Dagur - 07.08.1999, Page 2
18 - FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1999
HELGARPOTTURINN
\
Leikhússtýórinn á Akureyri, Sigurður Hró-
arsson komst aldeilis í feitt um daginn. Hann
var að dóla sér í Mývatnssveitinni með fjöl-
skyldunni og skrapp aðeins inn f sjoppuna í
Reykjahlfð til að kaupa sér filmur. Tók leíkhús-
stjórinn þá eftir því að tvær japanskar konur
voru að taka myndir í grfð og erg af einhverjum
manni fyrir utan sjoppuna. Þegar nánar var að
gáð þóttist Sigurður kenna manninn en trúði
ekki sínum eigin
augum, bankaði í
aðra þá japönsku
og spurði hana upp á ensku: „Is this for real?"
Jagger (því þetta var að sjálfsögðu enginn
annar en Stones-goðið á stéttinni fyrir utan
Reykjahlíðarsjoppuna) heyrði spurninguna,
sneri sér við, brosti og tók kumpánlega í spað-
ann á Sigurði. Leikússtjórinn mun hafa veríð
álíka uppnumin síðan handtaki'ð átti sér stað og
Sigurður Hróarsson. ónefndur embættismaður vestur á ísafirði...
Bókaútgefendur vilja halda jólabókalesendum og öðrum bókmenntafegur-
kerum í titrandi eftirvæntingu og eru þögulir sem gröfin þessa dagana yfir
væntanlegri jólabókaútgáfu. Östaðfestar heimildir Helgarpottsins herma þó
að af stóru nöfnunum hjá Máli og menningu verði fá með íjólaflaumnum að
þessu sinni - þó segja sömu óstaðfestu heimildir að Ólafur Gunnarsson
sendi frá sér síðasta bindið í trílógíunni sinni, sem hófst með Tröllakirkju og
varfram haldið með Blóðakri...
Geirmundur Valtýsson og hljómsveitafélag-
ar hans eru í sumarfríi þessa dagana, aldrei
þessu vant. En sú hefð hefur reyndar skapast
að Geirmundur og kó bregði sér ævinlega í frí
fyrstu tvær helgarnar eftir verslunarmannahelgi.
Félagarnir slá þó ekki slöku við að öðru leyti, því
í haust kemur út hljómplata með Geirmundi og
félögum þar sem verður fjöldinn allur af textum
eftir Kristján Hreinsson skáld...
Geirmundur Valtýs.
Bjartraddaði dægurlagasöngvarinn með
glókollinn Geir Ólafsson er nýkominn úrtón-
leikaferðalagi frá Manhattan í New York til að
taka upp fyrsta sólódiskinn sinn sem kemurút
hér á landi um miðjan september. Diskurinn
heitir lce Blue í takt við lokalag Geirs þegar
hann kemur fram í Bandarfkjunum. Textarnir
eru allir á ensku enda stefnir drengurinn hátt
og er meiningin að nota diski'nn til að kynna sig
í útlandinu. Hljómsveitin Furstarnir sér um
hljóðfæraleikinn en haría skipa kempur á borð
við Áma Scheving, Karl Möller, Guð-
mund Steingnmsson, Kjartan Valdimarsson og Þorieif Gíslason
sem eru einmitt að spila með Geir í Naustkjallaranum um þessar mundir...
Hinn kraftmikli kynnir og stuðbolti, Sigfús
Karlsson, sem ávallt heldur uppi rífandi
stemmningu á heimaleikjum KA-manna í hand-
boltanum hefur greinilega vakið athygli víðar en
á Akureyri fyrir skelegga framgöngu sína og
smitandi baráttuanda. Heyrst hefur að.í mikil-
vægum leik sem landsliðið mun spila sunnan
heiða í september muni Fúsi verða við’ hljóð-
nemann til að rífa upp stemmninguná í mann-
skapnum. Það munu hafa verið landsliðsmenn-
imir sjálfir sem óskuðu eindregið eftir nærveru
KA-mannsins knáa.
Ein stærsta fréttin sem Morgunblaðið lumaði á í gær var falin á 51. síðu
blaðsins, lítill eindálkur neðst á síðu. Þar leiðréttir Björn Teitsson,
skólameistari á ísafirði, þann misskilning að nokkru sinni hafi staðið til að
Steingrímur listmálari Sigurðson myndi kenna við skólann næsta
vetur. Hann hafi aldrei sótt formlega um starf og mun ekki kenna við
skólann, segir meistari. Fregnir af þessum laumukennara voru einmitt
sagðar í helgarpottinum í síðustu viku og vakna í þessu sambandi spurn-
ingar um hvað kennarinn hyggist fyrir í næstu framtíð. Hann hefur víða
komið við og er maður ekki einhamur...
Michael Scollert og Fanný Jóhannsdóttir eru verkefnisstjórar.
í sporum
flóttamanna
Menn eru niðurlægðir með ýmsum hætti, það er leitað á þeim og þeir ekki virtir
viðlits. Sumir neyðast til að beita mútum til að komast áfram.
Hvernig er að vera flótta-
maður og ráfa eitthvað út
í óvissuna, bíða í ofvæni,
fýlla út allskyns skjöl og
svara ótal spurningum.
Það fær ungt fólk tækifæri
til að prófa í hlutverkaleik,
sem Ungmennadeild
Reykjavíkurdeildar Rauða
krossins setur upp nú um
helgina.
„Leikurinn stendur í sólarhring og
sá sólarhringur er ansi dramatísk-
ur,“ segir Fanný Jóhannsdóttir verk-
efnisstjóri. „Hann byrjar í Artúns-
skóla og berst uppi í Heiðmörk og
víðar. Þátttakendur eru á aldrinum
16-22 ára og nú reynir á leikhæfi-
leika þeirra og ímyndunarafl."
Hlutverkaleikurinn „Á flótta“ er
upprunninn í Danmörku, þar sem
kennari að nafni Steen Cnops
Rassmussen hefur þróað hann í 10
ár. Michael Chollert, verkefnistjóri
þar, er hingað kominn til að leið-
beina íslendingum. Hann segir
leikinn einkar vinsælan meðal
skólafólks. „Hann gefur einfalda en
raunsæja mynd af þeim erfiðleikum
sem flóttmenn kynnast er þeir berj-
ast fyrir lífi sínu, hvernig er að vera
óvelkominn meðal framandi þjóða,
vera háður neyðarhjálp og fleiru
slíku.“
Fanný lýsir þessu nánar:
„Við byrjum á kynningu á því landi
sem fólkið kemur frá, í þessu tilfelli
er það Sómalía, og ástæður flóttans
er borgarastyrjöld. Þátttakendur fá
að vita hvernig Ijölskyldu þeir til-
heyra og hvemig staða þeirra sé
innan þjóðfélagsins. Allir eiga það
sameiginlegt að vilja komast úr
landi og hafa valið Island sem
áfangastað.
Næst tekur við skrifstofuatriði.
Þá er gengið á milli „Heródesar og
Pílatusar“ að reyna að fá alls kyns
eyðublöð og vottorð til að komast út
úr landinu. Allt í einu eru hermenn
búnir að umkringja skrifstofurnar
og fólkið þarf að smygla sér út úr
byggingunni. Þá tekur við 8 km
flótti. Leiðsögumenn eru af ýmsu
sauðahúsi, sumir ekta en aðrir eru
með falska passa og reyna að múta
flóttamönnunum.
Fólkið stefnir í fyrstu á flótta-
mannabúðir handan landamæra og
þar er þrautin þyngri að komast í
gegn. Menn eru niðurlægðir með
ýmsum hætti, það er leitað á þeim
og þeir ekki virtir viðlits. Sumir
neyðast til að beita mútum til að
komast áfram.
í flóttamannabúðunum fá menn
smá skammta af hrísgrjónum að
borða og ekkert annað. Fá aðeins
hvíld en mega ekkert tala saman og
ekki að vita hvað er að gerast í
heimalandinu. Undir lokin fá þeir
þó að vita að hermenn eru að yfir-
taka flóttamannabúðirnar og menn
verða að komast til ákvörðunar-
landsins, Islands. Þá tekur við langt
og strangt ferðalag.
Þegar til Islands kemur er í fyrstu
tekið vinsamlega á móti hópnum en
eftir smá hvíld kemur lögreglan og
handtekur hann. Farið er í yfir-
heyrslur og allir látnir gera grein
fyrir ferðum sínum. Að þeim lokn-
um er vitað hverjir af hópnum fá
hæli í landinu en það er aðeins lítið
brot. Hinir eru reknir aftur á flótta,
örþreyttir og svangir..." gun.
Friðrik Friðriksson.
Eitt af nýju stykkjunum á fjölum Borgarleik-
hússins í haust verður leikritið „Vorið vaknar"
eftir Frank Wedekind sem er fjölmenn
sýning. Þar stíga á svið fjölmargir úr yngri
kynslóð íslenskra leikara, þeirra á meðal Pét-
ur paninn Friðrik Friðriksson og Marta
Nordal, Jóhann G. Jóhannsson oglnga
María eru líka meðal þeirra sem fara með
hlutverk í þessu hundað ára gamla verki um
sígild efni: unglingavandamál, frelsi og kyn-
líf...
Kanntu meinlaust slúður og skemmtisögur úr félags-
lífinu? Þekkirðu athyglisvert fólk? Sendu okkurfréttir og
áhendingar til hirtingar í Helgarpottinum.
Dagur c/o helgarpotturinn, Þverholti 14, 105 Reykja-
vík eða á netfangið: ritstjori@dagur.
MAÐUR VIKUNNAR ER...
...foxilL yfir kvótapólítík Byggðastofnunar, en ráðagerðir
hennar segir hann að einkennist af sukki. Enginn hafi
byggðakvótinn fengist og því sé hún í vondum málum.
Og Ólafsfjarðardrottningin Sæunn Axelsdóttir lætur ekki
sitja við orðin tóm. Hún hefur nú sagt upp öllu starfs-
fólki sínu og Ólafsfjörður er í upplausn. Byggðafrömuðir,
bæjarstjórnin, þingmenn og ráðherrar vita ekki hvað
gera skuli. Sæunn Axels hefur ögrað þeim ærlega og er
því svo sannarlega maður vikunnar.