Dagur - 07.08.1999, Síða 15
t^wr
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 - 31 1 jc n n gtII 1
L. 1! F li/ U/ O I 1 IL L
Neóngrænt og
hvítt helst í tísku
Það sem einkennir ís-
lenska veðráttu er að
skjótt skipast veður í
lofti. Þegar pakkað er
niður í ferðalagið þarf að
huga að því að taka með
sér fatnað sem hæfir öll-
um mögulegum aðstæð-
um sem upp kunna að
koma.
Það er landlægt hérlendis að spá í
veðrið. Það hefur verið sagt um
veðrið á Islandi að það sé með
öllu óútreiknanlegt. Með
haustinu er von á hinum árstíða-
bundnu hellidembum þegar
haustlægðirnar læðast yfir Iandið.
Þessa daganna er fólk í sumar-
fríum, þeir sem ekki eru farnir í
ferðalag eru á leiðinni. Ekki er
óvitlaust að láta regnfatnað ofan í
töskur áður en lagt er af stað.
Bleytan er einmitt versti óvinur
manns á ferðum um Iandið. Hún
gerir það að verkum að mönnum
kólnar hraðar, líður verr auk þess
sem ýmis heilsuvandamál geta
gert vart við sig.
Margir fara í gönguferðir um
landið. Það er algjör nauðsyn fyr-
ir þá að vera í góðum galla. Það
er jafn nausynlegt fyrir þá sem
verða í bænum yfir helgina að
eiga góða vatnshelda flík að fara í.
Mikið úrval er af regnfatnaði allt frá
hefðbundnum regngalla uppí flíkur úr
öndunarefni. mynd: hilli
Þunnir sjógallar vinsælir
Hægt er að fá regngalla af hinum
ýmsu stærðum og gerðum allt frá
einnota regnslám uppí vatnsþétta
útivistagalla úr öndunarefnum. I
þessum fatnaði sem öðrum eru
ákveðnir tískustraumar. Hægt er
að fá galla sem geta bæði verið
fallegir en koma um leið að not-
um sem vöm gegn vatni og vind-
um. Verslunarstjóri í þekktri úti-
Peir gallar sem mest seljast í dag líta út eins og hefðbundinn sjófatnaður en eru
framleiddir úr léttara efni.“ mynd: hilli.
vistarbúð í Reykjavík sagði að
núna væru helst anorakkar og
svoleiðis „inn“ hjá unga fólkinu.
Sjóldæðagerðin framleiðir ýms-
ar gerðir af fatnaði undir vöru-
merkjum Max og 66°N. Þar á bæ
eru allt í boði frá sjógöllum og
Iöndunargöllum uppí fínasta önd-
unarfatnað. „Við erum að selja
þunna galla sem eru alveg eins og
hefðbundin sjófatnaður en bara
framleiddir úr léttara efni,“ sagði
verslunarstjórinn í verslun 66°N
við Skúlagötu.
Unga fólkið
vill vera áberandi
Særós og Maren, af-
greiðslustúlkur í sjó-
klæðagerðinni við Skúla-
götu, fóru um verslunar-
mannahelgina á Halló
Akureyri. Þær tóku með
sér hvíta regngalla til von-
ar og vara. Þær segja að
þessa dagana sé hvítt í
tísku en einnig sé algengt
að ungt fólk kaupi
neóngræna galla en
einnig eru apelsínurauðir
gallar alveg klassískir.
Unga fólkið vill vera
áberandi og þess vegna
kaupir það skæra liti.
Neóngrænt er líka örygg-
isliturínn, hann er sjálf-
lýsandi. Það eru til ýmsar
gerðir af göllum úr ýms-
um efnum. Það em til
smekkbuxur, mittisbuxur,
opnar úlpur og anorakkar. Bux-
umar em ýmist með rennilás á
skálmunum eða ekki. Rennilás-
inn getur verið hentugur fyrir fólk
sem þarf að smeygja sér úr bux-
unum með lítilli fyrirhöfn án þess
að fara úr skóm.
Gott að vera undir allt búin
Þó að köld rigningin geti oft verið
hressandi þegar hún skellur í
andlitið er það ekki gott fyrir
heilsuna að veslast upp í vosbúð
og rigna niður. Regngallar geta
verið mjög smart á votum sfðsum-
arsdegi eru þeir örugglega fatnað-
urinn til þess að klæðast áður en
farið er að spóka sig í bænum.
Nú er verslunnarmannahelgin
með sínum útihátíðum nýafstað-
in. Margir eiga sér minningar frá
slíkum hátíðum, þar sem allt í
einu gerði úrhellisskúr eftir allt
sólskinið. Það eru frægt atriði í
Stuðmannamyndinni „Með allt á
hreinu", þar sem fólk er á útihá-
tíð í rigningu klætt f svört
herðasjöl úr ruslapokum. Slíkur
fatnaður er einnota en gott er að
vera undir allt búin enda ólíklegt
annað en einhverstaðar rigni síð-
sumars á Islandi.
-PJESTA
Á Islandi er allra veðra von, því er ekki óvitlaust
að pakka niður regnfötum áður en lagt er afstað í
ferðalagið.
Ræktendur og sumarhúsafólk!
Handbók ræktenda
við sjávarsíðuna!
siaía1iki að
se'
fara*
Hæhtum
'c
■
v R*ktun yió
sjávarsiduna
I ritinu er m.a. fjallað um saltskemmdir, meindýr,
sjúkdóma í trjágróðri, gíldi áburðar við trjárækt,
harðgerði plantna, reynslu ræktenda og fleira.
Plöntulisti sem sýnir flokkun trjágróðurs við sjávarsfðuna.
ItLéáá
ifiwii
"--***«
Sumarhús 09
Timaritið Sumarhúsið
er komið út, stútfullt
af skemmtilegu efni,
m.a.heimsókn hjá
Ólafi Erni Haraldssyni
alþingismanni í sumarhús
hans á Laugarvatni og
Ingvari Helgasyni í sveitasetur
hans á Snæfellsnesi.
, w
Rit og rækt ehf er ungt útgáfufyrirtæki
sem leggur metnað sinn íþað að veita
lesendum sínum gagnlegt, spennandi
og fræðandi lesefni.
RIT & RÆKT ekf
Háliolti 14 • Po.box 89
270 Mosfellsbæ
Sími: 58 68 003
Þessi tvö blöð fá.st á næsta blaðsölustaó, eóa hjá útgefanda og kosta hr/ort um sig aðems kr. 690.
i-