Dagur - 30.10.1999, Side 9

Dagur - 30.10.1999, Side 9
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 - 9 og foreldra þeirra. í einum grunnskólanna er mottóið: „Þeir sem kjósa að brjóta unnskóianemum í frímínútum. efni kennaranema og litið á þetta sem brýn símenntunarmál kenn- ara. Þótt furðulegt sé til þess að hugsa þá er nú í almennu kenn- aranámi aðeins gert ráð fyrir tyeggja til fjögurra tíma fyrirlestr- um um aga- og bekkjarstjórnun og er það valáfangi. Kennaranemar hafa sjálfir kvartað undan þessu og er ekki laust við að margir þeirra beinlínis óttist að fara að kenna á unglingasviðinu. Starfs- hópurinn leggur til að þetta náms- efni verði skylda og að innan þess verði gripið til sviðsetninga svo kennarar geti æft sig á aðstæðum sem kunna að koma upp. Sama gildir um kennslu um áhrif ýmissa sjúkdóma á hegðan nemenda. Lagt er til að menntamálaráðu- neytið gefi út leiðbeiningarrit fyrir foreldra og aðra um stjórnsýslu skólans og lausn ágreiningsmála. Starf umsjónarkennara verði eflt og sömuleiðis stoðkerfi skóla, meðal annars með aukinni sam- vinnu skólaþjónustunnar, heil- brigðisþjónustunnar og félags- þjónustunnar. Loks er lagt til að á vegum skólanefnda verði leitað leiða til að koma í veg fyrir ágreining og kærur með skipan sérstakrar óháðrar álitsgefandi nefndar, sem veitt geti leiðbeiningar um réttindi og skyldur og upplýsingar um stöðu aðila að álitaefnum og svo að efnt verði til lokaðs málþings hagsmunaaðila um skólareglur og stjórnsýslu skóla. „IJtrýma eineltis- og ofbeldismáliun“ Vinnan á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur (FR) skarast að tölu- verðu Ieyti við vinnu starfshóps- ins, en hjá FR er hins vegar ein- blínt á að koma skikki á gang mála þegar við mjög alvarleg agavanda- mál er að eiga. Þar er einnig fjall- að um aðkomu foreldra og and- mælaréttindi þeirra og hvert megi skjóta ákvörðunum til úrskurðar. Þessi vinna FR miðar ekki að því að herða refsiákvæði, heldur að bæta úr því að núverandi reglur eru óljósar. Lokaútgáfa tillagn- anna liggur ekki fyrir og er til um- sagnar hjá foreldraráðum og fleiri aðilum. Að lokum er fróðlegt að lesa hugleiðingar um agamál sem fram koma í áðurnefndum bæklingi Foldaskóla: „í Foldaskóla hafa agamál eðli- lega verið mörg - enda skólinn fjöl- mennur. A tíðum „venjast" menn tiltekinni framkomu tiltekinna nemenda. Allir, kennarar, foreldr- ar og nemendur, verða að vera á verði og sætta sig ekki við að nám í skólanum sé truflað, að nemend- ur séu ókurteisir - með hlaup, há- vaða eða aðra truflandi hegðun. Réttur hins stóra meirihluta sem stendur sig er að fá vinnufrið. Þá er það markmið okkar að útrýma eineltis- og ofbeldismálum í skól- anum.“ Hinir landsfrægu rónar, Bogi og Örvar, voru mættir með innkaupalista í „vínbúð “ Nýkaups í Kringlunni en gripu í tómt. Veigarnar voru girtar af með læstu nethliði. - mynd: teitur Víggirt „vmbúð“ í því skyni að koma af stað þjóð- félagsumræðu um áfengismál afhjúpaði Nýkaup „vfnbúð" í matvöruverslun sinni í Kringl- unni í gær. Vínbúðin er afgirt og gerð óaðgengileg með þéttu vír- neti í mótmælaskyni við þau lög sem banna smásölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum. „A sama tíma og smásala á léttum vínum, bjór og sterkum drykkjum er í höndum Afengis- og Tóbaksverslunar Ríkisins, sýna allar kannanir að meirihluti almennings er þeirrar skoðunar að leyfa skuli sölu Iéttvíns og bjórs í matvöruverslunum enda verði sú starfsemi háð ströngu eftirliti og skilyrðum. Nýkaup tekur undir þessa útbreiddu skoðun,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. I tengslum við afhjúpun vín- búðarinnar mun á næstu dögum fara fram atkvæðagreiðsla á Vísi.is auk þess sem hægt verður að greiða atkvæði fyrir framan vínbúðina sjálfa. Vílja úrskurð um lagaleg vafaatriði Fyrir aðalfundi Landverndar sem hefst í dag, laugardag, ligg- ur ályktunartilaga um Fljótsdals- virkjun, þar sem varað er við að menn rasi um ráð fram í fram- kvæmdum á svæðinu. Tillagan er um margt meira afgerandi en áður hefur komið fram hjá tals- mönnum samtakanna, eins og t.d. Jóni Helgasyni, formanni þeirra. I tillögunni segir m.a.: „Landvernd beinir því til Alþing- is að það beiti sér fyrir því að til- lögur um gerð Fljótsdalsvirkjun- ar verði metnar með sambæri- legum hætti og lög um mat á umhverfisáhrifum kveða á um.“ Jafnframt kemur fram í grein- argerð að Landvernd telur mjög varasamt að fara útí fram- kvæmdir fyrr en fengist hefur Jón Helgason, formaður Land- verndar. skorið úr um þann lögfræðilega vafa sem virðist uppi um virkjun- ina og vísar í kæru Náttúru- verndarsamtakanna til ESA. I greinargerðinni segir: „Land- vernd telur ákaflega mikilvægt að fyrirliggjandi virkjunaráform séu metin á grundvelli bestu fá- anlegu upplýsinga um náttúru- far og borin saman við aðra val- kosti í orkumálum til að draga úr líkunum á því að ráðist verði í framkvæmdir sem síðar verði flokkaðar sem óbætanlegt slys.“ Þá benda samtökin á að allir verði að gera sér ljóst að slíkt endurmat kunni að leiða í ljós að fyrirliggjandi virkjunaráform séu óskynsamleg Ieið til að afla orku fyrir stóriðju á Austurlandi. íslandsbanM í hagnaði Samkvæmt óendurskoðuðu árs- hlutauppgjöri nam hagnaður af rekstri Islandsbanka rúmum 1,1 milljarði króna eftir skatta; fyrstu níu mánuði þessa árs. A sama tíma í fyrra var hagnaður- inn 901 milljón króna og allt árið 1998 var 1,4 milljarða króna hagnaður af rekstrinum. Arðsemi eigin fjár var 25,4% fyrstu níu mánuði ársins. Hagn- aður fyrir skatta var 1,2 milljarð- ar samanborið við 985 milljónir á sama tímabili í fyrra. Samkvæmt tilkynningu frá bankanum hafa umsvif verið að aukast verulega. Bæði innlán og útlán jukust um 16,5% fyrstu níu mánuði ársins. í lok septem- ber nam heildarfjármagn bank- ans 128 milljörðum króna, sem er 21,5% hækkun frá sama tíma í fyrra. Lausafjárstaðan er sögð sterk en nýlega var samið um rúmlega 5,5 milljarða króna er- lenda lántöku, sem verður til ráðstöfunar fyrir áramót. Búnað arb ankinii slær met Rekstrarhagnaður Búnaðar- bankans fyrstu níu mánuði árs- ins var rúmur 1,1 milljarður króna fyrir skatta. Þetta er meiri hagnaður en allt síðasta ár, en þá var hagnaður bankans fyrir skatta 876 milljónir. Hagnaður fyrir skatta fyrstu níu mánuði sl. árs var 675 milljónir og er aukn- ingin því 489 milljónir eða 72% miðað við sama tíma í fyrra. Reiknaðir skattar á tímabilinu voru 313 milljónir og nam hagn- aður eftir skatta því 851 milljón. Raunarðsemi eigin Ijár fyrir skatta var 25,5%, en 18,5% að teknu tilliti til reiknaðs tekju- skatts. Rekstraráætlun gerði ráð fyrir að hagnaður bankans fyrir skatta væri um 1 milljarður eftir þriðja ársfjórðung og um 1,2 milljarðar fyrir árið í heild. Þessi rekstrarniðurstaða er því um 100 milljónum betri en áætlun bankans gerði ráð fýrir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.