Dagur - 20.08.1999, Síða 7
Kaffisala í Kaldárseli
Sunnudaginn 22. ágúst verður útivistadagur í Kaldsárseli,
skammt frá Hafnarfirði en þar eru sumarbúðir KFUM og KFUK.
Klukkan 12 hefst gönguferð og klukkan 14 hefst samvera þar
sem brugðið verður á leik, sungnir Kaldárselssöngvar og flutt
hugleiðing. Eftir samveruna hefst kaffisala til styrktar Kaldárseli.
Þá geta þeir sem
vilja farið I hella-
ferð og gott er að
hafa vasaljós
með I þá ferð.
Allan daginn
verður boðið uþþ
á leiki fyrir börnin
við skálann og
undir kvöldið
verða grillaðar
þylsur.
Fiskurinn hjá Sveini
Þema sýningar á verkum
eftir Svein Björnsson sem
opnar á sunnudaginn í
Sjóminjasafni tslands í
Hafnarfirði er „fiskurinn í
list Sveins Björnssonar".
Sveinn hóf listferil sinn er
hann tók til við að mála
hafís á Halamiðunum árið
1949 en hann hafði þá ný-
lokið þrófi úr Stýrimanna-
skólanum og hugðist
verða sjómaður. Fimm
árum síðar náði listin yfir-
höndinni, hann fór í land
og opnaði sína fyrstu sýn-
ingu sama ár. Sýningin stendur til 15. okt.
Gallerý 101
Á laugardagskvöldið kl. 21 opnar
Hallgrímur Helgason sýningu sýna
„More tales of Grirn" í Gallerý 101,
Laugavegi 48b. Á sýningunni verða
sýnd 20 verk sem hvert um sig segir
sína sögu en myndirnar eru sjálfs-
myndir. Klukkan 22 mun íslenski
gjörningaklúbburinn athafna sig fyrir
utan sýningarsalinn.
■ HVflfl ER A SEYDI?
Sýningar í Nýlistasafninu
Sunnudaginn 22. ágúst er síðasti sýn-
ingardagur á teikningum Aslaugar
Thorlacius í Súmsalnum, tví- og þrí-
víðum verkum Kristveigar Halldórs-
dóttur í Bjarta- og svarta sal og mál-
verkum Oliver Comerford í neðri söl-
um Nýlistasafnsins, Vatnsstíg 3b í
Reykjavík.
Sýningarnar eru opnar alla helgina
frá kl. 14 - 18. Þeim lýkur sunnudag-
inn 22. ágúst. Laugardaginn 21.
Agúst á Menningarnótt Reykjavíkur
verður sýningin opin til kl. 23.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomn-
ir.
ÚTIVIST
Gönguferð, messa og
„stöðvarskoðun“ í Viðey
A morgun, laugardag, verður að venju
gönguferð um Viðey. Farið verður frá
kirkjunni kl. 14.15, haldið austur fyr-
ir gamla túngarðinn og meðfram hon-
um yfir á norðurströnd eyjarinnar.
Hún verður gengin vestur að Eiðis-
hólum, síðan yfir þá og Eiðið og yfir
að rústum Nautahúsanna, sem eru á
norðausturhorni Vestureyjarinnar. A
þessari leið er magt fróðlegt og frá-
sagnarvert. Ferðin tekur um tvo tíma.
A sunnudag kl. 14.00 messar sr.
Jakob Ag. Hjálmarsson í Viðeyjar-
kirkju með aðstoð Dómkórs og
dómorganista. Sérstök bátsferð fyrir
kirkjugesti verður kl. 13.30. Eftir
messu tekur Orlygur Hálfdánarson
þá með sér sem vilja skoða
Sundbakkan. Ljósmyndasýning er í
Viðeyjarskóla sem rekur sögur Stöðv-
arinnar á Sundbakkanum. Hún er
opin alla virka daga klukkan 13.30 til
16.10, en til 17.10 um helgar. Að-
gangur er ókeypis.
OG SVO HITT...
Golfmót Samfylkingarinnar
Golfmót Samfylkingarinnar verður
haldið fimmtudaginn 2. september
n.k. Spilað verður á Grafarholtsvelli í
Reykjavík og verður ræst út milli kl.
11.00-13.00. Leikfyrirkomulag er
punktakeppni með fullri forgjöf.
Samfylkingarmenn sem áhuga hafa á
að taka þátt hafi samband við ingvar
Sverrisson í síma 552-9244 eða 899-
7722.
Sumarferð Nessafnaðar
Árleg sumarferð Nessafnaðar verður far-
in n.k. sunnudag 22. ágúst. Farið verður
í Borgaríjörð. Guðsþjónusta og staðar-
skoðun í Reykholti. Síðdegiskaffi verður
drukkið í Munaðarnesi. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 12.00. Kirkjubíllinn gengur
um hverfið.
Þátttaka tilkynnist í síma 511-1560 kl.
10-12 til laugardags. Sr. Frank M. Fíall-
dórsson.
ELDRI BORGARAR
Asgarði, Glæsibæ
Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl.
10.00 til 13.00. Matur í hádeginu, Allir
velkomnir. Skaftafellssýslur, Kirkjubæj-
arklaustur 24. til 27. ágúst. f>eir sem
hafa skráð sig eru beðnir um að stað-
festa ferðina í dag. Norðurferð, Sauðár-
krókur 1.-2. september. Skrásetning og
miðaafhending á skrifstofu félagsins.
Upplýsingar í síma 588-2111.
LANPIÐ
TÓNLIST
Bjami Tryggva í Hrísey
Trúbadorinn Bjarni Tryggva heldur
Hvað er é seyöi?
Tónleikar, sýningar,
fyririestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfí eöa hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
norður yfir heiðar og spilar á Veitinga-
húsinu Brekku í Hrísey á laugardags-
kvöld.
SÝNINGAR
Minjasafnið á Akureyri
Minjasafnið á Akureyri verður opið
samkvæmt venju milli kl. 11 og 17
um helgina. Þar hafa verið settar upp
nýjar og glæsilegar sýningar sem eng-
inn ætti að láta framhjá sér fara.
Annars vegar er um að ræða sýning-
una Gersemar, fornir kirkjugripir úr
Eyjafirði í fórum Þjóðminjasafns Is-
lands og hins vegar sýninguna Eyja-
fjörður frá öndverðu þar sem saga
fjarðarins er rakin fram yfir siða-
skipti. Þess má geta að fyrrnefnda
sýningin stendur aðeins til áramóta.
Aðgangseyrir að Minjasafninu er 300
kr. en einnig er í boði sameiginlegur
aðgöngumiði að Minjasafninu og
Nonnahúsi fyrir 400 kr. Frítt er fyrir
börn að 16 ára aldri og ellilífeyris-
þcga.
Sibba í Deiglunni
Nú fer hver að verða síðastur að sjá
sýningu Sibbu (Sigurbjargar Jóhann-
esdóttur) í Deiglunni á Akureyri. Þar
sýnir hún olíumálverk, skúlptúr, kola-
og þurrpasteteikningar. Hún kallar
sýninguna „Auga aðkomumannsins“
og má sjá aðkomumanninn sem er
bara með eitt augav á sýningunni.
Þessi aðkomumaður túlkar hvað
hann sér á ferð sinni í gegnum bæ-
inn. A sýningunni eru rúmlega þrjá-
tíu verk. Henni lýkur sunnudaginn
22. ágúst.
OG SVO HITL..
Landsmót bagyrðinga
Hið árlega landsmót hagyrðinga verð-
ur haldið í ellefta sinn á Laugalandi í
Holtum Iaugardagskvöldið 21. ágúst
og hefst kl. 20. Þar verður ort, sung-
ið, kveðið, etið og dansað við harm-
onikuleik Aðalsteins Isfjörð. Heiðurs-
gestur kvöldsins verður Kristrún
Matthíasdóttir á Fossi, en veislustjóri
Guðmundur Stefánsson í Hraun-
gerði. Mótið hefst kvöldið áður, en
þá verður gestum m.a. kennt að
kvcða stemmur. Um hádegi á laugar-
dag verður lagt upp í ferð um Njálu-
slóðir með Sigurði dýralækni, Gunn-
ari organista og Ragnari Böðvarssyni.
Sérstök stökuefni verða: Eyjafjalla-
jökull og á Njáluslóð.
Allir ljóðelskir eru velkomnir, einnig
þeir sem ekki yrkja. Upplýsingar á
Laugalandi í síma 487-6543.
Að lesa í skóginn
og tálga í tré
Umhverfisfræðslusetrið að Alviðru
stendur fyrir námskeiði í tréskurði
dagana 20.-22. ágúst nk. ef næg þátt-
taka fæst. Leiðbeinandi á námskeið-
inu er Guðmundur Magnússon,
kennari og tréskurðarmaður. Lesið
verður í Ondverðarnesskóg og efni-
viður fundinn.
Námskeiðið hefst föstudaginn 20.
ágúst kl. 19 og stendur þá til kl. 22.
A laugardaginn hefst námskeiðið kl.
10 og stendur til kl. 18. Á sunnudag
verður byrjað kl. 10 og verið að til kl.
15. Þátttökugjald og létt fæði mám-
skeiðsdagana er kr. 6.500. Námskeið-
ið er ætlað 14 ára og eldri.
Skráning á námskeiðið er í síma 482-
1109 og 898-1738.
Alviðra umhverfisfræðslusetur við
Sogsbrú.
BOSCH
Dieselkepn ,
Vökvakern
Olíusíur
Dieselstillingar
Rafviöierðr
Rafstöðrar
Handverkfæri
i
i
i
i
i
i
A f r í k u f e r ð
^ Leitaðu eftir ávöxtun
sem hæfir draumum
þínum. Vertu áskrifandi
að verðbréfasjóðum
Kaupþings
KAUPÞING
Kaupþing hf. • Ármúla 15A • Reykjavík
sími 5151500 • fax 5151509 • www.kaupthing.is
r