Dagur - 20.08.1999, Blaðsíða 1
Fylgi bara hj artanu
„Ég var nú svolítið smeyk fyrst að vera alein í svona stórri borg og þorði varla út. Svo bara sjóast maður íþessu."
mynd: billi
Ingibjörg Stefánsdóttir,
leikkona og söngkona,
varáberandi í listalíf-
inu hérlendis jyrir
nokkrum árum þegar
hún lék meðal annars í
kvikmyndinni Veggfóðri
og söngfyrirísland í
Eurovision söngva-
keppninni. Núna erhún
nýkomin heimfrá
Bandaríkjunum og erað
fara að leika hjá Leikfé-
lagiAkureyrar í haust.
„Þetta er mjög skemmtilegt
stykki,“ segir Ingibjörg um leikrit-
ið Klukkustrengi eftir Jökul Jak-
obsson en hún mun taka þátt í
uppfærslu Leikfélags Akureyrar á
því í haust. „Þarna eru mjög snið-
ugir karakterar og leikritið býður
upp á ýmsa spennandi mögu-
leika,“ segir hún. Ingibjörg mun
leika hlutverk unglingsstúlku.
„Hún er svolítið týnd stelpugreyið,
eða „lost“ ef ég má sletta.“
Ingibjörg var nýkomin að utan
þegar henni bauðst óvænt þetta
hlutverk. „Daginn eftir að ég kom
heim hringdi Valgeir Skagfjörð
leikstjóri í mig og bauð mér að
leika þetta hlutverk með Leikfé-
Iagi Akureyrar. Ég ákvað strax að
ég þyrfti nú að skoða þetta aðeins
nánar. Maður fær nú ekkert svona
tilboð á hveijum degi í Bandaríkj-
unurn," segir Ingibjörg kankvís.
„Ég fann að löngunin til að leika
blossaði upp í mér. Svo líður mér
alltaf svo vel úti á landi og í nátt-
úrunni," segir Ingibjörg „Það tog-
ast alltaf á í mér að vera annað
hvort í stórborgum eins og New
York eða í dreifbýli nálægt dýrun-
um. - Ég bara hugsaði málið, fylg-
di hjartanu og sló til.“
Leiklist og vinna í New York
Ingibjörg fór til Bandaríkjanna í
nám árið 1995. „Ég byijaði á að
fara í Leiklistaskóla í New York og
var þar í þrjú ár. Þetta var alveg
yndislegur skóli sem heitir „Neigh-
borhood Playhouse, School of the
Theater". Þama átti ég góðan tíma
og kynntist mörgu skemmtilegu
fólki. Það er bara svo gaman að
vera í New York, þetta er svo
skemmtileg borg".
I New York tók skólinn upp all-
an tíma hjá Ingibjörgu til að byrja
með. „A þriðja árinu var ég svo
bæði að leika í skólanum og vinna
með. Átti ekki krónu og þurfti að
vinna eins og bijálæðingur. Var að
þjóna á veitingahúsum, í fatahengi
og fleira.“ Ingibjörg vann líka um
tíma við það að tala inn á kynning-
ar á tónlistarmyndböndum hjá
sjónvarpsstöðinni ABC. „Ég var
náttúrulega að reyna að gera þetta
vel og þurfti stundum að endur-
taka setningar trekk í trekk. Þetta
var gott tækifæri til að betrumbæ-
ta framburðinn og reyna að losna
við hreiminn." Ingibjörg segir það
hafa verið mjög erfitt að fá vinnu
yfirleitt. „Mitt vandamál var að ég
hafði ekki atvinnuleyfi. Ég hefði
Iíklega þurft að gifta mig eða eitt-
hvað til að bjarga því,“ segir hún
sposk.
Yoga í Los Angeles
I leiklistarskólanum í New York
var yogaiðkun fastur hluti af nám-
inu. Ingibjörgu líkaði það svo vel
að í fyrra fór hún til Los Angeles
að læra yoga sérstaldega.
„Það var alveg æðislegt að vera í
þessu yoga. Maður sat alls ekkert
á rassinum allan daginn að íhuga
heldur var þetta mjög góð líkamleg
hreyfíng.“ Ingibjörg hefur gaman
af allri hreyfingu. „Ég nýt þess að
hugsa vel um mig - á milli þess
sem ég dett í nammið. Ég dett
alltaf í nammiát þegar ég kem
heim. Við eigum svo gott nammi
héma að það er alveg hrikalegt,"
segir hún.
Yoganám Ingibjargar miðar að
því að hún verði á endanum yoga-
kennari. „Ég er reyndar ekki orðin
útlærður yogakennari ennþá en
má alveg fara að Ieiðbeina eitt-
hvað". Ingibjörg hefur sjálf verið
slæm í mjóbaki og segir að yoga-
iðkun hafi hjálpað sér mikið.
Eins og liiTiima
þegar ég kem heim
Þegar Ingibjörg er spurð hvað hún
kunni best að meta eftir dvöl sína
í Bandaríkjunum kemur í ljós hún
hefur öðlast dýrmæta Iífsreynslu.
„Maður þurfti að standa á eigin
fótum, koma sér áfram, eiga enga
peninga, borða súpur og hrísgrjón.
Ég kynntist alveg frábæru lista-
fólki sem mig langar að halda sam-
bandi við alla ævi og svo var bara
frábært að lifa þarna og hrærast.
Ég var nú svolítið smeyk fýrst að
vera alein í svona stórri borg og
þorði varla út. Svo bara sjóast
maður í þessu. Það er Iíka svo gott
að vera þarna innan um alls konar
fólk og geta verið hvernig sem
maður vill. Mér finnst ég alltaf
vera alveg svakaleg lumma þegar
ég kem heim, þarf alltaf að endur-
nýja fataskápinn."
Ingibjörg á bágt með að nefna
eitthvað neikvætt í sambandi við
dvöl sína ytra. „Ég á mjög auðvelt
með að laga mig að breyttum að-
stæðum og finnst það spennandi,
eins og til dæmis að koma hingað
til Akureyrar. Ég finn alltaf eitt-
hvert gott fólk í kringum mig og
það skiptir náttúrulega alltaf
miklu máli.“
Ingibjörg lítur björtum augum á
framtíðina. „Ég ætla síðan út aftur
og klára þetta yoganám og svo
bara taka því sem að höndum ber,“
segir hún.
- VEP
BOSCH
Bilavarahlutir
toidon|^
Bflavarahlutlr
SWftM
Bílaperur
pPBflnetalí
r Hillukerfl
Verkfærl, efnavara og rekstrarvörur Rafmagnsvörur
Verslun
Hjólategur
Hosuklemmur
Kúplingsbarkar og
og strekkjarar undirvagnsgormar.
Bensindælur Topa vökvafleygar
Bensínlok vigtabúnaður
Bensínslöngur Þurrkublöð
Álbarkar Rafmagnsvarahlutir
Kueikjuþræðip
Oliusiur
vinnuvélar
Vatnshosur
Tímareimar
Kveikjuhlutir
varahlutir
...í miklu únval
ÞJónustumiðstöð í hjarta borgarinnar
BRÆÐURNIR
Lógmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
BOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut