Dagur - 07.08.1999, Page 8

Dagur - 07.08.1999, Page 8
LÍFIÐ í LANDINU 24 - LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1999 Bent Larsen og Friðrik Ólafsson mættust oft við skákborðið en því miður fundust engar myndir í safni frá einvíginu 1956. Þessi mynd var tekin af skákköppunum í febrúar 1978. Um einvígið 1956 segir Friðrik meðal annars að hluti af stemmningunni hafi tengst því að skammt hafi verið liðið frá sambandsslitunum við Danmörku. „Það var enn svolítið ríkt í mönnum og kom mikið inn í þetta einvígi. Hann var að vísu með ýmis stóryðrði áður en hann kom, tii dæmis að hann ætlaði að sækja titilinn í klæliskápinn og fleira í þeim dúr.“ -sem Einvígið öll þjóðin fylgdist Á svipuð- um tíma og hafís gerði vart við sig í Reykja- víkurhöfn, á Skerja- firði og víðar, allir vegir í Eyjafirði voru ófærir, eitt bíóhúsanna sýndi Tit- anic, enskur togari var tekinn í landhelgi, Jök- ulhlaup kom í Múlakvísl og gerð var ný fimm ára áætlun í Ráðstjórnar- ríkjunum, sátu tveir ungir piltar að tafli í Sjómannaskólanum í Reykjavík. Hin nýja hetja íslands, Friðrik Ólafsson, sem sigrað hafði á skákmótinu í Hastings skömmu áður, og stolt Danmerkur, jafn- aldri Friðriks, Bent Larsen börðust um nafnbótina „Skák- meistari Norðurlanda". Þeir höfðu orðið jafnir á Skákþingi Norðurlanda sumarið áður og skera þurfti úr um sigurvegar- ann. Einvígið „endurtekið" Eins og fram hefur komið í fréttum munu Friðrik og Larsen heyja skákeinvígi í Tívolíinu í Kaupmannahöfn 20. ágúst og er ætlunin að það verði hápunkturinn á hátíðar- dagskrá í tilefni 100 ára afmæl- is Skáksambands Norðurlanda, sem stofnað var þar í garðinum 20. ágúst 1899. Ýmislegt fleira verður reyndar gert í tilefni af afmælinu. VISA-stórbikarmótið í skák (Visa Nordic Grand Prix) verður haldið í Kaupmanna- höfn 6.-19. ágúst, kunngerð verða úrslit í kjöri um „Skák- mann Norðurlanda 1998“, þar sem Hannes Hlífar Stefánsson, stórmeistari er annar tveggja sem valið stendur á milli. Hinn er Jonny Hector frá Svíþjóð. Þátttakendur íslands í mótinu eru stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ass Grétarsson og Þröstur Þór- hallsson. Einvígi Friðriks og Larsens verður fremur stutt og snarpt í þetta skipti, tvær atskákir með 25 mínútna umhugsnunartíma fyrir hvorn, en síðan bráðabani ef með þarf. An efa vekur kom- andi einvígi upp minningar frá hinu sögufræga einvígi Friðriks og Larsens sem háð var í Sjó- mannaskólanum í Reykjavík í janúar og febrúar 1956. „Ein- vígið sem öll þjóðin fylgist með“, eins og sagði í fyrirsögn í Morgunblaðinu. Titillinn sóttur í ísskápinn Friðrik hafði skömmu fyrir ein- vígið gert góða ferð til Hastings og náði þar efsta sætinu ásamt Viktor nokkrum Korchnoi, sem sfðar varð þjóðinni kunnur af einvígi við Jóhann Hjartarson. „Það var nú kannski fullstutt á milli," segir Friðrik þegar mótið og einvígið við Larsen berast í tal. „Maður getur kannski not- að það sem afsökun en hins- vegar dreg ég enga dul á það að hann tefldi miklu betur en ég í þessu einvígi. Hann tefldi af meiri festu, var skeleggari í taflmennskunni og ekki jafn mistækur og ég.“ Friðrik segir áhugann fyrir einvíginu hafa verið mikinn og sömuleiðis var mikil pressa á hann frá þjóðinni. „Það var allt á hvolfi, ég þurfti nánast að fara huldu höfði. Menn voru mikið að hringja og segja mér „að mala helvítis Baunann11. Ég tel nú svona eftirá að hann hafi átt sigurinn skilið miðað við taflmennskuna. Það var mikill gauragangur í kringum þetta, sem kannski bitnaði meira á mér en honum. En hann var geysisterkur skákmaður þegar þetta einvígi fór fram. Hann sýndi það strax á eftir að hann var orðinn mjög góður." - Kvíðir þú þvt ekkert að tefla við hann núna, er hann ekki enn að tefla ú fullu? „Eg veit ekki hvort hann er á fullu en hann teflir ennþá og heldur sínu striki. Hann er að vísu ekki alveg sama Ijónið, kannski svolítið þreyttara ljón en áður.“ með Friðrik bendir á að hluti af stemmningunni tengist því að skammt hafi verið liðið frá sambandsslitunum við Dan- mörku. „Það var enn svolítið ríkt í mönnum og kom mikið inn í þetta einvígi." Hann segir þó að Larsen hafi verið sýnd full vinsemd. „Hann var að vísu með ýmis stóryðrði áður en hann kom, til dæmis að hann ætlaði að sækja titilinn í kæliskápinn og fleira í þeim dúr.“ - Það er hara hans háttur, er það ekki? „Jú, jú en þú veist að það hafa ekki allir skilning á svona bröndurum, síst af öllum við.“ Skák seldist upp Áhugi þjóðarinnar var ótrúleg- ur og til dæmis seldist upp á skömmum tíma allt upplag af kennslubók í skák sem gefin hafði verið út við dræmar und- irtektir fáum árum áður. Vísir segir frá því 27. janúar að mörg hundruð töfl hafi selst á fáum dögum á Akureyri. Svipað ástand var í Reykjavík og sáust menn ganga milli bókabúða í

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.