Dagur - 30.10.1999, Side 11

Dagur - 30.10.1999, Side 11
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 199 9 - 11 Vwur- ERLENDARFRÉTTIR Kínverskir lögregluþjónar handtaka meðlimi í Falun Gong. HEIMURINN Hreinsuð af grun DANMORK - Dorte Gramkov, sem grunuð var um að hafa myrt 22 gamalmenni á dvalarheimili aldraðra í Kaupmannahöfn fyrir tveimur árum, hefur nú fengið uppreisn æru. Ríkislögmaður Kaupmanna- hafnar og lögreglan í Kaupmannahöfn hafa fallið frá öllum ákærum á hendur henni. Gramkov, sem er fyrrverandi starfsmaður á dvalarheimilinu Pleje- bo á Vesterbro í Kaupmannahöfn, hefur nú farið fram á skaðabætur vegna málsins og krefst þess að henni verði greiddar 1,5 milljónir danskra króna. Fyrir tveimur árum, eða í október árið 1997, féll grunur á Gram- kov um að hún hafi myrt 22 íbúa á dvalarheimilinu og vakti málið gífurlega mikla athygli, bæði í Danmörku og víðar um lönd. Ekki er lengur talinn neinn fótur fyrir þessum grunsemdum. A hinn bóginn hefur kvenkyns Iæknir á sama elliheimili, sem áður var talinn tengjast málinu, verið kærður fyrir manndráp af gáleysi. Hún er talin bera sök á dauða þriggja kvenna og tveggja karla sem bjuggu á Plejeþo. Kínverj ar ætla að uppræta Falun Gong Tugir meðlima sértrú- arsafnaðarins eru nú handteknir í Peking á hverjum degi. Kínverska lögreglan hefur geng- ið æ harðar fram gegn trúarsöfn- uðinum Falun Gong, sem hefur alla vikuna setið á Torgi hins himneska friðar f Peking til að mótmæla banni stjórnvalda. Mótmælin hafa verið friðsamleg, en samtökin eru bönnuð í Kína og stjórnvöld virðast ákveðin í að uppræta þau. Sífellt bætast þó nýir meðlim- ir samtakanna í hópinn á Torgi hins himneska friðar og liggur stöðugur straumur þeirra til Peking. Nú í vikunni settu kínversk stjórnvöld af stað herferð gegn samtökunum og hafa sagt að uppræta eigi þau með öllu snemma á næsta ári. Það á að gerast í fimm áföngum, og er fyrsta skrefið að gera kínverskum almenningi ljóst að ekki aðeins sé söfnuðinum bannað að starfa, heldur sé hann „af hinu illa“. Þá verða sett ný lög sem gera stjórn- völdum ldeift að dæma bæði for- svarsmenn og almenna meðlimi safnaðarins, og reyndar annarra sértrúarhópa, í lengri fangelsis- dvöl en hingað til. Bæði einkennisklæddir og óeinkennisklæddir Iögreglu- menn hafa handtekið meðíimi samtakanna og í gær voru tugir manna fluttir á brott frá Torgi hins himneska friðar. Sumir voru dregnir á hárinu eða bornir um borð í lögreglubíla. Mótmælendurnir, sem hand- teknir hafa verið, koma víða að frá Kína, en meðlimir samtak- anna hafa streymt til Peking undanfarið og ekki síst í þessari viku til þess að taka þátt í mót- mælaaðgerðunum. Hvetja þeir kínversk stjórnvöld til þess að sýna samtökunum umburðar- Iyndi og hafa mótmælin farið friðsamlega fram. Þrír mánuðir eru síðan stjórn- völd bönnuðu samtökin, en þau höfðu fram að því notið mikilla og vaxandi vinsælda í landinu. Þúsundir meðlima hafa verið handteknir síðan þá og talið er að tugir hátt settra meðlima bíði réttarhalda. Fyrstu réttarhöldin eiga að heQast í næstu viku. Samtökin hafa óspart reynt að vekja athygli erlendra fjölmiðla á því sem er að gerast undanfarna daga, en fram til þessa hafa full- trúar þeirra forðast öll samskipti við fjölmiðla á Vesturlöndum. Svo virðist sem kínversk stjórnvöld óttist hinar mikiu vin- sældir, sem Falun Gong hefur notið í Kína. Ekki síst er það sá leyndarbragur, sem jafnan hefur verið á öllu skipulagi og starf- semi samtakanna, sem vakið hefur tortryggni kínverskra stjórnvalda. Vill ekki tímasetja kosningar Musharraf hershöfð- ingi í Pakistan er ekk- ert að flýta sér að af- henda öðrum völdin. Pervez Musharraf hershöfðingi, sem nú fer með völd í Pakistan, hafnaði í gær þeirri málaleitan sendinefndar frá Breska sam- veldinu að sett verði ákveðin tímamörk um það hvenær lýð- ræði verði komið á að nýju í Pakistan. Hann sagðist þó ekki hafna því af neinum „illum hvöturn", held- ur vegna þess að hann hafi sett sér ákveðin markmið og sé að vinna að þeim. Aður en efnt verði til kosninga þurfi að blása lífi í efnahag landsins, hreinsa til í spilltu stjórnkerfi og skapa það andrúmsloft sem þarf til þess að lýðræði geti þrifist. Sendinefndin, sem kom til Pakistans á fimmtudag, er undir forystu utanríkisráðherra Kanada. Hún hafði það verkefni að þrýsta á um það að lýðræði verði komið á sem fyrst að nýju og boðað til kosninga. Frá fundi sendinefndar Breska samveldisins með ráðamönnum í Pakistan á fimmtudag. Pakistan var vikið úr ráðgjafar- nefndum Breska samveldisins fljótlega eftir valdarán Mus- harrafs, en endanleg ákvörðun um það hvort Pakistan verður vikið úr samveldinu verður tekin á leiðtogafundi samveldisríkj- anna sem fer fram 12. til 15. nóvember í Suður-Afríku. Þar verður m.a. tekið mið af skýrslu sendinefndarinnar. Herstjórn hefur verið við völd í samtals 25 ár af þeim 52 árum, sem liðin eru frá því Pakistan var stofnað. Svo virðist sem almenn- ingur í landinu sé nokkuð sáttur við að hið verði á því að efnt verði til kosninga. Lokaviðræðiir tímasettar ISRAEL - Israelsmenn og Palest- ínumenn skýrðu frá því í gær að efnislegar viðræður um endanleg- an friðarsamning hefjist þann 7. nóvember næstkomandi. Formlega var þessum viðræðum hleypt af stokkunum þann 13. september síðastliðinn, þegar þess var minnst með hátíðlegri athöfn að fimm ár voru frá því Oslóarsamningurinn milli Israels og Palestínumanna var undirritaður. Engar efnislegar viðræður hafa þó átt sér stað enn- þá, en aðalsamningamenn beggja, þeir Jasser Abed Rabbo fulltrúi Palestínumanna og Oded Eran fulltrúi Israelsmanna, hittust í gær og ákváðu þá dagsetninguna. í þessum viðræðum þurfa samn- ingamenn að takast á við og finna varanlega lausn á sumum af erfið- ustu deilumálum sínum, svo sem framtíðarlandamæri Palestínu, stöðu Jerúsalemborgar, framtíð palestínskra flóttamanna og hvað verður um svonefnd „landnámssvæði" gyðinga. Ekkert samkomulag um uautakjötið EVRÓPUSAMBANDIÐ - Ekkert samkomulag er í sjónmáli í deil- unni um innfiutningsbann í Frakklandi á nautakjöti frá Bretlandi, þrátt fyrir að sérfræðinganefnd Evrópusambandsins hafi fjallað ftar- lega um málið í tvo daga. Þann 1. ágúst síðastliðinn var öllum aðild- arríkjum Evrópusambandsins gert að afnema innflutningsbann á bresku nautakjöti, sem sett var vegna ótta við sjúkdóminn Kreuzfeld- Jacobs. Bæði Frakkland og Þýskaland hafa engu að síður ekki fellt niður bannið, og vilja bíða niðurstöðu sérfræðinganefndarinnar. Fjöldauppsaguir hjá Norsk Hydro NOREGUR - Norska stórfyrirtæKÍð Norsk Hydro hefur ákveðið að segja upp fjölda starfsmanna og verði 2.300 manns farnir frá fýrir- tækinu í síðasta lagi í júlí á næsta ári. Ný yfirstjórn fyrirtækisins er tekin við, en reyndar eru flestir í henni gamalreyndir starfsmenn fýr- irtækisins. Þá hefur Norsk Hydro samþykkt breyttar áherslur í starl'i með aukinn hagnað að markmiði. Aherslan verður á þremur starfs- sviðum: olíu og orku, léttmálmum og landbúnaði. Russar segjast „konrnir tH aö vera66 RÚSSLAND - Rússar vörpuðu enn sprengjum á Grosní, höf- uðborg Tétén- íu, í gær og sömuleiðis á Gudermes, sem er næst stærsta borg landsins, og nokkur stærri þorp. Strobe Talbott, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, var staddur í Moskvu í gær og hvatti hann Rússa til þess að reyna frekar samningaleiðina hcldur en að beita hernaðaraðgerð- um, sem kostað hafa fjöldann allan af óbreyttum borgurum lífið. Ljóst er að Rússar hafa enga trú á samningaleiðinni og hafa hvað eft- ir annað sagt að þeir muni halda ótrauðir áfram árásum þar til þeir hafi brotið téténska hryðjuverkamenn endanlega á bak aftur. Igor Sergejev, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði einnig síðast á fimmtudag að Rússar séu „komnir til að vera“ í Téténíu. I/iadimír Pútín forsætisráðherra og ígor Sergejev varn- armálaráðherra Rússlands. Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.