Dagur - 07.08.1999, Síða 14
LIF OG HEILSA
30 - LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
Á sumum hárgreiðslu-
stofum í Reykjavík geta
menn kippt hári úr höfði
sínu, afhent starfsmanni
sem þræðir það í þartil-
gert tæki. Eftir örfáar
mínútur kemur útprent-
uð greining á ástandi
hársins og hvaða sjampó
þú þarft til að bæta hár-
heilsuna.
Á hárgreiðslustofunni Englahári
í Grafarvoginum er til eitt slíkt
tæki en það er frá hársnyrtivöru-
framleiðandanum Redken (og
tækið ráðleggur fólki einmitt um
það hvaða sjampó og hárnæringu
frá Redken hentar því best). Líf
og heilsa skrapp upp í Grafarvog
til að sjá tækið með eigin augum
og spjallaði við Hörpu Barkar,
annan eiganda stofunnar. Harpa
Harpa þræðir hár af blaðamanni í tækið og skömmu síðar kom dómurinn: fingert, þurrt og prótínlítið hár sem
þarfnast prótínuppbyggjandi sjampós og næringar. Sýnishornið var svo að segja dæmigert fyrir íslenskt hár sem
Harpa segir almennt vera þurrt, fíngert og iíða fyrir prótínskort.
Hárgreiningartækið
segist hafa verið nokkuð efins um nota-
gildi hárgreinitækisins í upphafi en eftir
að hafa prófað hár úr sér og samstarfs-
fólki nokkrum sinnum og ávallt fengið
samróma niðurstöður sannfærðist hún
um að hægt væri að fara eftir niðurstöð-
um hárgreinisins.
íslenskt hár:
fínt, þurrt og prótínskert
Fyrst er hárið lagt í tækið, hárgreinirinn
spyr hvort hárið sé evrópskt, afrískt eða
asískt og innan fárra mfnúta prentast út
seðill með upplýsingum um hárgerð,
hvaða sjampó og næring henti hárinu
best. Þá getur starfsfólk einnig fengið
upplýsingar um hvaða blöndu af
djúpnæringu sé best fyrir þessa tilteknu
hártegund. „Þetta hefur skilað rosalega
góðum árangri," segir Harpa. „Kúnni
kemur inn með hárlos eða getur ekki
notað næringu því hárið verður svo
klesst. Svo greinir maður hárið, finnur
sjampó og næringu samkvæmt því sem
tækið segir og þegar kúnninn kemur aft-
ur eftir 3-4 vikur þá dásamar hann tæk-
ið í hvívetna." Yfirleitt taka starfsmenn
þá aftur sýni af hárinu og setja í vélina til
að kanna hvort meðhöndlunin hefur
virkað. „Það gerir það undantekninga-
Iaust. En hárið lagast ekki á 3-4 vikum
því þú heldur áfram að brjóta það niður
með því að lita það og fara í perma-
nett...“
Það er ýmislegt sem getur amað að
hári, fólk getur verið að nota ranga hár-
næringu sem klessir hárið, mikið hárlos
getur stafað af prótínskorti en hið dæmi-
gerða íslenska hár er fingert, þurrt og
skortir prótín. „Það er algengast að út-
koman sé prótínskortur,“ segir Harpa og
telur marga þætti valda því af hverju ís-
lenskt hár sé svo snautt af prótfni. „Allir
Islendingar eru meira eða minna með
litað hár. Liturinn skemmir hárið, brýtur
niður rakann í hárinu og prótínið. Is-
lendingar eru svo virkir í því að hafa hár-
ið á sér fínt og öll meðhöndlun skemmir
hárið," segir Harpa en bætir því við að
hárblástur og jafnvel rokið geti þurrkað
hárið. Því þurfi flestir vörur sem byggja
upp hárið til mótvægis við kemfsku efn-
in (sem við notum til að gera það fínna
en brjóta hárið niður). Hár sem teljast
má í eðlilegu ástandi fyrirfinnst varla,
segir Harpa, en dýrar hársnyrtivörur eru
að sjálfsögðu ekki eina leiðin til að lxfga
upp á hálfskemmt hár, hárlos stafar
meðal annars af vítamínsskorti og með
því að borða prótínríkara fæði er minni
hætta á prótínskorti í hárinu.
- LÓA
Beinþynning hjá táningum
Hingað til hafa menn einkum tengt bein-
þynningu við eldri konur en Laura Bran-
bach, prófessor við Stanford háskóla,
heldur því fram að hugsa þurfi um for-
varnir gegn beinþynningu allt frá fæð-
ingu. „Megnið af beinmassanum verður
til milli tvítugs og þrítugs og það mun
þjóna sem beinmassabanki þinn það sem
eftir er ævinnar." Einn áhættuhópurinn
eru unglingsstúlkur sem stunda of stífa
líkamsþjálfun. Stífar æfingar valda Iægri
estrógen framleiðslu en estrógen er mik-
ilvægt til að viðhalda heilbrigði beina.
Unglingar sem
þjást af lystar-
stoli eru einnig í
áhættuhópi sem
og asmasjúk-
Iingar sem hafa
verið með-
höndlaðir með
sterum. Þó að
60-80% bein-
þynningartil-
fella mekja
rekja til arfbera
þá vill prófess-
or Bachrach beina athyglinni að þeim 20-
40% sem má rekja til lífernis. Hún mælir
með 12-1500 milligrömmum af kalki á
dag fyrir unglinga, sem jafngildir 4-5
mjólkurglösum, en ef unglingarnir borða
líka saltríka fæðu, sem dregur úr nota-
gildi kalksins í Iíkamanum, þá þarf enn
meiri kaikneyslu. Þess má geta að ýmsar
æfingar, svo sem þjálfun með Ióðum,
hlaup, ganga og Ieikfimi styrkja beinin en
þegar þjálfunin er orðin mjög stíf þá er
hætta á beinþynningu síðar á ævinni þvf
erfitt eða ómögulegt er að vinna upp tap-
aðan beinmassa.
Sjálfshjálp vegna
fyrirtíðarspennu
Talið er að um 50% kvenna finni fyrir
einkennum fyrirtíðarspennu á hverjum
tíðahring, iðulega 7-10 dögum fyrir blæð-
ingar. Meðal einkenna eru þrútin brjóst,
þreyta, niðurgangur eða hægðatregða
auk ýmislegra andlegra sveiflna. Konur
geta þó ýmislegt gert til að draga úr ein-
kennunum með því að:
- draga úr neyslu á koffíni, sykri, salti,
áfengi og mjólkurvörum í 1-2 vikur
áður en blæðingar heíjast
- borða oft en lítið í einu, t.d. 6 sinnum
á dag, helst fitusnauðan og trefjaríkan
mat
- taka B6 vítamín eða magnesíum
- hvíla sig vel, sofa nóg, fara í heit böð
og nota heita bakstra til að lina verki
í baki og vöðvum
Ohóflega stíf líkamsþjálfun
ung/ingsstú/kna getur
va/dið beinþynningu síðar
á ævinni.
Munngælustellingar
KYNLIF
Munnlega ástar-
leiki getur fólk
þróað og leikið
sér með enda-
laust. Munnmök
þurfa alls ekki að
vera bara tunga á
sníp, þvf það er
svo óendanlega
margt sem hægt
er að gera til-
raunir með. Lít-
um hér á nokkrar
stellingar til munnlegra ástar-
Ieikja:
Á rúminu:
Konan liggur með fætur vel í
sundur hangandi ffam af rúmgafl-
inum, munngælirfnn krýpur við
rúmstokkinn og hefur glæsilegt
útsýni og aðgang að kimunum
innstu. Hér er kjörið tækifæri til
að teygja sig í titrarann í nátt-
borðsskúffunni, eða að galdra
fram Qöður til kynörvandi innan-
lærakitlinga.
Klassík:
Konan liggur með fætur sundur,
bogin hné, iljar í gólfi/á rúmi og
hæla sem næst rassi. Munngælir
liggur á kvið sínum milli fóta
hennar og krækir handleggjum
þéttingsfast um sitt hvort lærið
þannig að hendur hans koma nið-
ur hjá nára. Gefandi getur hér
gælt við nárasvæði eða innanverð
læri og einnig notað fingur í
skauti til að auka unaðinn eða
hvíla tungu sína.
Krjúpandi:
Hér liggur gælirinn á bakinu og
konan kiýpur með hné sín sitt
hvoru megin við höfuð hans og
snýr höfði sínu að hans. Hún get-
ur annað hvort hallað sér aftur á
bak og stutt Iófum á læri elskhuga
síns eða á undirlagið, eða farið á
fjóra fætur og lækkað skaut sitt
þannig að gefandi munni elskhug-
ans.
Standandi:
Konan stendur og hallar sér að
vegg, hefur fætur sina gleiða og
ýtir mjöðmum fram. Elskhuginn
krýpur milli fóta hennar og veitir
skautinu unað með munni, tungu,
tönnum og fingrum. Ef konan fær
fullnægingu í þessari stöðu má allt
Pör sem eiga annríkt og eru farín að
láta ástarlífið sitja á hakanum vegna
barnauppeldis, atvinnu og veiðitúra
ættu að taka frá a.m.k. einn dag í
mánuði til llkamlegra nautna.
eins búast við því að fætur hennar
verði sem bráðið smérlfki og skyldi
gefandinn vera undir það búinn.
Sextíuogníu:
Elskendur liggja með höfuð að
kynfærum hvers/hvors/hverrar
annars/annarrar, annar á baki og
hinn ofaná eða báðir/bæði á hlið.
Hér er hægt að veita tvíhliða
munngælur en þó má um það
deila hversu auðvelt er að einbeita
sér að því að gefa þegar maður er
samtímis þiggjandi.
Fanginn:
Konan liggur á baki og setur fót-
leggi sína yfir bak og axlir elskhuga
síns. Þannig verður hann fangi
hennar og hún getur nú þrýst hon-
um að skauti sínu að vild.
Ein uppskríft:
Sendið bömin í húsdýragarðinn,
leggið bílnum í næstu götu og setj-
ið talhólfið í gang. Gerið andrúms-
loftið í íbúðinni örvandi og safa-
ríkt, prófíð reykelsi, kertaljós og
tónlist (t.d. Barry White eða
Portishead, fer eftir fæðingarári).
Finnið góðan stað þar sem hægt er
að búa til hið fulíkomna kynfleti
með nóg af púðum og sængum og
lökum, já og notið endilega
aukalök sem þola dálitla olíu og
ástasafa. Konan leggst nú á fletið
og finnur sé stellingu þar sem
púðar styðja vel við líkama hennar
þannig að staðan sé algjörlega
áreynslulaus. Elskhuginn hefur
Ieikinn með líkamsnuddi og notar
til þess góða olíu (munið að olía
má ekki komast í snertingu við
smokka, þá kemur gat og kannski
Iítið bam í magann). Hann bytjar
á því að einbeita sér að öllu öðm
en kynfæmm hennar en má þó
nota annað en hendur til að
nudda með, s.s. lim, tungu og fæt-
ur. Smám saman færist nuddið
nær ólgandi miðbiki ástkonunnar.
Að liggja nakin á þægilegum stað
með umhyggjusömum elskhuga
getur ekki verið annað en
sprengiörvandi fyrir hverja þá
konu sem Iíður vel í líkama sínum
og ber traust til elskhuga síns. Til
að auka enn á örvunina getur elsk-
huginn lýst því í orðum hvemig
áhrif líkami ástkonunnar hefur á
hann, hvað hann er að gera og
hvað hann ætlar að gera seinna í
leiknum. Svona munaðamudd er
tilvalið upphaf að óralöngum og
sjóðheitum ástardegi og auðvitað
er hægt að skipta um hlutverk af
og til.
Björgunaraðgerð
Pör sem eiga annríkt og eru farin
að láta ástarlífíð sitja á hakanum
vegna bamauppeldis, atvinnu og
veiðitúra ættu að taka frá a.m.k.
einn dag í mánuði til líkamlegra
nautna. Þannig er hægt að nálgast
hvort annað, bíása í glæður og losa
um sambandspirring með einkar
þægilegum hætti
Ragnheiður Eiríksdóttir er
hjúkrunarfræðingur