Dagur - 03.06.1999, Qupperneq 12
n 111111 m ittittti 111I I11-1111111111111I I11 n i rm i rrrrr
i
12 - FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
\
ÁMERJCAN HISTORY X :
Fimmtud. kl. 21 og 23. ij§
— FYRSTI ALVÖRU SUMARSMELLURINN ! m
MYNJH SEM HEFUR VERIÐ KÖLLUÐ „PRETTY VLOMAN EYRIR MTV-KYNSLOÐM
:
□□[ÖQ^]
D I G I T A L
□□Idoi-byI
D I G I T A L
Sýnd kl. 5, 9 og 11
Sýnd kl. 7 og 11
Síðustu sýningar.
ÍÞRÓTTIR
Auðim Helgason
í besta formrnu
Viking FK í Stavanger, lið þeirra
Ríkharðs Daðasonar og Auðuns
Helgasonar, hefur ekki gengið
sem skyldi það sem af er leiktíð-
inni og nú er svo komið að þjálf-
arinn verður látinn fara eftir að
leiktíðinni lýkur. Sjálfur segir
þjálfarinn, Poul Erik Andreasen,
að liðið hafi valdið sér miklum
vonbrigðum í vor og það sé alls
ekki að leika þá knattspyrnu sem
hann vill sjá. Margir íeikmanna
liðsins virðast alls ekki vera í
nógu góðu líkamlegu formi. Lið-
ið hefur oft verið þungt og svifa-
seint og ekki sýnt þau tilþrif sem
búist var við af liði sem spáð var
einu af fjórum efstu sætunum í
norsku úrvalsdeildinni. ÞeVa á
þó ekki við um Auðun Helgason.
Hann er sá leikmaður liðsins
sem er í best á sig kominn. I ný-
Iegri súrefnismælingu, þar sem
súrefnisupptaka er mæld í milli-
lítrum á hvert kíló líkamsþyngd-
ar, var Auðun hæstur með 70 ml.
Þeir sem næstir honum komu
voru Martin Knudsen með 67
ml, Ronny Kristensen með 66
ml, Tom Sanne og Thomas Per-
eira með 64 ml. Þetta hlýtur að
gleðja landsliðsþjálfarann, en
Auðun er f 18-manna hópnum
sem valinn hefur verið til leika
gegn Armeníu á laugardag. Auð-
un á að baki 8 leiki og hefur
skorað eitt mark.
Knattspyrnumaður í fullri
þjálfun á að liggja á milli 60 og
70 ml og því takmarki ná fáir fé-
laga Auðuns. Þess má geta að
meðaltalið í slíkum mælingum
hjá Rosenborg og Molde var á
síðasta ári 68 og 67 ml. Sá
íþróttamaður sem bestri mæl-
ingu hefur náð í heiminum til
þessa er skíðakappinn Bjprn
Dæhlie sem mældist með 95 ml.
- GÞÖ
Tryggvi trompar
Nordmeim
Eftir stórleik sinn með Tromsö
gegn Lilleström á dögunum á
Tryggvi Guðmundsson hug og
hjörtu allra knattspyrnuunnenda
á norðurhjara Noregs. Auk þess
að skora tvö mörk fiskaði Tryggvi
vítaspyrnu og lagði upp það
Qórða fyrir lið sitt. Þar með hef-
ur Vestmannaeyingurinn skorað
fjögur mörk í leikjunum átta sem
Tromsö hefur leikið í deildinni.
Auk þess hefur Tryggvi skorað 5
mörk og er markahæstur leik-
manna Tromsö það sem af er
með 9 mörk á árinu.
Þjálfari Tromsö, Skarsfjord,
segist alltaf hafa haft trú á
Tryggva. Hann hafi bara sparað
sig til þessa. Nú hafi hann sýnt
hvað hann kann og getur. Hann
bætir því við að Tryggvi sé sá
leikmaður liðsins sem skori flest
mörk á æfingum og það hafi því
ekki verið nein tilviljun þegar
hann hrökk í gang gegn Lille-
ström.
Fjölmiðlarnir í Tromsö segja
að stuttvaxni Vestmannaeyingur-
inn sé eins og eldfjall sem hafi
nú loksins gosið. „Og mörkin
sem fylgdu gosinu voru af fal-
legri gerðinni," sagði staðarblað-
ið í Tromsö, Nordlys. Eins og
fram kom í Degi á dögunum vill
Tryggvi fara frá liðinu í Norður-
Noregi og flytja sig sunnar í álf-
una. Norskir fjölmiðlar hafa sagt
þá skoðun sína að haldi Tryggvi
áfram að leika eins og hann
gerði gegn Lilleström þá sé hann
góð söluvara fyrir Tromsö og
stutt verði í að tilboðin streymi
inn. — GÞÖ
Blikastulkur unnu Skagaun
Fyrstu leikirnir í 3. umferð
meistaradeildar kvenna í knatt-
spyrnu voru leiknir í gærkvöld.
Segja má að úrslitin hafi verið
samkvæmt bókinni, en Islands-
meistarar KR héldu áfram sigur-
göngu sinni með öruggum sigri á
nýliðum Grafarvogsfélagsins
Fjölnis.
Úrslit
Akranes : Breiðablik 0-1
Grindavík : Vestmannaeyjar 0-6
KR : Fjölnir 6-0
Leikur Stjörnunnar og Vals fer
fram í kvöld, fimmtudagskvöld.
í 1. deild karla fóru fram 4 síð-
ustu leikirnir í 3. umferð en um-
ferðin hófst á Kaplakrikavelli er
FH vann Dalvík 3-0 eftir að
staðan hafði verið 0-0 í hálfleik.
Mörk FH gerðu Guðmundur
Sævarsson, Róbert Magnússon
og Jónas Grani Garðarsson.
Úrslit
KA : Skallagrímur; ekki var hægt
að Ieika á Akureyri og fer leikur-
inn fram í Borgarnesi nk. föstu-
dagskvöld. Heimaleikur KA
verður í staðinn 6. ágúst.
Fylkir : ÍR 4-1
Víðir : KVA 4-2
Þróttur : Stjarnan 0-1
Leikur Víðis og KVA var færð-
ur á Garðsvöll vegna vallarskil-
yrða, en hann átti að vera á
Reyðarfirði. Markvörður Víðis
slasaðist eftir samstuð við sókn-
armann KVA, og tafðist leikur-
inn um 20 mín. meðan beðið var
sjúkrabifreiðar.
Guðmundur Benediktss,
Kiartan Einarsson
UBK
Stfvo Vprkapic
Grindavík
Hlynur Birgisson
Leiftri
Alexandre Santos
Leiftri
Páll Guðmundsson
Sigþór Júllusson Lci^tri
KR
Sigurðnr Om Jónsson
KR
Che Bunce
UBK
Albert Sævarsson
Grindavík