Dagur - 07.08.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 07.08.1999, Blaðsíða 9
lDj&^tiur LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1999- 25 leit að töflum - sem hvergi fengust lengur. Nokkrum dögum eftir að einvígi kappanna lauk birtist frétt í Vísi (9. febrúar 1956) þar sem fyrirsögnin var: „Vegna aukins skák- áhuga hafa 3ja ára birgðir af manntöflum selzt hér á skömmu tímabiii - Er nú svo komið, að manntöfl eru ófáanleg hér.“ Birgir Sigurðsson prentari var á þessum tíma ritstjóri og útgef- andi Tímaritsins Skákar. „Það var fylgst alveg rosalega vel með þessu og fjallað um einvígið í blöðum og útvarpi. Það var gífurlegur skákáhugi á þesum árum. Það greip um sig skákæði," segir Birgir. Fyrir ein- vígið gaf hann út hefti sem tileinkað var skák- mótinu í Hastings skömmu áður þar sem Friðrik varð efstur. Birg- ir rifjar upp þegar hann fór upp í Sjómanna- skóla fyrsta einvígis- kvöldið, sama dag og eldri dóttir hans fædd- ist: „Þá var nýkomið út blað hjá mér sem var prentað í 800 eintök- um. Eg var kominn með 600 áskrifendur og mér datt í hug að fara upp í Sjómannaksóla með svona tíu eða tuttugu blöð og vita hvort ég gæti ekki selt eitthvað í lausu, blaðið kostaði tíu krónur í lausasölu. Það gekk svo vel að upplagið fór strax og ég varð að láta prenta nýtt upplag eftir helgina svo áskrifendur fengju sitt. Þetta var allt rifið út.“ Næsta hefti seldist í metupplagi að sögn Birgis, jafnvel þótt Friðrik tapaði einvíginu. „Svo í mars- heftinu þegar Friðrik varð efst- ur á alþjóðlegu móti hérna heima nokkru eftir einvígið, þá var áhuginn búinn og þótti sjálfsagt að Friðrik yrði efstur. Eg lét prenta 1.400 eitök og sat bara uppi með upplagið." Legiö á gluggunum Einvígið hófst þriðjudaginn 17. janúar 1956 og skákmennirnir voru kynntir á forsíðum blað- anna. Forsíðufréttir Vísis voru af nýrri fimm ára áætlun í Ráð- stjórnarríkjunum og einvíginu í Sjómannaskólanum. „Þegar Bent Larsen var um það spurð- ur, hvernig einvígið legðist í hann, kvaðst hann vera bjart- sýnn. Hann hefði unnið Friðrik einu sinni, og því skyldi hann ekki eins geta það aftur?" segir meðal annars í frétt Vísis. Þeir höfðu fjórum sinnum áður att kappi, Friðrik hafði unnið þrisvar en Larsen einu sinni. Þá var það meðal annars aug- lýst að á meðan á skákeinvíg- inu stæði „mun strætisvagninn á leið 9 aka hjá Sjómannaskól- anum til að auðvelda fólki að komast að skákstaðnum." Talið var að um 700-800 manns hafi fylgst með fyrstu skákinni þeg- ar flest var. Varð fjöldi frá að hverfa en „...hópur manns var fyrir utan húsið og horfði á gegnum gluggana," eins og seg- ir í frétt Vísis daginn eftir. Metið var reyndar slegið í loka- umferðinni þegar um átta hundruð manns fylgdust með lokaorrustunni. Sett var upp stórt sýningartafl sem var „þrisvar sinnum stærra en hér hefur sést áður,“ eins og segir í marga góða skákmenn. Það er ábyggilegt. Þessir tveir menn, Bent Larsen og Friðrik, voru taldir mestu skákefnin í heim- inum á þessum tíma, fyr- ir utan að Tal var til og ekkert lakari, jafnvel betri en þeir, en hann var tiltölulega lítið þekktur utan Rússlands." Spilaði þjóðremba eitthvað inn t hina miklu stemmningu sem skapað- ist i kringum einvtgið? „Eg held að hún hafi komið við sögu en það hafi hjá flestum verið í góðu, meira grín en al- vara. Það var ekkert myglað korn.“ - Þannig að Larsen hef- ur að minnsta kosti verið sýnd fyllsta kurteisi. „Eg varð ekki var við annað, enda Larsen mik- ill snillingur og séntil- Friðrik Ólafsson þjappaði þjóðinni saman með frábærum árangri á tafl- borðinu. Svo skemmtilega vildi til að Friðrik átti afmæli á meðan á einvíginu stóð, varð 21 árs þann 26. janúar. Ekki munu mörg dæmi um að blöð hafi birt greinar sem skrifaðar eru í tilefni 21 árs afmælis en J.H. skrifaði hugljúfa afmæliskveðju til Friðriks í Morgun- blaðið. Þessar myndir eru frá 1959 og er tekin þegar Friðrik kom til Reykja- víkur úr einni afsínum frægðarförum - en þær urðu margar. frétt Tfmans 17.janúar. Skákirnar voru birtar jafnóðum í blöðunum, með eða án skýringa, en misjafnt var hvort frétt- irnar rötuðu á forsíður, baksíður eða innsiður blaðanna. Virtist til- hneigingin frekar í þá áttina að sigurskákir Friðriks rötuðu á forsíð- Feiknaatburður Ingi R. Jóhannsson, nú löggilt- ur endurskoðandi í Reykjavík, varð í þriðja sæti á umræddu Skákþingi Norðurlanda á eftir þeim Friðriki og Larsen. Hann var því í hringiðunni miðri og tók meðal annars að sér að skýra skákirnar fyrir Tímann. Ingi segir einvígi þeirra Friðriks og Larsens hafa verið „feikna- atburð". „Þetta var mikil stemmning," segir Ingi þegar hann er beðinn um að rifja upp einvígið. „Frið- riK var oromn rrægur a tsianai og var nýbúinn að tefla í Hastings. Sigurður heitinn Jónsson endurskoðandi var for- seti Skáksambandsins, sá um skipulagninguna og fórst það vel úr hendi. Ahuginn var mik- ill og alltaf húsfyllir af áhorf- endum. Þetta var mjög skemmtilegt eins og oft hefur verið í gegnum tíðina í sam- bandi við skák, sérstaklega þeg- ar Friðrik var að tefla því hann hafði svo gríðarlega hæfileika. Við höfum engan mann eignast slíkan síðan þó við eigum maður. En það sem fór kannski í taugarnar á sumum Islend- ingum var að þeim fannst Larsen vera montinn af því að hann talaði svolítið þannig. Hann var ekkert sérstaklega montinn, þetta var bara hans framsetingarmáti, tnjög skemmtilegur," segir Ingi R. Jó- hannsson. Útvarpið vaki I húfi var titillinn „Skákmeist- ari Norðurlanda" og varla eru það ýkjur þótt fullyrt sé að ís- lenska þjóðin hafi staðið á önd- Þessi mynd var tekin í fyrra afíslenskum Norðurlandameisturum, annar varð Norðurlandameistari fyrir hálfri öld en hinn í fyrra. Baldur Möller vann titilinn 1948 og 1950 en Jóhann Hjartarson í fyrra. mynd: eydIs s. einarsdóttir inni. Til að mynda er frá því sagt í Reykjavíkurbréfi Morg- unblaðsins laugardaginn 22. janúar að svo mikill hafi áhug- inn verið, bæði f Reykjavík og úti um land, „...að hvað eftir annað hefur verið hringt heim til Vilhjálms Þ. Gíslasonar út- varpsstjóra að næturlagi og hann beðinn um það að láta útvarpið ekki Ijúka dagskrá sinni fyrr en úrslit væru kunn í skákinni." Svo skemmtilega vildi til að Friðrik átti afmæli á meðan á einvíginu stóð, varð 21 árs þann 26. janúar. Ekki munu mörg dæmi um að blöð hafi birt greinar sem skrifaðar eru í tilefni 21 árs afmælis en J.H. skrifaði hugljúfa afmæliskveðju til Friðriks í Morgunblaðið. Þar kemur meðal annars fram að árangur Friðriks í skákinni hafi oft þjappað þjóðinni svo saman að til dæmis hafi argaþras stjórnmálanna gleymst. Bréfrit- ari þakkar Friðriki allar ánægjustundirnar sem hann veitti þjóðinni en skrifar svo: „Eg á þar raunar ekki aðeins við ánægjuna af því að fylgjast með skákum hans beinlínis og hinni frækilegu framkomu hans sem fulltrúa Is- lands á hinum ýmsu skákmótum, heldur á ég líka við það, að honum hefur æ ofan í æ tekist að samstilla svo hugi okkar Islendinga að jafnvel eilíft rifrildi stjórnmálamanna hefur horfið í skuggann, stund og stund, og er það mikið afrek.“ Gjafir í Friðrikssjóð Meðal þess sem þjóðin greip til í algleymi skák- árangurs Friðriks var að safna í sjóð til að styrkja þennan unga afreksmann. Bæj- arráð Akureyrar samþykkti til að mynda samhljóða að gefa Friðrik 5.000 krónur og öðru hveiju birtust fréttir af framlögum starfsmannahópa og fyrirtækja. „Gjafir streyma í Friðrikssjóð,“ var fyrirsögnin í Tímanum einn daginn. Þar var upp talið að iðn- aðar- og verkamenn í Morgun- blaðshúsinu hafi gefið 1.130 krónur, brunaverðir og slökkvi- liðið 1.000 krónur, strætisvagna- bílstjórar 895 krónur, starfs- menn Vesturvers 555 krónur og starfsmenn borgardómara 250 krónur. Bent Larsen hafði betur í ein- víginu 1956. Larsen vann fyrstu skákina eftir að hún hafði tví- vegis farið í bið. Aðra skákina vann Friðrik en Larsen síðan þá þriðju eftir að hún hafði einnig farið í bið. Raunar varð „tvöfald- ur danskur sigur“ þ\a' biðskák- irnar voru kláraðar sama kvöld- ið. Fjórða skákin var sú eina sem endaði með jafntefli. Fimmtu skákina vann Larsen og útlitið var ekki gott fyrir Friðrik. Larsen kominn með 3,5 vinn- inga á móti 1,5 Friðriks. Þá breytti Friðrik útaf í byrjuninni, lék c4 í stað e4 í fyrsta leik og hafði að lokum sigur. Tauga- stríðið var í algleymingi og Larsen tefldi byrjunina veikt í sjöundu skákinni. Friðrik náði að jafna einvígið fyrir síðustu skák. í lokarimmunni náði Larsen að sigra og stóð því upp sem Norðurlandameistari. Raunar sagði Larsen að loknu einvíginu að um það í heild væri það að segja „að hvorugur þeirra hefði sýnt verulega góða skák. En keppnin hefði verið hörð.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.