Dagur - 21.10.1999, Side 7

Dagur - 21.10.1999, Side 7
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 - 23 FOLKSINS Enn um Hrísey Pétur Bolli Jó- hannesson, sveitarstjóri í Hrísey, ritar grein í Degi 19. október um ráðningu ráð- gjafa fyrir sveit- arfélagið til að finna leiðir til úrlausnar á vanda Hríseyinga í atvinnumál- um. Atvinnuþróunarfélag Eyja- fjarðar (AFE) hefur ýmislegt við skrif Péturs Bolla að athuga þar sem honum verður tíðrætt um að- komu AFE að ráðningu ráð- gjafans og neikvæða afstöðu fé- Iagsins til ráðningar Haraldar L. Haraldssonar að verkefninu. Gangur málsins var þessi, Byggðastofnun setti sig í samband við AFE og óskaði eftir stöðumati á atvinnulífinu í Hrísey og á síðari stigum málsins að koma með til- lögur að lausnum á vanda Hrísey- inga. Var þeirri málaleitan vel tekið og lagði Atvinnuþróunarfé- lagið strax á það áhcrslu að rétt væri að fá sjálfstætt starfandi ráð- gjafa til að vinna hluta verksins, en félagið sjálft myndi vinna stöðumatið. Þetta eru staðreyndir málsins. Var AFE því í raun falið allt verk- efnið og vildi félagið fá hæfustu aðila til starfans og jafnframt láta Hríseyinga njóta bestu fáanlegrar ráðgjafar. Upphaf þessa misskilnings er röng túlkun Geirs Guðsteinsson- ar, blaðamanns á Degi, á svörum framkvæmdastjóra AFE við spurningunni um val Hríseyinga á Úr Hrísey. ráðgjafa, en þar hefur Geir eftir framkvæmdastjóra beina tilvitnun „Við erum ekki tilbúnir að sjá Harald Líndal í þessu verkefni," sem voru alls ekki orð fram- kvæmdastjórans. Var Geir og Pétri Bolla strax gerð munnlega grein fyrir þessari rangtúlkun blaðamannsins, og töldum við að þar með væri málið úr sögunni. Að mati starfsmanna AFE var sá ráðgjafi, sem félagið mælti með mjög hæfur einfaldlega vegna þekkingar hans á sjávarútvegi og víðtækrar reynslu hans í ráðgjafa- störfum víða um heim. Það er í samræmi við stefnu AFE að styðja við bakið á sjálf- stætt starfandi ráðgjöfum, því öll- um sem fylgjast með atvinnu- og byggðamálum er ljóst hve erfitt er að halda vel menntuðu og hæfu fóiki á landsbyggðinni ef ekki eru verkefni við hæfi. Það er umhugs- unarvert hve oft er leitað til sömu ráðgjafa þegar unnin eru verkefni fyrir opinberar stofnanir og að öllu jöfnu eru þeir staðsettir á höfuðborgarsvæðinu. Eru þeir einir hæfir til þessara starfa eða eiga þeir greiðari aðgang að verk- efnunum vegna nálægðarinnar við kjötkatlana? Að tilstuðlan Byggðastofnunar var val á ráðgjafa fyrir Hríseyinga sett í hendur heimamanna, þar sem stofnunin taldi það eðlilegra að þeir hefðu um það að segja hverjum verkefnið væri falið. AFE hafði ekkert við það að at- huga og vonar að val þeirra verði þeim farsælt og lausn finnist á at- vinnumálum þeirra. Eins viljum við leggja til að hætt verði að eyða tíma og prentsvertu í þennan lið málsins heldur verði lögð áhersla á úrvinnslu góðra Iausna fyrir Hríseyinga. AFE er eftir sem áður reiðubúið að koma að þeirri vinnu eins mikið og óskað er. Ragnheiður Sveinþórsdóttir í kynningarbás Stýrímannaskóians í Reykja- vík á íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi. - mynd: gg Eina konan í Stýri- mannaskólanum Ragnheiður Sveinþórsdóttir í Reykjavík er eina konan sem nú stundar nám við Stýri- mannaskólann í Reykjavík. A íslensku sjávarútvegssýning- unni í Kópavogi í byrjun sept- embermánaðar sl. var hún meðal þeirra nemenda skólans sem voru að kynna ágæti þess að stunda þar nám undir slag- orðinu „Siglið ánn í nýja öld með Stýrimannaskólanum í Reykjavík". Oflugur farskipa- lloti er þjóðinni lífsnauðsyn- Iegur til að fiytja sjávarafurðir og framleiðslu á markað og nauðsynjar heim. Fiskiskipa- flotinn, stjórn hans og rekstur, ásamt stjórn veiða og vinnslu er Ij'öregg íslensku þjóðarinnar. Markmið Stýrimannaskólans er m.a. að mennta fólk til skip- stjórnar, að þeir sem Ijúki námi við skólann verði sam- keppnisfærir á heimsmarkaði og að íslenski flotinn fái sem best menntaða skipstjórnar- menn. Ragnheiður Sveinþórsdóttir hyggst síðar fara í nám í sjáv- arútvegsfræðum. Þess má geta að hún sigldi með Bakkafossi á sfðasta sumri. — GG Véla - Pallaleiga Skógarhlíð 43, 601 Akureyri fyrir ofan Húsasmiðjuna Leigi út álvinnupalla. Henta vel við málningu og viðgerðir á litlum og stórum húsum. 461-1386 og 892-5576 AKUREYRARBÆR Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 25. október 1999 kl. 20-22 veröa bæjarfulltrúarnir Siguröur J. Sigurösson og Guðmundur Ómar Guömundsson til viötals á skrifstofu bæjarstjóra aö Geislagötu 9, 1. hæö. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 460 1000. Þetta vil ég sjá fimmtudaginn 21. október, kl. 20.30 Friðrik Þór Friðriksson velur verk eftir listamennina Hörð Ágústsson Sigurð Guðmundsson Kristján Guðmundsson Magnús Pálsson Steingrím Eyfjörð Bjarna Þórarinsson To 11 a Verið velkomin! e Menningarmiöstööin Gerðuberg 7. sýning föstud. 22.10. kl. 20:00. 8. sýning laugard. 23.10. kl. 20:00. 9. sýning föstud. 29.10. kl. 20:00. 10. sýning laugard. 30.10. kl. 16:00. 11. sýn. laugard. 30.10. kl. 20:00. Leikarar: Ari Matthíasson, Aðalsteinn Bergdal, Árni Pétur Reynisson, Ingibjörg Stefánsdóttir, María Pálsdóttir, Sigurður Karlsson og Sunna Borg. 'asanmm Miðapantnnir i simsvara 462-1400 alla daga Miðasala opin þri.-fim. kl. 13.00-17.00 fös.-lau. 14.00-20.00 ILEIKfCllC AKIIRfYBAPl Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-1 7:00 og fram að sýninqu, sýninqardaqa. Sími 462 1400. Kortasalan í fullum gangi!

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.