Dagur - 03.06.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 03.06.1999, Blaðsíða 8
8- FIMMTUDAGVR 3. JÚNÍ 1999 FRÉTTASKÝRING Brémtarum I 'RIK ÞÖR GUÐMUNDS- SON SKRIFAR Bréfið sem Davíð Oddsson skrifaði bisk- upi íslands vegna smá- sögu Arnar Bárðar Jónssonar, fræðslu- stjóra Þjóðkirkjunnar, vakti mikla athygli og umræðu um stjómun- arstíl forsætisráð- herra. Nú hefur Erni Bárði verið gert að stíga upp úr sæti sínu sem ritari Kristnihá- tíðamefndar, en þar á forsætisráðherra sæti. Harka í framgöngu við þá sem Davíð Oddssyni mislíkar við af einhverjum ástæðum þykir hafa einkennt stjórnunarstíl hans allt frá þvf hann tók við borginni í upphafi níunda áratugarins. Má ef til vill segja að fyrsta opinbera vísbendingin hafi komið árið 1982 þegar Davíð sagði upp ræst- ingakonu úr starfi fyrir að hafa hringt til útlanda úr einkasíma á skrifstofu borgarstjórans. Á borg- arstjóraárunum hvessti líka milli hans og Guðrúnar Pétursdóttur og fleiri andstæðinga ráðhús- byggingarinnar. Frá þessum árum má einnig nefna þau viðbrögð borgarstjórans að taka heitt og kalt vatn, rafmagn, slökkvilið og sorphirðu af Kópavogskaupstað, þegar vinstri meirihlutinn þar ákvað árið 1989 að segja upp samningi um Fossvogsbrautina. Þetta kallaði Jónas Kristjánsson ritstjóri „ofbeldishneigðan" stjórnunarstíl. Smásagan dýra Nýjasta tilefni umræðna um stjórnunarstíl Davíðs er bréfið sem hann skrifaði biskupi Islands vegna smásögu Arnar Bárðar Jónssonar, fræðslustjóra Þjóð- kirkjunnar, en hún var birt í Les- bók Morgunblaðsins. Erni Bárði hefur verið gert að stíga upp úr sæti sínu sem ritari Kristnihátíð- arnefndar, en í nefndinni á sæti forsætisráðherra. Sú skýring hef- ur verið gefin af Karli Sigur- björnssyni biskupi að ástæða þessarar mannaskiptingar sé sú að Hííkúþsslöfu ér’"“kominn' maður til starfa sem hefur um- sjón með öllu sem viðkemur kristnihátíðinni,“ en þar á biskup við séra Bernharð Guðmundsson. Flestir viðmælenda blaðsins draga í efa að þetta sé ailur sann- leikur málsins og vísa til bréfsins sem Davíð sendi biskupi vegna fyrrnefndrar smásögu. Davíð fannst að sér vegið með sögunni og myndskreytingu hennar (sag- an var Iítt dulbúin gagnrýni á auðlindasölu og/eða á gagna- grunnsmál Islenskrar erfðagrein- ingar) og skrifaði biskupi Islands svohljóðandi bréf, undir bréfs- haus forsætisráðuneytisins: „Það er athyglisvert að í kynn- ingu á „smásögu" þar sem forsæt- isráðherranum er lýst sem land- ráðamanni (manni sem selur Ijallkonuna) og landsölumanni er gefið til kynna að sendingin sé á vegum fræðslustarfs kirkjunnar. Davíð Oddsson.“ Biskup Iýsti vanþóknun sinni á myndskreytingunni með smásögu Arnar Bárðar, en sagði söguna skondna og að hann gæti ekki borið ábyrgð á tómstundagamni samstarfsmanns síns. I viðtali við fjölmiðla hefur biskup ekki viljað segja nánar frá samtölum sínum við forsætisráðherra um þetta mál. Óvænt og á óvart Orn Bárður Jónsson gaf ekki færi á sér við smíði þessarar greinar, en orðalagið sem haft er eftir honum í DV bendir til að brott- hvarf hans sem ritari Kristnihá- tíðarnefndar hafi komið honum mjög á óvart. Hann segir: „Ég get staðfest að biskupinn tilkynnti mér á fimmtudaginn að ég væri ekki lengur ritari Kristnihátíðar- nefndar en því starfi hef ég gegnt undanfarin ár.“ Orðalagið bendir til þess að til- kynning biskups hafi verið án fyr- irvara og því komið Emi Bárði á óvart. Um leið liggur fyrir að Bernharður er ekki nýr í þeim verkefnum sem hann nú sinnir og þvi rökréttara að þessi breyting hefði komið löngu lyrr en nú, ef hún stóð til á annað borð. Karl biskup lýsir því yfir í DV að Erni hafi ekki verið vikið úr þessu starfi, heldur hafi hann vik- ið fyrir Bernharði á eðlilegan hátt. Séra Geir Waage er á sama máli. „Eg tek fullt mark á þeim orðum biskups að með þessu hafi hann verið að skapa séra Bern- harði verkefni. Þetta er augljóst og ég sé engin tengsli milli þess- arar breytingar og þessa smá- sögumáls," segir séra Geir. Örn Bárður hefur sjálfur ekki viljað tjá sig um mál þetta. Bréfid til Sverris Davíð hefur áður stundað gagn- rýnar bréfaskriftir með góðum ár- angri. Á síðasta ári var gert opin- bert bréf sem hann ritaði Sverri Hermannssyni þáverandi Lands- bankastjóra í febrúar 1996, eftir að Sverrir hafði hafnað vaxta- lækkunarboðskap ríkisstjórnar- innar, Seðlabankans og Þjóðhags- stofnunar og sagt að það væri eins og að „éta óðs manns skít“ að fylgja fordæmi íslandsbanka í þeim efnum. Þá skrifaði forsætisráðherra Sverri Hermannssyni bréf, sem hljóðar svo:. „Sverrir. Mér finnst þú fára offari. Eg gæti belgt mig út og ságt að þessir snillingar í Landsbankanum hafi tapað 11 þúsund milljónum á síðustu árum og þyrftu því að vaxtapína landið. Þeir tækju ekki eftir því þegar strákur á þeirra snærum týndi fyrir þeim 900 milljónum!! — og viðskiptavinum væri vafn- ingalaust sendur reikningur. Þetta mun ég ekki segja, en ef þið lagið ekki þvæluna, sem þið gerð- uð í síðasta vaxtaóðagoti, er það endanlegt dæmi þess að þið vitið ekki hvað þið eruð að gera og þá mun ég sjá til þess fyrr en nokkurn grunar að menn komi að bankanum sem viti hvað þeir eru að gera. Eg vil fá svar frá þér — annað en skæting í fjölmiðlum — strax — því ég mun ekki sitja leng- ur kyrr.“ .. ........ Strax daginn'éftir að þetta bréf var sent lækkaði Landsbanki Is- lands vexti sína. Aðspurður um þetta bréf segir Sverrir Her- mannsson nú að hamf hafi satt að segja orðið hissa þegar hann fékk bréfið. „En ég er hættur að vera hissa fyrir nokkru. Þetta bréf mun hafa verið skrifað í fljótræði og i bræðiskasti, en annars hef ég ekki leitað eftir skýringu," segir Sverrir. Aðspurður hvort Davfð hafi ekki orðið ofan á í málinu viðurkennir Sverrir að svo hafi verið. „Það var hart tekist á um vaxtamál og félagar mínir beygðu,“ segir Sverrir. „ Ansi tippilsinna“ En hvað sýnist Sverri þá um bréf- ið til biskups og brotthvarf Arnar Bárðar frá Kristnihátíðarnefnd? „Ef þetta er vegna skrifa hans í grínstíl í Lesbók Morgunblaðsins eru menn orðnir ansi tippilsinna og orðið nokkuð vandlifað í henni veröldinni," segir Sverrir, sem um leið upplýsir blaðamanninn að tippilsinna þýði ofurviðkvæmur. Fræg er bréfasending Davíðs til Heimis Steinssonar þáverandi út- varpsstjóra, en Davíð sendi út- varpsstjóra hvasst bréf í apríl 1993 þegar Heimir hafði framið þann verknað að reka Hrafn sem dágskrárstjóra frá RÚV. Sjálf- stæðismenn brugðust hart við og voru ekki lengi að láta Ólaf G. Einarsson, þáverandi mennta- málaráðherra, ganga í að ráða Hrafn sem framkvæmdastjóra RÚV. Heimir sagðist hafa metið „þetta bréf mikils“ og þótt „vænt um áð Davíð öddsson skyldi segja mér hvað honum lá á hjarta vegna þessa máls. Bréfið, sem var skrifað eftir að umrætt mál var um garð gengið, var hins vegar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.