Dagur - 30.10.1999, Side 11
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 199 9 - 11
Vwur-
ERLENDARFRÉTTIR
Kínverskir lögregluþjónar handtaka meðlimi í Falun Gong.
HEIMURINN
Hreinsuð af grun
DANMORK - Dorte Gramkov, sem grunuð var um að hafa myrt 22
gamalmenni á dvalarheimili aldraðra í Kaupmannahöfn fyrir tveimur
árum, hefur nú fengið uppreisn æru. Ríkislögmaður Kaupmanna-
hafnar og lögreglan í Kaupmannahöfn hafa fallið frá öllum ákærum
á hendur henni.
Gramkov, sem er fyrrverandi starfsmaður á dvalarheimilinu Pleje-
bo á Vesterbro í Kaupmannahöfn, hefur nú farið fram á skaðabætur
vegna málsins og krefst þess að henni verði greiddar 1,5 milljónir
danskra króna.
Fyrir tveimur árum, eða í október árið 1997, féll grunur á Gram-
kov um að hún hafi myrt 22 íbúa á dvalarheimilinu og vakti málið
gífurlega mikla athygli, bæði í Danmörku og víðar um lönd. Ekki er
lengur talinn neinn fótur fyrir þessum grunsemdum.
A hinn bóginn hefur kvenkyns Iæknir á sama elliheimili, sem áður
var talinn tengjast málinu, verið kærður fyrir manndráp af gáleysi.
Hún er talin bera sök á dauða þriggja kvenna og tveggja karla sem
bjuggu á Plejeþo.
Kínverj ar ætla að
uppræta Falun Gong
Tugir meðlima sértrú-
arsafnaðarins eru nú
handteknir í Peking á
hverjum degi.
Kínverska lögreglan hefur geng-
ið æ harðar fram gegn trúarsöfn-
uðinum Falun Gong, sem hefur
alla vikuna setið á Torgi hins
himneska friðar f Peking til að
mótmæla banni stjórnvalda.
Mótmælin hafa verið friðsamleg,
en samtökin eru bönnuð í Kína
og stjórnvöld virðast ákveðin í að
uppræta þau.
Sífellt bætast þó nýir meðlim-
ir samtakanna í hópinn á Torgi
hins himneska friðar og liggur
stöðugur straumur þeirra til
Peking.
Nú í vikunni settu kínversk
stjórnvöld af stað herferð gegn
samtökunum og hafa sagt að
uppræta eigi þau með öllu
snemma á næsta ári. Það á að
gerast í fimm áföngum, og er
fyrsta skrefið að gera kínverskum
almenningi ljóst að ekki aðeins
sé söfnuðinum bannað að starfa,
heldur sé hann „af hinu illa“. Þá
verða sett ný lög sem gera stjórn-
völdum ldeift að dæma bæði for-
svarsmenn og almenna meðlimi
safnaðarins, og reyndar annarra
sértrúarhópa, í lengri fangelsis-
dvöl en hingað til.
Bæði einkennisklæddir og
óeinkennisklæddir Iögreglu-
menn hafa handtekið meðíimi
samtakanna og í gær voru tugir
manna fluttir á brott frá Torgi
hins himneska friðar. Sumir
voru dregnir á hárinu eða bornir
um borð í lögreglubíla.
Mótmælendurnir, sem hand-
teknir hafa verið, koma víða að
frá Kína, en meðlimir samtak-
anna hafa streymt til Peking
undanfarið og ekki síst í þessari
viku til þess að taka þátt í mót-
mælaaðgerðunum. Hvetja þeir
kínversk stjórnvöld til þess að
sýna samtökunum umburðar-
Iyndi og hafa mótmælin farið
friðsamlega fram.
Þrír mánuðir eru síðan stjórn-
völd bönnuðu samtökin, en þau
höfðu fram að því notið mikilla
og vaxandi vinsælda í landinu.
Þúsundir meðlima hafa verið
handteknir síðan þá og talið er
að tugir hátt settra meðlima bíði
réttarhalda. Fyrstu réttarhöldin
eiga að heQast í næstu viku.
Samtökin hafa óspart reynt að
vekja athygli erlendra fjölmiðla á
því sem er að gerast undanfarna
daga, en fram til þessa hafa full-
trúar þeirra forðast öll samskipti
við fjölmiðla á Vesturlöndum.
Svo virðist sem kínversk
stjórnvöld óttist hinar mikiu vin-
sældir, sem Falun Gong hefur
notið í Kína. Ekki síst er það sá
leyndarbragur, sem jafnan hefur
verið á öllu skipulagi og starf-
semi samtakanna, sem vakið
hefur tortryggni kínverskra
stjórnvalda.
Vill ekki tímasetja kosningar
Musharraf hershöfð-
ingi í Pakistan er ekk-
ert að flýta sér að af-
henda öðrum völdin.
Pervez Musharraf hershöfðingi,
sem nú fer með völd í Pakistan,
hafnaði í gær þeirri málaleitan
sendinefndar frá Breska sam-
veldinu að sett verði ákveðin
tímamörk um það hvenær lýð-
ræði verði komið á að nýju í
Pakistan.
Hann sagðist þó ekki hafna því
af neinum „illum hvöturn", held-
ur vegna þess að hann hafi sett
sér ákveðin markmið og sé að
vinna að þeim. Aður en efnt
verði til kosninga þurfi að blása
lífi í efnahag landsins, hreinsa til
í spilltu stjórnkerfi og skapa það
andrúmsloft sem þarf til þess að
lýðræði geti þrifist.
Sendinefndin, sem kom til
Pakistans á fimmtudag, er undir
forystu utanríkisráðherra
Kanada. Hún hafði það verkefni
að þrýsta á um það að lýðræði
verði komið á sem fyrst að nýju
og boðað til kosninga.
Frá fundi sendinefndar Breska samveldisins með ráðamönnum í Pakistan
á fimmtudag.
Pakistan var vikið úr ráðgjafar-
nefndum Breska samveldisins
fljótlega eftir valdarán Mus-
harrafs, en endanleg ákvörðun
um það hvort Pakistan verður
vikið úr samveldinu verður tekin
á leiðtogafundi samveldisríkj-
anna sem fer fram 12. til 15.
nóvember í Suður-Afríku. Þar
verður m.a. tekið mið af skýrslu
sendinefndarinnar.
Herstjórn hefur verið við völd í
samtals 25 ár af þeim 52 árum,
sem liðin eru frá því Pakistan var
stofnað. Svo virðist sem almenn-
ingur í landinu sé nokkuð sáttur
við að hið verði á því að efnt
verði til kosninga.
Lokaviðræðiir tímasettar
ISRAEL - Israelsmenn og Palest-
ínumenn skýrðu frá því í gær að
efnislegar viðræður um endanleg-
an friðarsamning hefjist þann 7.
nóvember næstkomandi. Formlega
var þessum viðræðum hleypt af
stokkunum þann 13. september
síðastliðinn, þegar þess var minnst
með hátíðlegri athöfn að fimm ár
voru frá því Oslóarsamningurinn
milli Israels og Palestínumanna
var undirritaður. Engar efnislegar
viðræður hafa þó átt sér stað enn-
þá, en aðalsamningamenn beggja,
þeir Jasser Abed Rabbo fulltrúi
Palestínumanna og Oded Eran
fulltrúi Israelsmanna, hittust í gær
og ákváðu þá dagsetninguna. í
þessum viðræðum þurfa samn-
ingamenn að takast á við og finna varanlega lausn á sumum af erfið-
ustu deilumálum sínum, svo sem framtíðarlandamæri Palestínu,
stöðu Jerúsalemborgar, framtíð palestínskra flóttamanna og hvað
verður um svonefnd „landnámssvæði" gyðinga.
Ekkert samkomulag um uautakjötið
EVRÓPUSAMBANDIÐ - Ekkert samkomulag er í sjónmáli í deil-
unni um innfiutningsbann í Frakklandi á nautakjöti frá Bretlandi,
þrátt fyrir að sérfræðinganefnd Evrópusambandsins hafi fjallað ftar-
lega um málið í tvo daga. Þann 1. ágúst síðastliðinn var öllum aðild-
arríkjum Evrópusambandsins gert að afnema innflutningsbann á
bresku nautakjöti, sem sett var vegna ótta við sjúkdóminn Kreuzfeld-
Jacobs. Bæði Frakkland og Þýskaland hafa engu að síður ekki fellt
niður bannið, og vilja bíða niðurstöðu sérfræðinganefndarinnar.
Fjöldauppsaguir hjá Norsk Hydro
NOREGUR - Norska stórfyrirtæKÍð Norsk Hydro hefur ákveðið að
segja upp fjölda starfsmanna og verði 2.300 manns farnir frá fýrir-
tækinu í síðasta lagi í júlí á næsta ári. Ný yfirstjórn fyrirtækisins er
tekin við, en reyndar eru flestir í henni gamalreyndir starfsmenn fýr-
irtækisins. Þá hefur Norsk Hydro samþykkt breyttar áherslur í starl'i
með aukinn hagnað að markmiði. Aherslan verður á þremur starfs-
sviðum: olíu og orku, léttmálmum og landbúnaði.
Russar segjast „konrnir tH aö vera66
RÚSSLAND -
Rússar vörpuðu
enn sprengjum
á Grosní, höf-
uðborg Tétén-
íu, í gær og
sömuleiðis á
Gudermes, sem
er næst stærsta
borg landsins,
og nokkur
stærri þorp.
Strobe Talbott,
aðstoðarutan-
ríkisráðherra
Bandaríkjanna,
var staddur í
Moskvu í gær
og hvatti hann
Rússa til þess
að reyna frekar samningaleiðina hcldur en að beita hernaðaraðgerð-
um, sem kostað hafa fjöldann allan af óbreyttum borgurum lífið.
Ljóst er að Rússar hafa enga trú á samningaleiðinni og hafa hvað eft-
ir annað sagt að þeir muni halda ótrauðir áfram árásum þar til þeir
hafi brotið téténska hryðjuverkamenn endanlega á bak aftur. Igor
Sergejev, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði einnig síðast á
fimmtudag að Rússar séu „komnir til að vera“ í Téténíu.
I/iadimír Pútín forsætisráðherra og ígor Sergejev varn-
armálaráðherra Rússlands.
Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna.