Dagur - 06.08.1999, Qupperneq 3
FÖS TUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 - 19
Tkigtur-
LÍFIÐ í LANDINU
Kirkj an hefur verið
menntandi stofnun
Prófastdæmi og sveitarfélög
um allt land efna til hátíðar-
halda í tilefni þess að senn
eru liðin eittþúsund árfrá
þvíað „við trúnni vartekið
aflýði“. Reykjavíkurprófast-
dæmin hlása til leiks þann
lS.þ.m. Sr.Guðmundur
Þorsteinssonprófastur var
spurður um gildi slíkra há-
tíðahalda.
„Eg tel kristnitökuna þann atburð í ís-
lenskri þjóðarsögu sem hvað stærst áhrif til
heilla hefur haft á þjóðlíf og menningu
okkar og því sjálfsagt að minnast hans með
viðeigandi hætti. A kristnitökuhátíðum í
byggðarlögunum er boðið upp á ýmsa við-
burði á sviði trúar, menningar og lista er
minna á hin miklu tímamót er kristur varð
Iíf og ljós þessarar þjóðar og hvemig hún
hefur átt samleið með honum í sæld og
þraut. Þær hátíðir eru undirbúningur undir
stóru samkomuna á Þingvöllum 1. og 2.
júlí árið 2000 þar sem hátíðahöldin ná há-
marki.“
- Áhrif til heilla, segirðu. Viltu taka sér-
stök dænti um þau áhrif?
„Við erum auðvitað hluti að mildu stærra
samhengi. Kirkjan er alþjóðleg og þegar
kristni var lögtekin hér þá fylgdi henni evr-
ópsk menning. Bókmenningin, ritlistin,
leskunnáttan, þetta kom allt með kristn-
inni og þannig hefur kirkjan verið mennt-
andi stofnun alla tíð.
Klaustrin á Islandi eiga til dæmis stóran
þátt í ritun þeirra bóka sem við emm virt
og metin af sem þjóð. I klaustmnum höfðu
menn tíma til að skrifa ýmislegt niður sem
annars hefði glatast. Nefna má konunga-
sögumar sem Snorri Sturluson hafði til
fyrirmyndar þegar hann skrifaði
Heimskringlu og talið er víst að ein elsta
Islendingasagan, Heiðavígasaga, hafi verið
rituð í Þingeyrarklaustri.
Strax og kristnin kemur þá er farið að
rita lögin sem áður höfðu verið í munnlegri
geymd og biblíuþýðingarnar urðu til þess
að styrkja okkur í varðveislu móðurmálsins.
Þannig hefur kirkjan haft ótrúleg áhrif
menningarlega séð, fyrir utan trúarlegu
áhrifin.“
Gegnsýrð
af kristnum boðskap
- Ertu únægður með trúarlíf þjóðarinnar?
„Eg held að engin stofnun í þjóðfélaginu
fái eins marga inn fyrir sínar dyr og kirkjan.
Við vitum það sem störfum í kirkjunum að
frá því vetrarstarfið byijar á haustin og
ffam á vor eru kirkjumar meira og minna
fullar af fólki."
- Helgast það ekki af fermingarundirbún-
ingnum?
„Auðvitað er það Iiður í kirkjustarfínu að
búa böm undir fermingu og þau koma
vikulega allan veturinn. En svo er alls kyns
önnur starfsemi bæði fyrir eldri og yngri,
mömmumorgnar, sunnudagaskóli, æsku-
lýðsstarf og stundir fyrir eldir borgara. Fólk
er líka í vaxandi mæli að átta sig á gildi
kyrrðar- og bænastunda. Kirkjan hefur að
nokkru verið að breytast úr sveitakirkju í
borgarkirkju og þar er talsverður munur á.“
- En að kirkjustarfinu slepptu. Finnst þér
Isíendingar ganga á Guðs vegum dags dág- [
lega?
„Stundum er sagt að ef fólkið komi ekki í
kirkjuna þá verði hún að koma til þess. Það
er að færast í aukana að prestar fari út í
skólana, leikskólana og elliheimilin. Ekki
má gleyma fjölskylduþjónustu kirkjunnar
sem hjálpar fólki í sambúðarvandamálum
og kirkjan býður upp á allskonar fræðslu-
námskeið."
- Ég meina, finnst þér þetta hafa skilað
sér inn i okkar daglega líf? Tökum við þar
tillit til hins kristna boðshapar?
„Eg held að við séum gegnsýrð af kristn-
um boðskap þótt alltaf beri meira á því sem
miður fer. En það er margt gott gert og við
erum afskaplega fljót til að hjálpa. Auðvitað
mætti kirkjan sinna þeim
betur sem minna mega
sín og ef hún ætlar að
vera meistara sínum trú
þá má hún ekki Iíta fram-
hjá því.“
- Ntí er trúfrelsi í land-
inu og upp hafa sprottið
aðrir söfnuðir en kristnir,
múhameðstrúar, búdda-
trúar og fleiri. Hvað finnst
ykkur kirkjunnar mönn-
um um það?
„Eins og þú segir þá rík-
ir trúfrelsi. Okkur klerk-
um fínnst hinsvegar ekk-
ert hafa komið ffam sem
sýnir að ástæða sé til að
leita út fyrir þann boð-
skap sem Kristur flutti en
hversu heilagar sem hugsjónir eru að þá
markast þær alltaf af fingraförum mann-
legs ófullkomleika. Að okkar dómi hefur
enginn flutt háleitari kenningu en Kristur.
En menn verða að stýra sínu lífi sjálfír og
allir hafa valfrelsi. Við getum sagt já við
Guð og við getum líka sagt nei. Þessi há-
tíðahöld núna eiga að hjálpa fólki að segja
já við Guð og tryggja kristna framtíð á Is-
landi.“
Þúsund radda kór
- Eigum við kannski að snúa okkur að þvi
sem átti að verða aðalefni þessa viðtals,
kristnitökuhátiðahöldunum hér i Reykjavík-
urprófastsdæmum ?
,Já, þau hefjast þann 15. ágúst meðjúti-
guðsþjónustu á Laugardalsvelli. Þar pré-
dikar biskupinn, hr. Karl Sigurbjörnsson,
Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari,
syngur, lúðrasveit leikur og 1000 manna
blandaður kór syngur undir stjóm Jóns
Stefánssonar, kórstjóra. Þjóðkirkjan bauð
öllum söffiuðum kristinna trúfélaga til
þátttöku í þessari guðsþjónustu því kristnir
menn lúta allir sama Herranum og þetta er
einstakt tækifæri fyrir þá að hittast til sam-
eiginlegrar lofgjörðar.
Þá verður fjölskylduhátíð í Laugardaln-
um þennan dag og slegið upp tjöldum víðs
vegar þar sem kristnir söfnuðir og trúfélög
kynna starfsemi sína og veitingar verða
seldar. Sfðdegis verða gosspeltónleikar í
Laugardalshöllinni þar
sem margir þekktir tónlist-
armenn koma fram t.d.
Margrét Eir, Páll Rósin-
krans, Sigríður Guðna-
dóttir og Stefán Hilmars-
son, auk gosspelkóra og
svo um kvöldið verða
æskulýðsfélögin með dag-
skrá í Skautahöllinni."
- Laugardalurinn verður
semsagt umgjörð þessarar
opnunarhátíðar.
„Já, að öðru leyti en því
að þetta sama kvöld verða
tónleikar í Hallgrímskirkju
þar sem Módettukórinn
undir stjóm Harðar As-
kelssonar flytur H-moll
messu Bachs. Þar koma
líka fram þekktir einsöngvarar eins og
Kristinn Sigmundsson, Þóra Einarsdóttir
og Gunnar Guðbjartsson."
Ekki vopnaðir til kirkju
- Þetta er sem sé byrjunin, hvað tekur svo
við?
„Hátíðin stendur ffam í nóvember 2000
og í framhaldi af opnuninni taka við ýmsir
viðburðir. Þar má nefna „guðsþjónustur
liðinna alda“ þar sem reynt verður að end-
urskapa andrúmsloft horfins tíma og flytja
tónlist og talað mál sem var notað á
ákveðnum tímaskeiðum þúsund ára
kristni."
- Þurfa menn að koma með sérstöku hug-
arfari og sérsökum ha?tti tibslikra aihafna.
Má t.d. koma í bilum upp að kirkjudyrum?
„Eg vona nú að almenningur fari ekki að
hverfa aftur til ársins 1000 þegar menn
komu vopnaðir til kirkju, þótt reyndar
legðu menn vopnin frá sér meðan guð-
spjallið var lesið. Þarna verður lögð áhersla
á mismunandi messuform, bæði orð og
söng og Kristján Valur Ingólfsson, rektor í
Skálholti, er okkur til ráðleggingar því
hann er sérfróður um þessi efni.“
- Ef við förum fljótt yfir sögu, hvað er
fleira á dagskrá hjákristnihátiðanefnd
Reykjavíkurprófastsdæma ?
„Helgigöngur milli kirkna er eitt atriðið.
Þá er gengið frá einni kirkju til annarar og
þar verða sýningar á kirkjulist og kirkju-
munum. Ráðstefna verður um boðun krist-
innar trúar, svonefndar ljósamessur, blys-
farir til kirkna á þrettándanum. Efnt verður
til samkeppni um nýja messusöngva.
Kynning verður á andlegum ljóðum í eitt
þúsund ár og starf kirkjunnar um víða ver-
öld verður lcynnt, útbreiðsla biblíunnar,
kristniboð og líknarstarf. Svo verður feikn-
arlega fjölbreytt tónlistarlíf tengt þessari
kristnitökuhátíð. Þar verða átthagakórar,
bamakórar, samsöngur kirkjukóra, org-
eltónleikar, flutningur stórverka tónlistar-
sögunnar auk frumflutnings á nýjum ís-
lenskum tónverkum. Svo má nefna að
listavika verður í Seltjarnameskirkju, úti-
guðsþjónusta í Kópavogi, kirkjuvígsla í
Grafarvogi og hátíð í Viðey og margt fleira
sem of langt yrði upp að telja.
Þá stendur til að merkja forna kirkju-
staði innan marka prófastdæmanna.
Rotarýklúbbarnir hafa tekið að sér að gera
minnismerki og sewtja þau upp.“
Engin minningarhátíð
- Ein ansi veraldleg: Hvað kosta svona hátið-
arhöld og á kirkjanfyrir þeim?
„Sveitarfélögin og prófastdæmin standa
straum af hátíðinni í sameiningu. Við reyn-
um að forðast bruðl og í þessa 15 mánaða
dagskrá hér í borginni fara svona 20 millj-
ónir. Aðalatriðið er að starfíð skili árangri.
Þar erum við ekki eingöngu að huga að
kristnum arfí fortíðar heldur ekki síður að
framtíðinni. Þetta er engin minningarhá-
tíð. Hún á að skila okkur kristnari inn í
nýja öld.“ GUN.
Viðgetum sagtjá við
Guð ogviðgetum líka
sagtnei. Þessi hátíðar-
höld núna eiga að
hjálpafólki að segjajá
við Guð og tryggja
kristnaframtíð á ís-
landi.