Dagur - 21.10.1999, Side 1
Þeirhafa sama tónlist-
arsmekk og eiga sömu áhuga-
mál Og eiga saman mótor-
hjól, Gunnarog GesturEinar
hjóla á Kawasaki.
„Aldur er afstæður í mótorhjólamenn-
ingu og það er enginn of gamall til þess
að eignast hjól,“ segir Gunnar Sverris-
son, ljósmyndari Fróða á Akureyri. Nú í
sumar lét hann gamlan draum rætast og
keypti sér mótorhjól, en það gerði hann í
félagi við tengdaföður sinn, Gest Einar
Jónasson, útvarpsmann á Akureyri.
Gamall draumur Gests var einnig að
eignast hjól. „Alla stráka dreymir um að
eignast mótorhjól, mig dreymdi um
skellinöðru þegar ég var strákur en hætti
síðan við að kaupa hana þegar ég mátti.
En draumurinn bjó alltaf í brjóstinu,"
segir Gestur.
Skenuntilegt hippamórorhjól
Um tuttugu ár skilja þá Gunnar og Gest
að í aldri. Gunnar er tæplega þrítugur
og Gestur verður fimmtugur að ári. „Við
erum góðir vinir. Við höfum sama tón-
listarsmekkinn og þar er ég að tala um
lög einsog ég spila gjarnan í þættinum
Með grátt í vöngum og eigum einnig
sameiginleg áhugamál, einsog mótor-
hjól,“ segir Gestur. Þeir félagar fóru á
Iiðnu vori saman í mótorhjólapróf hjá
Kristni Erni Jónssyni, ökukennara á Ak-
ureyri, sem er æskuvinur Gests, og segir
Gestur að á námskeiðinu hafi hann ekki
einasta lært á mótorhjól, heldur hafi
hann einnig lært umferðarreglurnar
uppá nýtt. Og sé fyrir vikið Iíklega betri
bílstjóri en hann var.
Mótorhjólið sem þeir Gunnar og Gest-
ur keyptu sér er af gerðinni Kawasaki
Gunnar Sverrisson og Gestur Einar Jónsson, tengdafaðir hans, við mótothjólið góða. Þeir fé-
iagar eiga margt sameiginlegt, svo sem brennandi áhuga á mótorhjólum. „Aldur afstæður í
mótorhjólamenningu, “ segir Gunnar. mynd: sbs
454 og er með 450 rúmsentimetra mót-
or. „Þetta er skemmtilegt hippamórtor-
hjól, með háu stýri og maður situr beinn
í baki á því. Þetta finnast mér miklu
skemmtilegri hjól en keppnishjólin, sem
maður situr boginn á og er alltaf að
reyna að þenja sem hraðast. Þetta er
hæfilega kraftmikið hjól, en hver veit
nema að við fáum okkur seinna Harley
Davidsson," segir Gunnar.
Frelsið er mikið
„Mér finnst afar gaman að fara út að
hjóla," bætir Gunnar við, „enda eru að-
stæður til þess góðar hér fyrir norðan.
Skemmtilegast þótti mér hinsvegar að
hjóla þegar ég var með unnusju minni,
Höllu Báru, í Tosca-héruðum Italíu nú í
sumar. Þar leigðum við okkur hjól og fór-
um víða um, á stuttbuxunum í þrjátiu
stiga hita. Við þessar aðstæður skilur
maður svo vel hvað þetta er stórkostleg-
ur ferðamáti og frelsið mikið."
Gestur tekur undir orð Gunnars um
frelsið. „Eg er sjálfur einkaflugmaður og
mér finnst þetta að sumu leyti ekki
ósvipað. A mótorhjólinu getur maður
farið út fyrir alfaraleiðir og eins á flug-
vélinni. Maður hjólar eða flýgur þangað
sem maður ætlar sér.“
Kærkomtnn sumarauki
Blíðviðri hefur verið ríkjandi á Norður-
landi að undanförnu og það er mótor-
hjólamönnum sem og öðrum afar kær-
komið. Gunnar og Gestur hafa notað
þetta tækifæri og hafa víða hjólað, með-
al annars um götur Akureyrarbæjar og
suður um Eyjafjarðarsveit. „Það er ljúft
að geta leikið sér á mótorhjólinu nú
seinnipartinn í október. En síðan kemur
vetur, hjólið fer inn í skúr og verður ekki
tekið út aftur fyrr en í maí næsta vor. Eg
er strax farinn að hlakka til þess,“ segir
Gunnar Sverrisson.
-SBS.
FO-4500
• Prentar á A4 pappír
• Laserprentun
■ 1 mb í minni (ca 50 síöur)
• 50 blaða frumritamatari
• 650 blaða pappírsgeymsla
F-1500M
• Faxtaeki, sími, símsvari,
Windows prentari, skanni,
tölvufax.og Ijósriti (einu tæki
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Hitafilmu prentun
• Prentar á A4 pappír
• 20 blaða frumritamatari
• 300 blaða pappírsbakki
«£MLL!
■
FO-2600
• Innbyggður sími
• Prentar á A4 pappír
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Símsvara tengimöguleiki
• Laserprentun
• 512 kb minni
• 20 blaða frumritamatari
• 100 blaða pappírsbakki
FO-1460
• Innbyggður sími
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Símsvara tengimöguleiki
• Hitafilmu prentun
• Prentar á A4 pappír
• 20 blaða frumritamatari
• 200 blaöa pappirsbakki
Betri faxtæki eru
vandfundin!
BRÆÐURNIR
Lógmúla 8 • Sími 533 2800
Umboismenn u m land a 111
m bblu iluri iðrl óis int)útövmi>'>? >■: u mbbrl fióvtl ninn<! .<«) -Ji> uniT .mur/iihuðiil « ior! mw 6u nn»H .nquvbiii
id
qv (AmoA cg'jlblís'íii fj iijJotl