Dagur - 03.06.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 03.06.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 - 11 VMptr ERLENDAR FRÉTTIR PKK tekur undir yfirlýsmgar Öcalans Lögmenn Öcalans. Sá sem stendur er Hasip Kaplan, sá hinn sami og fór með mál Sophiu Hansen i Tyrkiandi. Liðsmenn Öcalans vilja þó ekki leggja niöiir vopn strax, heldur híða eftir við- hrögðum Tyrklands. Forustusveit Verkamannaflokks Kúrdistans (PKK) hefur lýst yfir stuðningi við friðartilboð Abdullahs Öcalans, leiðtoga flokksins sem nú situr í fangelsi á eyjunni Imrali í Marmarahaf- inu. „Flokkurinn allur styður full- komlega sögulega viðleitni leið- toga okkar af öllum kröftum," sagði í yfirlýsingu frá fram- kvæmdaráði PKK. Hins vegar féllst forusta flokksins ekki á áeggjan Öcalans um að Ieggja niður vopn, heldur lítur hún svo á að friður sé algerlega undir stjórnvöldum í Tyrklandi kom- inn. „Ef Tyrkland bregst við með jákvæðum hætti, þá getur Kúrda- vandamálið komist á þá braut að lýðræðisleg lausn finnist.“ Yfirlýsingar Öcalans í upphafi réttarbaldanna, sem hófust á mánudag, hafa vakið undrun margra en Kúrdar segja þetta rökrétt framhald af þeirri stefnu sem Öcalan hefur fylgt um all- langt skeið. Fyrst eftir yfirlýsingar Öcalans rikti óvissa um það hvort PKK, sem í 15 ár hefur barist vopnaðri baráttu fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda undir forystu hans, myndi taka undir yfirlýsingarnar eða lýsa því yfir að þær væru marklausar og Öcalan væri svik- ari við málstað Kúrda. A mánudag bauð Öcalan stjórnvöldum í Tyrklandi sam- vinnu sína við að vinna að friði og fá PKK til þess að leggja nið- ur vopn. Hins vegar gerir hann þær kröfur að tyrknesk stjórn- völd geri um leið stefnubreyt- ingu í málefnum Kúrda og veiti þeim heimild til að nota tungu- mál sitt og efla menningu sína, sem hingað til hefur verið bann- að í Tyrklandi. Jafnframt varaði Öcalan við þvf á þriðjudag, að ef hann verði tekinn af lífi þá muni PKK herða baráttu sína gegn Tyrklandi. Með því að taka undir yfirlýsing- ar Öcalans hefur PKK einnig aukið líkurnar á því að hann fái hlutverk píslarvotts í baráttu Kúrda fyrir sjálfstæði sínu, verði hann tekinn af lífi. Þótt Öcalan hljóti líflátsdóm er þó ekki víst að þeim dómi verði framfylgt, þar sem aftökur hafa ekki verið framkvæmdar í Tyrklandi frá þvf 1984, enda þótt Iíflátsdómar hafi verið felld- ir. Lögfræðingar Öcalans hafa haft takmarkaðan aðgang að honum vegna strangra öryggis- ráðstafana á fangaeyjunni Imrali, þar sem réttarhöldin fara fram. I gær fengu þeir að ræða við hann í fyrsta sinn frá því rétt- arhöldin hófust. AJVC spáð sigri í Suður-Afríku SUÐUR-AFRIKA - Kosningarnar í Suður-Afríku gengu friðsamlega fyrir sig í gær, en þetta var í annað sinn sem lýðræðislegar kosningar eru haldnar í landinu frá því aðskilnaðarstefna hvíta minnihlutans var aflögð. Afríska þjóðaráðinu (ANC) var spáð yfirburða sigri undir forystu Thabo Mbeki, en búist var við að bráðabirgðatölur úr taln- ingu atkvæða liggi fyrir snemma í dag. Nelson Mandela lætur af for- setaembætti þann 16. júní næstkomandi, en arftaki hans verður kos- inn á nýskipuðu þingi þann 14. júní Kröfum Jugóslavíu hafnað HOLLAND - Alþjóðadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag hafnaði í gær kröfu júgóslavneskra stjórnvalda um að Natóríkjum verði gert að stöðva þegar í stað loftárásirnar á Júgóslavíu. Kærum á hendur tveimur Natóríkjum, Bandaríkjunum og Spáni, var vísað frá þar sem þessi ríki hafa ekki undirritað alþjóðasamning gegn þjóðarmorðum. Sömuleiðis lýsti dómstóllinn yfir efasemdum um að ákærurnar á hendur átta öðrum Natóríkjum féllu undir ákvæði samningsins, sem dæma átti eftir. Um leið lét dómstóllinn í Ijós áhyggjur yfir því að loftárásirnar væru gerðar á veikum lagalegum grundvelli. Tsjemómyrdín og Ahtisaari í Jugóslavíu JÚGOSLAVIA - Samningamenn Rússlands og Evrópusambandsins, þeir Viktor Tsjernómyrdín og Martti Ahtisaari, afhentu i gær stjórn- völdum í Júgóslavíu friðartilboð þar sem gert er ráð fyrir að serbnesk- ir hermenn yfirgefi Kosovohérað, flóttamenn snúi aftur og loftárásir Nató verði stöðvaðar. Júgóslavíustjórn hefur undanfarna daga lýst því yfir að hún fallist á friðarskilyrði G8-hópsins, en með skilyrðum þó. Friðartillögurnar sem Tsjernómyrdín og Ahtisaari lögðu fram í gær eru málamiðlunartilraun. Bandaríkjamenn höfðu f gær lagt fram aðra tillögu, sem Rússar sögðust ekki geta sætt sig við að öllu leyti. Flugslys í Little Rock BANDARÍKIN - Flugslys varð í bænum Little Rock í Arkansas, Bandaríkjunum, þegar farþegaflugvél með 145 manns um borð hlekktist á í Iendingu. Afar slæmt veður var og rakst flugvélin á staur með þeim afleiðingum að eldur kom upp. A.m.k. áttatíu manns voru fluttir á sjúkrahús og nokkrir Iétu lífið. Bíll sem er algjörlega hannaður fyrir þig. Og það leynir sér ekki... Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic. Ertu að hugsa um: • Rými? • Þægindi? • Öryggi? • Gott endursöluverð? • Allt þetta sem staðalbúnað: 16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar í hurðum Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi Rafstýrð hæðarstilling framljósa Litaðar rúður • Samlitaðir stuðarar Rentidu við hjá okkur i dag og reynsluaktu Suzuki Baletto. Hann kemur þér þægilega á óvart. TEGUND: 1.3 GL 3d 1.3 GL4d 1,6 GLX 4d, ABS 1,6 GLX 4x4, 4d, ABS 1,6 GLX WAGON, ABS 1,6 GLX WAGON 4x4, ABS VERÐ: 1.195.000 KR. 1.295.000 KR. 1.445.000 KR. 1.575.000 KR. 1.495.000 KR. 1.675.000 KR. Sjálfskipting kostar 100.000 KR. Skeifunni 17. Sími 568 51 00 Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.