu félagsins. Ekki hefur fengist uppgefið hver stendur að baki til- boðinu, og ekki heldur hver stend- ur að baki fyrirspurnum sem komu um hugsanleg kaup á Mjólkur- samlaginu í gegnum Islandsbanka í gær. -BÞ Kristinn víkur Kristinn H. Gunnarsson gegndi formennsku í sjávarútvegsnefnd fyrir kosningar. Samkvæmt heim- ildum Dags tók hann þeim tiðind- um illa að Sjálfstæðisflokkurinn fengi þann stól. í samtali við Dag vildi hann lítið gera úr málinu. Sagði þó að helst hefði hann viljað halda þessari formennsku áfram. „Það hefði sennilega ekki skaðað land og þjóð. En eins og gengur vilja margir koma að þessum mála- flokki. Annars eru þetta hlutir sem ræddir verða nánar í þingflokknum eftir helgi,“ sagði Kristinn. Ekki er það sjálfgefið að nefnd- arformenn úr stjórnarflokkunum frá síðasta þingi haldi stólum sín- um. Líklegt er þó talið að Olafur Orn Haraldsson verði áfram for- maður umhverfisnefndar og Vil- hjálmur Egilsson með efnahags- og viðskiptanefnd. Þetta skýrist þó nánar á næstu dögum. Eitt er ljóst að nýir menn setjast í for- mannsstóla í allsherjar-, iðnaðar- og landbúnaðarnefndum þar sem Sólveig Pétursdóttir og Guðni Ágústsson eru orðnir ráðherrar og Stefán Guðmundsson, sem fór fyrir iðnaðarnefnd, er hættur á þingi. -BJB Nokkuð harður árekstur varð milli tveggja bíla á gatnamótum Byggðavegar og Hamarstígs á Akureyri um hádeg- isbil í gær. Ökumenn voru fluttir á slysadeild en meiðsl voru talin minniháttar. Biðskylda er á Byggðaveginum og virti ökumaöur hana ekki. Annar bíllinn hentist inn í garðshorn íbúðarhúss sem stendur gegnt verslun hinum megin götunnar, sem heitir einmitt Garðshorn. -mynd: brink 14 ki. jHfl - !«. 4,4 nn GULLSMIDiR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI • SÍMI 462 3524 .lPijfH. wonwwm expnm EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.