Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBF.R 1999 - S
FRÉTTIR
Kyoto-kröfixm
veí tekið í Boirn
Nú fer fram fundur um loftslagsmengun í Bonn og hefur málflutningur ís-
lendinga fengi góðan hljómgrunn.
Góð viðbrögð við mál-
fhitningi íslendinga á
íimdi aðildamkja
Kyoto-bókimariimar.
Um þessar mundir fer fram í Bonn
í Þýskalandi 5. aðildarríkjafundur
loftlagssamningsins frá Kyoto-ráð-
stefnunni í Japan fyrir tveimur
árum. Þar eru ýmis mál til um-
ræðu sem þarf að leysa til að koma
framkvæmd Kyoto-bókunarinnar í
gang. Hátt í 150 ríki áttu aðild að
Kyoto-bókuninni þar sem þau
skuldbundu sig til að draga úr los-
un mengandi efna út í andrúms-
loftið, svokallaðra gróðurhúsaloft-
tegunda. Aðeins 14 ríki hafa full-
gilt bókunina og eru það allt þró-
unarríki. Helsta umræðuefnið nú
er hvernig iðnríkin komast að sam-
komulagi um reglur til að íylgja
eftir bókuninni, en iðnríkin eru
talin valda 55% af allri losun gróð-
urhúsalofttegunda í heiminum.
Bókunin gerði ráð fyrir að draga úr
losuninni um 5% á árunum 2008-
2012, miðað við útblástur 1990.
„Það var afstaða okkar að ganga
frá ákvörðunum um okkar sérmál
á næsta aðildarríkjafundi haustið
2000. Við lögðum til ákveðnar nið-
urstöður og fengum góðan stuðn-
ing við þær. Við lítum svo á að
tæknilegri umljöllun um okkar
mál sé lokið og nú sé þessi fundur
sá tímapunktur til að breyta um-
Qöllun í að undirbúa pólitíska nið-
urstöðu næsta haust,“ sagði Þórir
Ibsen, sendiráðunautur í utanrík-
isráðuneytinu en hann hefur setið
fundinn í Bonn ásamt Halldóri
Þorgeirssyni úr umhverfisráðu-
neytinu og Albert Jónssyni frá ut-
anríkisráðu neytinu.
Reglur ófrágengnar
Fundurinn hefur síðustu daga ver-
ið á „embættismannastiginu" og
eftir helgi er von á umhverfisráð-
herrum og háttsettari embættis-
mönnum. Siv Friðleifsdóttir fer á
fundinn ásamt Magnúsi Jóhann-
essyni, ráðuneytisstjóra í umhverf-
isráðuneytinu, og Ueirum.
„Það getur verið hagkvæmara,
bæði efnahagslega og umhverfis-
lega, að stuðla að framkvæmdum
annars staðar en heima hjá þér til
að ná fram heildarhagkvæmni.
Það er ekki búið að ganga frá regl-
um sem eiga að stýra þessu ferli.
Reglur þurfa að vera til að stýra
viðskiptunum, hvernig þau fara
fram, hvernig skilgreina eigi sam-
eiginlegar framkvæmdir, hver skuli
votta þær og svo framvegis. Á með-
an ekki er búið að ganga frá þess-
um reglum þá fullgildir ekkert iðn-
ríki bókunina. Meginskuldbinding
bókunarinnar á bara við um iðn-
ríkin. Þróunarríki taka ekki á sig
neinar skuldbindingar og því er
ósköp einfalt fyrir þau að fullgilda
hana,“ sagði Þórir. — BJB
Sameinmg
hjáABR
Á framhaldsaðalfundi Alþýðu-
bandalagsfélags Reykjavíkur, sem
haldinn var í fyrrakvöld, var geng-
ið frá sameiningu Alþýðubanda-
lagsfélaganna ABR og Birtingar -
Framsýnar. Sameiningin fór
þannig fram að aðalfundur Birt-
ingar - Framsýnar sl. miðvikudag
samþykkti að félagið yrði lagt nið-
ur sem stjómmálafélag en sækti
þess í stað um aðild að ABR. Sú
umsókn var svo samþykkt á fram-
haldsaðalfundi ABR í gærkvöld.
Með sameiningu félaganna er
orðið til fjölmennasta Alþýðu-
bandalagsfélag landsins.
Á aðalfundi ABR var kjörin ný
stjórn en hana skipa: Heimir Már
Pétursson formaður, Kristinn
Karlsson varaformaður, Herbert
Hjelm, Nanna Rögnvaldardóttir,
Helgi Hjörvar, Sjöfn Kristjáns-
dóttir og Guðrún Sigurjónsdóttir.
Vidskiptahalliim
er áhyggjuefni
þess háttar, sem virðast bera uppi
innflutningsaukninguna í stað bíi-
anna framan af hagsveiflunni,
sagði Þórður.
Jafnt í matvæli og bíla
Fólksbílakaupin námu tæpum
milljarði í september, sem var 20%
lægri upphæð en mánaðarmeðal-
talið þar á undan. Rúmlega 11
milljarðar voru famir í fólksbíla og
önnur farartæki til einkanota í
septemberlok, sem er 29% meira
en á sama tíma í fyrra. Sama upp-
hæð fór í matar- og drykkjarvörur,
sem er 11 % aukning. Og töluvert á
24. milljarð í aðrar neysluvörur,
sem einnig er 11% aukning milli
ára, mest 17% í heimilistækjum,
húsgögnum og öðrum varanlegum
neysluvörum (sem jukust um 31%
í september) - en minnst 8% í fatn-
aði og öðrum hálf-varanlegum
varningi. Athygli vekur að bensín-
reikningurinn var hins vegar nán-
ast sá sami bæði árin, 1,4 milljarð-
ar. - HEI
Tilboði Qrca tekið
Auk Orca-hópsins eiga
lífeyrissjóðir helmings-
hlut í hópnum sem var
í gær boðið að kaupa
51% hlut ríkisins í
FBA á genginu 2,8.
Eftir mikil fundahöld fram eftir
degi í gær tilkynnti Framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu undir
kvöld að ein gild þátttökutilkynn-
ing hefði borist í útboðinu á 51%
hlut ríkisins í FBA. Þar sem aðeins
einn hópur gaf sig fram ákvað
nefndin að gera hópnum sölutil-
boð, þ.e. að kaupa hlutinn á lág-
marksgenginu 2,8 án þess að gera
formlegt kauptilboð. Nafnvirði
þess hlutar er 3.468 milljónir
króna og söluvirðið því 9.710,4
milljónir eða tæpir 10 milljarðar
króna. Hópnum er gefinn frestur
til að svara boðinu til 5. nóvember
næstkomandi. Greiðsla söluverðs-
ins á svo að berast í síðasta Iagi 15.
nóvember.
Breiður hópur
Samkvæmt heimildum Dags
stendur breiður hópur fjárfesta að
baki tilkynningunni, með Orca-
menn í broddi fylkingar. Munu
stórir lífeyrissjóðir eiga helmings-
hlut, eða um 25% af 51% sem í
boði er. Hlutur sjóðanna er því um
1,7 milljarðar. Alls eru Ijárfestarnir
hátt í 30, samkvæmt heimildum
blaðsins, sem jafnframt herma að
hópurinn hafi gert langtímasamn-
ing við helstu stjórnendur bankans
í tengslum við tilboðið.
Þar sem Ijárfestahópurinn er
breiður og Ijölmennur er það mat
fróðra manna að samstaða hafi
náðst í viðskiptalífinu um þetta til-
boð í bankann. — BJB
Um 20 milljarða halli
á vöruskiptajöfnuðm-
um í septemberlok
steiuir jafiivel fram úr
29 milljarða spá Þjóð-
hagsstofmiuar á áriuu
öllu.
Rúmlega 15% aukning á innflutn-
ingi fólksbíla og neysluvarnings
milli ára á sinn þátt í því að 20
milljarða halli var á vöruskiptajöfn-
uði landsmanna lyrstu níu mánuði
ársins, líkt og á sama tímabili í
fyrra, samkvæmt yfirliti Hagstof-
unnar.
„Viðskiptahallinn er vissulega
mikið áhyggjuefni," segir Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar. „Og samkvæmt þessum
tölum, stefnir hann jafnvel hærra
en við höfðum reiknað með í okk-
ar áætlunum. Áætlun Þjóðhags-
stofnunar gerir ráð lyrir 29 millj-
arða halla á þessu ári og þessar töl-
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar.
ur fyrir september benda til þess
að hallinn kunni að vera vanáætl-
aður - og að það sé í sjálfu sér ekk-
ert Iát á innflutningi," sagði Þórð-
ur. Það vekti meðal annars athygli,
að þótt hægt hafi mjög á bílainn-
flutningi þá virðist bara annars
konar neysluvörur hafa tekið kipp í
staðinn - sérstaklega allt sem snýr
að heimilum, heimilistækjum og
Þrír fengu Landgræðsluverdlaunin
Landgræðsluverðlaunin 1999 voru afhent af Iandbúnaðarráðherra í höf-
uðstöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti í gær. Að þessu sinni
fengu þrír aðilar verðlaunin fyrir framtak í þágu landgræðslu og gróður-
verndar. Þetta voru Jón Hallgrímsson, bóndi að Möðruvöllum á Jökuldal,
Leó Guðlaugsson, einn af stofnendum Skógræktarfélags Kópavogs, og
Ungmennahreyfing Rauða kross íslands. Verðlaunin voru fjöregg Land-
græðslunnar, smíðuð úr tré af hagleikshjónunum á Miðhúsum, þeim
Eddu Björnsdóttur og Hlyni Halldórssyni.
Forsetinn fær fiiblíu
Forseti Islands,
herra Olafur Ragn-
ar Grímsson, veitti í
gær viðtöku fyrsta
eintaki Biblíunnar
sem Hið íslenska
Biblíufélag gefur út
í viðhafnarbúningi í
tilefni kristnihátíð-
ar og árþúsunda-
móta árið 2000.
Herra Karl Sigur-
björnsson, biskup
Islands og forseti
Hins íslenska Bibl-
íufélags afhenti forsetanum eintak númer eitt við stutta athöfn að Bessa-
stöðum enalls er verkið gefið út í tvö þúsund tölusettum eintökum, ein
Biblía íyrir hvert ár sem liðið er frá fæðingu Frelsarans.
Bráðafiirgðaljósleiðari fiilaði
Ljósleiðarinn sem Iagður var til bráðabirgða í Mývatn í vikunni bilaði í
gærmorgun en þá hafði þegar verið hafin vinna við undirbúning á varan-
legri viðgerð Ijósleiðarans sem liggur á botni vatnsins. Við bilunina féll
niður símasamband í Mývatnssveit utan þess að hægt var að notast við
neyðarsíma á pósthúsinu í Reykjahlíð og að NMT-símasamband var á
svæðinu. Unnið var að lagningu annars ljósleiðara til bráðabirgða f gær
og vonast til að því verki lyki í gærkvöld.
Tvö þúsund klámmyndfiönd tekin
Lögreglan í Reykjavík hefur lagt hald á um tvö þúsund myndbandsspólur
með grófu ldámefni, þar á meðal efni þar sem börnum allt niður í fimm
ára er misþyrmt með hrottalegum hætti. Myndböndin fundust á heimili
rúmlega sextugs karlmanns og leikur grunur á að maðurinn hafi leigt út
klámefnið til annarra. Myndbandsspólurnar hafa nú allar verið skráðar og
eru í geymslu Iögreglunnar. Margt af þvf efni sem á spólunum er vekur
mikinn viðbjóð og óhug hjá Iögreglumönnum, enda um mjög gróft klám
og ofbeldi að ræða. Að auki var lagt hald á um tvö þúsund spólur með fjöl-
földuðu sjónvarpsefni.
Forseta afhent biblían í gær. - mynd: teitur