Dagur - 30.10.1999, Side 1

Dagur - 30.10.1999, Side 1
BLAÐ Verð ílausasölu 200 kr. 82. og 83. árgangur - 207. tölublað Orkuskortur hjá Laudsvirkjun Amiar ekki eftir spum. Gjaldskrá á ótryggri raforku hækkaði um 25-30%. Fælingaráhrif. SR- Mjöl keyrir á olíu. Slæmt ástand í vatns- húskap. Gjaldskrá á ótryggri raforku frá Landsvirkjun hækkaði um 25- 30% í byrjun síðasta mánaðar vegna skorts á umframorku. Þessi hækkun hefur síðan leitt til þess að ýmsir aðrir hafa orðið að hækka rafmagnsverð í sam- ræmi við þetta og m.a. hefur raf- magnsverð til skipa í Hafnar- fjarðarhöfn hækkað um 20%. Þá bendir allt til þess að SR-Mjöl verði að keyra obbann af sínum verksmiðjum með olíu á loðnu- vertíðinni vegna skorts á raf- magni frá Landsvirkjun, en verð á olíu hefur hækkað um 20% á síðustu misserum. Sömuleiðis er hætt við því að mjólkurbú og fjarvarmaveitur verði að notast við olíu í vetur. Fátt bendir til þess að breyting verði á þessari stöðu hjá Landsvirkjun á næst- unni. byggt í gjaldskrárkerfið við að- stæður sem þessar. Hinsvegar eykur þetta ekki tekjur Lands- virkjunar. Þorsteinn segir að með þessu sjái menn sér hag í því að fara yfir í sitt vara- afl. Hann bendir á að þeir sem kaupa ótryggt rafmagn frá Landsvirkjun gera það ekki öðruvísi en að þeir geti út- vegað sér raforku með olíukötlum, Ijósavélum eða á annan hátt þegar raforkuskortur sé. Hann segir að staðan í vatnsbú- skapnum í haust hefði verið verri en í fyrra. Þótt raf- orkuframleiðslan aukist hjá Hita- veitu Suðurnesja á næstunni og Sultartangavirkjun komist í gag- nið innan tíðar, þá mun það ekki breyta stöðunni hjá Landsvirk- jun vegna raforkusamninga og m.a. til stóriðju. Þá hefur raf- Engin um- framorka Þorsteinn Hilmars- son, upplýsingafull- trúi hjá Landsvirkj- un, segir að það séu þrjú verðþrep í gjaldskránni fyrir ótryggt rafmagn til viðskiptavina. A sama tíma og skerðingar á raf- orku byrjuðu í sl. mánuði til loðnu- verksmiðja og ann- arra stórnotenda ------ vegna slæmrar stöðu í vatnsbúskapnum var raf- magnsverðið hækkað um eitt verðþrep, eða 25-30%. Hann segir að hugsunin á bak við þetta sé að fæla notendur frá notkun á ótryggu rafmagni og sé því inn- Þorsteinn Hilmarsson segir að staðan í vatnsbúskapnum i haust hefði verið verri en í fyrra. orkunotkun aukist um 50% frá árinu 1996. Auk þess sé upp- sveiflan í samfélaginu nánast búin að eyða þeirri framleiðslu- getu sem átti að vera umfram í raforkunni. Af þeim sökum sé m.a. byrjað að byggja Vatnsfells- virkjun upp við Þórisvatn til að geta mætt sívaxandi raforkuþörf. Tugir milljóna Þórður Jónsson, rekstrarstjóri SR-Mjöls, segist búast við því að flestar verksmiðjur fyrirtækisins verði keyrðar með olfukötlum vegna skorts á rafmagni frá Landsvirkjun á loðnuvertíðinni. Hann segir að vegna raforku- skorts sé þegar byrjað að notast við olíukatlana og t.d. á Seyðis- firði sé ekkert rafmagn að fá. Hann býst við að þetta muni hafa í för með sér einhverja tugi milljóna króna í kostnað fyrir verksmiðjurnar, enda hefur verð á olíu hækkað umtalsvert á liðn- um misserum, eða um 20%. Auk þess sé það ekki umhverfisvænt að bræða loðnu með orku frá olíu. - GRH Vill lán hjá Byggðastomun Fiskverkun Sæunn- ar Axels í Ólafsfirði hefur sótt um 60 milljóna króna lán hjá Byggðastofnun, en einnig vill fyrir- tækið kanna hvort Byggðastofnun vill leggja fram áður- nefnda upphæð sem hlutafé. Hjá fyrirtækinu starfa allt að 50 manns sem í tvígang hafa fengið framlengda ráðningarsamninga eftir að ákveðið var að segja öllu starfsfólki upp störfum vegna hráefnisskorts, nú nýverið í þrjár vikur eða fram í miðjan nóvem- bermánuð. Forsvarsmenn fyrir- tækisins hafa mjög gagnrýnt að engu af 1 500 tonna byggðakvóta skyldi úthlutað til Ólafsfjarðar. Næsti stjórnarfundur Byggða- stofnunar hefur verið boðaður 6. nóvember nk. og má búast við að þá verði lánsumsókn Sæunn- ar Axels tekin lýrir. - GG Sæunn Axels. Talsvert snjóaði norðan heiða f gær. Krakkarnir í Brekkuskóla á Akureyri fögnuðu og skelltu sér í snjókast og ýmsa vetrarleiki, en bíistjórar á sumardekkjum bitu á jaxlinn og bölvuðu í hljóði. mynd: brink Hneisaað virkja án mats „Það er hneisa að leggja þetta ótrúlega landsvæði undir vatn án þess að fram fari á því fullkomið umhverfismat," segir Steingrím- ur Hermannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, í helgarvið- tali Dags. I viðtalinu ræðir Steingrímur um Framsóknarflokkinn og ríkis- stjórnina, Kyoto-bókunina og Evrópusambandið og um annað bindi ævisögu sinnar, sem kemur út fljótlega, og liggur ekki á skoð- unum sínum um menn og mál- efni. I næstu viku eru liðin hundr- að ár frá fæð- ingu Jóhannesar úr Kötlum. Af því tilefni er ít- arlega fjallað um manninn og skáldið í helgar- blaði Dags, meðal annars með viðtali Kolbrúnar Bergþórs- dóttur við son skáldsins. Þeir eru bræður og fréttamenn prestssynirnir Ólafur Sigurðsson og Gissur Sigurðsson, og segja lesendum helgarblaðsins frá sjálfum sér og starfinu. Helgarblaðið mun næstu vikur birta kafla úr nýjum bókum. Fyrst er brot úr nýrri sögulegri skáldsögu Björns Th. Björnsson- ar, Hlaðhamri, en hún byggir á þjóðsögunni um Árna frá Hlað- hamri, sem myrti tengdason sinn með því að stinga hann átján sinnum mað hnífi í kviðinn. Hver er pervert? Þannig spyr kynlífssérfræðingur Dags, Ragn- heiður Eiríksdóttir, í pistli sínum um þessa helgi. Svo er að sjálfsögðu fjölmargt annað kræsilegt efni í helgar- blaðinu - svo sem matargatið, veiðiþátturinn, bókahillan, bíórýnin, sönn dómsmál, kross- gáta og spurningakeppni og fleira og fleira. Gríða helgi!

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.