Dagur - 07.08.1999, Qupperneq 18

Dagur - 07.08.1999, Qupperneq 18
*<. < 07 T?\V;?\K r g\\C\CinQIVCN\\C<\ 34 - LAUGARDAGUR 7 ÁGÚST 1999 Magniís Geir Guðmundsson skrifar Afbragðsgrípur Eitt af því sem gerir hinn stóra poppheim nokkuð skrýtinn, er að stundum virðast hinar ýmsu stjörnur hans þurfa að ganga í gegnum hinar verstu þrenging- ar til að skapa svo hin bestu verk. A annan hátt má orða þetta þannig eins og stundum með hið daglega líf einstak- lingsins, að til að geta náð því besta fram þurfi viðkomandi að fara sem lengst niður þannig að risið verði þeim mun meira. I sálarfræðum er slík meðferð víst til, sjúklingurinn fyrst brot- inn niður, en svo byggður upp til að hann nái að sögn sem bestum bata. Slíkt hefur reynd- ar þótt í meira lagi umdeilt og meðferð á þann hátt bara orðið í mörgum tilfellum til þess að gera illt verra. Nú, hvað sem því líður, þá er víst óhætt að segja að ekki hafi blásið byr- lega síðustu árin hjá írsku rokksveitinni Cranberries. Vandræði söngkonunnar Dolor- es O’riordan, m.a. vegna lyst- arstols, rötuðu oft á síð- ur slúðurblaða og innan sveitarinnar sjálfrar var ástandið um tíma vægast sagt ekki gott. En með samstilltu átaki náðu meðlimirnir áfram að stilla saman strengi og ákveðið var að taka upp nýja plötu, sem svo kom út nú fyrr í sumar undir nafninu „Burry the hatchet," táknrænt heiti þar sem „Stríðsöxin er grafin", að sögn ekki síst þeirra sjálfra á millum. Og eftir allar þessar hremmingar virðist ofan- greind kenning heldur betur ætla að eiga vel við um þessa plötu, sem vægast sagt er afbragðs- gripur. Á henni samein- ast eiginlega allt það besta í fari sveitarinnar, einföld og grípandi popp- og rokklög þar sem áhrif þjóðlagaandans njóta sín Cranberries. Sjaldan eða aldrei betri. sem aldrei fyrr í bland við kraftmikla rokktakta. Kassagít- arinn leikur stórt hlutverk í til- tölulega einföldum útsetning- um plötunnar og er sérlega áhrifaríkur í einfaldleika sín- um. Þrettán lög, nánast hvert öðru betra, gera þessa plötu eina af þeim allrabestu það sem af er árinu og er án efa sú allrasterkasta af þeim fjórum sem Cranberries hafa sent frá sér til þessa. Koma litla Stórstirnisins „Það er bara svona,“ varð um- sjónarmanni að orði líkt og sjálfsagt fleirum þegar hann fregnaði um nýliðna verslunar- mannahelgi, að sjálfur Mick Jagger, söngvari Rolling Stones hefði mjög svo óvænt brugðið sér hingað til lands í heimsókn. Eftir allt sem á undan var gengið síðasta árið eða svo með fyrirhugaðri komu Jagger og fé- laga hingað til lands var ekki nema von að rekin væru upp stór augu og minnkaði ekki undrunin þegar sást hverning ferð hans um landið var svo háttað, hjólreiðaferð með meiru um Vestfirði. Ofan á allt þetta var svo í meira lagi fróð- legt að fylgjast með þeim við- brögðum sem koma Jaggers vakti og þá sérstaklega hjá ýms- um fjölmiðlamönnum. Eins og allir sáu og/eða vita var það hinn geðþekki fréttaritari RÚV á Vestfjörðum, Finnbogi Her- mannsson, sem var svo hepp- inn að ná í skottið á goðinu í viðtal og var því fljótlega út- varpað á Rás 2. I kjölfarið komu svo sjónvarpsstöðvarnar með smáspjall rétt í þann mund sem kappinn hélt áfram sinni ferð á hjólhelstinum. Við- staddir voru í sjöunda himni væntanlega og þá ekki hvað síst sýslumaðurinn á staðnum, Ólafur Helgi Kjartansson, sem dáir og dýrkar „litla stórstirnið" og hans félaga meira en flestir aðrir hérlendis. Atti hann víst frekar á dauða sínum von en að hitta goðið þarna í heimabæn- um af öllum stöðum. Eftirleik- inn þekkja menn svo og ekki ástæða til að reifa hann mikið frekar og var þetta í allri sinni „dýrð“ hið skemmtilegasta að fylgjast með. Það er hins vegar annað sem rétt er að staldra meira við varðandi heimsókn Jaggers, eða nánar tiltekið við- talið fræga sem Finnbogi átti við hann og ýmsir urðu til að öfundast yfir leynt og Ijóst á öðrum fjölmiðlum yfir helgina. Hverju á að trúa? Eins og fólk man væntanlega vel ennþá voru tónleikarnir með Stones boðaðir í tvígang, fyrst síðla sl. sumars og svo aft- ur nú í sumar, en ekkert varð af. Skýringin sem gefin var í seinna skiptið var að ekki var hægt að halda tónleikana á þeim degi sem sagt var að for- ráðamenn sveitarinnar buðu upp á. Málin voru semsagt komin svo langt að sögn, að tónleikarnir væru nánast ákveðnir nema að vegna dag- setningar sem ekki var hægt að breyta, varð að hætta við allt saman. Ymsir, og þ.á.m. ritari Poppsíðu Dags, hafa frá fyrstu tíð haft vissar efasemdir um þetta tónleikahald og bentu á ýmis atriði sem ryðja þyrfti úr vegi áður en til gæti komið, sem og að auðveldara væri um að tala en í að kommast hvað varðaði þetta mikla verkefni að koma Stones hngað til lands. Ýmsar stórar yfirlýsingar sem féllu varðandi tónleikahaldið og síðan ofangreindar skýringar komu því hinum sömu ekki á óvart, en jafnframt hefur þeim verið tekið með hæfilegum fyr- irvara. Og eftir að hafa heyrt viðtal Finnboga við Mick Jag- ger virðist það ekki hafa verið að ástæðulausu. Svar kappans við spurningu Finnboga um meinta tónleika hérlendis bendir til þess, að ekki hafi allt verið eins og sagt hefur verið. „Aldrei ákveðnir, aðeins á um- ræðustigi," er kjarninn í því sem fram kom hjá söngvaran- um. Verður þetta ekki misskil- ið, þó einhver hafi verið að reyna að túlka þetta öðruvísi. Aftur á móti er það svo spurn- ingin hver hafi nákæmlega rétt fyrir sér. Þær konur, fleiri en ein og fleiri en tvær, sem ná- lægt málinu hafa komið á einn eða annan hátt, kunna vissu- Iega að hafa skýrt frá eins og þær héldu að málin stæðu í viðræðum aðila hér og svo samninga/umboðsmanna sveit- arinnar og talið sig út frá því geta fyllyrt að hún kæmi. En eins og þar stendur, þá er eitt að tala við umboðsmenn og annað að tala við sveitarmenn sjálfa. Frá bæjarhóli Jaggers og félaga hefur því ákvörðunin um að koma og spila greinilega aldrei verið tekin þótt kannski einhverjir talsmenn hafi gefið það sterklega í skyn. Aðurnefnd- um talskonum og meintum tón- leikahöldurum er því kannski vorkun, en spurningin Iifir samt sem áður ennþá eða eins og seg- ir í vísunni góðu. Satt og Iogið, sitt er hvað/sönnu er best að trúa/en hvernig á að þekkja það/þegar flestir ljúga? Lætur undirritaður annars lesendum það eftir að sinni að draga sínar ályktanir af þessu, en lærdómur- inn sem draga má er hins vegar augljós. Að taka því með fyrir- vara þegar slík meint stóráform eru annars vegar í stað þess að rjúka upp til handa og fóta. Robbie Williams En hvað sem líður öllu þessu fári varðandi Jagger og Rolling Stones, þá er það víst meiningin að ungpopphetjan Robbie Willi- ams komi í stað Stones ef marka má fregnir. Tónleikar verða nú 17. þessa mánaðar í höfuðborg- inni. Sem fyrrum meðlimur í strákasöngflokknum Take That og nú í seinni tíð vinsæll á heimaslóðum í Bretlandi á eigin vegum er Robbie örugglega vel þeginn gestur og munu t.d. ýms- ar unglingsstúlkur án efa mæta á svæðið. Það er hins vegar rétt að benda á, að strákurinn er engin heismsstjarna og að t.d. Garbage sem kom hingað fyrr í sumar á FM afmælistónleikana er öllu vinsælli á þeim mæli- kvarða. Það gæti því brugðið til beggja vona með hans tónleika hvað aðsókn varðar og gera að- standendur tónleikana (sem eru að einhverju leyti þeir sömu og ætluðu að fá Stones hingað) sér væntanlega grein fyrir því.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.