Dagur - 07.08.1999, Qupperneq 17

Dagur - 07.08.1999, Qupperneq 17
Tfc^tir LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 - 33 LÍFIÐ í LANDINU Bandaríkjamaðurinn Nath- an Rutstein hélt fyrirlestra í Sumarskóla Bahaímanna í Svarfaðardal í vikunni. Hann er einn stofnenda samtakanna „Institute for Healing Racism" en mark- mið þeirra er að útrýma kynþáttahatrí og bæta samskipti ólíkrakynþátta. Nathan Rutstein var lengi sjón- varpsfréttamaður hjá fréttastofun- um NBC og ABC í Bandaríkjunum áður en hann snéri sér að samskipt- um kynþátta og þar að lútandi vandamálum. „Ég uppgötvaði hvemig kynþáttahatur blundaði í sjálfum mér og það skelfdi mig,“ segir Rutstein þegar hann er spurð- ur um aðdraganda þess að hann fór að sinna samskiptum kynþátta. „Ég var að flýta mér á bíl mínum eitt sinn og ökumaðurinn á undan mér ók alltof hægt, langt undir leyfileg- um hraða. Svo þegar ég sá að þetta var gamall blökkumaður skutust ósjálfrátt fram í huga minn hin niðrandi orð „frá með þig surtur" en ég hafði aldrei í lífinu notað slíkan munnsöfnuð. Mér brá og velti því fyrir mér hvaðan þetta kæmi. Ég skammaðist mín. Mér fannst rangt að hugsa á þennan hátt og hafði samt enga stjóm á þessum hugsun- um. Síðan varð ég mjög reiður við þennan mann sem ég þekkti ekki neitt, þá hatursfullur og að lokum hræddur. Ég taldi mér síðan trú um að atvikið hefði ekki skipt máli og endurspeglaði alls ekki persónuleika minn. Ég blekkti sjálfan mig til að halda að þetta kynþáttahatur mitt væri horfið fyrir fullt og allt. En það hélt áfram að malla í undirmeðvitundinni. Seinna, braust þetta hatur út aftur líkt og skrímsli en ég varð mjög flinkur í að ýta því til hliðar og afneita því. Loksins lenti ég í dramatískri reynslu í Chicago þar sem allir mínir kynþáttafordómar hreinlega heltóku mig. Ég vissi að ég var sjúkur og að ég þyrfti hjálp. Ég leitaði hjálpar í mörg ár án mikils árangurs, las bækur og talaði við fólk. Fólk reyndi að sannfæra mig um að það væri ekkert að mér enda var það sjálft í sömu afneitun. Kynþáttahatur hefur áhrif á alla Bandaríkjamenn vegna þess hve samofið það er sögu landsins og þjóðarvit- und“. Samtök stofnuð Árið 1989 stofnaði Nathan Rutstein ásamt fleirum samtökin „Institute for Healing Racism" í kjölfarið á bók sem hann skrifaði og hafði vakið sterk viðbrögð lærðra og leikra. „I samtökunum er gengið út frá því að kynþáttahatur sé sjúkdómur, sálfræðilegur, tilfinningalegur og trúarlegur. Hjá hvíta fólkinu kemur hann fram í nokkurs konar þráhyggju/áráttu eða þeirri tilfinningu að það sé hafið yfir aðra kynþætti. Þetta á ræt- ur sínar að rekja til fyrstu stjómmálaleið- toganna og trúarleiðtoganna sem komu þessu inn hjá fólki. Á hinn bóginn hefur litaða fólkið verið skilyrt til að líða eins og annars flokks jafnvel þátt það sýni það ekki útávið. Undir reiði þess er oft ótti, óöryggi og sjálfshatur sem stafar af því að fólkið hefur tekið kynþáttahatrið inn á sig. Ef ekki er tekist á við þessa líðan getur hún valdið líkamlegum einkennum eins og háum blóðþrýstingi, hjartasjúkdómum, nýmasjúkdómum. Rannsóknir hafa sýnt að svartir Bandaríkjamenn upplifa stöðuga streitu við það að reyna sífellt að samlagast og verða svo ævinlega hafríað á firílegan hátt“. Að stöðva kynþáttahatur Rutstein segir að samtökin sem hafa á sín- um snærum 300 stofnanir, hafi tvö megin markmið og nokkrar leiðir eða skref til að ná þeim. „Fyrra markmiðið er að stöðva kynþátta- hatur í nánasta samfélagi en það er ekki hægt fyrr en maður hefur tekist á við eigið kynþáttahatur. Seinna markmiðið er að stuðla að einingu. Við notum 5 skref til að ná þessum markmiðum. Fyrsta skrefið er að skilja og tileinka sér lögmálið um ein- ingu alls mannkyns. Allir á plánetunni jörð eru skyldir hvetjir öðrum - samkvæmt nú- tímavísindum eru hvaða tvær manneskjur sem er að minnsta kosti „fimmtíumenning- ar“ að skyldleika og náttúrulega mun skyld- ari í anda. Annað skrefið er að læra og skilja hvemig kynþáttahatur hefur þróast í því landi sem maður býr. Þriðja skrefið er skilja sjúkdómsfræði kynþáttahaturs og hvemig það hefur áhrif á allt fólk. Okkur í samtökunum hefur tekist að fá nokkra læknakóla til að bjóða upp á námskeið í sjúkdómsfræði kynþáttahaturs í geðdeild- unum og lítum við á það sem áfangasigur. Fjórða skrefið er að taka þátt í málþingum þar sem fólk kemur saman í öruggu and- rúmslofti og lærir að hlusta með hjartanu fremur en huganum. Þar eru grímur felld- ar og fólk skoðar raunverulega líðan sína. Fimmta skrefið felst í að láta verkin tala í samfélaginu. Þegar grundvöllur samtak- anna er orðinn traustur, fer fólk að Ianga til að fara út í samfélagið og hafa áhrif í fyrirtækjum og stofnunum", segir Rutstein. Hann segir að stofnun samtakanna á hveij- um stað virki eins og neisti sem kveikir í fleirum. Rutstein nefríir bæinn Grand Rapids í Michigan fýlki sem dæmi um þetta. I þeim bæ stofnaði háttsettur maður hjá stóru fýr- irtæki stofnun fýrir samtökin og í dag er búið að setja á laggimar nefndir um sam- skipti kynþáttanna í nánast öllum skólum, fyrirtækjum og stofnunum bæjarins. Rut- stein segir að árangur samtakanna sé met- inn með sérstökum könnunum reglulega. Rutstein segir að augu þátttakenda í samtökunum opnist fýrir því hvemig kyn- þáttahatur hefur haft áhrif á líf þeirra. Hvítir sjá þráhyggjuna, aðrir sjá hvemig þeir hafa tekið kynþáttahatrið inn og gert að sjálfshatri. „Fólkinu er svo hjálpað að losna við eitur og sárindi og taka inn í stað- inn einlæga trú á einingu mannkynsins. Okkur finnst að ef að manneskja skilur að við erum öllum skyld, burtséð frá húðlit, búsetu og menningu, þá verða meiri líkindi til þess að við getum skilið, verndað og þótt vænt hvert um annað. Mikilvægast er að skilja að við eru öll meðlimir í sömu fjöl- skyldunni", segir Rutstein. ísland með augum Rutstein „Ég hef aðeins verið hér á landi í eina viku en innsæi mitt, sem ég hef lagt rækt við, og samtöl mín við fólk segja mér eitt og ann- að. Mér virðast Islendingar í grundvallar- atriðum vera heiðvirðir, duglegir og hrein- skilnir, en svolítið óafvitandi um ólíkar þjóðir í heiminum. Ég skynja að þjóðin hefur verið nokkuð einangruð en að nú sé Island að færast í hringiðu þjóðanna. Þið hafið til dæmis sérfræðinga í sjávarútvegs- málum sem fara til Affíku, Asíu og Suður- Ameríku og þeir kannski kynnast þar mök- um sínum, koma til baka og eignast böm af blönduðuð kynþáttum. Flóttamenn koma hingað frá Kosovo, Albaníu, Víetnam og fleiri löndum. Sumu af þessu fólki hefur stundum liðið ónotalega héma. Það hefur upplifað einhvers konar höfríun. Þetta ástand á eftir að verða algengara vegna þess að fólk á eftir að vilja koma hingað í fegurðina og velmegunina. Og þá verða Is- lendingar að muna að þetta fólk er Guðs böm eins og þeir sjálfir. Bahaiíar hér á Is- landi trúa þessu virkilega og í sumarskóla þeirra hér í Svarfaðardal voru Islendingar af mjög þölbreyttum uppruna. Fólkið talaði íslensku og var stolt af landinu. Þetta fólk sýndi svo milda sátt og samlyndi að mér lá við að gráta og ég vildi að aðrir Islendingar hefðu geta orðið vitni að þessu. Sumir þessara Bahaía hafa velt lýrir sér samskipt- um kynþáttanna á íslandi og vona þeir innilega að ástandið fari ekki í svipaðan farveg og verið hefur í Bandaríkjunum," segir Nathan Rutstein að lokum. - vep Nathan Rutstein. Kynþáttahatur hefur neikvæð áhrif, jafnt á fólk sem tilheyrir „æðri“ og „óæðri" kynþáttum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.